Morgunblaðið - 27.04.2005, Page 40
40 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
29. apríl kl. 20 - Frumsýning
1. maí kl. 20 - 2. sýn - 3. maí kl. 20 - 3. sýn
8. maí kl. 20 - 4. sýn - 10. maí kl. 20 - 5. sýn - Lokasýning
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
Íslenska óperan v/Ingólfsstræti Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík Sími: 511 6400
Ath. Aðgangur ókeypis
Apótekarinn eftir Haydn
Óperustúdíó Íslensku óperunnar og Listaháskóla Íslands
Laugardaginn 30. apríl kl.14.00-17.30. Sýningin er á hliðarsvölum
Íslensku óperunnar (gengið er inn um aðalinngang).
Allir velkomnir - Aðgangur ókeypis
DVD sýning Vinafélags Íslensku óperunnar
Otello eftir Verdi
Stóra svið
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
Fö 29/4 kl 20, Lau 7/5 kl 20, Lau 20/5 kl 20
Síðustu sýningar
HÉRI HÉRASON snýr aftur -
Fyndið - ferskt - fjörugt - farsakennt
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Fi 28/4 kl 20 - Aukasýning
BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA
- gildir ekki á barnasýningar!
Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur
Fö 29/4 kl 20 - UPPSELT,
Lau 30/4 kl 20 - UPPSELT,
Su 1/5 kl 20 - UPPSELT,
Mi 4/5 kl 20 - UPPSELT,
Fi 5/5 kl 20 - UPPSELT,
Fö 6/5 kl 20 - UPPSELT,
Lau 7/5 kl 20 - UPPSELT,
Su 8/5 kl 20 - UPPSELT,
Fi 12/5 kl 20
HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar
eftir vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar
Lau 30/4 kl 20, Su 8/5 kl 20, Fö 13/5 kl 20,
Su 22/5 kl 20, Fi 26/5 kl 20 - Síðustu sýningar
DRAUMLEIKUR eftir Strindberg
Samstarf: Leiklistardeild LHÍ
Fi 28/4 kl 20 - UPPSELT, Fö 6/5 kl 20 - AUKASÝNING
Fö 20/5 kl 20 - AUKASÝNING,
Fö 27/5 kl 20 - AUKASÝNING
Síðustu sýningar
RIÐIÐ INN Í SÓLARLAGIÐ
e. Önnu Reynolds
Í samstarfi við Leikhópinn KLÁUS
Lau 30/4 kl 20,
Fö 6/5 kl 20, Lau 7/5 kl 20
AUGNABLIKIÐ FANGAÐ - DANSLEIKHÚSIÐ
fjögur tímabundin dansverk
Su 1/5 kl 19.09
Síðasta sýning
TERRORISMI e. Presnyakov bræður
Fi 28/4 kl 20,
Fi 5/5 kl 20,
Fö 6/5 kl 20,
Fi 12/5 kl 20
KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Su 1/5 kl 14 - UPPSELT, Su 1/5 kl 17, Su 5/5 kl 14,
Lau 7/5 kl 14, Su 8/5 kl 14, Lau 14/5 kl 14
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
„verulega
vönduð...
og ég
táraðist líka“
H.Ó. Mbl
Pakkið á móti
Eftir Henry Adams
Fös. 29.4 kl 20 6. kortas. Örfá sæti laus
Lau. 30.4 kl 20 7. kortas. Örfá sæti laus
ÞRESTIR Á VORTÓNLEIKUM
MEÐ ERNI ÁRNASYNI
Karlakórinn Þrestir í Hafnarfirði heldur vortónleika
dagana 27. og 28. apríl í Hafnarborg í Hafnarfirði kl. 20.00
og laugardaginn 30. apríl kl. 16.00 í Neskirkju.
Einsöngvari með kórnum er Örn Árnason,
söngstjóri Jón Kristinn Cortez, undirleikari Jónas Þórir.
Á efnisskrá er fjölbreytt úrval laga eftir innlenda og
erlenda höfunda.SÍMI 545 2500 I WWW.SINFONIA.IS
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
STÓRVIÐBURÐUR Í HÁSKÓLABÍÓI, FIMMTUDAGINN 28. APRÍL KL. 19.30
Hector Berlioz ::: Fordæming Fausts
Einsöngvarar ::: Kristinn Sigmundsson, Beatrice Uria-Monzon,
Donald Kaasch og Ólafur Kjartan Sigurðarson
Kórar ::: Óperukórinn í Reykjavík, Karlakórinn Fóstbræður og Unglingadeild Söngskólans í Reykjavík
Kórstjórar ::: Garðar Cortes og Árni Harðarson
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Kaflar úr þessu stórvirki Berlioz hafa áður hljómað á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í áranna
rás, sér í lagi hinn vinsæli Rákóczi-mars, en verkið hefur aldrei fyrr verið flutt í heild sinni. Það er gleðiefni
að í hópi framúrskarandi einsöngvara eru tveir íslenskir stórsöngvarar, Ólafur Kjartan Sigurðarson og
Kristinn Sigmundsson sem ósjaldan hefur glímt við hlutverk hins djöfullega Mefistófelesar.
Fordæming
Fausts
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur að tillögu tónlistarráðs út-
hlutað styrkjum úr Tónlistarsjóði
og er það í fyrsta sinn að úthlutað
er úr sjóðnum. Alls bárust 123 um-
sóknir auk þess sem tekin var af-
staða til 6 umsókna sem bárust áð-
ur en auglýst var eftir umsóknum.
Ákveðið hefur verið að veita styrki
til 59 verkefna og þar af eru þrír
starfsstyrkir til þriggja ára. Á
fjárlögum 2005 eru 50 millj. kr. til
tónlistarsjóðs og nema styrk-
veitingar að þessu sinni um 35
millj. kr.
50 þúsund króna styrki fá Sig-
urður Bragason til tónleikahalds
og Kristján Orri Sigurleifsson fyr-
ir tónlistarhátíðina The Slide
Show Secret. 100 þúsund króna
styrki fá Blúshátíð í Reykjavík,
Camerarctica, Hólanefnd og Ár-
mann Ármannsson til sum-
artónlistarhátíða, og Rannveig
Fríða Bragadóttir og Eydís Franz-
dóttir til tónleikahalds. Þórunn
Ósk Marinósdóttir fær 125 þúsund
til að frumflytja verk eftir Hafliða
Hallgrímsson á Listahátíð, Gunn-
hildur Einarsdóttir 130 þúsund
fyrir tónleika á Írlandi og Rúnar
Óskarsson 150 þúsund fyrir tón-
leika í Hollandi.
200 þúsund króna styrki fá
Voces Thules til rannsókna og út-
gáfu á íslenskri miðaldatónlist, Ás-
hildur Haraldsdóttir, Elín Gunn-
laugsdóttir, Tríó Gorkí Park og
Sólveig Samúelsdóttir til plötuút-
gáfu, Unglingakór Grafarvogs-
kirkju, Tónlistarskóli Húsavíkur
og Lúðrasveit Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar til tónleikaferða
til útlanda, Kvennakórinn Létt-
sveit Reykjavíkur til frumflutnings
kórlaga, Rokkhátíð alþýðunnar á
Ísafirði, Hörður Torfason til tón-
leikahalds og Þjóðlagasveit Tón-
listarskólans á Akranesi til nýj-
unga í tónlistarkennslu.
250 þúsund króna styrki fá
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
Karólína Eiríksdóttir og Poulenc-
hópurinn til tónleikahalds, Skóla-
hljómsveit Kópavogs, Samband ís-
lenskra lúðrasveita og Graduale-
kórinn til tónleikaferða til útlanda
og Kór Öldutúnsskóla til starfsemi
sinnar á 40 ára afmælisári.
300 þúsund króna styrki fá
Bjarki Sveinbjörnsson fyrir tónlist
Páls Ísólfssonar, Tónlistardagar
Dómkirkjunnar og Is-nord hátíðin
í Borgarneskirkju.
400 þúsund króna styrki fá
Kórastefnan við Mývatn, Kirkju-
listavika í Akureyrarkirkju,
Djasshátíð Egilsstaða, Strengjahá-
tíð í Skálholti, hátíðin Músík í Mý-
vatnssveit og Íslensk tónverkamið-
stöð til kynningar á verkum
Hauks Tómassonar. Kammer-
músíkklúbburinn fær 450 þúsund
krónur til tónleikahalds.
500 þúsund króna styrki fá Sig-
tryggur Baldursson og Stein-
grímur Guðmundsson til tónleika-
halds og útgáfu, 12 tónar til
framsóknar á Norðurlöndum,
Sumartónleikar í Skálholti og Örn
Elías Guðmundsson til tónleika-
ferðar og markaðssetningar.
Hamrahlíðarkórinn fær 700 þús-
und krónur til þátttöku í mótinu
Northern Voices og Kamm-
ersveitin Ísafold fær 750 þúsund
til tónleikahalds á Íslandi.
800 þúsund króna styrki fá
Smekkleysa til að markaðssetja
Jagúar og Ske í Bretlandi og
Kammerkórinn Carmina til til
flutnings og hljóðritunar verka úr
íslenskum handritum. Þá fær Atón
900 þúsund til tónleikaferðar til
Bandaríkjanna.
Milljón króna styrki fá Þjóð-
lagahátíð á Siglufirði og Víólufélag
Íslands til að halda hér 33. al-
þjóðlega víóluþingið; og Kirkju-
listahátíð fær 1.100 þúsund.
Þeir þrír hópar sem undirrituðu
þriggja ára samstarfssamning við
ráðuneytið voru Stórsveit Reykja-
víkur sem fær 2 milljónir á ári,
Caput sem fær 4 milljónir á ári og
Kammersveit Reykjavíkur sem
fær 4,5 milljónir á ári.
Hlutverk tónlistarsjóðs er að
efla íslenska tónlist og stuðla að
kynningu á íslenskum tónlist-
armönnum og tónsköpun þeirra.
Tónlistarráð, sem leggur fjárveit-
ingartillögur fyrir mennta-
málaráðherra er skipað Jónatani
Garðarssyni formanni, Önnu Guð-
nýju Guðmundsdóttur varafor-
manni og Ástu Hrönn Maack. Síð-
ar á árinu verður auglýst aftur
eftir umsóknum.
Úthlutað úr Tónlistarsjóði
Morgunblaðið/Golli
Jagúar er í hópi þeirra sem njóta góðs af úthlutunum úr Tónlistarsjóði í ár,
en Smekkleysa fékk styrk til að markaðssetja Jagúar og Ske í Bretlandi.