Morgunblaðið - 03.06.2005, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.06.2005, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BAUHAUS VILL LÓÐ Þýska byggingavöruverslana- keðjan Bauhaus á nú í samninga- viðræðum við Urriðaholt ehf. um kaup á landi í Garðabæ, þar sem Bauhaus áformar að reisa og reka um 12.000 fm stórverslun. Gríðarlega kaldur maí Maí var óvenju þurr og sólríkur víða um land í ár. Þó var maímán- uður víða hinn kaldasti í áratug. Í Reykjavík var meðalhitinn 5,7 stig eða 0,6 stigum undir meðallagi og hefur ekki verið kaldara síðan 1993. Úrkoma mældist víða aðeins þriðj- ungur af meðalúrkomu. Neyðarviðræður innan ESB Lettneska þingið samþykkti í gær stjórnarskrársáttmála ESB, degi eftir að Hollendingar höfnuðu hon- um í þjóðaratkvæðagreiðslu. Evr- ópskir ráðamenn reyna nú að ráða úr þeim vanda sem upp er kominn innan ESB eftir að Frakkar og síðan Hollendingar höfnuðu stjórnar- skránni. Blaðamaður myrtur í Beirút Þekktur blaðamaður, Samir Kass- ir, fórst af völdum bílsprengju í Beirút, höfuðborg Líbanons í gær. Kassir var andstæðingur áhrifa Sýr- lendinga í Líbanon og beitti sér fyrir því að Sýrlendingar færu með her sinn úr landinu. Y f i r l i t Kynning  Morgunblaðinu fylgir Sjómannadagsblaðið. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " #          $         %&' ( )***                        Í dag Fréttaskýring 8 Forystugrein 32 Verið 14 Viðhorf 34 Viðskipti 15 Bréf 35 Erlent 18/19 Minningar 36/45 Minn staður 20 Myndasögur 58 Landið 21 Dagbók 50/53 Höfuðborgin 22/23 Velvakandi 51 Suðurnes 22/23 Staður og stund 52 Akureyri 24 Leikhús 54 Austurland 24 Bíó 58/61 Menning 25 Ljósvakamiðlar 62 Daglegt líf 26/27 Veður 63 Umræðan 30/35 Staksteinar 63 * * * MATSNEFND á vegum Austur- hafnar-TR ehf. hefur boðið fyrir- tækjunum Fasteign og Klasa annars vegar og Portus Group hins vegar að taka áfram þátt í samningsferli við byggingu tónlistar- og ráðstefnuhúss við Reykjavíkurhöfn. Þriðji hópurinn sem var eftir, Við- höfn, dettur hins vegar út, en hóp- arnir þrír lögðu fram frumhugmynd- ir sínar í janúar sl. og fengu umsagnir um þær í febrúar. Í maí- byrjun voru svo fyrstu tilboð með kostnaðar- og rekstraráætlunum lagðar fram og hefur matsnefnd farið yfir þau. Alls voru fjórir hópar viðurkennd- ir í júlí á síðasta ári sem þátttakend- ur í samningsferlinu, en fjórði hóp- urinn, Multiplex og Foster & Partners, hætti þátttöku í janúar. Fyrirtækið Austurhöfn-TR ehf. sér um útboð verksins og segir í frétta- tilkynningu frá fyrirtækinu að sér- stök undirnefnd arkitekta hafi gefið umsögn um arkitektúr og hönnun, sérstök nefnd á vegum Reykjavíkur- borgar gefið umsögn um skipulags- þáttinn og samráðshópur notenda gefið umsögn um áætlaða starfsemi, þjónustu og starfsáætlanir. Tilboð og tillögur metin út frá ýmsum þáttum Að sögn Stefáns Hermannssonar, framkvæmdastjóra Austurhafnar, verða tilboð Fasteignar og Klasa og Portus metin áfram og fyrirtækjun- um gefinn kostur á að þróa tillögur og tilboðin og bæta það sem ekki þykir nógu gott. Stefnt er að því að tilkynnt verði um hvaða hópur hlýtur verkið í haust og að samningum verði lokið í árslok, þannig að framkvæmd- ir við byggingu hússins geti hafist fyrir árslok 2006. Aðspurður til hvaða þátta sé helst litið við mat á tilboðum segir Stefán að þar spili margt inn í; arkitektúr og hönnun, skipulagslausnir, ýmiskonar atriði varðandi hljómburð og önnur tæknileg atriði í sambandi við salina, rekstur hússins, markaðsáætlanir og aðrir viðskiptalegir þættir. Áætlaður kostnaður við byggingu tónlistar- og ráðstefnuhúss er 7–8 milljarðar og það fyrirtæki sem verður fyrir valinu mun sjá um að reka húsið eftir að byggingu þess er lokið. Stefán segir að rekstraraðili hússins verði að upp- fylla ákveðin skilyrði, t.a.m. að veita Sinfóníuhljómsveitinni ákveðna þjónustu en árlegur styrkur hins op- inbera mun nema 595 milljónum á verðlagi ársins 2004 og verður styrk- urinn veittur í 35 ár frá og með 2009. Viðhöfn dettur út Portus og Fasteign og Klasi áfram í viðræðum Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is Fasteign og Klasi Þátttakendur: Eignarhaldsfélagið Fasteign hf., fasteignarekstrarfélag í eigu Íslandsbanka og nokkurra sveit- arfélaga, og Klasi hf., fasteignarekstr- arfélag í eigu Íslandsbanka. Arkitektar: Schmidt, Hammer & Las- sen a/s og Teiknistofa Halldórs Guð- mundssonar. Stýriverktaki: Ístak/PIHL. Portus Group Þátttakendur: Landsafl hf., fasteigna- rekstrarfélag í eigu Landsbanka Ís- lands, Nýsir hf. og Íslenskir aðal- verktakar hf. Arkitektar: Henning Larsens Tegne- stue, Batteríið-arkitektar. Stýriverktaki: ÍAV. Viðhöfn Þátttakendur: Sparisjóðabanki Ís- lands, Festing ehf., Eykt ehf. og Höfðaborg ehf. Arkitektar: Ateliers Jean Nouvel. Þeim til aðstoðar er teiknistofan T.ark. Stýriverktaki: Eykt ehf. Heimild: www.austurhofn.is „STÆRSTA ógnin við okkar öryggi í dag er hættan af gjöreyðingarvopn- um í höndum óábyrgra ríkisstjórna, útlagaríkja og hryðjuverkamanna,“ sagði Davíð Oddsson, utanríkisráð- herra, þegar hann setti ráðstefnu um áhrif NATO á útbreiðslu lýðræðis og mannréttinda í húsnæði Íslenskrar erfðagreiningar í gær. Davíð sagði að með náinni sam- vinnu aðildarríkja NATO sé hægt að draga úr hættunni sem stafar af ger- eyðingarvopnum í röngum höndum. „NATO er, og verður áfram, horn- steinn öryggis og varna aðildarríkj- anna, og að mínu mati á þetta sér- staklega við um nýju aðildarríkin sem setja traust sitt á bandalagið þegar kemur að öryggi.“ Stækkun NATO sem nú er í gangi er hluti af þeirri þróun sem bandalag- ið verður að fara í gegnum til þess að mæta nýjum ógnum eins og alþjóða hryðjuverkastarfsemi, sagði Davíð. „Afar fáir, ef einhverjir, spáðu fyrir um fall Sovétríkjanna og Varsjár- bandalagsins, og hryðjuverkaárás- irnar á Bandarík- in árið 2001 voru óvæntar. Þetta sýnir okkur þörf- ina fyrir það að laga bandalagið að breyttum ör- yggisaðstæðum.“ Ráðstefnan um áhrif NATO á útbreiðslu lýðræðis og mannréttinda er haldin af Varðbergi, félagi ungra áhugamanna um vest- ræna samvinnu, og lýkur ráðstefn- unni í dag, föstudag. Meðal ræðu- manna í gær voru Gunnar Snorri Gunnarsson ráðuneytisstjóri utanrík- isráðuneytisins og Siv Friðleifsdóttir alþingismaður. Í dag stíga í pontu meðal annarra Sólveig Pétursdóttir formaður utanríkismálanefndar Al- þingis, Gunnar Pálsson sendiherra og Troels Egeskov Sörensen formaður ungliðasamtaka um vestræna sam- vinnu. Davíð Oddsson Gereyðingarvopn í röngum höndum stærsta ógnin RÚMLEGA fertugur karlmaður var í gær dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir að brjóta gegn nálg- unarbanni gegn Helga Áss Grét- arssyni og sambýliskonu hans og fyrir að hóta nágranna sínum. Hann hafði áður verið dæmdur fyr- ir brot á nálgunarbanninu. Samkvæmt nálgunarbanninu má maðurinn ekki koma nær Helga Áss og sambýliskonu hans en 200 metra en það bann rauf hann gegn þeim báðum með eins mánaðar millibili síðla síðasta árs. Maðurinn neitaði sök og sagðist hafa hitt þau á gangi fyrir tilviljun. Í dómnum segir að honum hefði átt að vera ljóst að honum væri allsendis óheimilt að nálgast þau meira en sem nemur 200 metrum og því hefði hann átt að halda rakleitt á brott ef hann varð ferða þeirra var. Það hefði hann á hinn bóginn ekki gert. Var hann því sakfelldur fyrir að brjóta gegn nálgunarbanninu. Hann var auk þess dæmdur fyrir að hóta manni sem býr í sama húsi líkamsmeiðingum. Fram kemur í dómnum að þegar lögregla kom á staðinn hafi maðurinn komið til móts við lögreglumenn með hamar í hendi. Aðspurður hvers vegna hann tæki svona á móti lögreglu sagðist hann hafa átt von á að mæta ná- granna sínum. Hann hafði áður ver- ið dæmdur fyrir að ráðast á íbúa í húsinu og því hafði nágranninn ærna ástæðu til að óttast um heil- brigði sitt og velferð, að því er segir í dómnum. Hefur áður hlotið dóma fyrir árásir Maðurinn á að baki alllangan sakarferil og hefur m.a. nokkrum sinnum verið dæmdur fyrir líkams- árásir, hótanir og húsbrot. Í fyrra var hann dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir ofsóknir á hendur Helga Áss og sambýliskonu hans. Hann hefur átt við geðsjúkdóm að stríða en héraðsdómur mat hann sakhæfan. Sambýliskona Helga Áss bjó áð- ur með manninum. Símon Sigvaldason kvað upp dóminn. Katrín Hilmarsdóttir, fulltrúi lögreglustjórans í Reykja- vík, sótti en Jón Magnússon hrl. var til varnar. Aftur dæmdur fyrir brot á nálgunarbanni EINN frægasti víóluleikari heims, Yuri Bashmet, lék á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands í gær- kvöld, þar sem hann gegndi bæði hlutverki hljómsveitarstjóra og ein- leikara. Tónleikarnir voru hluti af Listahátíð í Reykjavík. Að sögn Jónasar Sen, tónlistar- gagnrýnanda Morgunblaðsins, var Bashmet fjarri sínu besta formi fyrst framan af og því olli fyrri hluti tón- leikanna hálfgerðum vonbrigðum. „Svo rættist heldur betur úr tónleik- unum eftir hlé,“ bætir Jónas við. Dómur um tónleikana birtist í Morgunblaðinu á morgun. Morgunblaðið/Jim Smart Batnaði eftir hlé Til starfa á ný AGNES Bragadóttir, fréttastjóri viðskiptafrétta Morgunblaðsins, er komin til starfa á ritstjórn blaðsins á ný. Hún hefur verið í leyfi frá því í apríl vegna starfa í þágu Almenn- ings ehf. og m.a. verið einn helzti talsmaður þess félags. Aðrir hafa nú tekið við því hlutverki. Valt í Kjálkafirði BÍLVELTA varð á öðrum tímanum í gær í Kjálkafirði, austan við Flókalund, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Patreksfirði. Fjórir voru í bílnum og hlaut fólkið minni háttar meiðsl að því er lögregla segir. Sjúkrabíll var sendur frá Pat- reksfirði til þess að sækja fólkið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.