Morgunblaðið - 03.06.2005, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
„MEÐ þessu hefjum við í
raun verk sem lengi hefur
verið í umræðunni á Akur-
eyri, byggingu menningar-
húss,“ sagði Kristján Þór
Júlíusson bæjarstjóri á Ak-
ureyri. Hann og Sigurður
Hallgrímsson, arkitekt hjá
Arkþing, undirrituðu á
Amtsbókasafninu hönnun-
arsamning um húsnæði
menningarhúss og tónlist-
arskóla á Akureyri. Húsið
verður í miðbænum, á upp-
fyllingu við Torfunef, við
gatnamót Strandgötu og Glerárgötu.
Samningur um byggingu hússins
milli ríkis og bæjar var undirritaður í
apríl 2003 og var í kjölfarið efnt til
samkeppni um hönnun hússins. Dóm-
nefnd skilaði niðurstöðum í ágúst í
fyrra og hafði þá komist að þeirri nið-
urstöðu að raða verðlaunatillögum í
annað og þriðja sæti þar sem veiting
fyrstu verðlauna felur í sér skuld-
bindingu um framkvæmdir á grund-
velli hennar. Dómnefnd beindi þeim
tilmælum til byggingarnefndar húss-
ins að ganga til samninga við höfunda
tillögu sem varð í öðru sæti, tillögu
frá Arkþingi.
Í október síðastliðnum var ákveðið
að staldra aðeins við og huga betur að
forsendum málsins og var bygging-
arnefnd falið að nýta tímann til að
huga betur að kostnaði við bygg-
inguna og rekstri hússins. „Þetta hlé
sem varð á ferli þessa máls hefur orð-
ið til þess að nú er búið að bæta við
starfsemina, Tónlistarskólinn mun fá
þar inni, verða á þriðju hæð hússins
og það er mitt mat að það muni auka
mjög lífið í húsinu og efla þá starfsemi
sem fyrir verður,“ sagði Kristján Þór.
Bæjarstjóri sagði að með undirrit-
un samningsins væri vinna hafin, en
strax verður hafist handa við hönnun
hússins. Gert er ráð fyrir að útboð
framkvæmda fari fram í byrjun
næsta árs og stefnt að því að nýtt
menningarhús verði tilbúið til notk-
unar fyrir árslok 2007. Kostnaður er
áætlaður um 1370 milljónir króna.
Hönnunarsamningur vegna bygg-
ingar menningarhúss undirritaður
Verkefnið sett
af stað með
formlegum hætti
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
Morgunblaðið/Kristján
Undirskrift Sigurður Hallgrímsson frá Ark-
þingi og Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri
skrifuðu undir hönnunarsamning vegna
byggingar menningarhúss.
AKUREYRI
NEMENDUR Brekkuskóla, í 1.
til 5. bekk sem stundað hafa
nám sitt í gamla Barnaskóla
Akureyrar kvöddu húsið með
táknrænum hætti í gærmorgun,
en framkvæmdir hafa staðið yf-
ir við byggingu nýs skóla-
húsnæðis við gamla Gagnfræða-
skóla Akureyrar og þangað
flyst skólahaldið.
Hringt var út með formlegum
hætti, gengið um ganga með
forláta bjöllu og nemendur röð-
uðu sér upp við tröppur heim
að húsinu að gömlum sið. Skóla-
söngurinn, Rís vor skóli, var
sunginn og að því búnu tókust
nemendur í hendur, gengu
hringinn í kringum skólann og
„föðmuðu“ hann. Þá var gengið
fylktu liði með fánabera í far-
arbroddi að nýjum húsakynn-
um.
Karl Erlendsson skólastjóri
Brekkuskóla sagði húsið vera
75 ára gamalt, byggt árið 1930,
en það var Guðjón Samúelsson
húsameistari ríkisins sem teikn-
aði það. Upphaflega var gert
ráð fyrir að það yrði nokkru
stærra, en væntanlega hafa lítil
auraráð valdið því að það varð
nokkru minna en áætlanir
gerðu ráð fyrir. Árið 1947 var
byggt við húsið, norðan og aust-
an megin. Húsnæðið hefur um
árabil ekki þótt uppfylla þær
kröfur sem gerðar eru til nú-
tímaskólahúsnæðis. Karl nefndi
að um 6000 nemendur hefðu að
líkindum gengið í Barnaskóla
Akureyrar og nú hin síðari ár
Brekkuskóla um tíðina. Flestir
ættu góðar minningar um skóla-
göngu sína þar, „og ég vona að
þið eigið líka góðar minningar
um veru ykkar hér,“ sagði hann
við nemendur sína áður en
haldið var upp að nýja skóla-
húsnæðinu.
Barnaskólahúsið hefur þó
langt í frá lokið sínu hlutverki,
næsta haust flytjast þangað
m.a. Menntasmiðjan og hand-
verks- og tómstundamiðstöðin
Punkturinn auka nokkurra fé-
lagasamtaka.
Nemendur kvöddu Barnaskóla Akureyrar
Skólinn faðmaður
Morgunblaðið/Kristján
Söngur Nemendur og starfsfólk
Brekkuskóla kvöddu gamla hús-
næði Barnaskóla Akureyrar með
því að syngja skólasönginn á lóð
skólans.
Morgunblaðið/Kristján
Bjölluhljómur Ágúst Jak-
obsson, aðstoðarskólastjóri
Brekkuskóla, hringir út úr tíma
í síðasta skipti í húsnæði gamla
Barnaskóla Akureyrar.
AUSTURLAND
Egilsstaðir | Þjóðleik-
húsið bauð Austfirðing-
um upp á söngdagskrá
úr sýningunni Edith Piaf
í vikunni. Tvær sýningar
voru í Valaskjálf fyrir
fullu húsi og heilluðust
gestir af túlkun Bryn-
hildar Guðjónsdóttur á
Edith Piaf, einhverri
ógleymanlegustu rödd
síðustu aldar, en fyrir
hana hlaut Brynhildur
Grímuna – Íslensku leik-
listarverðlaunin sem
besta leikkona í aðalhlut-
verki. Sýning Þjóðleik-
hússins á Edith Piaf eftir
Sigurð Pálsson hefur
gengið fyrir fullu húsi
undanfarið og virðist
ekkert lát á vinsældum
hennar.
„Mér finnst það vera skylda okkar að sýna landsbyggðinni það sem við er-
um að gera í Þjóðleikhúsinu“ sagði Tinna Gunnlaugsdóttir Þjóðleikhússtjóri í
samtali við Morgunblaðið. „Þetta er stór og viðamikil sýning og ekki var hægt
að fara með hana í heild sinni. Um er að ræða konsertuppfærslu og rjómann
af því sem er í sýningunni. Við töldum að þetta gæti orðið skemmtileg kvöld-
stund fyrir Austfirðinga. Þetta er mjög dýrt fyrir okkur og þarf verulega
góða aðsókn og að fólk taki vel í þetta til að við höldum þessu áfram.“
Brynhildur Guðjónsdóttir segir frábært að fara með sýninguna austur. Að-
spurð um hvort hún sé búin að koma tónlist Piaf aftur í tísku á Íslandi segist
hún vona það. „Það gleður mig svo hvað þetta gleður aðra. Það er alveg sama
hvaða aldurshópur er að hlusta, hvort ég er að flytja þessa músík á Hrafnistu
fyrir samtíðarfólk Edith Piaf og eldra, unglinga, eða skemmtilegt fólk á bör-
um klukkan sex á laugardagsmorgni, tónlistin heillar alla og það er það sem
er svo brjálæðislega skemmtilegt.“
Flytjendur auk Brynhildar voru leikarinn Baldur Trausti Hreinsson, sem
var sögumaður og rakti helstu viðburði í sögu Piaf, og tónlistarmennirnir Jó-
hann G. Jóhannsson, Birgir Bragason, Hjörleifur Valsson, Jóel Pálsson og
Tatu Kantomaa.
Þjóðleikhússtjóri hyggst auka
sýningahald á landsbyggðinni
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Lífsharmur og leikgleði Brynhildur Guðjóns-
dóttir tjáir margbrotið lífshlaup Edith Piaf í
Valaskjálf með eftirminnilegum hætti.
Söngvar Edit Piaf
á Austurlandi
Fáskrúðsfjörður | Undanfarna
daga hafa staðið yfir Vordagar í
Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar. Að
þessu sinni var unnið með þema um
náttúru landsins. Nemendum var
skipt í hópa og í hverjum hóp voru
börn frá 1. -10. bekk. Farið var í
fjallgöngur, fjöruferðir, gróður
rannsakaður, skordýragildrum
komið upp, veðurathuganir gerðar
og einnig ýmsar tilraunir með vatn.
Þá var haldin íþróttakeppni nem-
enda og starfsfólks og grillað að því
loknu. Unnin voru margvísleg verk-
efni úr afrakstri náttúrunnar, t.d.
búnar til kerlingar og karlar úr því
sem fannst í fjörunni og gerðar
gróðurmyndir.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Viða að sér þekkingu Nemendur við Grunnskólann á Fáskrúðsfirði unnu
ýmis rannsóknarverkefni tengd náttúru Íslands.
Nefinu stungið í
náttúruna
150 til Hafnar | Alþjóðleg
ráðstefna um rannsóknir á
náttúrufari hafs og strandar,
öryggi sjófarenda og mann-
virki á ströndinni hefst á
Höfn n.k. sunnudag. Búast
má við um að 150 manns frá
30 löndum muni koma til ráð-
stefnunnar, sem haldin verð-
ur í Nýheimum. Að henni
standa Hornafjarðarbær,
Siglingastofnun Íslands, Há-
skóli Íslands og samgöngu-
ráðuneytið. Ritstjórar er-
lendra fagtímarita á sviði
strandrannsókna taka þátt í
ráðstefnunni, sem verður
undir faglegri umsjón Sigl-
ingastofnunar Íslands. Meðal
þess efnis sem íslenskir
fræðimenn munu leggja
áherslu á eru rannsóknir við
suðurströnd Íslands, s.s.
rannsóknir á ferjulægi við
Bakkafjöru, strandrofi við
Vík í Mýrdal og við Jökulsá á
Breiðamerkursandi og hönn-
un sjóvarnagarða. Áherslan
verður lögð á að kynna hönn-
un og byggingu brimvarn-
argarða, einkum bermu-
garða, bæði hér heima og
erlendis.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Erlend áhrif | Í dag hefst
landsbyggðarráðstefna Sagn-
fræðingafélags Íslands, Félags
þjóðfræðinga á Íslandi, Minja-
safns Austurlands og heima-
manna á Austurlandi haldin á
Eiðum. Þema ráðstefnunnar er
erlend áhrif á Austurlandi.
Ráðstefnan er öllum opin, að-
gangseyrir er 500 krónur
hvern dag og eru kaffiveitingar
innifaldar. Hún stendur fram á
sunnudag.
Nánari upplýsingar má finna
á vefnum soguslodir.hi.is.