Morgunblaðið - 03.06.2005, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
20%
afsláttur
Heimilisosturmeð 20% afslættií næstu verslun!
Nú færðu Heimilisost í sérmerktum
kílóastykkjum á tilboði í næstu verslun!
SALA á nýjum fólksbílum jókst um 55%
fyrstu fimm mánuði ársins miðað við
sama tíma í fyrra. Þessi aukning er ekki
síst athyglisverð í ljósi þess að allt síðasta
ár jókst bílasalan um 21,1% miðað við árið
2003. Allt árið 2004 seldust um tólf þús-
und nýir fólksbílar en fyrstu fimm mán-
uði þessa árs hafa selst 7.144 nýir fólks-
bílar. Ef salan verður svipuð og hún hefur
verið það sem af er árinu verða seldir um
18.500 nýir fólksbílar á árinu og þarf að
leita aftur til ársins 1987 til að finna jafn
mikla sölu á einu ári. Þá var seldur 18.081
nýr fólksbíll enda var ekki innheimtur
skattur af bílum það ár. Að meðaltali
seldust 9.126 nýir fólksbílar á ári á ár-
unum 1988–2004. | B2
Stefnir í metsölu
á bílum
VEÐUR var óvenju þurrt og sólríkt
um meginhluta landsins í maí, lengst
af fremur svalt og næturfrost viðloð-
andi. Meðalhiti í Reykjavík var 5,7
stig og er það 0,6 stigum undir með-
allagi. Þetta er kaldasti maímánuður
í Reykjavík frá því 1993. Jafnframt
er þetta fyrsti mánuðurinn sem hit-
inn er marktækt undir meðallagi frá
því í febrúar 2002. Á Akureyri var
meðalhitinn 4,4 stig, það er 1,1 stigi
undir meðallagi og þar var maí hinn
kaldasti frá 1995. Í Akurnesi var
meðalhitinn 5,0 stig og 0,5 stig á
Hveravöllum. Úrkoma í Reykjavík
mældist aðeins 13,8 mm, sem er
tæpur þriðjungur meðalúrkomu.
Þurrt var í 16 daga samfellt, en
lengstu þurrkakaflar í Reykjavík
eru um 30 dagar þannig að nokkuð
skortir á að um met hafi verið að
ræða. Á Akureyri mældist úrkoman
6,5 mm og er það rúmur þriðjungur
meðalúrkomu. Í Akurnesi mældist
úrkoman aðeins 4 mm og ekki vitað
um jafn litla úrkomu þar í maí.
Sólskinsstundir í Reykjavík
mældust 317,7 eða 126 stundum um-
fram meðallag. Aðeins einu sinni
hafa sólskinsstundirnar mælst fleiri
í Reykjavík en það var 1958 þegar
þær mældust 330,1. Á Akureyri var
einnig sólríkt eða 246,1 stund sem er
72 stundum umfram meðallag.
Vorið í heildina var nærri með-
allagi hvað hita varðar, 0,4 stig yfir
meðallagi í Reykjavík og 0,1 stig á
Akureyri. Mjög sólríkt var um land-
ið sunnanvert. Sólskinsstundir
mældust 486 í Reykjavík og aðeins
einu sinni orðið fleiri á þessum tíma
árs, 1924 þegar þær mældust 509.
Víða kaldasti maí í áratug
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær
auglýsingastofuna Gott fólk ehf. til að greiða
tveimur fyrrv. starfsmönnum stofunnar samtals
um 3 milljónir vegna ógreiddra launa o.fl. Aug-
lýsingastofan taldi mennina hafa rofið trúnað og
krafðist að hvor um sig greiddi hátt í 65 milljónir
vegna tapaðra viðskipta. Dómarinn gerði at-
hugasemdir við málatilbúnað auglýsingastof-
unnar og sagði hana ekki hafa lagt fram nein
sönnunargögn í málinu.
Mennirnir sögðu báðir störfum sínum lausum
unnar og sagði að húnn hefði hvorki lagt fram
sönnunargögn né leitt fram vitni, máli sínu til
stuðnings. Lagt hefði verið fram mikið af skjöl-
um en samantektin hvorki verið skýr né nein til-
raun gerð til að sundurliða og reikna út kröfu-
gerðina. Auglýsingastofan þarf jafnframt að
greiða mönnunum samtals 1,5 milljónir vegna
málskostnaðar. Í dómnum segir m.a. að hafa
verði í huga að stofan hefði haft uppi háar fjár-
kröfur án þess að gera minnstu tilraun til að
sanna fullyrðingar sínar.
Jón Finnbjörnsson kvað upp dóminn. Jó-
hannes R. Jóhannsson hrl. flutti málið f.h.
starfsmannanna en Gunnlaugur Þráinsson,
framkv.stjóri Góðs fólks, af hálfu stofunnar.
28. febrúar 2004. Nokkrum dögum fyrr hafði
Síminn sagt upp samningi við stofuna og aug-
lýsingastofuna Nonna og Manna og tilkynnt að
framvegis yrði aðeins skipt við eina auglýsinga-
stofu. Á þessum tíma stóðu jafnframt yfir við-
ræður um sameiningu stofanna en upp úr þeim
slitnaði. Mennirnir réðu sig síðar til Nonna og
Manna og gerði Síminn samning við þá stofu.
Auglýsingastofan hélt því fram að mennirnir
hefðu rofið trúnað og með uppsögnunum átt
þátt í að stofan missti af viðskiptunum við Sím-
ann. Taldi stofan að hvor um sig hefði valdið
stofunni 65 milljóna tjóni. Einnig var krafist
endurgreiðslu fyrirframgreiddra launa.
Dómurinn hafnaði kröfum auglýsingastof-
Auglýsingastofa dæmd til að greiða fyrrv. starfsmönnum laun í uppsagnarfresti
Gerði enga tilraun til að
sanna 130 milljóna kröfu
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
UPPSAGNIR á 50 starfsmönnum
Bílddælings, liðlega þriðjungi
vinnufærra manna í þorpinu, þýða
rúmlega 40% atvinnuleysi í þessu
226 manna samfélagi. Það var
þungur tónn í starfsfólki fyrirtæk-
isins sem Morgunblaðið ræddi við í
gær en það sagðist þó hafa vonir
um að úr rættist. „Það versta er að
lausum togara. Afleysingafram-
kvæmdastjórinn sagði að menn
hefðu búist við að fá byggðakvóta,
það hefði hjálpað mikið til og því
verið eins og köld vatnsgusa þegar
ljóst varð að hann fengist ekki.
ir á Austurlandi og hátt gengi
krónunnar eigi mestan þátt í þeim
vanda sem útflutningsgreinarnar
glími við. Þetta hefði legið fyrir áð-
ur en hafist var handa og eigi því
ekki að koma á óvart.
Á Bíldudal hugsar fólk hvað hafi
vakað fyrir stjórnendum Bílddæl-
ings að hefja rekstur með kvóta-
fólk á hér eigur sem það getur ekki
hlaupið frá og því til viðbótar eru
báðar fyrirvinnurnar á heimilum
að missa vinnuna. Þetta er ekkert
grín,“ sagði Hrönn Hauksdóttir,
trúnaðarmaður starfsfólksins.
Hagfræðingar og stjórnmála-
menn sem Morgunblaðið ræddi við
í gær segja að stóriðjuframkvæmd-
40% verða atvinnulaus
Morgunblaðið/Ómar
Stjórnvöld | 10
Erum öll | 32–33
ALLNOKKRAR skemmdir urðu á bíl sem
lenti í árekstri við reiðhjól á Höfn í Horna-
firði í gærkvöldi. Tólf ára drengur hjólaði
fram fyrir húshorn og á bílinn í þann
mund sem honum var ekið inn á bílastæði
við Nýheima, nýjan miðbæ Hornfirðinga.
Við áreksturinn skemmdist bretti og stuð-
ari bílsins talsvert, mun meira en menn
töldu að búast hefði mátt við í slíkum
árekstri. Hvorki sást á reiðhjólinu né
stráknum.
Bíll skemmdist í
árekstri við reiðhjól
MAGNEA Katrín Þorvarðardóttir varð
dúx frá Open University í Bretlandi í vor, í
einu virtasta, en jafnframt fjölmennasta
MBA-prógrammi í heiminum. Skólinn er
einn stærsti fjarnámsskóli í heimi, með yf-
ir 250.000 nemendur á um 200 náms-
brautum. MBA-prógrammið hjá skólanum
hefur hlotið þrefalda viðurkenningu fag-
samtaka.
Magnea Katrín býr í Leimuiden skammt
sunnan við Amsterdam í Hollandi og hefur
sl. fjögur ár stundað nám við OU Business
School. „Ég hef verið í MBA-viðskipta-
námi hjá Open University í fjögur ár,“
sagði Magnea Katrín í samtali við Morg-
unblaðið. „Maður byrjaði í grunnnámi í al-
mennri viðskiptafræði í tvö ár, en seinni
tvö árin fóru svo í MBA-námið. Ég náði
mjög góðum árangri og hlaut m.a. 1.500
evrur í verðlaun ásamt ferð til London í
sérstaka útskriftarathöfn.“
Við útskriftina í London var Magneu
Katrínu lýst af prófessor sínum sem hold-
gervingi þeirrar miklu vinnu og einbeit-
ingar sem einkenndi þúsundir nemenda
skólans. Einstakir hæfileikar hennar og
árangur gerðu hana að sérstakri fyrir-
mynd annarra nemenda.
Framúrskarandi
á heimsvísu
Magnea Katrín Þorvarðardóttir