Morgunblaðið - 03.06.2005, Page 20
Nýr og girnilegur
uppskriftavefur á mbl.is
Hráefni:
3 stk. greipaldin, rauð
1-2 stk. stjörnuávextir
10-12 stk. plómur
1 stk. mangó
1 askja rifsber
1 askja hindber
3-4 dl appelsínusafi
5-6 msk. sítrónumelissa
Finndu uppáhalds uppskriftina þína á mbl.is
Framandi ávaxtasalat
(fyrir 4-6)
Aðferð:
Afhýðið greipaldin og skiptið í
lauf. Skerið stjörnuávextina í
sneiðar, plómurnar í báta og
mangóið í sneiðar. Saxið sítrónu-
melissuna og blandið öllu saman
í skál. Hellið appelsínusafanum
yfir. Setjið í kæli. Berið fram með
ís eða eitt sér.
Borgarnes | Þrír ungir og rösk-
ir Borgnesingar voru að draga
björg í bú í Höfðaholtinu í Borg-
arnesi góðviðrisdag einn í vik-
unni. Sigurður Aron Þor-
steinsson, Hlynur Sævar
Jónsson og Þorgeir Þor-
steinsson hittu nágranna sem
hafði verið á veiðum með sjó-
stöng og fengið leyfi hans til að
hirða eins marga þorska og þeir
gátu borið. Drengirnir nánast
fylltu þvottabalann og roguðust
með aflann heim. Voru þeir
nokkuð hróðugir með framtakið.
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
Duglegir að draga björg í bú
Fiskur
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Ónæði af völdum hunda | Skrifstofu
Snæfellsbæjar hafa borist kvartanir og
ábendingar vegna hunda í bæjarfélaginu.
Mest er kvartað undan því að hundar gangi
lausir, hundum sem valda vegfarendum og
nágrönnum ónæði með gelti daga og nætur
og að hundaeigendur þrífi ekki saur eftir
hunda sína. Kemur þetta fram á vef Snæ-
fellsbæjar. Þar er hundaeigendum vinsam-
legast bent á að passa upp á hundana og
hreisa upp eftir þá.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Ferðasumarið hafið | Sumarið er hafið
hjá ferðaþjónum á Ströndum. Vefurinn
strandir.is miðar upphaf ferðasumarsins
við sumaropnun Galdrasýningarinnar á
Hólmavík og Sauðfjársetursins í Sævangi.
Þá hefur Café Riis opnað að nýju sem og
upplýsingamiðstððin og tjaldsvæðið á
Hólmavík. Loks getur vefurinn þess að
sumar sé komið í opnunartíma sundlaug-
arinnar á Hólmavík.
Undirbúa tónleikaferð | Strengjasveit
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Fiðlu-
kammerhópar skólans halda vortónleika
sína næstkomandi mánudag, kl. 19.30, í
Kirkjulundi, safnaðarheimili Keflavík-
urkirkju. Tónleikarnir eru jafnframt liður í
undirbúningi tónleikaferðar til Tékklands
og fjáröflun í ferðasjóð.
Tónleikaferðin stendur yfir dagana 9. til
16. júní. Haldnir verða nokkrir tónleikar,
bæði skólatónleikar og opinberir tónleikar.
Tónlistarskólinn í Kyjov er í samstarfi við
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar varðandi
ferðina og mun þjóðlaga-strengjasveit þess
skóla koma að tónleikahaldi í ferðinni.
Hópurinn mun einnig fara á sinfóníu-
tónleika og taka sér ýmislegt fyrir hendur
til að upplifa Tékkland og menningu þess.
Mikið starf hefur verið unnið við undir bún-
ing ferðarinnar og hafa allir lagst á eitt í því
efni.
Fjórir nemendur úr Flúðaskólafengu afhent verðlaun sín íteiknimyndasamkeppni vegna
alþjóðlega skólamjólkurdagsins við at-
höfn í grenndarskógi við Flúðir í fyrra-
dag. Athöfnin var haldin í tengslum við
skólaslitin og fóru nemendur skólans í
skrúðgöngu með söng og hljóðfæraleik í
skóginn.
Krakkanir áttu fjórar af tíu bestu
myndunum í keppninni, að mati dóm-
nefndar, og fengu samtals 100 þúsund
krónur í verðlaun sem runnu í bekkj-
arsjóð.
Hér eru börnin með fulltrúa Mjólk-
ursamsölunnar og kennurum, f.v. Þór-
mundur Smári Hilmarsson, Guðjón Örn
Sigurðsson, Hafþór Ingi Ragnarsson og
Maríanna Svansdóttir. Fyrir aftan þau
standa Hildur Ósk Hallsteinsdóttir, Guð-
jón Árnason, Sigríður Helga Olgeirs-
dóttir og Þuríður Una Pétursdóttir.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Fengu verðlaun sín afhent
Lárus Þórðarsonyrkir um árstíð-ina, vorið, með
sínum hætti:
Vakna blóm við bæjarvegg.
Bændum gildnar vömbin.
Hrafninn tínir tittlingsegg.
Tófan étur lömbin.
Davíð Hjálmar Haralds-
son yrkir um vorbirtuna:
Ríkir sól á himni há,
horfið myrkur, flúin nótt.
Iðju vora allir sjá,
enginn gerir nokkuð ljótt.
Í garðinum við göfug störf
getum ekki fundið hlé.
Munum samt ef magnast þörf
míga bak við næsta tré.
Björn Ingólfsson á Greni-
vík leggur út af því:
Út á kvöldin fljótur fer,
fyrir því er vissa,
ofursæll hann unir sér
upp við tré að pissa.
Snæbjörn í Hergilsey
háði harða lífsbaráttu og
orti:
Ég hefi reynt í éljum nauða
jafnvel meira en þér.
Á landamerkjum lífs og dauða
leikur enginn sér.
Enn af vori
pebl@mbl.is
Reykjanes | Hitaveita Suðurnesja hf.
hefur samið við Íslenska aðalverktaka
hf. um borun á sjótökuholum við
Reykjanesvirkjun sem nú er í byggingu.
ÍAV hefur ekki áður tekið að sér jarð-
borunarverkefni.
Í febrúar var efnt til útboðs um borun
á tíu holum til töku á ferskvatnsblönd-
uðum sjó til öflunar kælivatns vegna
Reykjanesvirkjunar. Að afloknu útboði
var ákveðið að ganga til samninga við
ÍAV en tvö tilboð bárust í verkið frá
Jarðborunum og ÍAV. Tilboð ÍAV
reyndist hagstæðara og er 91,5% af
kostnaðaráætlun. Gert er ráð fyrir að
verkið hefjist í ágúst 2005.
Með samningi þessum er ÍAV að
vinna að verkefni í jarðborunum í fyrsta
sinn. Fram kemur í fréttatilkynningu að
það er í takt við stefnu fyrirtækisins að
sækja inn á nýjan markað og stuðla enn
frekar að uppbyggingu fyrirtækisins og
áframhaldandi vexti.
ÍAV bora sjó-
tökuholur á
Reykjanesi
Skagafjörður | Félag sem stofnað hefur
verið um uppbyggingu atvinnulífs og
önnur framfaramál í Skagafirði hlaut
nafnið Skagafjarðarhraðlestin. Stofn-
fundur félagsins var haldinn síðastliðið
þriðjudagskvöld og var vel sóttur, að því
er fram kemur á vefnum skagafjordur-
.com.
Meginmarkmið félagsins er að efla at-
vinnulíf í Skagafirði á sem fjölbreytt-
astan hátt. Frumkvæði kemur frá nokkr-
um einstaklingum sem telja að efla eigi
samstarf atvinnulífs og stjórnsýslunnar,
þannig að efla megi sveitarfélög í Skaga-
firði. Fyrsta verkefni félagsins er að
vinna að því að virkjunarréttur í skag-
firskum fallvötnum verði í höndum
heimamanna og samþykkti fundurinn
einróma þá tillögu undirbúningshópsins,
að því er fram kemur á vefnum.
Kosin var tíu manna stjórn. Hana
skipa: Aðalsteinn Þorsteinsson, Ágúst
Andrésson, Ásta Pálmadóttir, Gísli Sig-
urðsson, Kristmundur Bjarnason, Sig-
urpáll Aðalsteinsson, Viggó Jónsson, Vil-
hjálmur Baldursson, Þórólfur Gíslason
og Þuríður Harpa Sigurðardóttir.
Virkjanaréttur
í hendur
heimafólks
♦♦♦
Eintómar tíur | Freyja Rós Haralds-
dóttir frá Haga á Barðaströnd náði þeim ár-
angri að fá 10 í öllum vorprófum sínum, en
hún var að ljúka öðru ári við Mennta-
skólann á Laugarvatni. Var hún því með
hæstu einkunn í skólanum þetta árið. Sagt
er frá þessum árangri á vef Bæjarins besta.
Aðspurð segist Freyja stundum eyða næst-
um næstum engum tíma í heimanám en
taka skorpu þegar líða fer að prófum.