Morgunblaðið - 27.04.2005, Page 48
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Örnólfur Þórsson er bæði liðtækur á raf-
magns- og kassagítar, að eigin sögn.
ÖRNÓLFI Þórssyni, 12 ára, tókst það sem
engu mannsbarni hefur tekist sl. 15 ár eða
svo, að fá Robert Plant til að syngja hinn
ódauðlega slagara, Stairway to Heaven, með
hljómsveitinni Led Zeppelin.
Örnólfur var á tónleikunum með Robert
Plant í Laugardalshöll um síðustu helgi og
fékk að fara baksviðs ásamt vini sínum,
Hrafnkatli Flóka Einarssyni, að loknum tón-
leikunum.
Þar rak hann augun í gítar og ákvað að
spila upphafsstef lagsins Stairway to Heaven.
Plant hlustaði á drenginn og tók svo undir:
„There’s a lady who’s sure all that glitters is
gold, and she’s buying a stairway to heav-
en …“ Plant söng fyrstu línurnar úr laginu,
heilsaði Örnólfi og þakkaði fyrir sig.
Sagðist ekki þola lagið
Örnólfur kvaðst vera ánægður með við-
tökur rokkgoðsins en hann er aðdáandi Led
Zeppelin og á fjölmargar plötur með hljóm-
sveitinni. Hann segist hafa spilað á gítar í
þrjá mánuði. En hvað fannst Plant um lagið?
„Hann sagði að hann hefði ekki sungið
þetta lag í heil fimmtán ár og að hann þoldi
ekki lagið af því að það fóru allir að gráta þeg-
ar hann spilaði það á tónleikum,“ segir Örn-
ólfur, sem segir uppáhaldslagið sitt með Led
Zeppelin vera Immigrant Song.
Lék undir Stairway to Heaven
Örnólfur Þórsson, 12 ára, hitti Robert Plant baksviðs eftir tónleikana
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Í dag er
mi›vikudagur
Á HEILDINA litið virðast íslensku fjármálafyrir-
tækin vel í stakk búin til að mæta hugsanlegum and-
byr. Þetta kom fram í máli Birgis Ísleifs Gunnars-
sonar seðlabankastjóra, þegar kynntar voru
niðurstöður úr fyrsta hefti Fjármálastöðugleika
Seðlabanka Íslands. Hann hvatti þó til aðgætni vegna
þess hversu hratt breytingar gangi yfir í íslensku fjár-
málakerfi.
„Vaxandi ójafnvægis hefur gætt í þjóðarbúskapn-
um undanfarið ár og birtist það í örum vexti eftir-
spurnar, aukinni verðbólgu, háu eignaverði og vax-
andi viðskiptahalla sem nær hámarki í ár. Þessar
aðstæður auka líkur á að reyni á fjármálakerfið þegar
fram líða stundir,“ sagði Birgir Ísleifur. Sagði hann þá
hættu sem kunni að steðja að fjármálakerfinu einkum
felast í möguleikanum á að fjármálaleg skilyrði þjóð-
arbúsins í heild versni og önnur ytri áföll dynji yfir á
sama tíma og aðlögun eftir ofþenslu framkvæmdaár-
anna 2005 og 2006 á sér stað. „Ekki eru horfur á slíkri
framvindu en hún gæti haft í för með sér umtalsverða
lækkun eignaverðs,“ sagði Birgir Ísleifur.
Stærsta áhyggjuefnið sagði hann vera erlendar
skuldir sem hafi farið ört hækkandi á síðustu árum.
Þær nemi nú tvöfaldri landsframleiðslu eins árs. /13
Bankarnir
geta vel stað-
ist ytri áföll
Erlendar skuldir
stærsta áhyggjuefnið
„KJARNI málsins er sá að á
elleftu stundu ákvað ég að
draga umsókn mína til baka,
vegna þess að bæjaryfirvöld á
Akureyri gerðu mér tilboð sem
ég tel mig ekki geta hafnað,“
segir Hannes Sigurðsson list-
fræðingur, en í gær ákvað
hann að draga til baka umsókn
sína um starf forstöðumanns
Listasafns Reykjavíkur.
Á liðnum árum hefur Hannes gegnt stöðu for-
stöðumanns Listasafnsins á Akureyri, en þótti
meðal sterkustu umsækjenda um stöðuna í Lista-
safni Reykjavíkur. Hannes segir sér þykja mjög
vænt um það traust og þann hlýhug sem Ak-
ureyrarbær sýni honum með tilboði sínu.
Þórgnýr Dýrfjörð, menningarfulltrúi Akureyr-
ar, segir að bæjarstjórinn, Kristján Þór Júl-
íusson, hafi átt frumkvæði að því að gera Hannesi
tilboð um að vera um kyrrt fyrir norðan, þótt allt
hefði bent til þess að hann væri að flytja suður.
Að sögn Þórgnýs er mikill vilji fyrir því á Ak-
ureyri að halda áfram þeirri tilraun að listasafnið
verði enn um hríð rekið á þann hátt sem verið
hefur í tíð Hannesar. Reynslan sé góð í það eina
og hálfa ár sem Hannes og fyrirtæki hans, art.is,
hafi rekið safnið fyrir hönd bæjarins.
Að sögn Svanhildar Konráðsdóttur, sviðsstjóra
menningar- og ferðamálasviðs Reykjavík-
urborgar, gengur ráðningarferli í starf safn-
stjóra Listasafns Reykjavíkur vel, og búist sé við
að því ljúki í næstu viku. /22
Hannes áfram
á Akureyri
Hannes Sigurðsson
ÓVENJUGÓÐ mæting var á kynn-
ingarfundi borgarinnar í gærkvöldi
um nýtt deiliskipulag á Bíla-
naustsreitnum. Var fundarsalur svo
þétt setinn að sumir sáu ekki það
sem fram fór við kynninguna sjálfa
þannig að brugðið var á það ráð að
fresta fundi um viku.
„Það var boðað til fundarins í
fundarsalnum á skipulags- og bygg-
ingarsviði, sem er nú oft notaður fyr-
ir þetta,“ segir Dagur B. Eggerts-
son, formaður skipulagsnefndar, og
tekur fram að það hafi komið skipu-
leggjendum í nokkuð opna skjöldu
hversu vel var mætt. Segir hann að
farið hafi verið í atkvæðagreiðslu um
hvort halda ætti fundinn við þessar
erfiðu aðstæður eða fresta honum
um viku og gefa þá jafnframt lengri
athugasemdafrest. Flestir vildu
fresta fundi.
Aðspurður hvernig skýra megi
þessa góða mætingu segir Dagur
ljóst að bæði húsfélögin á svæðinu
sem og hverfisráðið hafi staðið sig
vel í að kynna málið fyrir íbúum.
„Það er greinilega mikill áhugi á
málinu, en þetta er reitur sem er ná-
lægt nýju blokkunum við túnin.“
Fresta varð
fundi vegna
góðrar
mætingar
ÁRNI M. Mathiesen sjávarút-
vegsráðherra átti í gær fund með
Joe Borg, nýjum sjávarútvegs-
stjóra Evrópusambandsins, í
Brussel í gær. Rædd voru ýmis
sameiginleg hagsmunamál, m.a.
stjórnun fiskveiða, þar sem þeir
reyndust vera hlynntir þeirri
stefnu að stunda áfram svæðis-
bundna fiskveiðistjórnun. Hún
væri líklegri til árangurs. Þar með
lýstu þeir sig andvíga hugmynd-
um Sameinuðu þjóðanna um al-
þjóðlega stjórnun hafsvæða.
Árni segir fundinn hafa verið
ánægjulegan og fróðlegan á marg-
an hátt. Umræða um sameiginleg
áhugamál og vandamál hafi verið
jákvæð.
Á fundinum voru einnig rædd
málefni og framtíð NEAFC,
Norðaustur-Atlantshafsráðsins,
og mikilvægi þess að ná samning-
um um alla fiskistofna á svæðinu.
Það væri forsenda þess að hægt
væri að taka á ólöglegum veiðum
og refsa þeim sem þær stunduðu.
Þá ræddu þeir Árni og Borg mik-
ilvægi þess að ná saman um veiðar
á síld og kolmunna á sameiginleg-
um hafsvæðum. Reyndust þeir
sammála um hvert ætti að stefna í
svæðisbundinni fiskveiðistjórnun
og vildu frekara samráð íslenskra
stjórnvalda og framkvæmda-
stjórnar ESB. Joe Borg lýsti
sömuleiðis yfir vilja til þess að Ís-
lendingar tækju þátt í vinnu með
ESB um málefni hafsins og um-
hverfisstjórnun þess. Taldi sjávar-
útvegsráðherra mikilvægt að Ís-
land fengi að taka þátt í þeirri
vinnu og hafa áhrif á ákvarðanir
sem teknar yrðu.
Með Árna á fundinum í gær
voru fyrir Íslands hönd þeir Vil-
hjálmur Egilsson ráðuneytis-
stjóri, Ármann Kr. Ólafsson, að-
stoðarmaður ráðherra, Grétar
Már Sigurðsson frá viðskipta-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins
og Kjartan Jóhannsson, sendi-
herra í Brussel.
Árni M. Mathiesen á fundi með sjávarútvegsstjóra ESB
Vilja svæðisbundna fiskveiði-
stjórn frekar en alþjóðlega
Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra og Joe Borg, sjávarútvegs-
stjóri ESB, ræddu saman í um tvo klukkutíma í gær.
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Verið/B1
EINDÆMA veðurblíða ríkti sunnanlands í gær
og notuðu margir borgarbúar tækifærið og
brugðu sér í sund í blíðviðrinu. Þessir strákar
virtust skemmta sér hið besta við að keppa í
vatnskörfubolta í Laugardalslauginni þegar ljós-
myndari Morgunblaðsins átti leið um laugarnar í
gær. Greinilegt var að keppnisskapið var ekki
langt undan.
Morgunblaðið/Eyþór
Keppt í veðurblíðunni
GUÐRÚN Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameins-
félagsins, segir að skattalegt umhverfi frjálsra fé-
lagasamtaka sé mun erfiðara á Íslandi en í ná-
grannalöndum okkar. Núgildandi fyrirkomulag sé
íþyngjandi fyrir félögin. Þau séu að reka þjónustu
sem í mörgum löndum sé í höndum ríkis eða sveit-
arfélaga. Einnig hafi sjálfboðaliðahugsjónin farið
dvínandi, ekki bara á Íslandi heldur í hinum vest-
ræna heimi.
„Stjórnvöld þurfa að endurskoða stefnu sína í
þessum efnum. Við erum að sigla þessum félögum í
strand og þá er spurningin hvort þjónustan á að
hverfa eða minnka; eða ætla stjórnvöld að taka
hana að sér? Þetta er þjóðþrifamál og skiptir mjög
miklu, sérstaklega fyrir þá sem standa höllum
fæti,“ sagði Guðrún. /6
Félögin að
sigla í strand
♦♦♦
♦♦♦