Morgunblaðið - 03.06.2005, Page 1

Morgunblaðið - 03.06.2005, Page 1
Stórsveitir á ferð og flugi Hvar verða helstu hljómsveitirnar um verslunarmannahelgina? | 56 Bílar og Íþróttir í dag Bílar | Aldrei meira framboð mótorhjóla  Lexus RX400h tvinnjeppa reynsluekið Íþróttir | Sigurs krafist í báðum leikjum Forkeppni í handboltanum fyrir ÓL 2008? H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 2 3 7 4 Við réttum þér hjálparhönd við bílakaup Hafðu samband í síma 440 4400 eða kynntu þér málið á glitnir.is. Haag. AFP. AP. | Hollensk stjórnvöld ætla að færa stefnu sína í málefnum Evrópusambandsins (ESB) nær vilja almennings í landinu, að því er fram kom í umræðum í hollenska þinginu í gær. Rætt var um áhrif og afleiðingar niðurstöðu þjóð- aratkvæðagreiðslu Hollendinga í fyrradag þar sem þeir felldu stjórnarskrársáttmála ESB með afgerandi hætti, og sagði Jan Peter Balkenende, forsætisráðherra landsins, að ríkisstjórn sín virti ákvörðun þjóðarinnar að fullu og myndi koma skilaboðum fólksins áleiðis til Brussel. Þau væru að það ætti „ekki alltaf að gera meira og fara lengra“ heldur að „færa Evrópu nær almenningi [...] hafa færri stóryrði uppi og ekki stíga fleiri skref fyrr en stuðningur fæst fyrir þeim“. „Hættulegt“ og „heimskulegt“ að leiða hjá sér niðurstöðuna Frá því að Frakkar felldu stjórnarskrána í þjóð- aratkvæðgreiðslu á sunnudag og Hollendingar svo þremur dögum síðar, hefur ríkt mikil óvissa innan ESB um næstu skref enda verða öll 25 aðildarríki þess að staðfesta stjórnarskrána til að hún taki gildi. Æðstu ráðamenn ESB hafa hvatt aðildarrík- in til að fara að engu óðslega og leggja áherslu á að staðfestingaferlinu skuli haldið áfram. Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, fór í gær til neyðarfundar við Jean-Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar, sem gegnir nú forsæti innan ESB, og sagði eftir þann fund að menn skyldu forðast fálmkennd viðbrögð við nið- urstöðunni í Frakklandi og Hollandi. Þá sagði Göran Persson, forsætisráðherra Sví- þjóðar, í viðtali við sænska fjölmiðla í gær, að það yrði bæði „hættulegt“ og „heimskulegt“ af aðild- arríkjum ESB að leiða hjá sér niðurstöðuna í Frakklandi og Hollandi. ESB nálgist almenning  Neyðarviðræður | 18 „HÚSIN eru nánast eins og þegar þau voru yfirgefin í júníbyrjun 1362,“ segir Bjarni F. Einarsson fornleifafræðingur sem hefur ásamt fleirum grafið upp bæj- arstæði skammt frá Fagurhóls- mýri á Suðausturlandi að und- anförnu. Bærinn sem grafinn hefur verið upp hét Bær og var búið þar fram á 14. öld þegar bæjarstæðið fór undir gos úr Öræfajökli, nánar til- tekið í júníbyrjun árið 1362. Sögur gengu lengi um að Bær lægi graf- inn undir vikurlaginu og árið 1918 fannst meðal annars kvarnarsteinn á svæðinu sem talið er að hafi verið úr bænum. Fyrir nokkrum árum fór leitin að bænum á fullt og voru gerðar jarðsjármælingar árið 2001 og prufuholur grafnar ári seinna. Í fyrra hreinsaði hópur manna vikur ofan af bæjarstæðinu og tók þá að móta fyrir útlínum húsanna en í vor hefur verið hreinsað út úr hús- unum. Bæjarstæðið er afar heil- legt, að sögn Bjarna og segir hann mjög sjaldgæft að sjá tæplega 650 ára gamlan bæ í svo góðu ástandi. Á Bæ var hlaða, fjós, stofa, skáli og tvö búr og einnig var þar lítið hlaðið rými, sem líkist brunni. Bjarni segir tilgátu sína vera þá að hvalspiki hafi verið hent í rýmið og lýsið látið leka úr, en frárennslis- ræsi liggur úr brunninum. Fornleifafélag Öræfa var stofnað fyrir nokkrum árum og stefnt er á að gera Bæ að ferðamannastað. Bjarni segir að Íslendingum gefist þannig tækifæri til að fá innsýn í líf landa sinna frá árinu 1362. | 4 Morgunblaðið/RAX Nánast eins og í júní 1362 Heillegt bæjarstæði frá 14. öld finnst skammt frá Fagurhólsmýri ÞÝSKA byggingavöruverslana- keðjan Bauhaus, sem á og rekur um 180 lágvöruverðsverslanir á meginlandi Evrópu og á Norður- löndunum á nú í samningaviðræð- um við Urriðaholt ehf. um kaup á landi í eigu félagins í Garðabæ, þar sem Bauhaus áformar að reisa og reka stórverslun. Þetta staðfesti Jón Pálmi Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Urriðaholts ehf., í samtali við Morgunblaðið í gær. Urriðaholt ehf. er að meirihluta í eigu Oddfellow-reglunnar á Ís- landi. „Urriðaholt hefur að undan- förnu átt í samningaviðræðum við Bauhaus,“ sagði Jón Pálmi, „en það eru ákveðin atriði sem snúa að skipulagi landsins, sem eru ófrá- gengin, þannig að meira er í raun og veru ekki að segja af þessum viðræðum að sinni.“ Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er nú beðið staðfestingar umhverfisráðherra á aðalskipulagi svæðisins. Morgunblaðið greindi frá því á forsíðu blaðsins hinn 23. febrúar sl. að Bauhaus áformaði að opna nýja stórverslun í Kópavogi, um mitt næsta ár, nánar tiltekið á svæði Linda IV, en samningar um lóðamál runnu út í sandinn skömmu síðar. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins stefna forsvarsmenn Bau- haus-keðjunnar að því að reisa og reka stórverslun í landi Urriða- holts í Garðabæ, og verði verslunin um12 þúsund fermetra bygging. Verslunin kæmi til með að rísa í næsta nágrenni við nýja stórversl- un IKEA. IKEA hefur þegar sam- ið um kaup á landi við Urriðaholt ehf. Forsvarsmenn IKEA áforma að opna sína verslun um mánaða- mótin ágúst september 2006. Bauhaus rekur verslanir sínar samkvæmt hugsuninni DIY (Do It Yourself) eða „Gerðu það sjálf/ur“ og tekst þannig að halda vöruverði í lágmarki. Bauhaus lýsir verslun- um sínum þannig, að þar fáist allt til húsbygginga og heimilisins, að undanskildum húsgögnum. Bauhaus mun ráðgera, takist samningar við Urriðaholt, að opna nýja stórverslun í Garðabænum haustið 2006 á sama tíma og IKEA. Bauhaus í viðræðum við Urriðaholt um lóð                            eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is Ísraelsmenn slepptu um 400 palestínskum föng- um úr haldi í gær, í samræmi við samkomulag leiðtoga þjóðanna um vopnahlé. Fangarnir voru fluttir með rútum á heimaslóðir sínar þar sem vandamenn og vinir tóku fagnandi á móti þeim. Reuters Föngum sleppt STOFNAÐ 1913 148. TBL. 93. ÁRG. FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.