Morgunblaðið - 03.06.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 23
MINNSTAÐUR
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akra-
nesi, sagði frá reynslu Akurnesinga
af uppbyggingu stóriðju á Grundar-
tanga og taldi hana almennt góða.
Nefndi að fjölgað hefði um 700
manns á Akranesi á síðustu átta til
níu árum. Gísli sagði að sveitarfé-
lagaskipan hefði verið Þrándur í
Götu framþróunar á svæðinu þar
sem stóriðjan væri staðsett í fámenn-
um sveitarfélögum sem ekki væru
nógu öflug til að veita stórum vinnu-
stöðum þjónustu og ekki hefði verið
hljómgrunnur fyrir sameiningu við
Akranes. Vakti hann athygli sveitar-
stjórnarmanna á Suðurnesjum á
þessu og sagði að þeir myndu einnig
þurfa að fara í gegnum þá umræðu
hvernig ætti að skipta tekjum af fast-
eignasköttunum sem stóriðjufyrir-
tæki greiddi. Nauðsynlegt væri að
tryggja að þær skiptust á einhvern
skynsamlegan hátt á svæðið í heild.
Á kynningunni voru fulltrúar frá öll-
um fimm sveitarfélögunum á Suður-
nesjum en eins og fram hefur komið
er mikil andstaða við sameiningu
meðal sveitarstjórnarmanna í þeim
bæjum sem lagt er til að sameinist
Reykjanesbæ.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ, spurði mikið út í um-
hverfismálin sem hann sagðist hafa
áhyggjur af. „Álverið yrði nærri
íbúðarbyggð og við viljum tryggja að
staðsetning þess leiði ekki til meng-
unar,“ sagði Árni í samtali við Morg-
unblaðið. Hann sagði að ýmislegt
hefði skýrst á kynningunni varðandi
umhverfismál og fleira. Orðið hefði
bylting í mengunarvörnum álvera.
Hann sagðist þó þurfa frekari upp-
lýsingar, meðal annars um það hvort
tækniframfarir gæfu kost á að líta í
náinni framtíð á álver eins og hver
önnur stór iðnfyrirtæki í þessu sam-
bandi. „Mér sýnist að við séum sífellt
að nálgast það,“ segir Árni.
Árni segir að miklir möguleikar
séu á uppbyggingu atvinnufyrir-
tækja við Helguvík. Því sé mikilvægt
að halda öllum slíkum möguleikum
opnum þótt hugmyndin um álver sé
til skoðunar. Kveðst hann ekki sjá
annað en að álver geti haft jákvæð
áhrif á aðra starfsemi.
Bolungarvík | Sýslumennirnir í Bolungarvík, á Ísa-
firði, Hólmavík, Patreksfirði og í Búðardal sem
jafnframt eru lögreglustjórar hver á sínum stað
gengu frá samkomulagi um samstarf og sameig-
inleg verkefni á árlegum samráðsfundi sem að
þessu sinni var haldinn í Bolungarvík.
Sameiginleg verkefni embættanna hafa einkum
lotið að umferðareftirliti yfir sumarmánuðina og
gæslu í kringum stærri dansleiki og samkomur á
svæðinu.
Einnig hefur á síðustu árum verið sérstök um-
fjöllun um stöðu fíkniefnamála á svæðinu og á
landsvísu en fundinn að þessu sinni sótti lögreglu-
maður frá fíkniefnadeild ríkislögreglustjóra.
Á fundinum var gengið frá formlegu samkomu-
lagi um þetta samstarf. Í því er kveðið á um að
markmið með samstarfinu sé að stuðla að sem
bestri samvinnu lögregluliðanna með það að mark-
miði að efla löggæslu og tollgæslu á svæðinu sem
kostur er, vinna að sem bestri nýtingu mannafla,
fjármuna og tækja, og leita eftir sem mestri sam-
ræmingu í meðferð mála á svæðinu.
Einnig er í samkomulaginu gert ráð fyrir að lögð
verði drög að sérstöku samstarfi um verkefna-
bundna löggæslu, það er að lögregluliðin skipu-
leggi og vinni í sameiningu að fyrir fram ákveðnum
verkefnum, öðrum en hefðbundnum samstarfs-
verkefnum.
Samkomulag um samstarf
við ýmis löggæsluverkefni
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Uppstilling Vestfirskir lögreglustjórar og lögreglumenn funduðu í Bolungarvík.
LANDIÐ
Grindavík | Grindvískir sjómenn er
heiti ljósmyndasýningar sem Krist-
inn Benediktsson ljósmyndari opn-
ar í Saltfisksetrinu í Grindavík í
dag. Sýningin er haldin í tengslum
við sjómannadagshátíðina Sjóarann
síkáta og stendur til 20. júní.
Á sýningunni verða myndir sem
Kristinn tók á síðustu áratugum
síðustu aldar úti á sjó og í landi,
þær fyrstu 1976. Einnig verða
myndir frá fiskverkun í landi. Kem-
ur fram hversu miklar breytingar
hafa orðið, jafnt til sjós og lands.
Kristinn er fæddur í Hafnarfirði
árið 1948. Hann lærði ljósmyndun
og starfaði sem ljósmyndari við
Morgunblaðið og víðar. Hann bjó í
mörg ár í Grindavík og starfaði þar
sem sjómaður og verkstjóri við salt-
fiskverkun og var um tíma frétta-
ritari Morgunblaðsins á staðnum.
Undanfarin ár hefur Kristinn, auk
annars, skrifað greinar og tekið
myndir og ritstýrt blöðum.
Kristinn sýnir
Grindvíska sjómenn