Morgunblaðið - 27.04.2005, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn er spenntur yfir einhverju í
dag og langar til þess að segja öllum frá
því. Ekki síst langar hrútinn til þess að
deila hugsunum sínum með maka eða
vini.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Farðu varlega í að ákveða skilamörk eða
gera áætlanir í vinnunni í dag. Nú er
auðvelt að lofa mun meiru en maður get-
ur staðið við.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Einhver lofar þér öllu fögru í dag, taktu
því sem sagt er með fyrirvara. Merkúr
(hugsun) er beint á móti Júpíter (þensla)
í dag og eykur bjartsýni og fullvissu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Gættu þess að vera jarðbundinn og
raunsær í spám þínum og áætlunum fyr-
ir framtíðina. Þetta gildir bæði um at-
vinnuhorfur og heimilislíf.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Áætlanir um ferðalög og menntun líta
frábærlega vel út. Neyttu allra tiltækra
ráða. Ekki færa út kvíarnar í dag, þó að
það sé freistandi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ekki afsala þér öllum eigum þínum í
dag. Þér hættir til þess að fara gáleys-
islega með fé annarra í dag. Rausn-
arskapur er af hinu góða, glópska er
annað mál.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ekki væri vitlaust að gæta sín í samræð-
um við aðra í dag. Þú eða einhver annar
fer vandlega yfir strikið í einhverju til-
liti. Ekki færast of mikið í fang.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn er einstaklega bjartsýnn
varðandi eitthvað tengt vinnunni í dag.
Bjartsýni þín er kannski á rökum reist,
en gættu þess að láta ekki glepjast.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ónæði á heimavígstöðvum leiðir til þess
að bogmaðurinn fer fram úr sér í fé-
lagslífinu og í samneyti við smáfólkið.
Hann fer stundum fram úr sjálfum sér.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin er skynsöm og því líklegt að
bjartsýni hennar í málum sem tengjast
fasteignum, fjölskyldu og heimilislífi sé á
rökum reist. En, finnist henni eitthvað
bogið við ástandið er það líklega rétt.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Ekki gefa loforð sem þú getur ekki stað-
ið við, ekki síst í málum sem varða út-
gáfu, menntun, ferðalög og lögfræði.
Samræður við systkini eru vingjarnlegar
og hressar núna.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Passaðu upp á peningana þína í dag. Þig
langar mikið til þess að spreða. Hafir þú
ekki rambað fram á hið viðsjála pen-
ingatré, er ráðlegast að hemja sig að-
eins.
Stjörnuspá
Frances Drake
Naut
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert trú þínum málstað og ert líka
sjálfstæð manneskja og sjálfri þér nóg.
Þú sækist eftir árangri, ekki vegsemd
sem slíkri. Fjölskyldan og heimilið
eru þér mikilvæg.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Digraneskirkja | Söngvinir – kór aldraðra í
Kópavogi –halda sína árlegu tónleika í
Digraneskirkju laugardaginn 30. apríl kl. 16.
Stjórnandi Kjartan Sigurjónsson, Ekkókór-
inn syngur nokkur lög. Aðgangur ókeypis.
Allir velkomnir.
Saurbæjarkirkja á Hvalfjarðarströnd |
Freyjukórinn úr Borgarfirði heldur tónleika
í Saurbæjarkirkju á Hvalfjarðarströnd
fimmtudaginn 28. apríl kl. 21. Fjölbreytt
tónlist úr söngleikjum og kvikmyndum.
Kórstjóri er Zsuzsanna Budai.
Varmárskóli Mosfellssveit | Vortónleikar í
samkomusal Varmárskóla í Mosfellsbæ
miðvikudaginn 27. apríl kl. 20.30. Stjórn-
andi Helgi R. Einarsson. Einsöngvari Viktor
Guðlaugsson. Meðleikari á píanó Arnhildur
Valgarðsdóttir.
Myndlist
101 gallery | Helgi Þorgils Friðjónsson –
Skáhalli tilverunnar (Theo van Doesburg,
Goya og aðrir).
Árbæjarsafn | Í hlutanna eðli – stefnumót
lista og minja.
Café Karólína | Myndlistarsýning Baldvins
Ringsted.
Eden, Hveragerði | Málverkasýning Davíðs
Art Sigurðssonar – Milli mín og þín.
Energia | Málverkasýning aprílmánaðar.
Ólöf Björg.
Gallerí Gangur | Haraldur Jónsson, Af-
gangar.
Gallerí Sævars Karls | Kristján Jónsson
sýnir myndir unnar með blandaðri tækni.
Gallerí Terpentine | Odd Nerdrum og Stef-
án Boulter.
Gel Gallerí | Ólafur grafari sýnir verk sín.
Grensáskirkja | Guðbjörg Hákonardóttir
(Gugga) sýnir málverk í forsal.
Hafnarborg | Sýning Jóhannesar Dags-
sonar „Endurheimt“.
Einnig sýningin „List og náttúra með aug-
um Norðurlandabúans“.
Hallgrímskirkja | Vignir Jóhannsson – Sól-
stafir.
Hrafnista Hafnarfirði | Stefán T. Hjaltalín
sýnir akrílmyndir og fleiri listmuni í Menn-
ingarsalnum 1. hæð.
Kaffi Mílanó | Jón Arnar Sigurjónsson sýn-
ir á Kaffi Mílanó olíumyndir á striga.
Kaffi Sólon | Birgir Breiðdal eitt verk, ekk-
ert upphaf eða endir.
Listasafn ASÍ | Helgi Þorgils Friðjónsson.
Olíumálverk og skúlptúrar unnir í leir og
málaðir með olíulitum.
Listasafnið á Akureyri | Erró.
Listasafn Íslands | Lokað til 14. maí. Þá
opnar sýning á verkum Dieters Roth í sam-
vinnu við Listasafn Reykjavíkur á Listahá-
tíð.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Fjórar
glerlistasýningar.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Lokað.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Lok-
að.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós-
myndari – Heitir reitir.
Salurinn | Sýning Leifs Breiðfjörð. Stórir
steindir gluggar, svífandi glerdrekar eru
uppistaða sýningar Leifs. Sýningin stendur
til 1. maí.
Smáralind | Sýning Amnesty International
„Dropar af regni stendur yfir í Smáralind.
Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndasýning-
arnar Í Vesturheimi 1955 – ljósmyndir
Guðna Þórðarsonar og Íslendingar í
Riccione – ljósmyndir úr fórum Manfroni-
bræðra.
Listasýning
Smáralind | Sýndir eru einstaklingar sem
félagar Íslandsdeildar Amnesty Int-
ernational hafa átt þátt í að frelsa á 30 ár-
um.
Dans
Árbæjarþrek | Ný dansnámskeið hefjast
27. apríl í Árbæjarþreki. Kennt verður: Hip-
hop, Jamaican rhythm og Modern maga-
dans. Leiðbeinandi: Brynja Pétursdóttir.
Upplýsingar og skráning í síma: 821-4499
eða e-mail: hiphopdans@yahoo.com.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn – hús skáldsins er opið frá kl. 10–17.
Skemmtileg og fræðandi hljóðleiðsögn um
húsið. Sími 586-8066
netfang: gljufrateinn@gljufrasteinn.is.
Þjóðmenningarhúsið | Hallgrímur Pét-
ursson (1614–1674) er skáld mánaðarins í
Þjóðmenningarhúsinu.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning
Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til – menn-
ing og samfélag í 1.200 ár. Ómur – Landið
og þjóðin í íslenskri hönnun. Ljós-
myndasýningarnar Í Vesturheimi 1955 ljós-
myndir Guðna Þórðarsonar og Íslendingar í
Riccione, ljósmyndir úr fórum Manfroni-
bræðra. Opið kl. 11–17.
Mannfagnaður
Heilunarsetrið | Bænahringur í Heil-
unarsetrinu Dvergshöfða 27, Reykjavík. öll
miðvikudagskvöld kl. 20. Allir velkomnir,
Ólafía s.: 567-7888. Hádegishugleiðsla
miðvikudaga kl. 12.15. Nánari upplýsingar
veitir Ragnheiður s.: 868-3894/567-
7888.
Maður lifandi | Hláturæfingin verður í
heilsumiðstöðinni Maður lifandi, Borg-
artúni 24, miðvikudaginn 27. apríl kl. 17.30.
Ásta Valdimarsdóttir og Kristján Helgason
stjórna æfingunni. Aðgangur er ókeypis,
allir velkomnir.
Réttó 1953 | Þeir sem fæddir eru 1953 og
voru í Breiðagerðis- eða Réttarholtsskóla
ætla að hittast í tilefni þess að í vor eru 35
ár frá því að þeir hættu í skólanum. Skrán-
ing fyrir 27. apríl. Nánari upplýsingar veita:
Gústi 898-3950, Edda 848-3890, Einar
426-8137, Gunnar J. 551-4925, Jónas
894-6994 og á edda@simnet.is.
Fréttir
Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður við
Skálann á Blönduósi miðvikudaginn 27
apríl frá 11–16 Allir velkomnir.
ITC-samtökin á Íslandi | Landsþingið
verður haldið dagana 29.–30. apríl, í Odd-
fellowhúsinu Vonarstræti 10, í Reykjavík og
er öllum opið. Uppl.fást:www.simnet.is/itc,
eða s: 698-7204/897-4439.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar-
og fataúthlutun í dag kl. 14–17. Svarað í
síma þri.–fim. kl. 11–16. Tekið við fatnaði og
öðrum gjöfum þri. og mið. kl 11–16. Netf.
mnefnd@mi.is.
Fundir
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur | Menntaráð
Reykjavíkur og SAMFOK halda fund um
styttingu náms til stúdentsprófs í kvöld kl.
20–22 í sal Fræðslumiðstöðvar Reykjavík-
ur á Fríkirkjuvegi 1.
GSA á Íslandi | GSA-fundir eru haldnir öll
fimmtudagskvöld kl. 20.30 í Tjarnargötu
20. Nánari upplýsingar á www.gsa.is.
Héðinshús | Al-Anon fundur eru alla mið-
vikudaga kl. 21.
Krabbameinsfélagið | Stuðningshópur
kvenna, sem fengið hafa krabbamein í
eggjastokka, heldur rabbfund í húsi
Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8 í
Reykjavík, í dag kl. 17. Snorri Ingimarsson,
krabbameins- og geðlæknir, verður gestur.
Samfylkingarmiðstöðin | SffR velur full-
trúa á landsfund Samfylkingarinnar á fé-
lagsfundi í kvöld á Hallveigarstíg 1 kl. 20.
Samtökin FAS | Í kvöld kl. 20 verður
norska myndin ,,BE–skitne, syndige meg“
sýnd í félagsmiðstöð Samtakanna ’78,
Laugavegi 3, 4.h. Sr. Sigfinnur Þorleifsson
leiðir umræður á eftir.
Samtök psoriasis- og exemsjúklinga | Að-
alfundur SPOEX verður haldinn kl. 20, á
Grand hóteli Reykjavík, Sigtúni 38. Auk
venjulegra aðalfundastarfa fjallar Ragn-
heiður Alfreðsdóttir hjúkrunardeildarstjóri
um: Bláa lónið – nýja húðlækningastöð.
Vináttufélag Íslands og Kanada | Baldur
Hafstað prófessor fjallar um bréfabæk-
urnar um Harald Bessason, er varða Kan-
ada. Gísli Sigurðsson segir frá viðtölum við
Vestur-Íslendinga úr segulbandssafni
Árnastofnunar, í kvöld kl. 20 í Odda, húsi
félagsvísindadeildar H.Í, stofu 106.
Fyrirlestrar
Askalind 4 | Listin að segja nei og setja
mörk. Fyrirlestur miðvikudag 27. apríl, kl.
19.30 í Askalind 4.
Grand hótel Reykjavík | Þrír fé-
lagsvísindamenn, Gyða Pétursdóttir, Gísli
Atlason og Hildur Friðriksdóttir, kynna nið-
urstöður rannsókna um samþættingu fjöl-
skyldulífs og atvinnu á opnum morg-
unverðarfundi Félagsfræðingafélags
Íslands 28. apríl, kl. 8.15–9.50. Verð 1.500
kr. með morgunverði. Tilkynnið þátttöku til
harpan@hi.is.
Námskeið
Mímir – símenntun | Kristinn R. Ólafsson
mun sjá um tveggja kvölda námskeið um
höfuðborg Spánar dagana 26. og 28. apríl
kl. 20–22. Skráning í s. 580-1800 eða á
www.mimir.is.
MS-félag Íslands | Helgarnámskeið fyrir
landsbyggðarfólk um MS-sjúkdóminn verð-
ur haldið 29.–30. apríl, fyrir fólk með ný-
lega greiningu MS. Námskeiðið verður í
húsi MS-félags Íslands á Sléttuvegi 5,
Reykjavík. Upplýsingar veitir Margrét, fé-
lagsráðgjafi í síma 568-8620, 897-0923.
kennsla.is | Guðni Gunnarsson útskýrir
heimsspeki Rope Yoga í smáatriðum Und-
irstöðunámskeið fyrir þá sem eru tilbúnir
að hefja ferð sína til sannrar velmegunar.
Staður: Skúlatún 4, 2. hæð í dag kl. 18.00 -
22.00. Verð: 10.000 Skráning: kennsla-
@kennsla.is - 588 0411.
Ráðstefnur
Verkfræðideild HÍ | Ráðstefna um áhrif
sjóflóða og hækkunar sjávarstöðu á skipu-
lag, á morgun kl. 13.05–17.15, í VR–2, st.
157. www.hi.is/page/flod Frekari uppl.:
Trausti Valss., s. 8631339, tv@hi.is.
Börn
Tónabær | Á morgun kl. 16–18 verður opið
hús fríst.heimilum eftirtalinna skóla: Álfta-
mýrarsk., Breiðagerðissk., Fossvogssk.,
Háteigssk., Hlíðask., Hvassaleitissk., Laug-
arnessk., Langholtssk. og Vogask.
Útivist
Ferðafél. Útivist | Á fim. er farið kl. 18 frá
bílastæði við austurenda göngubrúarinnar
yfir Kringlumýrarbraut í Fossvogi og geng-
ið vestur með Öskjuhlíð, um Nauthólsvík
og út í Skerjafjörð og sömu leið til baka.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 þjóðhöfð-
ingjaætt, 8 dökkt, 9 minn-
ast á, 10 elska, 11 að baki,
13 dýrið, 15 lélegt hús, 18
viðlags, 21 vætla, 22 smán-
uð, 23 kaka, 24 kið.
Lóðrétt | 2 logið, 3 þraut-
in, 4 hafa upp á, 5 hefja, 6
fjall, 7 fornafn, 12 kraftur,
14 fálm, 15 lof, 16 þátttak-
andi, 17 smá, 18 kölski, 19
létu í friði, 20 hugur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 spors, 4 bókin, 7 önduð, 8 sukks, 9 ill, 11 gert, 13
saka, 14 íslam, 15 þjóð, 17 áttu, 20 rit, 22 ataði, 23 jatan, 24
totta, 25 nárar.
Lóðrétt |1 svöng, 2 oddur, 3 sóði, 4 basl, 5 kokka, 6 níska,
10 lalli, 12 tíð, 13 smá, 15 þvalt, 16 ósatt, 18 tetur, 19 Unn-
ur, 20 rita, 21 tjón.
Íslandsmótið í tvímenningi.
Norður
♠D5
♥10764 N/Allir
♦ÁG6
♣D1043
Vestur Austur
♠K1074 ♠G9863
♥-- ♥Á852
♦752 ♦1043
♣ÁK9865 ♣7
Suður
♠Á2
♥KDG93
♦KD98
♣G2
Íslandsmótið í tvímenningi hófst
um nónbil á föstudag og lauk um
náttmál á sunnudag. Keppendur
höfðu þá setið að spilamennsku
lengst af vökutíma og lagt að baki
182 spil, fyrst 90 spil í forkeppni, en
síðan spiluðu 24 efstu pörin 92ja
spila úrslitalotu.
Sigur unnu Ásmundur Pálsson og
Guðmundur Páll Arnarson með
59,3% skor. Í öðru sæti urðu bræð-
urnir Anton og Sigurbjörn Haralds-
synir (55,7%), en þriðju þeir Þröstur
Ingimarsson og Hermann Lárusson
(55,3%).
Ásmundur er 77 ára gamall og
þetta er tíundi titill hans í þessu
móti, en fyrsta Íslandstvímenning-
inn vann hann árið 1963. Ásmundur
kann öll brögðin í bókinni, en verst
þykir honum þegar hann „gleymir“
að nýta sér kunnáttuna. Spilið að of-
an er Ásmundi eftirminnilegast frá
mótinu. Ásmundur var í suður, sagn-
hafi í fjórum hjörtum, en í andstöð-
unni voru Frímann Stefánsson og
Björn Þorláksson:
Vestur Norður Austur Suður
Frímann Guðm. Björn Ásmundur
-- Pass Pass 1 hjarta
2 lauf 2 grönd * Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
* Sýnir fjórlitarstuðning við hjart-
að og 7-9 punkta.
Frímann kom út með laufás og
skipti yfir í tígul í öðrum slag. Ás-
mundur sá strax að þetta yrði einfalt
verkefni ef trompið hagaði sér skikk-
anlega, því hægt yrði að henda spaða
í tígul og trompa spaða í borði. Hann
spilaði trompi í þriðja slag. Björn
drap strax á hjartaás og skipti yfir í
spaða og nú var spilið tapað vegna
4-0 legunnar í trompi (sem er 10%).
„Ég er svekktur út af þessu spili,“
sagði Ásmundur á heimleið á sunnu-
dagskvöld. „Ég átti að spila laufi í
þriðja slag.“
„Það er nefnilega það,“ sagði
dálkahöfundur, sem hafði ekki tekið
eftir „afspili“ makkers. En sem dálk-
urinn er í fæðingu, fæðist sú hugsun
að laufspilið dugi ekki heldur ef vest-
ur DÚKKAR og lætur makker
trompa laufið til að spila spaða.
Það er því ástæðulaust að svekkja
sig yfir þessu spili – það stóð aldrei!
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson |
dagbok@mbl.is
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is