Morgunblaðið - 27.04.2005, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 37
DAGBÓK
Líta yfirmenn á meðalstórum vinnustöð-um á mæður sem annars flokks vinnu-afl? Er ennþá viðurkennt að vinnanhafi forgang í lífi karlmanna en börnin í
lífi kvenna? Eftir hverju fer það hvort litið er með
velþóknun eða vanþóknun á fæðingarorlofstöku
karla innan mismunandi vinnustaða? Eru fjöl-
skyldur að kikna undir öllum þeim kröfum sem
beinast að þeim; frá vinnuveitendum, við-
skiptavinum, sjálfum sér og umhverfinu?
Þetta er meðal þeirra spurninga sem þrír fé-
lagsvísindamenn, þau Gyða Margrét Péturs-
dóttir, Gísli Hrafn Atlason og Hildur Friðriks-
dóttir munu fjalla um á opnum morgunverðar-
fundi Félagsfræðingafélags Íslands, sem fram fer
á Grand hóteli á morgun, 28. apríl. Dagskráin
stendur yfir frá 8.15–9.50. Yfirskrift fundarins er:
Er foreldrahlutverkið hindrun í atvinnulífinu –
jafnvel fyrir pabba?
„Við höfum öll unnið að rannsóknum á sviði
fjölskyldumálefna sem tengjast jafnframt vinnu-
umhverfinu með einum eða öðrum hætti. Rann-
sóknir Gyðu og Gísla eru út frá jafnréttis- og
kynjasjónarmiðum en grunnurinn í mínum rann-
sóknum hefur verið streita og vinnuvernd og nú
síðast rannsakaði ég álag utan vinnu,“ segir Hild-
ur.
– Hverjar eru helstu niðurstöður?
„Mín trú er sú að varla er lengur hægt að tala
um vinnustreitu annars vegar og streitu utan
vinnu hins vegar, því líf fólks er orðið svo samofið
vinnunni að erfitt er að greina þarna á milli. Ég
vil því tala um lífsstílsstreitu.
Ennfremur styðja niðurstöðurnar við aðrar
rannsóknir um mikilvægi þess fyrir vellíðan og
heilsufar að upplifa að maður stjórni eða hafi
stjórn á aðstæðum. Það ætti því að vera sameig-
inlegur hagur stjórnenda og starfsfólks að finna
þá leið sem hverjum hentar, hvort sem það er
minna starfshlutfall, sveigjanlegur vinnutími,
sjálfræði um hvar og hvenær verkefni eru unnin
til að afrakstur dagsins sé eðlilegur en jafnframt
að fólk geti notið lífsins utan vinnu og byggt upp
ánægjulegt fjölskyldulíf.
Gyða komst að því að mæðurnar í rannsókninni
máta sig við eitthvert samfélagslegt norm sem
segir að allir eigi að vinna „mikið“ utan heimilis.
Konum eru ætluð afmörkuð hlutverk á vinnu-
markaði sem samræmast hlutverki þeirra sem
mæður. Á vinnumarkaði er því hið karllæga við-
mið allsráðandi.
Gísli er að vinna að samevrópskri rannsókn um
fæðingarorlofstöku karla í samvinnu við Jafnrétt-
isráð og mun hann skýra frá því sem þar birtist.
Félagsfræðingafélagið | Morgunverðarfundur um fjölskylduna og atvinnulífið
Eru mæður annars flokks vinnuafl?
Hildur Friðriksdóttir
er verkefnastjóri
starfsnámsbrautar
fyrir fullorðna í Verzl-
unarskóla Íslands. Hún
lauk MA-gráðu í fé-
lagsfræði frá HÍ árið
2004 og BA-prófi í fé-
lags- og atvinnulífs-
fræðum árið 2002 frá
sama skóla. Hildur var
blaðamaður á Morgun-
blaðinu en hefur undanfarin ár unnið að
ýmsum rannsóknum um líðan, heilsu og
vinnuumhverfi, m.a. í samvinnu við Vinnu-
eftirlitið og fleiri. Hún er gift Bjarna Halldórs-
syni fjármálastjóra og eiga þau þrjá syni.
Námsflokkarnir nauðsynlegir
ÉG ER alfarið á móti því að Náms-
flokkarnir verði lagðir niður. Ótal-
margir hafa hlotið þar frábæra
kennslu, til dæmis fullorðið fólk sem
fór á mis við góða almenna menntun á
yngri árum, ungir og gamlir, nýbúar
og útlendingar, svo einhverjir séu
nefndir. Þarna eru frábærir kenn-
arar, Guðrún og hennar fólk á guðs-
þakkir skildar fyrir sitt framlag.
Sirrí.
Gleraugu í
Garðyrkjuskólanum
BARNAGLERAUGU í ljósgrænu
hulstri töpuðust í Garðyrkjuskólan-
um í Hveragerði fimmtudaginn 21.
apríl. Finnandi er vinsamlegast beð-
inn að hringja í síma 690 4616.
Fáheyrður dóna-
skapur í Kastljósi
Í SÍÐUSTU viku var Ólína Þorvarð-
ardóttir, skólameistari Mennta-
skólans á Ísafirði, gestur í Kastljósi
Sjónvarpsins hjá Eyrúnu Magn-
úsdóttur.
Augljóst var strax í upphafi að
þáttastjórnandinn ætlaði að sauma að
skólameistaranum, sem reyndi með
kurteislegum hætti að svara spurn-
ingunum. Út yfir tók þó þegar Eyrún
áminnti Ólínu um sannsögli, þegar
hún í þriðja sinn vildi leiðrétta um-
mæli Eyrúnar um auglýsingar á stöð-
um/kennslugreinum. Þrátt fyrir þann
fáheyrða dónaskap stjórnanda Kast-
ljóssins svaraði Ólína af kurteisi og
rökfestu sér og skóla sínum til sóma.
Það er lágmarkskrafa að þátta-
stjórnendur komi fram við gesti sína
af kurteisi, en svo var ekki í þetta
skipti.
Burtséð frá dónaskapnum er það
kjarni málsins eftir orðaskipti þeirra
Eyrúnar og Ólínu um auglýsing-
arnar, að aðeins önnur þeirra fór þar
með rétt mál. Persónulega er ég ekki
í vafa um hvor þeirra það var. En ég
bíð enn eftir því að það verði upplýst
opinberlega og að sú sem fór með
rangt mál biðji hina og okkur Kast-
ljóssáhorfendur afsökunar.
Jóna Ágústa Ragnheiðardóttir
Laugarnesvegi 108.
Bíllyklar og göngu-
stafur fundust
BÍLLYKLAR voru skildir eftir í
söluturninum í Glæsibæ fyrir u.þ.b.
tveimur vikum. Eigandi má vitja
þeirra í söluturninum. Á sama stað
gleymdist einnig fyrir nokkru síðan
göngustafur.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
60 ÁRA afmæli. Fimmtudaginn28. apríl verður sr. Gylfi Jóns-
son, héraðsprestur Þingeyinga, sex-
tugur.
Á afmælisdaginn mun hann syngja á
vortónleikum á Möðruvöllum í Hörg-
árdal með kirkjukór Möðruvallaklaust-
ursprestakalls og Samkór Svarfdæla.
Laugardaginn 30. apríl taka þau
hjónin á móti fjölskyldu, vinum og ná-
grönnum á heimili sínu á Möðruvöllum
í Hörgárdal frá kl. 16.00 og langt fram
eftir kvöldi.
80 ÁRA afmæli. 30. apríl nk. verð-ur áttræður Ólafur M. Ólafs-
son, útgerðarmaður, Brekkuvegi 7,
Seyðisfirði. Hann og eiginkona hans,
Hlín Axelsdóttir, taka á móti gestum í
tilefni þess í félagsheimilinu Herðu-
breið, Seyðisfirði milli kl. 17 og 19 á af-
mælisdaginn. Allir velkomnir.
75 ÁRA afmæli. Í dag 27. apríl ersjötíu og fimm ára Elínborg
(Ella) Jóhannesdóttir, Sielski, búsett í
Kaliforníu. Er hún stödd hér á landi
um þessar mundir.
50 ÁRA afmæli. Í dag, miðviku-daginn 27. apríl, er fimmtíu ára
Jón Helgi Guðmundsson, stöðvarstjóri
SHS. Hann og kona hans, Guðrún Ás-
björnsdóttir, taka á móti ættingjum og
vinum í félagsheimili Þróttar, föstu-
daginn 29. apríl kl. 19–22.
KARLAKÓRINN Þrestir í Hafn-
arfirði heldur vortónleika í kvöld
og annað kvöld í Hafnarborg í
Hafnarfirði kl. 20.00 og á laug-
ardaginn kl. 16.00 í Neskirkju.
Jón Kristinn Cortez, stjórnandi
kórsins, segir að þetta séu hefð-
bundnir karlakórstónleikar, þeir
byrji á alíslensku efnisvali sem
stendur fram að hléi en eftir hlé er
efnisval mun „léttara“ og eftir
ýmsa höfunda innlenda sem er-
lenda þar sem Örn Árnason leikari
kemur fram sem einsöngvari.
„Prógrammið á vortónleikum er
að vissu leyti léttara nú þó ekkert
sé slegið af í faglegum kröfum. M.a.
syngur kórinn hið gullfallega lag
Ísland eftir Sigfús Einarsson sem
fyrst var flutt í júní 1929 á norrænu
móti karlakóra í Kaupmannahöfn,
en hefur lítið heyrst síðan. Einni má
nefna þjóðhátíðarlögin Heima og
Góða nótt eftir Oddgeir Krist-
jánsson við ljóð Ása í Bæ, lög sem
ekki heyrast oft í karlakórsútsetn-
ingu,“ segir Jón.
Karlakórinn Þrestir er fram-
kvæmdaaðili að landsmóti Sam-
bands íslenskra karlakóra sem
fram fer í lok októbermánaðar í
haust. Á landsmótinu mun Jón
Kristinn Cortez stjórna um 1.000
manna karlakór og stórri hljóm-
sveit, en hann er formaður söng-
málaráðs SÍK og aðalsöngstjóri
sambandsins. Auk þess munu Árni
Harðarson, stjórnandi Fóstbræðra
og Robert Faulkner, stjórnandi
Hreims, stjórna þessum stóra kór
og hljómsveit, sínu í hvoru lagi.
Vortónleikar Þrasta
Örn Árnason leikari verður gestur
Karlakórsins Þrasta á vortónleikum
kórsins.
Fáðu úrslitin
send í símann þinn
Heiti Potturinn
Trompmiði er auðkenndur með bókstafnum B en einfaldir miðar með E, F, G
og H. Gangi vinningar ekki út bætast þeir við Heita pott næsta mánaðar.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
4. flokkur, 26. apríl 2005
22794 B kr. 4.080.000,-
22794 E kr. 816.000,-
22794 F kr. 816.000,-
22794 G kr. 816.000,-
22794 H kr. 816.000,-
Ármúla 15 • sími 515 0500 - fax 515 0509
www.fasteignakaup.is • fasteignakaup@fasteignakaup.is
Opið hús - Flúðasel 63, Reykjavík
Falleg 4ra herbergja íbúð við
Flúðasel. Lýsing íbúðar, sem er
á fyrstu hæð, er eftirfarandi:
Komið er inn í rúmgott hol sem
er með flísum á gólfi, eldhús er
með eldri snyrtilegri innréttingu
og góðum borðkrók, á gólfi eru
flísar. Stofan er mjög rúmgóð
með útgengi á góðar suðursvalir, á gólfi er parket. Herbergi,
sem eru þrjú, eru öll með dúk á gólfi, skápar eru í tveimur
þeirra. Baðherbergi er með flísum í hólf og gólf. Sérgeymsla er
í kjallara. Með íbúðinni fylgir stæði í sameiginlegu bílskýli.
Fjölbýlið er allt hið snyrtilegasta og er í góðu viðhaldi.
Nánari upplýsingar www.fasteignakaup.is
Páll Höskuldsson sölufulltrúi Fasteignakaupa
tekur á móti gestum milli kl.19 og 20 í dag
• Heimilisfang: Flúðasel 63, Reykjavík • Stærð eignar: 96,3 fm
• Staðsetning í húsi: 01 • Bílskúr: 32,8 fm
• Byggingarár: 1976 • Brunabmat: 13.586.000
• Lóðamat: 1.581.000. • Afhending eignar:
• Verð: 18,1 millj. Samkomulag
Páll Höskuldsson
gsm 864 0500,
tölvupóstur:
pall@fasteignakaup.is