Morgunblaðið - 27.04.2005, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 45
Hetja.
Þjóðsögn.
Svampur
Svampur Sveinsson og félagar eru
komnir með sína fyrstu bíómynd.
Með íslensku og ensku tali.
Gerið ykkur klár... ... fyrir pelann!
ÁLFABAKKI
BOOGEYMAN KL. 8- 10
SAHARA KL. 8
9 SONGS KL. 10.30
AKUREYRI KEFLAVÍKKRINGLAN
Kvikmyndir.is
SAHARA kl. 6 - 8 - 10.20
BOOGEY MAN kl.10 B.I. 16
SVAMPUR SVEINSSON kl 6
Garden state kl 8
The Motorcycle Diaries kl. 10
THE ICE PRINCESS kl. 6 - 8 - 10
SAHARA kl. 6 - 8 - 10.30
BOOGEY MAN kl. 8.30 - 10.30 B.i. 16.
SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 6
Og þið sem hélduð að þetta væri bara einhver draugasaga
Frá framleiðendum
SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 4 - 6
SVAMPUR SVEINSSON m/ensku.tali. kl. 4 - 6 - 8.30 - 10.30
MRS. CONGENIAL. 2 kl. 8 - 10.30
SAHARA kl. 3.30 - 6 - 8 - 10.30
SAHARA VIP kl. 4.45 - 8 - 10.30
THE ICE PRINCESS kl. 4 - 6 - 8 - 10
THE PACIFIER kl. 4 - 6 - 8 - 10
Toppmyndin í USA
Toppmyndin á Bretlandi - Toppmyndin á Íslandi
Ice Princess
Sýningatímar
Frá þeim sem
færðu okkur
Princess Diaries
og Freaky Friday.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Sumarið kemur
Síðustu sætin
í maí og júní
frá kr. 36.990
Heimsferðir bjóða nú síðustu sætin í sólina í maí og júníbyrjun á
hreint ótrúlegu verði. Nú er sumarið komið á áfangastöðum okkar
og aldrei betra að njóta vinsælustu staðanna á fegursta tíma ársins.
Mallorca
25. maí - 9 sæti
1. júní - 17 sæti
Frá kr. 38.895
M.v. hjón með 2 börn, 2 – 11 ára,
vikuferð 25. maí, Brasilia.
Netverð.
Frá kr. 36.990
M.v. hjón með 2 börn, 2 – 11 ára,
stökktu tilboð í viku, 8. júní,
22. júní eða 6. júlí. Netverð.
Króatía
19. maí - 11 sæti
26. maí - 8 sæti
2. júní - uppselt
Frá kr. 46.095
M.v. hjón með 2 börn, 2 – 11 ára,
vikuferð 19. eða 26. maí,
Diamant. Netverð.
Benidorm
18. maí - 17 sæti
25. maí - laus sæti
1. júní - 11 sæti
Frá kr. 38.695
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára,
vikuferð 18. maí,
Rodrimar. Netverð.
Algarve
25. maí - 10 sæti
8. júní - 7 sæti
Frá kr. 39.990
M.v. hjón með 2 börn, 2 – 11 ára,
stökktu tilboð í viku, 8. júní,
22. júní eða 6. júlí. Netverð.
Costa del Sol
18. maí - laus sæti
25. maí - 14 sæti
1. júní - 17 sæti
Rimini
26. maí - 19 sæti
2. júní - laus sæti
9. júní - laus sæti
Frá kr. 44.395
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára,
vikuferð, Riviera.
Netverð.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is
SYSTUR Selmu Björnsdóttur,
Birna og Guðfinna, leggja henni lið
í Evróvisjón en þær semja dansinn
fyrir keppnina saman. „Við gerum
þetta allar þrjár saman,“ segir
Birna en hún segir þetta fyr-
irkomulag koma sér vel. „Þetta
virkar fínt fyrir keppnina. Sjálf
hefur Selma mikla skoðun á þessu
og henni finnst gott að hafa okkur
með því við höfum svo oft áður
unnið að ýmsum verkefnum saman.
Við skiljum hver aðra vel,“ segir
hún.
Birna hefur áður tekið þátt í
Evróvisjón. „Ég hjálpaði Selmu
þegar hún fór til Jerúsalem. Svo
fór ég með Jónsa út í fyrra. Selma
gerði atriðið en ég fór út með hon-
um til að hjálpa honum að æfa á
sviðinu,“ segir Birna sem líka hefur
unnið mikið með Guðfinnu en þær
hafa tekið þátt í uppfærslunum
Kalla á þakinu, Grease og Fame.
Samið fyrir sjónvarp
Margt þarf að hafa í huga í
Evróvisjón-undirbúningnum. „Það
skiptir aðallega máli hvernig lagið
er, það þarf að finna eitthvað sem
passar við lagið,“ segir Birna og
bendir á að stórt atriði sé að verið
sé að semja dans fyrir sjónvarp.
„Það er ekki beint verið að semja
þetta fyrir sviðsáhorfendur heldur
frekar sjónvarpstökuvélar. Það eru
miklar pælingar fram og til baka
og verið að breyta og bæta fram á
síðasta dag. Svo þarf að huga að
því að allir syngja sem eru á svið-
inu. Það takmarkar hreyfingarnar
því það má ekki bitna á söngnum
að vera að hoppa of mikið,“ segir
Birna en Selma dansar á sviðinu og
dansararnir eru jafnframt bakradd-
ir.
„Það mega bara sex manns vera
á sviðinu og við þurftum því að
leita að stelpum sem gátu bæði
hreyft sig og raddað lagið. Dans-
ararnir eru fjórir, Lovísa Gunn-
arsdóttir, Lovísa Aðalheiður, Álf-
rún og Arnbjörg, svo er ein
bakrödd sem er til hliðar, hún Reg-
ína,“ segir Birna, sem kemst ekki
til Kiev í Úkraínu til að fylgjast
með Selmu syngja „If I Had Your
Love“ í maí.
„Því miður kemst ég ekki með
þar sem ég er að fara eiga barn á
þessum tíma. Guðfinna ætlar að
fara núna. Ég verð bara að horfa
heima með tárin í augunum í þetta
sinn. Þess vegna erum við að vinna
svona mikið í atriðinu áður en við
förum, þannig að það verði alveg
tilbúið og ekkert klikki,“ segir hún
en æfingarnar eru miklar og margt
þarf að hafa í huga eins og hljóð-
nema, skó og búninga. „Svo þarf að
æfa að dansa á ákveðnum fleti því
sviðið er ákveðið stórt,“ segir
Birna, sem má ekki upplýsa of mik-
ið um atriðið.
Hún segir þó að Hildur Hafstein
hanni búningana. „Ég bíð spennt
að sjá hvað kemur út úr því. Ég er
búin að sjá teikningar og líst vel á
þetta.“
Æfingar hafa staðið yfir frá því í
mars, eftir að tökum á myndband-
inu lauk. Samkeppnin er hörð en
Birna upplýsir að margir kepp-
endur í ár verði með dansara á
sviðinu. „Maður reynir bara að
vinna í sínu og er ekkert að pæla í
hvað aðrir eru að gera. Við erum
með sérstakt lag sem er bæði ró-
legt og hratt, dramatískt og hresst.
Ég er rosalega ánægð með lagið og
finnst það frábært.“
Evróvisjón | Birna og Guðfinna Björnsdætur semja dans
fyrir Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva með Selmu
Þrjár
systur
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
Birna og Guðfinna Björnsdætur, systur Selmu, semja dansinn við lagið „If I
Had Your Love“ með henni og kemur afraksturinn í ljós í Kiev í maí.
Dansskóli Birnu Björnsdóttur hélt sýningu í Borgarleikhúsinu á dögunum.
Ef til vill komu einhverjar upprennandi Selmur fram í sýningunni.
Morgunblaðið/Þorkell
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111