Morgunblaðið - 03.06.2005, Blaðsíða 15
ÞÓRÐUR Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar Íslands segir í samtali
við Morgunblaðið að vissulega sé
hægt að ná góðum samlegðaráhrif-
um af samstarfi norrænu kauphall-
anna og kauphallarinnar í London.
Financial Times hefur eftir Þórði að
slíkt samstarf sé æskilegt.
„Mér finnst norrænu kauphallirn-
ar eiga margt sameiginlegt með
kauphöllinni í London, sem þær eiga
ekki sameiginlegt með öðrum kaup-
höllum,“ segir Þórður og nefnir í
þessu samhengi tvö atriði. „Í fyrsta
lagi er þessi almenni efnahagslegi
bakgrunnur, öll ríkin fylgja sömu
efnahagsstefnu með því að leggja
áherslu á frumkvöðlastarfsemi,
sveigjanleika og markaðsbúskap,“
segir Þórður og bendir á að reynslan
sýni að samstarf sé vænlegra til ár-
angurs eigi samstarfsaðilarnir eitt-
hvað sameiginlegt. „Í öðru lagi felst
samlegð í tækni-
legu hliðinni en
OMX er mjög
sterkt fyrirtæki
tæknilega séð,“
heldur hann
áfram.
Jafnframt seg-
ir Þórður að sam-
legðaráhrif kunni
að felast í sam-
starfi við kauphöllina í London varð-
andi framtíðarsamstarf við kauphall-
ir utan Evrópu, meðal annars í Asíu
og Bandaríkjunum en auk þess segir
hann að auknir hagsmunir íslenskra,
og norrænna fyrirtækja í Bretlandi
séu orðnir það miklir að samstarf sé
æskilegt.
Aðspurður segist Þórður ekki úti-
loka samstarf Kauphallar Íslands við
kauphöllina í London. „Við erum
einnig að skoða sameiningu við OMX
eða jafnvel hvort dýpka eigi NOR-
EX-samstarfið,“ segir Þórður jafn-
framt.
Þórður Friðjónsson
Morgunblaðið/ÞÖK
Margt sameiginlegt Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands,
segir samlegðaráhrif kunna að felast í samstarfi við kauphöllina í London.
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
Hann segir kauphöllina í London
vera þá stærstu í Evrópu hvað varð-
ar veltu en markaðshlutdeild hennar
er um 40% að hans sögn. Markaðs-
hlutdeild NOREX-samstarfsins er
um 8% af heildarveltu í evrópskum
kauphallarviðskiptum en Þórður
segir að í framtíðinni sé afar líklegt
að einhverjar af stóru kauphöllunum
í Evrópu renni saman og tvær risa-
kauphallir muni þannig myndast og
svo verði fleiri smáar sem ekki hafa
mikið að segja í þessum málum.
Þannig er mikilvægt að grípa gæsina
meðan hún gefst, að mati Þórðar
Friðjónssonar.
Samstarf við
kauphöllina í
London æskilegt
TILKYNNT verður um stýrivexti
næstu þriggja mánaða í dag er Pen-
ingamál Seðlabankans koma út.
Greiningardeildir bankanna spá því
að Seðlabankinn hækki stýrivextina
um 0,25-0,5%.
Tólf mánaða verðbólga í maí var
2,9% sem er vel innan efri þolmarka
verðbólgumarkmiðs Seðlabankans en
verðbólgumarkmiðið er 2,5% plús eða
mínus 1,5%. Greiningardeildir bank-
anna spá því að vísitala neysluverðs
muni hækka nú í júní. Íslandsbanki
spáir 0,2% hækkun, KB banki spáir
0,3% og Landsbanki 0,4%. Þetta leiðir
til þess að verðbólga myndi verða
2,3% samkvæmt spá Íslandsbanka,
2,4% samkvæmt spá KB banka og
2,5% samkvæmt spá Landsbankans.
Þannig lækkar verðbólga um 0,4–
0,6% ef þessar spár rætast.
Þrátt fyrir horfur um lækkandi
verðbólgu spá greiningardeildirnar
hækkun stýrivaxta Seðlabankans og
spá greiningardeildir Íslandsbanka
Spá allir hækkun
stýrivaxtanna
og Landsbanka hækkun upp á 0,25-
0,5%, gera þó sterklega ráð fyrir
0,25% hækkun, en greining KB banka
spáir 0,25% hækkun. Þessar spár eru
gerðar í ljósi þess að útlit er fyrir
aukna verðbólgu síðar á árinu og telja
bankarnir að Seðlabankinn vilji reyna
að byrgja brunninn nú þegar.
Evrópski seðlabankinn, ECB, til-
kynnti í gær að stýrivextir á evru-
svæðinu yrðu óbreyttir í þessum
mánuði en þeir hafa verið 2% í 23
mánuði samfleytt. Þessi niðurstaða
kom fáum á óvart þrátt fyrir að þrýst
hafi verið á stjórn ECB að lækka
vexti til þess að örva efnahagslíf álf-
unnar.
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
!
"
#
! $%
!
&'
( #
)
*
*
*
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Mest verslað með
bréf Íslandsbanka
● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís-
lands í gær námu liðlega 2,1 millj-
arði króna. Viðskipti með hlutabréf
losuðu um einn milljarð króna, þar af
var 381 milljón með bréf í Íslands-
banka. Úrvalsvísitalan hækkaði um
0,48% í og er 4.060 stig. Bréf Flögu
hækkuðu um 1,64%, bréf Íslands-
banka um 0,75% og bréf Actavis um
0,74%. Bréf Össurar lækkuðu um
0,99% og bréf SÍF um 0,35%. Krón-
an veiktist töluvert í viðskiptum á
millibankamarkaði eða um 1,11%,
Sigurjón hættir
hjá Medcare
● SIGURJÓN Kristjánsson, aðstoð-
arforstjóri Medcare, hefur ákveðið
að segja starfi sínu lausu og ráðast í
stofnun nýs frumkvöðlafyrirtækis á
sviði svefnrannsókna að því er kem-
ur fram í tilkynningu til Kauphallar Ís-
lands. Sigurjón var einn af frum-
kvöðlum Flögu og síðar Medcare og
hefur verið einn af lykilstjórnendum
félagsins síðustu 11 árin. Sigurjón
starfar áfram hjá Medcare fram til
31. ágúst.
Hlutabréf
Skandia of dýr
● SÉRFRÆÐINGAR alþjóðalega fjár-
festingarbankans JP Morgan telja að
sænska tryggingafélagið Skandia sé
of hátt metið og mæla þeir með því að
hlutabréf í félaginu séu undirvoguð í
eignasafni, eða seld. Verðmat bank-
ans á Skandia er 34,4-34,8 sænskar
krónur en verð hlutarins í dag er yfir
40 krónur. Frá þessu er greint í frétt á
vefmiðli sænska viðskiptatímaritsins
Affärsvärlden. Verð hlutarins er nú
fimmtán sinnum hærra en áætlaður
hagnaður fyrir hvern hlut verður á
næsta ári og er það mat JP Morgan
að yfirtökutilboð ætti ekki að vera
hærra en verðið er í dag. Rætt hefur
verið um 48 sænskar krónur/hlut
sem líklegt yfirtökuverð.
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
LYF OG HEILSA hefur keypt
rekstur verslunar Össurar hf. í
Orkuhúsinu við Suðurlandsbraut.
Er sagt frá þessu í fréttatilkynn-
ingu frá fyrirtækjunum. Með söl-
unni á versluninni hefur Össur
dregið sig út úr öllum rekstri á inn-
anlandsmarkaði sem ekki tengist
kjarnastarfsemi félagsins. Lyf og
heilsa tekur yfir reksturinn á næstu
dögum ásamt þeirri þjónustu sem
þar er boðið upp á.
Hrund Rudolfsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Lyfja og heilsu, segir
að markmið fyrirtækisins sé að
bæta almenna heilsu landsmanna
og stoðkerfið eigi stóran þátt í vel-
líðan fólks. „Smásala er okkar sér-
svið, Össur framleiðir hátæknivörur
og hagsmunir fyrirtækjanna fara
því vel saman með þessum samn-
ingum.“
Samstarf ýmissa aðila í heilbrigð-
isstétt, svo sem bæklunarlækna,
sjúkraþjálfara og röntgensérfræð-
inga, gerir það að verkum að í
Orkuhúsinu er hægt að bjóða við-
skiptavinum með stoðkerfisvanda-
mál alhliða þjónustu á einum stað,
að því er segir í tilkynningunni.
Össur mun áfram starfrækja þar
stoðtækjaverkstæði og þjónustu við
stoðtækjanotendur.
Lyf og heilsa
kaupir verslunar-
rekstur Össurar
Morgunblaðið/Jim Smart
Göngugreining Enn verður boðið
upp á göngugreiningu í versluninni
þrátt fyrir eigendaskiptin.
!"#$% ! ""
#$%
%
+,
- ./012
+. - ./012
3 - ./012
! 4
012
5%- ./012
5- ./012
012
/6 % 012
3%012
012
7 012
8%19
/ 012
:;0 9 012 : ; 594 1
% 2012
<
012
&
$'(
5
; !
012
&- 012
&;/ !9012
= ! . 012
1'
9$! 012 >(0 9 012
:5012
:4 1?2:!
12 :3; !
20 !1
02012
@ %% %; !
3! 012
3! 012
A. ;2 ;; #:' %012 )
*
+!,!
+
012 5
B919 ! 012
;
012 @' 1' 012
+
-
CDBE
:!
!
2 !
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
%1 4
1 !
2 !
# # # #
#
#
#
#
#
#
#
# #
#
#
#
#
#
#
#
#
#
F*G
F*G
F# *G
F *G
F*G
F *G
F*G
F*G
F#*G
F*G
F*G
F#*G
#
#
F*G
#
#
#
#
#
#
F#*G
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
& !
/
%
@ .!. %
H
/:
2
2 2 2
2 2
2 2 2
2 2 2
2 #
#
2 #
#
2
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
!
/ 6I
2 2
+@&2J+0%
593
!
/
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
#
+@&2#K
;41 ;0
30194 2
+@&2#: !%%91 ;1 3 201
.1
2
+@&2# %1 ;194 ;3%1?%
2
+@&2#+! ! I%1 2
Vöruflutningur
eykst um 40%
● VÖRUINNFLUTNINGUR, án skipa
og flugvéla, nam um 24 milljörðum í
maí samkvæmt Vefriti fjármálaráðu-
neytisins. Að raungildi er þetta tæp-
lega 40% aukning frá maí á síðasta
ári og skýrist af auknum innflutningi
flutningatækja og hrá- og rekstr-
arvöru. Hærra heimsmarkaðsverð á
eldsneyti á einnig sinn þátt í aukn-
ingunni enda eykst verðmæti vör-
unnar sem flutt er inn.
Raunvirði innflutnings fyrstu fimm
mánuði ársins er tæplega fjórðungi
hærra en á sama tímabili í fyrra.
Íslandsbanki í
kauphöllina í Osló
● ÍSLANDS-
BANKI verður
í dag full-
gildur aðili
að kauphöll-
inni í Osló
samkvæmt frétt á vefsetri norska
blaðsins Dagens Næringsliv. Þannig
getur Íslandsbanki verslað með
hlutabréf í kauphöllinni í Osló líkt og í
Kauphöll Íslands en bankinn verður
þó ekki skráður í kauphöllina þannig
að ekki er hægt að versla með hluta-
bréf í Íslandsbanka þar.
Þar með verður Íslandsbanki 41.
aðili kauphallarinnar í Osló en þar af
eru 18 erlendir. Bankinn er nú þegar
aðili að kauphöllunum í Stokkhólmi
og Kaupmannahöfn.
>
L
:MN
*
*
5@:B
O+P
*
*
D+D 87P
*
*
5P
>
*
*
CDBP O.Q=.
*
*