Morgunblaðið - 03.06.2005, Page 40
40 FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Ragna Ágústs-dóttir fæddist í
Reykjavík 2. maí
1921. Hún lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 27. maí
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Sigríður Kristín
Þorláksdóttir, f. 27.
september 1899, d.
12. febrúar 1937, og
Marel Ágúst Frið-
riksson, f. 17. apríl
1896, d. 24. júlí 1985.
Systur Rögnu eru:
Ásta Bergmann, f.
1918, og Gíslína Guðrún, f. 1919.
Ragna var í sambúð með Her-
manni Stefáni Björgvinssyni, f.
1919, d. 2000. Þau slitu samvist-
um. Börn Rögnu og Hermanns
eru Björgvin, f. 1938, og Sigurð-
ur, f. 1940, d. 1988.
Ragna giftist Ívari Þórarins-
syni, hljóðfærasmið, f. 1916, d.
1985. Þau skildu. Börn Rögnu og
Ívars eru: 1) Anna Kristjana, f.
1942, maki Olgeir Erlendsson, f.
1942, þau eiga þrjú börn og átta
barnabörn. 2) Jón, f. 1944, maki
Erna Sigurðardóttir, f. 1948, d.
2005, þau eiga þrjú börn og sjö
barnabörn. 3) Hilm-
ar, f. 1946, maki
Edda Kristinsdóttir,
f. 1945, þau eiga
þrjú börn, níu
barnabörn og eitt
barnabarnabarn.
Ragna giftist
Gunnari Friðrik
Þorsteinssyni, verk-
stjóra, f. 1925, d.
1992. Börn Rögnu
og Gunnars eru: 1)
Þorsteinn Eyþór, f.
1951, maki Rut
Andersen, f. 1953,
þau eiga fjögur
börn og fimm barnabörn. 2) Sig-
ríður Kristín, f. 1953, maki Ingi-
bergur Jón Georgsson, f. 1954,
þau eiga þrjú börn og tvö barna-
börn. 3) Ágúst, f. 1956, maki Ing-
unn M. Hilmarsdóttir, f. 1961,
þau eiga tvö börn, fyrir átti
Ágúst einn son og tvö barna-
börn.
Ragna var lengst af húsmóðir.
Eftir að börnin uxu úr grasi vann
hún við ræstingar hjá Lands-
banka Íslands í Austurstræti.
Ragna verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Þær eru margar góðar og hlýjar
minningarnar sem koma upp í huga
okkar þegar við minnumst Rögnu
tengdamóður okkar. Hún var stór-
glæsileg kona svo eftir var tekið,
hugsaði alltaf um að vera vel til höfð
og aldrei mátti varalitinn vanta. Hún
hafði gaman af söng og í miklu uppá-
haldi hjá henni var Haukur Morth-
ens. Ragna hafði sérstakan neista,
kunni að lifa lífinu og naut sín í góðra
vina hópi. Börnunum okkar var hún
góð amma, áhugasöm um þeirra hagi
og nutu þau góðs af því. Hún lá ekki á
liði sínu ef eitthvað bjátaði á og lét
líka í sér heyra ef henni mislíkaði
hlutirnir. Heimili hennar bar vott um
snyrtimennsku og var hún höfðingi
heim að sækja. Ragna bar veikindi
sín ekki á torg og hélt reisn sinni til
enda.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgar þraut er gengin,
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir þungt að skilja,
en það er Guðs að vilja,
og gott er allt, sem Guði’ er frá.
Nú héðan lík skal hefja,
ei hér má lengur tefja
í dauðans dimmum val.
Úr inni harms og hryggða
til helgra ljóssins byggða
far vel í Guðs þíns gleðisal.
(V. Briem.)
Elsku Ragna mín, við geymum all-
ar góðu minningarnar um þig til að
orna okkur við. Það er okkar gæfa að
hafa átt svo góða og skilningsríka
tengdamóður sem þig.
Ástvinum öllum sendum við hug-
heilar samúðarkveðjur.
Edda, Rut og Inga.
Elsku góða, yndislega amma mín.
Nú hefurðu yfirgefið þetta jarðneska
líf eftir löng og erfið veikindi. Það er
svo ómetanlegt að hafa átt þig að í
gegnum árin. Minningarnar streyma
fram, ótal gleðistundir sem við áttum
saman. Þú varst svo mikil hetja í öll-
um þínum veikindum, hafðir þig aldr-
ei í frammi, varst lítillát og hógvær.
Hjartað búið að vera veikt lengi og
með ólíkindum að það hafi í raun get-
að starfað fram á þennan síðasta dag.
Sjálfir læknarnir skildu eiginlega
ekki hvernig þetta var hægt. En þrátt
fyrir þessi veikindi var hjarta þitt allt-
af hlýtt og stórt og geymdi mikinn
kærleika, umhyggju og ást til allra
þeirra sem þig þekktu. Það eru ekki
margar ömmur sem hlaupa upp á 4.
hæð án þess að blása úr nös, en það
gerðir þú til margra ára áður en þú
fluttir úr Álftamýrinni. Þú varst alltaf
svo stolt af öllum afkomendum þín-
um, börnunum, tengdabörnunum,
barnabörnunum og barnabarnabörn-
unum. Talaðir svo oft um hvað þú
værir heppin að eiga svona mann-
vænlega og góða fjölskyldu. Það var
alltaf svo notalegt að hitta þig, stór
faðmur tók á móti manni og koss
fylgdi með. Þú sagðir mér eitt sinn að
þú vissir að þegar fólkið þitt faðmaði
þig væri það að segja þér að það elsk-
aði þig og þú að segja að þú elskaðir
það. Það sem einkenndi þig svo sterkt
og hver manneskja tók eftir, var
hversu ungleg, falleg og kærleiksrík
þú alltaf varst. Þú hafðir þig alltaf til,
fórst í falleg föt og settir á þig varalit
og ilmvatn, það skipti ekki máli hvert
þú varst að fara þú varst alltaf svo vel
til höfð. Þú barst alls staðar af. Þú
hafðir yndi af að dansa, hlusta á tón-
list, kunnir ótal texta og söngst með
öllum lögum í útvarpinu. Þú söngst og
tjúttaðir í brúðkaupinu okkar Bjarka,
ég sé mest eftir að hafa ekki beðið þig
um að koma upp á svið og syngja með
frænda Bjarka í míkrófóninn, gömlu
lögin sem þú kunnir svo vel. Þú hafðir
alltaf gaman af að spjalla og sagðir
svo líflega og skemmtilega frá, létt-
leiki og húmor einkenndi oftast sög-
urnar þínar. Dillandi hlátur þinn
smitaði svo auðveldlega fólk í kring-
um þig.
Þú áttir ekki alltaf sjö dagana sæla,
elsku amma mín. Ég mun ekki telja
upp hér allt sem þú hefur farið í gegn-
um í lífinu og allt sem hefur verið gert
á þinn hlut. Oft ansi óréttlátur mót-
byr. Þú tókst lífinu eins og það birtist.
Ákvaðst að berjast áfram og lést
sjaldan bilbug á þér finna. Þú varst
óspör á hrós þegar maður hafði náð
einhverju markmiði eða árangri. Þú
sást alltaf það góða í öllum, einblíndir
ekki á neikvæða þætti. Við áttum
margar yndislegar samverustundir
þegar þú lást á hjartadeildinni, þú
sagðir mér margar lífsreynslusögur
þar og við gleymdum oft stað og
stund. Mér þótti vænt um að sjá að
þú, jafnvel sárkvalin, gast gleymt þér
í sögunum um gamla daga og þá leið
tíminn hratt. Þú talaðir oft um það
hversu yndislegt starfsfólk spítal-
anna væri og að þú fengir bestu
umönnun sem völ væri á. Það sem ég
svo heyrði líka var að þú værir einn
besti sjúklingur sem læknar og
starfsfólk spítalanna hefði kynnst.
Það kemur ekki á óvart að heyra
þetta og lýsir þínum innra manni svo
vel. Ég veit að það hafa hlýir faðmar
tekið á móti þér hjá Guði og að kvalir
þínar eru horfnar. Ég sé þig eiginlega
fyrir mér brosandi á léttum dans-
skóm, í fallegum sumarkjól, fallega
þykka hárið nýlagt, þú syngjandi. Ég
geymi þessa mynd í huga mínum og
þakka þér af öllu mínu hjarta fyrir all-
ar yndislegu stundirnar sem við átt-
um saman, elsku góða amma mín. Ég
mun sannarlega sakna þín, en ég ylja
mér við yndislegar minningar um þig.
Bjarki sendir þér kveðju sína með
þakklæti í huga, sem og Birkir Olgeir
og Freyja Kristjana, langömmubörn-
in sem þykir svo ósköp vænt um þig
og hafa alltaf haldið mikið upp á þig.
Megi Guð og góðar vættir vefja þig
mjúkum örmum sínum á nýjum stað.
Þín
Erla Sigurfljóð.
Elsku besta amma mín. Það er
skrítið að hugsa til þess að þú sért
ekki hjá okkur lengur, en þú ert
örugglega hvíldinni fegin, og afi
Gunnar bíður örugglega eftir þér með
opinn faðminn eins og hann var van-
ur.
Þú stóðst þig eins og hetja í öllum
þínum veikindum, kvartaðir aldrei og
þrátt fyrir að þér liði illa, var alltaf
stutt í fallega brosið þitt, í augum
okkar allra varst þú sannkölluð hetja.
Alltaf beið okkar opinn faðmur og
koss á kinn þegar við komum til þín,
og þegar þú hafðir heilsu, bakaðir þú
vöfflur með rjóma. Heimili þitt var
fallegt og hreint, og þú varst alltaf fín
og snyrtileg.
Þú varst svo dugleg að muna nöfn-
in á öllum langömmubörnunum þín-
um og alltaf svo áhugasöm um allt
sem gerðist í kringum þig.
Það var svo notalegt að tala við þig,
því að þú hlustaðir af áhuga og varst
tilbúin að gefa góð ráð.
Lífsgleði þín og styrkur var mikill,
þrátt fyrir allt sem þú hefur gengið í
gegnum á lífsleiðinni, amma mín. Þú
varst alltaf svo stolt af öllum afkom-
endum þínum og talaðir oft um hvað
öll börnin, barnabörnin og lang-
ömmubörnin væru falleg og vel gefin.
Það er ekkert skrítið, þar sem þú,
amma, með þína geislandi gleði, smit-
andi hlátur, ást og kærleik hefur gefið
okkur öllum margar fallegar og
skemmtilegar minningar sem við
aldrei gleymum.
Við erum þakklát fyrir að hafa átt
þig að, elsku amma, því að þú hefur
gefið okkur meira en orð fá lýst. Við
söknum þín mjög mikið, en við vitum
að þú ert í góðum höndum hjá Guði og
í faðmi afa Gunnars. Stefán og lang-
RAGNA
ÁGÚSTSDÓTTIR
LEGSTEINAR
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Elskuleg móðir mín, amma okkar og lang-
amma,
GUÐNÝ BJARNADÓTTIR
frá Gerðisstekk,
Norðfirði,
Lóurima 6,
Selfossi,
sem lést 25. maí sl., verður jarðsungin frá
Selfosskirkju laugardaginn 4. júní kl. 13.30.
Dóra María Aradóttir,
Dagbjartur Ari Gunnarsson, Erla Traustadóttir,
Guðný Esther Gunnarsdóttir, Ómar Björnsson,
Ebba Guðlaug Gunnarsdóttir,
Anna María Gunnarsdóttir, Össur Björnsson,
Kolbrún Dóra Gunnarsdóttir, Øystein Bjarte Mo
og langömmubörnin.
Kærar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna
andláts og útfarar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
STEINUNNAR Þ. O. NIELSEN,
Seljahlíð,
Reykjavík.
Sigríður C. Nielsen,
Margrét St. Nielsen, Sveinn Sveinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og
tengdafaðir,
SIGURÐUR INGI SIGURÐSSON,
áður til heimilis
að Víðivöllum 4,
Selfossi,
lést á Hrafnistu í Reykjavík aðfaranótt 1. júní.
Arnfríður Jónsdóttir,
börn og barnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MINNA ELÍSA BANG,
Aðalgötu 19
(gamla apótekinu),
Sauðárkróki,
sem lést á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki
sunnudaginn 22. maí sl., verður jarðsungin frá
Sauðárkrókskirkju laugardaginn 4. júní.
Athöfnin hefst kl. 14.00.
Dætur, tengdasynir og barnabörn.
Ástkær bróðir okkar,
SIGURÐUR ÞORGRÍMSSON,
Sóltúni 2,
áður Langholtsvegi 150,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni miðviku-
daginn 18. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Alúðarþakkir fær Kristófer Þorleifsson, læknir, og allir þeir, sem léttu
Sigurði lífið, glöddu hann og sýndu hugulsemi, vinarþel og hlýju.
Ólafur Þorgrímsson,
Ingibjörg Þorgrímsdóttir
og aðrir vandamenn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
ELÍASAR GUNNARS ÞORBERGSSONAR,
Kleppsvegi 134,
áður bónda í Meiri-Hattardal.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 14G
Landspítala við Hringbraut.
Guðrún Jónsdóttir og fjölskylda.