Morgunblaðið - 27.04.2005, Side 44
44 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Frábær ævintýrahasarmynd sem líkt hefur verið við
Indiana Jones og James Bond myndirnar.
Toppmyndin í USA
Toppmyndin á Bretlandi - Toppmyndin á Íslandi
Byggð á metsölubók Clive Cussler
H.L. MBL
Ó.H.T Rás 2
Kvikmyndir.is
The Motorcycle Diaries kl. 5.30 - 8
9 Songs kl. 10,30 b.i. 16 ára
Garden State kl. 5.45 - 8 b.i. 16 ára
Beautiful Boxer kl. 10,15
Beyond the Sea kl. 5,30
Vera Drake kl. 8
Hole in my Heart kl. 10,30 b.i. 16 ára
Maria Full of Grace kl. 6 - 10 b.i. 14 ára
Napoleon Dynamite kl. 8
Don´t Move kl. 10,20 b.i. 16 ára
Million Dollar Baby kl. 5,30 b.i. 14 ára
Life and Death of Peter Sellers kl. 8
3
ÓSKARSTILNEFNINGAR
MBL
Ó.H.T Rás 2
Sennilega ein hispurslausasta kvikmynd
sem gerður hefur verið, eftir snillinginn
Michael Winterbottom, um ást, kynlíf og
tónlist. Stranglega bönnuð innan 16 ára og
alls ekki fyrir viðkvæma.
Aðsóknamesta óháða myndin í USA í fyrra.
Ein vinsælasta kvikmyndin á
Sundance kvikmyndahátíðinni.
S.V. MBL
A Hole in my Heart
ALLS EKKIFYRIRVIÐKVÆMA!
DV
Söngkonan Hafdís Huld, sem söng hér íeina tíð með Gus Gus, kemur við sögu í
bresku kvikmyndinni Layer Cake sem vænt-
anleg er í hérlend kvik-
myndahús í maí. Hafdís
Huld syngur þar lag sem
er áberandi í mikilvægu at-
riði í myndinni, ásamt
hljómsveitinni FC Kahuna.
Lagið sem heitir „Hayl-
ing“, hljómaði fyrst á plöt-
unni FC Kahuna Machine
Says Yes frá árinu 2002 en
varð þokkalega stór
smellur árið 2003 þegar það var margsinnis
hljóðblandað og kom við sögu á ófáum Ibiza-
safnplötunum.
Eins og fram kom í viðtali við Mugison íTímariti Morgunblaðsins á sunnudag
stóð til að plata hans Mugimama Is This
Monkeymusic? ætti að koma út í Evrópu nú í
vikunni. Samkvæmt heimasíðu hans mugi-
son.com hafa útgefendur plötunnar Accident-
al hinsvegar neyðst til að
fresta útgáfunni um viku.
Það kemur sér svolítið illa
fyrir Mugison sem hefur
Evrópureisu sína sem
fylgja á eftir plötunni nú í
vikunni. En þrátt fyrir út-
gáfutöfina eru dómar um
plötuna þegar farnir að
birtast í Bretlandi. Gagn-
rýnandi Time Out hælir
plötunni í hástert og segir hana „töfrandi“.
Allt sé nákvæmlega eins og það eigi að vera.
Því sé það engin furða að Mugison hafi sank-
að að sér verðlaunum á Íslandi fyrir plötuna.
Dagblaðið The Sun gefur plötunni líka fullt
hús, 4 af 4 mögulegum, og segir hinn „hæfi-
leikaríka“ Mugison vera „Beck á ísjaka“,
„Björk með höfuðverk“.
Söngkona ársins 2004, skv. Eddu-verðlaunahátíðinni, Ragnheiður Gröndal
syngur lagið „Ferrari á nýrri plötu höfund-
arins Páls Torfa Önundarsonar sem heitir
Jazzskotinn og er komin í verslanir. Þessi
suðræni söngur hljómaði fyrst í undankeppni
Evróvisjón árið 2003 en beið lægri hlut fyrir
Segðu mér allt eftir Hallgrím Óskarsson,
sem flutt var af Birgittu Haukdal í úr-
slitakeppninni í Ríga.
Ferrari mæltist þó vel fyr-
ir og hljómaði alloft á út-
varpsstöðvum eftir keppn-
ina og hefur nú að sögn
verið selt til Ítalíu.
Á Jazzskotinn eru alls 11
lög eftir Pál Torfa, sem er
yfirlæknir blóðmeina-
fræðideildar Landspítala –
háskólasjúkrahúss og dós-
ent við læknadeild Háskóla Íslands. Auk
Ragnheiðar syngja lögin landsþekktir söngv-
arar á borð við Pál Óskar Hjálmtýsson,
Kristjönu Stefánsdóttur og Ellen Kristjáns-
dóttur. Páll Torfi hefur komið víða við í tón-
listinni og verið í sveitum á borð við JB blús-
bandinu, Diabolus in Musica, Combó
Jóhönnu Þórhalls og Six-Pack-Latino og
samið lög á borð við „Pétur Jónatansson“ og
„Timbúktú“.
Fólk folk@mbl.is
KVIKMYNDIN Hólfið í gólfinu (Door in the
Floor) er byggð á hluta úr nýlegri skáldsögu
bandaríska rithöfundarins Johns Irving, Ekkja
í ár (Widow for One Year). Kvikmyndagerð-
armenn hafa lengi rennt hýru auga til skáld-
verka Irvings, og oftar en einu sinni reynt að
laga þau að hvíta tjaldinu, en sjaldnast með góð-
um árangri, eða allt þar til nú.
Hólfið í gólfinu er afar vel heppnuð kvik-
mynd, og án efa best heppnaða aðlögun hingað
til á verkum Irvings (sem stafar kannski af því
að hún forðast væmni og innantóm skringileg-
heit, þau einkenni höfundarins sem kvikmynda-
gerðarmenn hafa iðulega fest athyglina við).
Þótt langt sé um liðið eru hjónin Ted og Mar-
ion Cole (Jeff Bridges og Kim Basinger) enn á
flótta undan minningum um slysið þar sem þau
misstu syni sína tvo. Síðan hafa þau eignast
dóttur en slysið og þau andlegu sár sem það
skildi eftir hafa reynst hjónabandinu ofviða og
eru þau því að skilja. Ted er frægur barnabóka-
höfundur og stendur til að ungur mennta-
skólanemi, Eddie (Jon Foster), verji sumrinu
sem aðstoðarmaður hans. Eddie hyggst leggja
fyrir sig ritstörf og vonast hann til að læra
handtökin af samneytinu við Ted. Það er hins
vegar Marion sem tekur á móti Eddie við
bryggjuna og áhorfendum verður ljóst að það
sem drengurinn mun læra verður ekki allt í
tengslum við ritlistina. Marion og Eddie eru
innan skamms komin í samband, og flækir það
verulega samskipti piltsins og rithöfundarins
þar sem Ted er vel ljóst hvernig málum er hátt-
að. Ted virðist reyndar standa nokkurn veginn
á sama, enda á hann sjálfur í ástarsambandi við
húsmóður í bænum.
Að þessu leyti er hér um nokkuð hefðbundna
þroska- og ástarsögu að ræða. Það eru þó ekki
þessar sviptingar í söguþræðinum sem gefa
myndinni gildi, heldur umgjörðin utan um sögu-
þráðinn, hliðarsporin sem sagan tekur og tím-
inn sem myndin gefur sér til að fylgjast með
persónunum. Þá reynist samband Ted og Mar-
ion leyna á sér, dýptin kemur hægt og rólega í
ljós og sama á við um ákveðinn harmrænan
undirtón.
Þá standa leikarar sig vel, sérstaklega ber þó
að nefna Jeff Bridges sem fangar hrokann og
grimmdina sem leynist á bak við hæversku og
viðkunnanleika Teds.
Jeff Bridges og Kim Basinger standa sig vel í
„best heppnuðu aðlögun hingað til á verkum
Irvings“, eins og segir í umsögn.
Ungur nemur
KVIKMYNDIR
Regnboginn – IIFF
Leikstjórn: Tod Williams. Aðalhlutverk: Jeff Bridges,
Kim Basinger, Jon Foster og Elle Fanning. Bandarík-
in, 111 mín.
Door in the Floor / Hólfið í gólfinu Heiða Jóhannsdóttir
Alltaf er fengur að því þegar fræðilegarlistbækur koma út á íslensku. Tískaaldanna eftir Ásdísi Jóelsdóttur er
vegleg bók um fatnað og textíl þar sem bygg-
ingum, húsgögnum og myndlist er einnig gef-
inn gaumur en bókin var að koma út á vegum
Máls og menningar.
Í bókinni er velt upp spurningum á borð við
hvað er tíska og hvernig verða tískustraumar
til? Hvaðan koma þeir og hvað stjórnar þeim?
Í henni er rakin saga fatatísku og textíls allt
frá þeim fornþjóðum sem ýttu vestrænni
menningu úr vör yfir í stjörnur samtímans.
Bókin er 245 síður og er hún litrík því hana
skreyta á þriðja hundrað mynda.
Margar bækur hafa verið fáanlegar á
ensku þar sem áherslan er eingöngu á tutt-
ugustu öldina eða einhverja áratugi hennar
og er þetta því góð tilbreyting. Gaman er að
lesa bók sem þessa á íslensku og á hún áreið-
anlega eftir að nýtast í kennslu. Það kæmi að
minnsta kosti ekki á óvart í ljósi þess að höf-
undurinn kennir fata- og textílgreinar á
framhaldsskólastigi auk þess að hafa haldið
ýmis námskeið.
Tuttugasta öldin er þó alls ekki út undan
hér því hún tekur upp um hundrað síður bók-
arinnar. Margir hönnuðir sem starfa í nútím-
anum leita einmitt aftur til fortíðar eftir inn-
blæstri. Eitt dæmi um það er sjóræningjalína
Vivienne Westwood og annað nýlegra er
egypskar gyðjur John Galliano hjá Christian
Dior. Síðarnefndi hönnuðurinn hefur verið
einstaklega duglegur við að skapa eitthvað
nýtt úr gömlum hefðum og ferðast gjarnan til
framandi menningarsvæða í hugmyndaleit.
Tíska aldanna gefur gott tækifæri til aðskoða tískuna í menningarsögulegu ljósi.
Tíska er líka góður samtímaspegill og gefur
hugmyndir um svo margt annað í þjóðfélag-
inu. Í bókinni er saga tískunnar sett í sam-
hengi við tíðaranda og samfélagsþróun á
hverju skeiði. Um leið er í stuttum yfirlits-
köflum gerð grein fyrir tískustraumum í
byggingarlist, húsbúnaði og myndlist. Loks
er textinn brotinn upp með styttri greinum
sem taka fyrir ýmislegt frá barnafatnaði yfir
í baðföt.
Myndlist hefur nefnilega haft áhrif á tísku
eins og til dæmis má sjá á Mondrian-kjól Yves
Saint-Laurent frá 1965 en munstrið á honum
er tekið frá listamanninum. Form er minna á
byggingar hafa líka sést í fatnaði eins og í
spíss-brjóstahöldurunum sem Jean Paul
Gaultier gerði fyrir Madonnu.
Í bókinni er ekki fjallað um Ísland sér-staklega og getur höfundur þess í for-
mála, heldur er horft til hinnar almennu
sögu. Þjóðin er hluti af þeirri sögu þó Ísland
hafi löngum verið einangrað og búi ekki við
eins ríka tískusögu og margar aðrar þjóðir.
Það hamlar því ekki að hönnun blómstrar
hérlendis um þessar mundir eins og til dæmis
má sjá í sýningunni Ómur í Þjóðminjasafninu.
Þetta er sérstaklega skemmtilega sýning og
vonandi verða á safninu fleiri sýningar þar
sem hönnun og tíska eru í fyrirrúmi. Í sýning-
unni fá íslensk áhrif frá þjóðbúningum og
náttúrunni að njóta sín. Ásdís bendir á að til
séu góðar sögulegar heimildir um þjóðbún-
inga, útsaum, vefnað og fleira og væri gaman
að sjá aðra bók þar sem áherslan væri á hið
íslenska. Segir höfundur sjálf að þessi bók
ætti að vera góð hvatning til að afla sér frek-
ari upplýsinga um þennan þátt í þjóðmenn-
ingu okkar.
Tíska í samhengi
’Tíska er líka góður sam-tímaspegill og gefur hug-
myndir um svo margt annað
í þjóðfélaginu.‘
AF LISTUM
Inga Rún Sigurðardóttir
Ein af þeim myndum sem prýða bókina. Hér
klæðir hönnuðurinn Paco Rabanne fyrirsætu
í álkjól í geimstílnum.
ingarun@mbl.is