Morgunblaðið - 27.04.2005, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 35
Atvinnuauglýsingar
Starfskraftur óskast
í kventískuvöruverslun
Lífleg og sjálfstæð, snyrtileg og stundvís,
30 ára og eldri.
Vinnutími 14-18 og annar hver laugardagur.
Umsóknir sendist til augldeildar Mbl. eða í
box@mbl.is merktar: „T — 17040“.
Næturvörður
Starfsmaður óskast í næturvörslu á hóteli í
Reykjavík. Ráðningin er a.m.k. til 15/09 '05.
Umsækjendur fæddir 1982 eða fyrr koma ein-
ungis til greina. Krafa um tölvu- og enskukunn-
áttu. Hentar háskólafólki mjög vel. Verður að
geta hafið störf sem fyrst. Einungis reyklausir
koma til greina. Starfið er ca 15 kvöld og nætur
í mánuði. Ferilskrár með mynd óskast sendar
á lobby@hotelvik.is
Hótelstörf
Hótel Park og Hótel Garður auglýsa eftir starfs-
fólki í sumarstörf. Eftirfarandi störf eru í boði:
Gestamóttaka/Næturverðir:
Reynsla af slíkum störfum er æskileg.
Tölvukunnátta og góð enskukunnátta.
Sjálfstæð vinnubrögð og stundvísi.
Þjónustulipurð og vingjarnleiki.
Starfsfólk í ræstingu:
Reynsla af slíkum störfum er æskileg.
Stundvísi. Getur unnið vel undir álagi.
Áhugasamir sendi umsóknir á ensku fyrir
7. maí 2005 á: sumarhotel@hotmail.com
Raðauglýsingar 569 1111
Atvinnuhúsnæði
Smáheildsala/leiguhúsnæði
Til leigu nýinnréttuð jarðhæð við Dugguvog.
Fyrsta flokks skrifstofuaðstaða, vörulager/vöru-
móttökudyr. Upplýsingar í síma 896 9629.
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
Svalanna
verður haldinn í Víkingasal Hótels Loftleiða
miðvikudaginn 4. maí 2005 og hefst kl. 19.30.
Húsið opnað kl. 19.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Veislumatur og skemmtiatriði.
Fjölmennum!
Stjórnin.
Fyrirtæki
Eignaraðild/samruni
Sérvöruverslun með einstaka, viðskiptahug-
mynd (concept) hér á landi, á einum besta stað
á Laugaveginum óskar eftir meðeiganda/
samruna.
Áhugasamir sendi fyrirspurnir á auglýsinga-
deild Mbl. eða í box@mbl.is merktar:
„Viðskipti/Laugavegi — 17041“ fyrir lok 2. maí.
Til sölu
Pony Express hestvagn
6 hesta árg. '00. Er með svefnaðstöðu.
Tilboð óskast.
www.solutorg.is eða í síma 440 4434.
Tilkynningar
Auglýsing
Deiliskipulag í Hamarslandi, reiðhöll
og lokahús, Borgarbyggð
Samkvæmt ákvæðum 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, er hér með lýst eftir
athugasemdum við ofangreint deiliskipulag.
Um er að ræða reiðskemmu á svæði hesta-
manna og lokhús vatnsveitu í tengslum við
vatnsveituframkvæmd.
Tillagan mun liggja frammi á Bæjarskrifstofu
Borgarbyggðar frá 27.04. 2005 til 25.05. 2005.
Athugasemdum skal skila á bæjarskrifstofuna
fyrir 9.06. 2005 og skulu þær vera skriflegar.
Borgarnesi, 19.04. 2005.
Bæjarverkfræðingur Borgarbyggðar.
Auglýsing
Deiliskipulag iðnaðarsvæðis
við Vallarás 5-18, Borgarbyggð
Samkvæmt ákvæðum 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, er hér með lýst eftir
athugasemdum við ofangreint deiliskipulag.
Um er að ræða lóðir nr.
5,7,8,9,10,11,12,13,14,15,16, og 18 við Vallarás.
Tillagan mun liggja frammi á Bæjarskrifstofu
Borgarbyggðar frá 27.04. 2005 til 25.05. 2005.
Athugasemdum skal skila á bæjarskrifstofuna
fyrir 9.06. 2005 og skulu þær vera skriflegar.
Borgarnesi, 19.04. 2005.
Bæjarverkfræðingur Borgarbyggðar.
Auglýsing
Breyting á deiliskipulagi við Arnarklett
í Borgarnesi, Borgarbyggð
Samkvæmt ákvæðum 26. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, er hér með lýst eftir
athugasemdum við breytingu á deiliskipulagi
við Arnarklett samkvæmt tillögu dagsettri
22.04. 1999.
Breytingar felast í eftirfarandi atriðum:
Bætt er við einni fjölbýlishúsalóð. Við þetta
minnka lóðir nr. 28 og 30-32 samkv.eldra
skipulagi. Fjölbýlishús er leyfilegt á 2-4.
hæðum.
Fjölbýlishúsalóðir sem voru nr. 28 og 30-32
við Arnarklett breytast í lóðir nr. 28, 30 og
32-34.
Fjölbýlishúsalóð nr. 26 er stækkuð ásamt
því sem byggingareitur er rýmkaður. Enn-
fremur er leyfilegt að vera með kjallara.
Breytingartillagan mun liggja frammi á Bæjar-
skrifstofu Borgarbyggðar frá 27.04. 2005 til
25.05. 2005.
Athugasemdum skal skila á bæjarskrifstofuna
fyrir 9.06. 2005 og skulu þær vera skriflegar.
Borgarnesi, 19.04. 2005.
Bæjarverkfræðingur Borgarbyggðar.
Félagslíf
Sálarrannsókna-
félag Suðurnesja
Skúli Lórenzson miðill verður
með skyggnilýsingarfund mið-
vikudaginn 27. apríl kl. 20.30 í
húsi félagsins á Víkurbraut 13,
Keflavík. Húsið verður opnað kl.
20. Aðgangseyrir við inngang-
inn. Allir velkomnir.
Stjórnin.
HELGAFELL 6005042719 IV/V
Lf.
GLITNIR 6005042719 I Lf.
I.O.O.F. 9 1864278½ FI.
I.O.O.F. 7 18642771/2 0
I.O.O.F.181864278Bk.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
STOFNFUNDUR Báknbrjóta,
félags frelsissinnaðra nemenda í
MR, var nýlega haldinn. Félagið
berst fyrir því að dregið verði
verulega úr afskiptum ríkisins af
lífi fólks.
Á fyrsta fundi var stjórn fé-
lagsins kjörin. Hana skipa Hlyn-
ur Jónsson, formaður, Ari Guð-
jónsson, varaformaður, Marta
Guðrún Blöndal, ritari, Guð-
mundur Egill Árnason og Gunn-
ar Dofri Ólafsson.
„Einstaklingurinn ræður yfir
sjálfum sér, líkama sínum og
huga. Ráðstöfunarréttur hans yf-
ir eignum sínum er helgur. Á
þessu frelsi má ekki brjóta nema
ef einstaklingurinn brýtur á öðr-
um. Draga ætti verulega úr af-
skiptum ríkisins af lífi fólks. Ein-
staklingurinn ætti að fá að ráða
því sjálfur hvers hann neytir og
hvað hann gerir í tómstundum
sínum svo lengi sem hann skaðar
ekki aðra,“ segir í ályktun félags-
ins.
Félagið vill einkavæða stofn-
anir og fyrirtæki sem eru í eigu
ríkisins. Dæmi um slíka stofnun
er Ríkisútvarpið. „Þau rök eru
notuð fyrir því að það sé í hönd-
um ríkisins að viðhalda verði
menningu þjóðarinnar. Fólkið
sjálft ætti að fá að ákveða sína
eigin menningu. Menningu má
ekki neyða upp upp á annað
fólk.“
Stofnuðu félagið
Báknbrjóta í MR
FRÉTTIR
BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarðar lýsir í
ályktun yfir miklum vonbrigðum með
þá ákvörðun Ríkiskaupa að ganga að
tilboði pólskrar skipasmíðastöðvar í
viðgerðir á varðskipunum Ægi og Tý.
„Með þessu verklagi er vegið að rót-
um íslensks iðnaðar, sem hlýtur að
vekja furðu, ekki síst í ljósi þess að ís-
lenskum stjórnvöldum er fullljóst að
skipasmíðar hér á landi keppa á þessu
sviði við ríkisstyrktan erlendan at-
vinnurekstur. Sömu mistök og stjórn-
völd stuðluðu að með verklagi sínu árið
2001 virðast hér vera í uppsiglingu. Á
þetta hafa bæjarstjórn Akureyrar,
Samtök iðnaðarins og Samiðn bent.
Skipasmíðaiðnaður í Hafnarfirði hef-
ur á umliðnum árum þurft að þola mjög
erfiðar aðstæður á mörkuðum í sam-
keppni við erlendan iðnað, sem í skjóli
styrkja hefur getað beitt sér á annan
hátt í verðum og tilboðum. Hafnfirskur
skipasmíðaiðnaður á fullt erindi í þá
flóru íslensks iðnaðar sem er mjög mik-
ilvæg í ljósi framtíðarverkefna hér á
landi. Mikilvægt er að fullt tillit sé tekið
til þess beina og óbeina hagnaðar sem
íslenskt samfélag hefur af því að verk-
efni í iðnaði séu unnin hér á landi.“
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar skorar á
stjórnvöld að beita sér fyrir því að
ákvörðun Ríkiskaupa um að taka hinu
pólska tilboði verði endurskoðuð, verk-
efnið verði boðið út að nýju, og tryggja
að viðgerðir á varðskipunum fari fram í
íslenskum skipasmíðastöðvum.
Gagnrýnir harðlega
ákvörðun Ríkiskaupa
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
Smyslov
heimsmeistari
í skák 1957
Varðandi grein mína um
HM-einvígið í skák varð sá
ruglingur hjá mér að Botwinnik
og Tal hefðu teflt um HM-tit-
ilinn 1957. Það voru Botwinnik
og Smyslov og varð Smyslov
heimsmeistarinn. Bobby Fisch-
er benti mér á þennan mis-
skilning og þakka ég honum
fyrir það. Eiginmaður minn,
Freysteinn Þorbergsson, átti
mynd frá þessari keppni af
Botwinnik og Tal en það var
ekki frá úrslitakeppninni. Ann-
að fyrirkomulag mun hafa verið
á keppninni þá en síðar varð.
Bið ég velvirðingar á þessum
mistökum. Annað í greininni
taldi Fischer rétt með farið.
Edda Þráinsdóttir
LEIÐRÉTT