Morgunblaðið - 03.06.2005, Blaðsíða 57
SÁLIN hans Jóns míns gefur út nýtt
lag í dag og heldur jafnframt tónleika
á Nasa í kvöld. „Við erum að gefa út
nýtt lag á morgun. Þetta er þriðja
smáskífan af væntanlegri plötu
hljómsveitarinnar, sem kemur út
næsta haust. Við byrjuðum á því að
gefa út „Tíminn og við“ fyrir síðustu
jól. Svo fyrir páskana kom „Aldrei lið-
ið betur“. Nýja lagið heitir „Þú færð
bros“. Við erum gríðarlega bjartsýnir
og jákvæðir þessa dagana,“ segir
Guðmundur Jónsson, gítarleikari og
helsti lagasmiður Sálarinnar hans
Jóns míns. Lagið er einmitt eftir
hann með texta eftir Friðrik Sturlu-
son bassaleikara.
„Við erum búnir að vera í drama-
tískum pælingum síðustu ár,“ segir
Guðmundur, en nú er tónlistin að
hans sögn orðin hressari.
Á leið til Danmerkur
„Við erum að fara til Danmerkur á
mánudaginn í stúdíó sem heitir
PUK,“ segir hann en þetta er þekkt
hljóðver á Jótlandi þar sem fjölmarg-
ir virtir listamenn hafa hljóðritað í
gegnum tíðina, m.a. George Michael,
Elton John og Mezzoforte.
Af hverju að fara til Danmerkur?
„Okkur langaði að fara burt frá
Reykjavík og komast í næði. Okkur
langaði að vera hljómsveit saman í
stúdíói og búa til músík. Þetta er úti í
sveit,“ segir hann en Sálin verður í
viku í Danaveldi.
„Við klárum aldrei plötuna á þess-
um tíma en þegar menn eru svona
einangraðir bara að vinna í músík
verður meira úr verki. Við höfum
gert þetta áður, að vísu hér á Íslandi,
þegar við tókum upp Þessi þungu
högg. Við tókum hana upp og mix-
uðum á þrettán dögum.“
Það verður ekki slegið slöku við í
Danmörku. „Við ætlum að gera eins
mikið og við getum. Við erum nýbúnir
að velja lögin á plötuna og núna eru
strákarnir, Stebbi og Frissi, að semja
texta á fullu. Ég er búinn að semja
allan aprílmánuð og svo er Jenni með
tvö lög á plötunni,“ segir hann, en
væntanleg plata mun innihalda ellefu
lög. Átta lög verða því í farteskinu til
Danmerkur en þrjú eru tilbúin.
Tekið upp myndband í kvöld
Á tónleikunum á Nasa í kvöld verð-
ur jafnframt tekið upp myndband við
nýja lagið, „Þú færð bros“. „Þetta
kom nú snöggt til. Við ætlum að
reyna að taka upp myndband á tón-
leikunum. Það hefur verið að mynd-
ast mjög skemmtileg stemning á
Nasa og mikið stuð. Okkur langar að
ná því á myndband.“
„Svo förum við að túra um landið í
júlí og ágúst. Við verðum alveg á fullu
fram að áramótum,“ segir hann.
Fyrstu tónleikarnir eftir Dan-
merkurförina verða dagana 1. og 2.
júlí á Akureyri. Í vikunni þar á eftir
verður leikið í Reykjavík og á Akra-
nesi og svo koll af kolli. Aðdáendur
geta fylgst með tónleikadagskránni á
síðu hljómsveitarinnar.
Tónlist | Sálin hans Jóns míns með nýtt lag og tónleika
Gríðarlega bjartsýnir
Morgunblaðið/Árni Torfason
Sálin hans Jóns míns verður með tónleika á Nasa í kvöld en sveitin heldur eftir helgi í hljóðver í Danmörku.
Sálin spilar á Nasa í kvöld. Húsið
verður opnað kl. 23 og er miðaverð
1.900 kr. Forsala á Nasa milli 13 og
17 og er miðaverð þá 1.500 kr.
www.salinhansjonsmins.is
www.salin.is
Ljósmynd/Atli Mar Hafsteinsson
Hildur Vala hefur verið önnum kaf-
in síðan hún sigraði í Idol-stjörnu-
leitinni.
HILDUR Vala Idol-stjarna gerir aðra
tilraun til að halda útgáfutónleika nú á
sunnudaginn í Salnum í Kópavogi.
Tónleikarnir áttu upphaflega að vera
seinustu helgi en þá fékk Hildur Vala
flensu og því var þeim frestað.
Hildur Vala hefur vægast sagt ver-
ið upptekin síðan hún sigraði með
glæsibrag í Idolinu en auk þess að
sinna sínum eigin sólóferli fyllti hún
skarð Ragnhildar Gísladóttur í Stuð-
mönnum. Til marks um vinsældir
stúlkunnar verður hún að syngja á
fimm tónleikum þessa helgina.
Tvenna tónleika með Stuðmönnum,
tvenna útgáfutónleika á sunnudaginn
og eina tónleika í Vestmannaeyjum.
Fimm tónleikar á þremur dögum
myndu þreyta hinn reyndasta söngv-
ara en Hildur Vala segist hvergi vera
bangin. „Ég hef ekki enn þá orðið
þreytt í röddinni og ég reikna með því
að þetta verði ekki mikið mál. Ég er
líka svo spennt fyrir útgáfutónleikun-
um að ég læt ekki þreytu spilla þeim
fyrir mér.“
Nýútkomin plata Hildar Völu hef-
ur verið að gera það gott síðan hún
kom út og hafa öll lögin á plötunni
náð á Topp 20 listann á Tónlist.is sem
mest sóttu lögin. Á útgáfutónleikun-
um mun Hildur Vala njóta fulltingis
valinkunnra listamanna undir stjórn
Jóns Ólafssonar en auk þeirra mun
Helgi Valur koma fram sem sérstak-
ur gestur á tónleikunum. Helgi Valur
gaf út um daginn sína fyrstu plötu,
Demise of Faith, en á þeirri plötu
syngja þau Hildur Vala dúett. Nær
uppselt er á tónleikana.
Syngur á fimm tón-
leikum um helgina
Tónlist | Hildur Vala þreytist seint
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 57
MENNTASKÓLINN Í REYKJAVÍK
Málabraut Náttúrufræðibraut
2 nýmáladeildir
2 fornmáladeildir
2 eðlisfræðideildir
2 náttúrufræðideildir
Rektor
Nemendur 10. bekkjar
sækja rafrænt um
skólavist, en aðrir sækja
um á eyðublöðum sem
fá má á skrifstofu
skólans eða á
www.mr.is.
OPIÐ HÚS fyrir 10. bekkinga og forráðamenn þeirra
verður sunnudaginn 5. júní kl. 14-17. Þar kynna kennarar
og nemendur skólann. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Nemendur velja um tvær meginnámsbrautir með
fjölbreyttum kjörsviðum:
Á heimasíðu skólans, www.mr.is, má finna frekari
upplýsingar um nám og starf í skólanum.
Reynsla hefur sýnt að nám í Menntaskólanum í Reykjavík
er traustur grunnur fyrir nám á háskólastigi. Nemendur
skólans eru um 830 og starfsfólk um 90.
INNRITUN í
Menntaskólann í
Reykjavík stendur yfir
dagana 5. júní kl. 14-17
og 13.-14. júní kl. 9-18.
Aðstoð við innritun er
veitt á þessum tímum
og á venjulegum
skrifstofutíma aðra
daga.
Menntaskólinn í Reykjavík við Lækjargötu 101 Reykjavík sími 545 1900 http://www.mr.is
Framtíðin er þín
leggur traustan grunn að velgengni í háskóla
ÍSLENSKA reggísveitin Hjálmar
verður með tvenna tónleika um
helgina. Tónleikar Hjálma hafa
þótt vel heppnaðir og nýtur sveit-
in, sem var valin bjartasta vonin á
Íslensku tónlistarverðlaununum,
mikilla vinsælda. Í kvöld spilar
sveitin í Hveragerðiskirkju á síð-
ustu tónleikunum í tónleikaröðinni
Kvöld í Hveró. Helgi Valur Ás-
geirsson, trúbador frá Hveragerði,
hitar upp fyrir Hjálma og flytur
lög af nýútkominni sólóplötu sinni.
„Yfirlýst markmið Kvölds í
Hveró er að auka fjölbreytni í
menningu á svæðinu, opna augu
almennings fyrir þeim möguleika
að íslensk popptónlist eigi ekki
síður heima í kirkju en klassíkin
og gefa ungu og hæfileikaríku
tónlistarfólki af Suðurlandi tæki-
færi til að hita upp fyrir þá lista-
menn sem fram koma. Hljóm-
burður í Hveragerðiskirkju er
einstaklega fallegur,“ segir í til-
kynningu.
Á morgun spila Hjálmar síðan á
Nasa en fyrri tónleikar sveit-
arinnar á staðnum hafa verið fjöl-
mennir.
Tónlist | Bjartasta vonin með tvenna
tónleika um helgina
Fróðlegt verður að hlýða á reggítónana óma í Hveragerðiskirkju í kvöld.
Hjálmar og Helgi Valur í Hvera-
gerðiskirkju í kvöld kl. 21 en kirkjan
verður opnuð kl. 20. Miðaverð
1.500 kr. en ekki er tekið við kort-
um. Laugardagskvöld verður sveit-
in á Nasa og verður húsið opnað kl.
23 og er miðaverð 500 kr.
www.kvoldihvero.go.is
www.nasa.is
Hjálmar í Hveró
Hljómsveitin Hudson Wayne hit-ar upp fyrir Antony and The
Johnsons á tónleikum á Nasa 11.
júlí nk. Miðasala gengur að sögn vel
– um 300 miðar seldir. Hudson
Wayne gefur út sína aðra plötu eftir
helgi. Sveitin hefur fengið til liðs við
sig nýjan meðlim, Ólöfu Arnalds, en
áður leikið með Nix Nolte, Slow-
blow og múm. Miðasala á tónleika
Antony and the Johnsons fer fram í
12 Tónum og á midi.is. Miðaverð
4.250 kr.
Fjölskyldudagar verða í Sambíó-unum Kringlunni 2.–5. júní. Þá
kostar 300 kr. á eftirtaldar myndir:
Svampur Sveinsson, The Pacifier,
Bangsímon og Fríllinn, Sahara og
Ice Princess. Sjá nánari upplýsingar
um sýningartíma í bíóauglýsingum.
Fólk folk@mbl.is