Morgunblaðið - 27.04.2005, Qupperneq 36
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Svínið mitt
© DARGAUD
FRÁBÆRT
GROIN!
GROIN!
OG
SVO...
ÞENNAN KANN
ÉG EKKI GROIN
ÉG VERÐ AÐ FARA
GROIN
HÚN ER
HEIT
!?!
NÚ ER NÓG KOMIÐ ADDA!
HANN ER ÁGÆTUR ÞESSI
GUNNI EN EF ÞÚ SEGIR
SVONA GRÓF ORÐ AFTUR
ÞÁ....
ÞETTA GENGUR
EKKI LENGUR
AAAAHHHHHH!! HVAÐ
ERTU AÐ
GERA?
HRINGJA Í
PABBA
HANS!
GOTT KVÖLD HERRA. ÉG ER
PABBI HENNAR ÖDDU.
ÞAÐ ER KOMIÐ UPP
SVOLÍTIÐ VANDAMÁL
EFTIR AÐ GUNNI KOM Í
HEIMSÓKN TIL OKKAR
ÞETTA ER ALVEG
ÓTRÚLEGT! ÉG ÆTLAÐI
EINMITT AÐ HRINGJA Í
ÞIG OG SEGJA ÞAÐ
SAMA
BORÐAÐU
MATINN
ÞINN
NEI, ÉG ER
HÆTTUR AÐ
BORÐA
SVÍNAKJÖT
ÞAÐ ER FÓLK VIÐ SÍMANN NÚNA TIL
ÞESS AÐ TAKA VIÐ ÞINN PÖNTUN!
ÉG ÆTLA EKKI AÐ PANTA
NEITT Í KVÖLD, ÞANNIG AÐ ÞIÐ
GETIÐ BARA FARIÐ HEIM NÚNA
HALLÓ?
HALLÓ?
FUGLINN
NÆR ALDREI
AÐ LOSA MIG
ÉG HELD AÐ ÉG VERÐI AÐ
ÝLFRA AF ÖRVÆNTINGU...
HVAÐ
VAR NÚ
ÞETTA?
EINHVER AÐ
ÝLFRA AF
ÖRVÆNTINGU
KALVIN, TRÚIR
ÞÚ Á GUÐ?
ÞAÐ HLÝTUR AÐ VERA
EINHVER SEM ER AÐ
GERA LÍFIÐ MITT ERFITT
Dagbók
Í dag er miðvikudagur 27. apríl, 117. dagur ársins 2005
Unglingsstúlkasem Víkverji
þekkir hefur löngun
til að vinna í verslun.
Þetta er ljúf og hæfi-
leikarík stúlka og
Víkverji var einn af
þeim sem hvatti
hana óspart til að
drífa sig og ganga í
búðir til að athuga
hvort vantaði fólk í
afgreiðslu. Fyrsta
búðin á listanum var
uppáhalds-
fataverslunin sem er
m.a. í Kringlunni. Í
stað þess að taka
stúlkunni opnum örmum og spjalla
við hana var hún spurð um aldur og
fékk svo með þjósti það svar að hún
væri alltof ung. Stúlkan var framlág
þegar hún hringdi í Víkverja og
sagði honum frá heimsókninni. Hún
ákvað samt að prófa einn stað í við-
bót og lagði þá leið sína í H&M sem
er til húsa í Kringlunni. Þar tók
elskuleg stúlka á móti henni og
sagði henni að koma seinna því eig-
andinn væri ekki við fyrr en að
nokkrum dögum liðnum. Stúlkunni
óx ásmegin og hún sagðist ætla að
sniðganga búðina þar sem móttök-
urnar voru svona leiðinlegar og
kaupa oftar í H&M.
Víkverji þurfti aðskreppa til sýslu-
manns fyrir nokkru þar
sem ein eign kom ekki
fram í skjali sem gefið
var út til konu um eign-
ir í óskiptu búi sem hún
situr í. Víkverji ætlaði
að láta bæta umræddri
eign inn í fyrir hana.
Þegar farið var að at-
huga málið kom í ljós
að eignin var skráð í
frumpappírana en ekki
í þetta skjal til vinkon-
unnar. Talað var við
konuna sem upphaflega
hafði séð um málið.
Hún hafði hinsvegar engan tíma til
að sinna Víkverja, þurfti að setja í
sig augndropana og sagði að það
tíðkaðist ekki að bæta svona við eft-
ir á enda ekki alltaf sem eignir væru
allar tíundaðar í þessu skjali. Með
það hvarf hún á braut og Víkverji
sat eftir og vissi ekki sitt rjúkandi
ráð. Vinkona Víkverja þurfti að hafa
eitthvað í höndunum yfir að þessi
eign væri hluti af óskiptu búi sem
hún sæti í. Niðurstaðan varð sú að
konan á símanum aumkaði sig yfir
Víkverja og ljósritaði úr frumgögn-
unum fyrir hann. Fólk á svona stöð-
um þarf að hafa þjónustulund. Svo
einfalt er það.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Þjóðleikhúsið | Nýtt verk Birgis Sigurðssonar, Dínamít, verður frumsýnt á
Stóra sviði Þjóðleikhússins í kvöld. Verkið fjallar um heimspekinginn Fried-
rich Nietzche og Elísabetu systur hans sem leikin eru af Hilmi Snæ Guðna-
syni og Margréti Vilhjálmsdóttur. Leikstjóri er Stefán Baldursson.
Aðrir leikendur eru Brynhildur Guðjónsdóttir, Björn Thors, Baldur
Trausti Hreinsson, Elva Ósk Ólafsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Guðrún S. Gísla-
dóttir, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Ívar Örn Sverrisson, Kjartan Guð-
jónsson, María Pálsdóttir og Jóhannes Haukur Jóhannesson.
Dínamít í Þjóðleikhúsinu
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
En þeir sögðu: „Trú þú á Drottin Jesú, og þú munt verða hólpinn og
heimili þitt.“ Og þeir fluttu honum orð Drottins og öllum á heimili
hans. (Post. 16, 31.–33.)