Morgunblaðið - 03.06.2005, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 47
VW Golf árg.'96, ek. 135 þús. V.
315 þús. Tilboðsverð kr. 315.000.
Listaverð kr. 389.000. Sk. 09/06.
3ja dyra, 5 gíra. Guðjón, sími 661
9660.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Bílaþjónusta
Bryngljái á bílinn!
Endist árum saman - verndar
lakkið - auðveldar þrif.
Mössun - blettun - alþrif - djúp-
hreinsun. Yfir 20 ára reynsla!
Litla Bónstöðin, Skemmu-
vegi 22, sími 564 6415.
Ökukennsla
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Suzuki Grand Vitara,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
BMW 116i, nýr, bifhjólak.
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat, '05
892 4449/557 2940.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Glæsileg kennslubifreið,
Subaru Impreza 2004, 4 wd.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
símar 696 0042 og 566 6442.
Tjaldvagnar
Raclet tjaldvagnar. Vorum að fá
hina vinsælu Raclet tjaldvagna
til sölu, frábært verð. Upplýsingar
hjá Víkurverki í síma 557 7720 og
www.vikurverk.is. Opið virka
daga kl. 9-18, laugardaga 12-16.
Mótorhjól
Honda CBR900RR, árgerð 2000
Verð 900.000. Ekið 30.000 (vél
11.000) með kraftpústi. Nýlega yf-
irfarið og í toppstandi. Ný keðja
og tannhjól. Mjög fallegt hjól.
Verð 900 þús. staðgrafsláttur.
Sími 869 0316.
Bílar aukahlutir
Grand Cherokee VARAHLUTIR
Er að rífa Grand Laredo 1995.
Passar í '93-'98, góð sjsk, felgur
og flest annað. Sími 896 5120.
Varahlutir
Jeppapartasala Þórðar,
Tangarhöfða 2, sími 587 5058
Nýlega rifnir Grand Vitara '00, Kia
Sportage '02, Pajero V6 92', Terr-
ano II '99, Cherokee '93, Nissan
P/up '93, Vitara '89-'97, Patrol '95,
Impreza '97, Legacy '90-'94, Isuzu
pickup '91 o.fl.
Renault Laguna 1.8
Nýskr. 07/02, ek. 56 þ. km, stein-
grár, álfelgur, geislaspilari, spoil-
er o.fl. Verð 1.490.000 þús.
Kíktu á nýja stóra bílasölusvæðið
við Klettháls. Þar eru margar
bílasölur, mörg hundruð bílar, þar
erum við… sjáumst!
Heimsbílar,
Kletthálsi 11a,
110 Rvík, sími 567 4000.
www.heimsbilar.is
Ford Explorer Executive, 09/
1996, 4000cc 6cyl, sjálfskiptur,
blásanseraður, ýmsir aukahlutir,
dráttarkrókur, góð 31' dekk, ek.
aðeins 95 þkm. Einstaklega vel
meðfarinn og fallegur bíll.
Nýskoðaður. Verð 1.100 þús.
Sími 820 5289.
MMC (Mitsubishi), árg. '96, ek.
168 þús. km, L300 Mínibus, 8
manna, dísel, á álfelgum til sölu.
Aukadekk á felgum. Upplýsingar
í símum 894 3127 og 896 3127.
Smáauglýsingar • augl@mbl.is
Gerðu góð kaup! Vel með farinn
Chevrolet Astro árgerð '99, 8
manna, 4.3 l, 190 h., leður, krókur
o.m.fl. Góður staðgreiðsluafsl.
Uppl. í síma 840 3425.
FRÉTTIR
KVENNASKÓLANUM í Reykjavík
var nýlega slitið í 131. sinn við há-
tíðlega athöfn í Hallgrímskirkju að
viðstöddu fjölmenni. Brautskráðir
voru 99 stúdentar að þessu sinni.
Hæstu einkunn á stúdentsprófi
hlaut Ingunn Gyða Hrafnkelsdóttir,
nemandi á náttúrufræðibraut, en
hún útskrifaðist með einkunnina
9,50. Dúx skólans á bekkjarprófi
var Hrafnhildur Birgisdóttir, nem-
andi í 2. bekk á náttúrufræðibraut,
með einkunnina 9,9 og jafnar eigið
skólamet á bekkjarprófi. Brottfall í
skólanum var 3% í vetur.
Verðlaun voru afhent fyrir góðan
námsárangur í ýmsum greinum á
stúdentsprófi. Auk fleiri verðlauna
hlaut Hrönn Guðmundsdóttir Stúd-
entspennann 2005 úr verðlauna-
sjóði dr. Guðrúnar P. Helgadóttur
fyrir bestu stúdentsritgerðina. Að-
alverðlaun skólans, verðlaun úr
Minningarsjóði frú Þóru Melsteð,
stofnanda Kvennaskólans í Reykja-
vík, fyrir hæstu meðaleinkunn og
besta heildarárangur á stúdents-
prófi 2005, hlaut Ingunn Gyða
Hrafnkelsdóttir. Hún hlaut einnig,
auk annarra viðurkenninga, verð-
laun Efnafræðifélagsins fyrir fram-
úrskarandi árangur í efnafræði.
Kór Kvennaskólans söng við at-
höfnina og Ingunn Gyða Hrafnkels-
dóttir nýstúdent söng einsöng.
Emma Björg Eyjólfsdóttir flutti
ávarp fyrir hönd nýstúdenta. Við
útskriftina voru fulltrúar 60 ára, 55
ára og 20 ára útskriftarnemenda
auk 50 ára útskriftarárgangsins en
fyrir hans hönd flutti Helga Guð-
mundsdóttir ávarp.
Skólaslit Kvennaskólans í Reykjavík
FRAMHALDSSKÓLANUM á Húsavík var slitið við há-
tíðlega athöfn í Húsavíkurkirkju á dögunum. Að þessu
sinni útskrifuðust 19 stúdentar, einn nemandi lauk
námi af viðskiptabraut, tveir af almennri braut og sjö
af almennri braut – endur-menntun. Þá voru kvaddir
þrír erlendir skiptinemar sem dvalið hafa á Húsavík í
vetur og stundað nám við skólann.
Margvíslegar viðurkenningar voru veittar að venju
fyrir góðan námsárangur. Viðurkenningu fyrir hæstu
meðaleinkunn á stúdentsprófi fékk Helga Ragn-
arsdóttir en vegin meðaleinkunn hennar var 8,25 og
lauk Helga stúdentsprófi á þremur árum.
Morgunblaðið/Hafþór
Útskriftarhópurinn með Guðmundi Birki Þorkelssyni, skólameistara FSH.
Brautskráning frá FSH
ÖKUMENN þurfa að aka hægar,
taka sér tíma til að spenna beltin og
fullorðnum hjólreiðamönnum er
bent á að höfuð þeirra er viðkvæm-
asti hluti líkamans, líka eftir að full-
orðinsaldri er náð. Þetta eru í stuttu
máli skilaboð Jóns S. Ólasonar yf-
irlögregluþjóns á Akranesi til bæj-
arbúa. Að undanförnu hefur lögregl-
an þar beint athygli sinni
sérstaklega að hraðakstri og notkun
öryggisbúnaðar í umferðinni.
Um 30 ökumenn hafa verið kærðir
fyrir hraðakstur og næstum jafn-
margir fyrir að nota ekki öryggis-
belti, bæði ökumenn og farþegar.
Lögregla mun halda áfram að
sporna við hraðakstri með auknu
eftirliti. Jón segir að öryggisbelt-
anotkun í bænum sé ekki viðunandi
og virðist margir haldnir þeim rang-
hugmyndum að slys verði bara á
ákveðnum stöðum og við ákveðnar
aðstæður og þá þannig að einhverjir
aðrir en þeir sjálfir lendi í þeim, seg-
ir í tilkynningunni. Algengar afsak-
anir fyrir að nota ekki öryggisbelti
voru t.d.: „Ég var bara að skjótast út
í búð“ eða „ég ætlaði nú ekkert
langt“. Telur Jón óskiljanlegt með
öllu að fólk skuli spara sér nokkrar
sekúndur við að setja á sig beltið og
leggja með því líf og heilsu að veði.
Börnum gert að leiða
hjólin heim
Jón segir að því miður beri of mik-
ið á því að börn hjóli án hjálma og að
þau noti ekki hjálma og hlífar við
notkun línuskauta. Mikilvægi þessa
búnaðar eigi að vera ljós auk þess
sem það sé bundið í lög að börn und-
ir 15 ára aldri skuli nota hjálma.
Lögreglan á Akranesi hefur haft af-
skipti af 30 hjálmlausum börnum
undanfarna daga. Börnunum hefur
verið gert að leiða hjólin heim og
foreldrunum er sent bréf þar sem
nauðsyn öryggisbúnaðar er brýnd
fyrir þeim. Jón segir að það megi á
hinn bóginn velta því fyrir sér hvort
fyrirmyndirnar, þ.e. fullorðna fólkið,
þurfi að taka sér tak því sumir virð-
ist beinlínis halda að það sé skylda
að hætta að nota hjálm þegar 15 ára
aldri er náð.
Yfirlögregluþjónninn á Akranesi
brýnir öryggi fyrir bæjarbúum
Óskiljanlegt að sleppa
öryggisbeltunum
ÍSLENDINGAR eru ekki þekktir
fyrir að bera tilfinningar sínar á
torg, en það býðst þeim einmitt
að gera á morgun. Tilfinn-
ingatorg verður haldið í garði
veitingastaðarins Hressó við Aust-
urstræti kl. 14-18 og eru allir vel-
komnir.
Elísabet Jökulsdóttir tekur á
móti gestum, sem býðst að viðra
tilfinningar sínar í gamni eða al-
vöru. Hún segir fólk vera forvitið
um fyrirbærið og að aðsókn hafi
aukist smám saman. Tilfinn-
ingatorgið á að vera skemmtilegt
og gestir þurfa ekki að undirbúa
ræður, engin ritskoðun er og það
má alveg grínast.
Nýlega fór hópur Íslendinga til
Jemen og hélt þar vel heppnað til-
finningatorg. Elísabet hvetur fólk
til að koma við á morgun. Hún
segir að ef maður deili tilfinn-
ingum sínum margfaldist þær og
að um leið og maður gefi eitthvað
af sér fái maður það til baka.
Tilfinningatorg
á Hressó
STJÓRN Sambands ungra fram-
sóknarmanna, SUF, sendi frá sér
ályktun þar sem varað er við hug-
myndum um afnám vaxtabóta-
kerfisins.
„Vaxtabæturnar eru eitt besta
tæki sem hið opinbera hefur kom-
ið á til að hjálpa einstaklingum til
að koma sér þaki yfir höfuðið og
dregur þar með úr útgjöldum til
húsaleigubóta til lengri tíma litið.
Fjöldi ungs fólks hefur stofnað til
skulda og tekið vaxtabótakerfið
með í reikninginn við sínar
ákvarðanir og er því afar mik-
ilvægt að ekki sé hreyft um of við
kerfinu og ekki kemur til greina
að leggja það niður,“ segir í
ályktuninni.
SUF telur að draga eigi úr
tekjutengingu kerfisins til að
draga úr jaðarskattaáhrifum,
enda sé ungt fólk sem er að koma
sér þaki yfir höfuðið oft með þó-
nokkrar tekjur en að sama skapi
mikil útgjöld vegna námslána,
húsnæðislána og annarra fjárfest-
inga sem nauðsynlegar séu í nú-
tíma þjóðfélagi. Þá telja ungir
framsóknarmenn að lækka megi
eignaþröskuld kerfisins á móti,
enda sé tilgangur kerfisins að
hjálpa fólki í fyrstu skrefum
íbúðakaupa meðan eignir þess
séu litlar.
SUF varar við af-
námi vaxtabóta