Morgunblaðið - 27.04.2005, Blaðsíða 42
42 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Heimsfrumsýnd 29. apríl Heimsfrumsýnd 29. apríl
Miðasala opnar kl. 15.003
FRÁ SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
SCREAM MYNDIRNAR!
Hún fær þig til að öskra!
Magnaður hrollvekjutryllir frá Wes Craven!
f r i til r !
a a r r llv kj tryllir frá s rav !
WWW.BORGARBIO.IS
Sýnd kl. 8 og 10. 30 B.I 16 ÁRA
Sýnd kl. 5.50 Sýnd kl. 5.30
Magnaður spennutryllir
T H E INTERPRETER
Forsetinn er í lífshættu og hún er sú eina
sem getur fundið morðingjann
JET LI MORGAN FREEMAN BOB HOSKINS
A FILM BY LOIS LETERRIER
HÖRKU SPENNUMYND FRÁ
SÖMU OG GERÐU LÉON OG
LA FEMME NIKITA
Hann var alinn upp sem
skepna og þjálfaður til að
berjast. Nú þarf hann að
berjast fyrir lífi sínu!
Sýnd kl. 10 B.I 16 ÁRA
FRÁ SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
SCREAM MYNDIRNAR!I
Hún fær þig til að öskra!
Magnaður hrollvekjutryllir frá Wes Craven!
Sýnd kl. 6 og 8 B.I 16 ÁRA
Sýnd kl. 8 og 10.15. bi. 16 ára
Nýjasta meistaraverk Woody Allen
Gagnrýnendur eru sammála um að þetta sé hans
besta mynd í mörg ár. Mynd sem engin sannur
kvikmyndaáhugamaður má missa af!
Sýnd kl. 4 og 6. m. ísl tali
Sýnd kl. 4 og 6. m. ensku tali
Will Smith er
Sýnd kl. 8 og 10.30.
ÓÖH DV
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14 ára.
kl. 5.45, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
HL MBL M.J. Kvikmyndir.com
B.B. Sjáðu Popptíví
VINSÆLASTA MYNDIN Í USA UM HELGINA
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Aðalhönnuðir línunnar In the mood for ice
kváðust hvorki hafa farið í vettvangsferðir til Ís-
lands né Grænlands þegar línan var undirbúin,
þótt gripirnir beri nöfn eins og Igloo, Iceland og
Inuit. „Við fórum ekki einu sinni upp í Alpana!
Sköpunin á sér stað í höfðinu,“ sagði Rosmarie
Le Gallais, listrænn stjórnandi tískulínunnar.
„Og svo er alltaf hægt að fletta upp í bókum.
Góður hönnuður fær innblástur víða í umhverf-
inu, hæfileiki hans felst í því að tjá upplifanir
sínar í þrívídd.“ Yfirhönnuður húsbúnaðarlín-
unnar, Darko Mladonevic, sagði blaðamönnum
að oft væru það smáatriðin sem opnuðu dyr inn í
innri veruleika. „Kannski fullkomin sveigja í
myndlistarverki eða hreyfing konu úti á götu –
þetta geta orðið fyrirmyndir að útlínum vasa.“
In the mood for ice er fyrsta tilraun Swarovski
til þess að samhæfa hönnunarvinnu ólíkra
teyma, í þessu tilfelli tísku og húsbúnaðar.
Ákveðið var að þemað skyldi vera ís – þess
vegna var kynningin einmitt haldin á Íslandi –
en næsta þema er enn hernaðarleyndarmál.
Fjölbreytnin þarf samt að vera mikil þótt
gripirnir sverji sig í ætt við ís. „Fólk vill mis-
munandi hluti. Í Hollandi er til dæmis sterk hefð
fyrir húsbúnaði, Asíubúar eru meira fyrir skart.
Við lítum reyndar á alla okkar gripi sem skart-
gripi,“ sagði Robert Buchbauer, meðlimur
Swarovski-fjölskyldunnar og stjórnar fyrirtæk-
isins. „Að koma hingað er liður í því að kynna
sérkenni vörumerkisins. Við vildum halda hinu
sterka yfirbragði,“ sagði hann til skýringar á því
hvers vegna öll umgjörð og jafnvel vinnugögn
voru sveipuð hvítu og glæru. „Við höfum reynslu
af því að vera brautryðjendur. Einu sinni vorum
við hræddir við að vera of glitrandi en þeir tímar
eru liðnir, önnur skartgripafyrirtæki hafa fetað í
fótspor okkar. Auk þess bætast sífellt við efni,
aðferðir og litbrigði sem gera okkur kleift að
hanna skart fyrir ólíkt fólk og tískusveiflur,“
sagði Buchbauer og kvað ekki útilokað að Swar-
ovski myndi í framtíðinni feta sig lengra inn á
braut tískufatnaðar, en þegar eru á markaði
m.a. belti og kasmírtoppar frá Swarovski.
Mikið var um dýrðir þegar austurrískakristalsfyrirtækið Swarovski kynntihaust- og vetrarlínu sína í skartgripum
og fylgihlutum í Reykjavík á dögunum. Hingað
til lands var flogið sextíu blaðamönnum frá meg-
inlandi Evrópu og fylgdust þeir með frumsýn-
ingu á gripum úr línunni In the mood for ice.
Hafnarhúsinu, húsnæði Listasafns Reykjavíkur,
var af þessu tilefni breytt í undraveröld klaka og
kristals, með tilheyrandi þokuslæðingi og hús-
gögnum sem virtust klædd ísbjarnarskinni.
Vasar og skúlptúrar voru sýndir á klakastöpl-
um, en skartgripir og veski birtust í tískusýn-
ingu íslenskra fyrirsætna frá Eskimo models.
Erlendu blaðamennirnir tóku sérstaklega til
fagmennsku heimamanna sem útfærðu hug-
myndir Swarovski-stílistanna, en það voru
Eskimo models og fyrirtækið BaseCamp, að
ógleymdum matreiðslumeistaranum Hákoni Má
Örvarssyni á Vox, sem ásamt liði sínu bar á borð
veitingar við hæfi. Þá fór hópurinn í jöklaferð á
Langjökul, þar sem kristalsgripirnir voru mát-
aðir og myndaðir í snjónum.
Í landi íss og kristalla
Í porti Hafnarhússins var kvöldverður framreiddur í mjallhvítum umbúnaði og nýja línan In the mood for ice var afhjúpuð með tískusýningu.
Robert Buchbauer stjórnarmeðlimur og hönnuðirnir Rosmarie Le Gallais og Darko Mladenovic voru stoltir fulltrúar Swarovski á staðnum.
Sýningarstúlkur Eskimo models báru skart
og fylgihluti frá Swarovski.
Heitt og kalt í Hafnarhúsinu.sith@mbl.is
NÝJASTA stríðið á markaði leikja-
véla snýst um lófavélar. Fyrir
skömmu kom á markað ný bylting-
arkennd lófavél frá Nintendo og
næsta haust boðar Sony aðra eins
byltingu þegar kemur á markað í
Evrópu ný PlayStation lófavél, svo-
kölluð PSP-vél.
PSP er þegar komin út í Japan og
Bandaríkjunum og hafa viðbrögðin
ekki látið á sér standa þar enda hefur
hún fengið afbragðs dóma. Grafíkin í
leikjunum þykir framúrskarandi góð
í samanburði við eldri lófavélaleiki og
viðmótið þægilegra; viðbragðið betra
og stjórnunarmöguleikar fleiri
PSP inniheldur 4,3 tommu, 16:9
TFT LCD breiðskjá sem getur birt
alla liti (16,77 milljón liti) á 480 x 272
punkta, háupplausnar skjá. PSP inni-
heldur einnig innbyggða steríóhátal-
ara, tengi fyrir heyrnartól og fjölda
annarra tengja á borð við USB 2.0 og
802.11b þráðlaust LAN, þar sem not-
endur geta tengt sig við Netið og
spilað í gegnum þráðlausa tengingu.
Allt að 16 PSP tölvur í sama nágrenni
geta tengst hver annarri í gegnum
svokallað Ad Hoc Mode,
þar sem leikmenn geta
keppt sín í milli þráð-
laust. Þar að auki gerir
þráðlausi möguleikinn
notendum kleift að hlaða niður for-
ritum og efni í gegnum Netið með
Memory Stick Duo minniskorti.
PSP notar nýjan geymslumiðil
sem er diskur er nefnist Universal
Media Disc™ (UMDÔ). Þessi diskur
er næsta kynslóð diska sem sjá um
geymslu á gögnum og þótt hann sé
aðeins 60 mm í þvermál, þá getur
UMD geymt allt að 1.8GB af gögnum
– sem er þrefalt á við geymslugetu
venjulegs CD-ROM disks. UMD
geta geymt geysilega fjölbreytta af-
þreyingu á borð við þrívíddarleiki,
tónlist, kvikmyndir, myndbönd og
aðrar gerðir afþreyingar. Þar með er
PSP ekki einasta leikjavél heldur má
einnig nota hana til að hlusta á tónlist
og horfa á myndefni á borð við kvik-
myndir.
Samkvæmt yfirlýsingu frá for-
stjóra afþreyingardeildar Sony í Evr-
ópu eru nú yfir 100 PSP leikir í fram-
leiðslu og því verður framboðið
yfirdrifið þegar vélin kemur á mark-
að í Evrópu í haust.
PSP verður gefin út í svokölluðum
Value Pack, sem mun innihalda
fjölda aukahluta og afþreyingarefni,
en þar á meðal er hulstur utan um
vélina, 32MB minniskubbur, minn-
iskort, rafhlöðupakki, heyrnartól
með fjarstýringu, hleðslutæki, fest-
ing fyrir úlnlið og diskur sem inni-
heldur prufur af myndböndum, tón-
list og leikjum.
Eintak af Spider-Man 2 á UMD
Video disk geta fyrstu eigendur PSP
eignast frítt, með því að skrá sig í
gegnum vefsvæðið www.yourpsp-
.com, sem er vefsvæði Sony Comput-
er í Evrópu fyrir PSP.
Leikjavélar | Nýjung frá Sony PlayStation væntanleg
Lófatölvan á Evrópu-
markað 1. september
Nýja PSP-leikjavélin frá Sony er fjölnota ferðavél
sem býður upp á marga afþreyingarmöguleika.