Morgunblaðið - 03.06.2005, Page 41

Morgunblaðið - 03.06.2005, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 41 MINNINGAR ömmubörnin þín, Alexander, Guð- mundur og Kristjana, hugsa til þín með söknuð í hjarta, og þakka þér fyrir allar þær góðu stundir sem þau áttu með þér. Megi góður Guð leiða þig og vernda, því að þú ert fallegasti engill- inn á himnum. Þú fallega ljúfa kona, með hárið þitt þykka, og hjartað þitt hlýja, brosið þitt bjarta, og ást þína alla, þú gafst okkur allt sem þú áttir, þú gafst okkur meira en orð fá lýst, þú gafst okkur líf þitt og eilífa ást, þú gafst okkur lífið með þér. Þín Anna Þóra. Elsku amma Ragna, núna þegar þú ert farin þá hugsa ég til baka um allar stundirnar sem við áttum saman. Ég byrjaði ævi mína á því að búa hjá þér í Álftamýrinni og þar var nú ýmislegt brallað. Ég fór alltaf niður á næstu hæð til hennar Möggu en hún lánaði mér spólu og gaf mér nammi. Ég man alltaf eftir því þegar ég velti stóra kaktusnum þínum og hann datt ofan á mig, ég leit út eins og kisa hefði klór- að mig í framan. Þú varst alltaf svo góð við mig og ég man eftir því að einu sinni vorum við að hlusta á fón- inn þinn og það var verið að tala um fegurðarsamkeppni í innri fegurð. Ég sagði við þig að þú ættir að taka þátt í henni því að þú myndir sko örugglega vinna, af því þú værir svo góð amma. Mér fannst alltaf svo gaman þegar ég átti að koma í pössun til þín. Stundum fékk ég að sofa og þá vöktum við lengi saman og horfðum á sjónvarpið. Skemmtilegastar fannst þér myndir með Bruce Willis. Mér fannst mjög gaman að hafa lifað þessi ellefu ár með þér, ég vildi að þau hefðu náð að verða fleiri. Elsku amma Ragna, ég á aldrei eft- ir að gleyma þér. Þú átt alltaf stærsta hlutann í hjarta mínu. Guð geymi þig, elsku amma Ragna. Þinn Sindri Már. Elsku amma mín. Núna ertu farin og þín verður sárt saknað. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og þær stundir sem við höf- um átt saman. Ég mun ávallt elska þig. Augun mín og augun þín, ó, þá fögru steina. Mitt er þitt og þitt er mitt, þú veist hvað ég meina. (Skáld-Rósa.) Þín Anna María. Elsku amma Ragna mín. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Ásmundur Eir.) Þín Silja Mist. Nú er komið að kveðjustund okkar á milli, elsku amma mín, nafna mín, yndislegur vinur minn, mín sanna hetja. Vinur minn vegna þess að þú skildir allt svo vel, stóðst með mér í blíðu og stríðu, og sýndir mér traust og virðingu, gafst mér hvatningu og ómældan kærleika. Hetja vegna þrautseigju þinnar og dugnaðar, þess sem ber þungar byrðar mikillar sorg- ar. Elsku amma, það er erfitt til þess að hugsa að ekki sé lengur hægt að hringja í þig eða heimsækja, á nota- lega heimilið þitt, þú varst svo stór hluti af mínu lífi og er erfitt að hugsa sér lífið án þín. Ég er þakklát fyrir að þjáningum þínum er lokið og að þú hefur fengið hvíld, en söknuðurinn er mikill. Það er svo margs að minnast og erfitt að velja úr, stundirnar okkar eru svo óteljandi margar og góðar. Mér eru sérstaklega minnisstæðar allar heim- sóknirnar sem þið afi glödduð okkur með á Seljaveginum. Það var alltaf svo gaman þegar þið komuð. Þið vor- uð bæði svo hrifin af börnum og stelp- urnar mínar hlupu alltaf upp í fangið á ykkur þegar þær sáu ykkur. Það voru aldrei spöruð hrósyrðin né hvatningarorðin í þessum heimsókn- um, þið afi létuð okkur alltaf finna að við værum að gera réttu hlutina, og treystum við ykkar mati fullkomlega, því við litum svo upp til ykkar. Mér eru einnig minnisstæðar allar söngstundirnar okkar, amma mín, þú hafðir svo góða söngrödd, við sungum oft saman, með eða án útvarps, vorum í miklu stuði og stundum steigst þú nokkur dansspor með. Þú varst svo létt í lund og hafðir mjög skemmti- lega kímnigáfu. Við hlógum svo oft saman og skemmtum okkur vel. Eitt verð ég að minnast á hér, því það verð ég ævinlega þakklát fyrir. Hvernig þið afi tókuð á móti honum Gumma, í fyrsta skipti sem ég kom með hann til ykkar. Það voru yndislegar móttökur og ég mun aldrei gleyma þeirri stund. Þar mættu honum opnir armar, hlý og falleg orð, og hann sannarlega boð- inn velkominn. Svo mikil áhrif höfðu þessar móttökur á hann, að hann sagðist vilja eiga þig fyrir ömmu líka og spurði hvort hann mætti kalla þig ömmu. Ég man hvað þér þótti vænt um þetta, amma mín, og þér fannst sjálfsagt að þú værir amma hans líka. Ég var svo stolt af ykkur afa, og fannst þið hafa svo mikið að gefa. Síðan hefur hann alltaf kallað þig ömmu og þótt mjög vænt um þig. Þú fékkst alltaf það besta fram í okkur. Þér þótti jafnvænt um okkur bæði og fyrir það erum við bæði þakklát. Það var svo auðvelt að þykja vænt um þig, elsku amma mín, þú gafst svo mikið af sjálfri þér og deildir öllu með okkur, gafst okkur svo stóra hlutdeild í þínu lífi. Fyrir það er ég sannarlega þakk- lát. Ótaldar eru stundirnar sem við átt- um saman við eldhúsborðið þitt, spjallandi um heima og geima og líð- andi stund, eða matarboðin ykkar afa á sunnudögum, og allt dekrið og nota- legheitin sem þeim fylgdu. Þú varst stórglæsileg kona sem all- ir tóku eftir, alltaf vel til höfð og snyrtileg. Heimilið þitt hefur alla tíð verið með eindæmum snyrtilegt og hreint. Það er ekkert skrítið að börnin þín öll séu snyrtimenni! Þau þekkja ekk- ert annað. Þú varst svo stolt af börn- unum þínum og talaðir oft um hvað þú værir heppin með þau öll og tengda- börnin, enda allt sómafólk, duglegt og hæfileikaríkt. Elsku amma mín, það er erfitt að minnast þín og horfa fram hjá þeim nístandi sársauka og sorg sem var lögð á þínar herðar frá unga aldri. Þú misstir móður þína mjög ung og ömmu þína stuttu á eftir. Þetta voru persónur sem skipti þig öllu. En þetta var ekki allt, enn meiri sársauki átti eftir að fylgja í kjölfarið og sorg sem fylgdi þér allt þitt líf. Það var þegar þú misstir drengina þína, sem þú elskaðir af öllu hjarta. Lifa með þann sársauka í gegnum langt líf er krafta- verk sem ekki er öllum gefið, aðeins hetjum einum, og slík hetja ert þú. Elsku amma mín.Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og allt sem þú varst mér í gegnum allt mitt líf. Ég mun aldrei gleyma þér, þú munt vera í mínu hjarta um aldur og ævi. Ég bið Guð að vaka yfir þér og gefa okkur hinum styrk til að halda áfram án þín. Takk fyrir allt, elsku amma mín. Þín nafna Ragna. Elsku besta langamma. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur, við elskum þig og munum aldrei gleyma þér. Við eigum eftir að sakna þín mik- ið, því þú varst stór hluti af lífi okkar. Þú varst ein af þeim bestu persónum sem við höfum þekkt. Þínar langömmustelpur Erla Ósk, Anna Sif og Svanhildur Ragna. Elsku „amma“ mín. Ég er svo þakklátur fyrir að hafa kynnst þér og fyrir það sem þú varst mér. Í mínum huga varst þú aldrei annað en amma mín. Það er gott að vita að þú ert á góðum stað núna og án allra þjáninga. Ég mun ávallt sakna þín. Þinn Guðmundur. Nú er Ragna móðursystir okkar látin eftir langvinn og erfið veikindi. Þrátt fyrir langar sjúkrahúslegur á seinni árum bar hún sig vel, var með fulla reisn, skýr og klár til hinstu stundar en í lokin var hún hvíldinni fegin. Ragna var dóttir hjónanna Sigríð- ar Kristínar Þorláksdóttur og Ágústs Friðrikssonar járnsmíða- meistara, yngst þriggja systra, en elst var Ásta móðir okkar, þá Gíslína Guðrún, alltaf kölluð Nína og loks Ragna. Það voru einungis rúm þrjú ár á milli elstu og yngstu systurinn- ar. Þær fæddust allar á Njálsgötu 30 en seinna fluttist fjölskyldan að Hverfisgötu 32 ásamt Ástríði móð- urömmu þeirra. Þar ólust þær systur upp næstu árin en voru aðeins 16, 18 og 19 ára þegar amma þeirra lést og aðeins mánuði seinna dó móðir þeirra langt fyrir aldur fram. Það var þeim mikill missir og hafði djúpstæð áhrif á líf þeirra. Ragna frænka var einstaklega fal- leg og fíngerð kona með létta lund, fáguð í framkomu, söngelsk og skemmtileg og það er með mikilli hlýju sem við systur minnumst henn- ar allt frá því að hún bjó með stórri fjölskyldu sinni á Freyjugötunni. Það var alltaf gott og notalegt að koma til Rögnu og ævinlega tekið á móti okk- ur með pönnukökum sem í þá daga voru bakaðar á kolaeldavélinni. Ragna hafði einstakt lag á börnum, hún talaði við þau eins og fullorðið fólk og börn löðuðust að henni. Hún átti sjálf barnaláni að fagna, ól upp sex börn og afkomendahópurinn er orðinn stór. Okkur systrum er líka minnisstætt hve kettir hændust að henni og oft var farið til fisksalans og beðið um þunnildi í kattaveislu. Sjálf átti hún ketti og kettir annarra komu gjarnan í heimsókn. Síðustu árin voru Rögnu erfið vegna veikinda, hún gat þó búið að mestu leyti ein í íbúð sinni til síðasta dags með góðri umönnun og stuðn- ingi barna sinna sem reyndust henni einstaklega vel. Með þessum fátæklegu orðum vilj- um við systur kveðja frænku okkar. Andlát Rögnu er móður okkar mikill missir, en Nína systir þeirra giftist ung til Bandaríkjanna og hefur búið þar síðan. Við sendum ástvinum Rögnu inni- legar samúðarkveðjur og vitum að þeir eiga dýrmætan sjóð minninga um hana. Guð blessi Rögnu móður- systur. Hildur og Bryndís. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við and- lát og útför ÁSTU STEINUNNAR GISSURARDÓTTUR frá Litlu-Hildisey, Landeyjum, áður til heimilis á Tunguvegi 8, Njarðvík. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheim- ilisins Garðvangi, Garði. Steinar Bjarnason, Sólveig Kristinsdóttir, Nicolai Gissur Bjarnason, Svanhildur Einarsdóttir, Hjördís Margrét Bjarnason, Helgi Jóhannsson, Óskar Bjarnason, Guðbjörg Þóra Hjaltadóttir, Skúli Bjarnason, Emilía Dröfn Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN AÐILS KRISTJÁNSSON múrarameistari, Bræðratungu 19, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju föstu- daginn 3. júní kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknar- félög. Lovísa Hannesdóttir, Unnur Sólveig Björnsdóttir, Hannes Björnsson, Hafdís Ólafsdóttir, Kristján Björnsson, Helga Haraldsdóttir, Sigríður Björnsdóttir, Brynjar Guðmundsson, Illugi Örn Björnsson, Fanný María Ágústsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar innilegustu þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐRÍÐAR STEFANÍU VILMUNDSDÓTTUR, Hraunsvegi 17, Njarðvík. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki hjúkrunardeildar í Víðihlíð og sjúkradeildar HSS, Sigurði Árnasyni lækni og Friðbirni Sigurðssyni lækni. Jón Þórðarson, Marín Margrét Jónsdóttir, Óli Kristinn Hrafnsson, Sigríður Dagbjört Jónsdóttir, Einar Ólafur Steinsson, Rut Jónsdóttir, Ágúst Jóhann Gunnarsson og barnabörn. Þökkum samúð og vinarhug vegna andláts ELÍNAR J. JÓNASDÓTTUR kennara, Sóltúni 2, Reykjavík. Jónas Finnbogason, Kristín Arnalds, Edda Finnbogadóttir, Guðgeir Pedersen, Matthías Axelsson, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær maðurinn minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, KRISTJÁN BELLÓ GÍSLASON fyrrv. leigubílstjóri, Vogatungu 101, Kópavogi, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð að kvöldi þriðjudagsins 31. maí. Halldóra Stefánsdóttir, Vera Kristjánsdóttir, Gísli Þ. Kristjánsson, Oddný S. Gestsdóttir, Guðleif Kristjánsdóttir, Helgi H. Eiríksson, Arnþrúður M. Kristjánsdóttir, Hafsteinn M. Guðmundsson, Stefán R. Kristjánsson, Agla B. Róbertsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður míns, tengdaföður okkar, afa, fósturföður og bróður, GYLFA ÁRNASONAR, Árskógum 2, sem lést 13. janúar sl. Sérstakar þakkir til starfsfólks Skógarbæjar fyrir góða umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Árni Stefán Gylfason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.