Morgunblaðið - 03.06.2005, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 53
DAGBÓK
Félagsstarf
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14. Handa-
vinna kl. 9–12. Smíði/útskurður kl.
13–16.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, böðun, hárgreiðsla, fótaað-
gerð.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 9–12 baðþjónusta, kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan opin, kl.
11.15–12.15 matur, kl. 14–14.45 söng-
stund, kl. 14.30–15.30 kaffi.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist spiluð í kvöld, föstudag kl
20.30, í Gjábakka.
Félag eldri borgara Kópavogi,
ferðanefnd | Ferð á vegum FEBK á
Rangárvelli og Njáluslóðir föstudag-
inn 10. júní. Farið frá Gjábakka kl.
09.00 og Gullsmára kl. 09.15. Ekinn
Landvegur að Galtalæk, Hraunteig,
Þingskálum, Gunnarssteinn, Keldur.
Matur að Hlíðarenda/ Hvolsvelli – ek-
inn Fljótshlíðarhringur, Oddi. Skrán-
ingarlistar í félagsmiðstöðvunum.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Ferð um Vestfirði 1.–6. júlí, dagsferð
um Rangárvelli, Njáluslóðir, 9. júní.
Skráning á skrifstofu félagsins í síma
588 2111.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Þjóðhátíð í Gullsmára. Það stendur
til að vera með grillveislu í Gullsmára
í hádeginu 16. júní. Þeir sem hafa
áhuga á að vera með vinsamlegast
skrái sig fyrir 6. júní á töflu eða í
síma 564 5260. Harmonikkuspil og
dans á eftir. Allir velkomnir.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Garðaberg er opið frá 12.30 til 16.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–
16.30 vinnustofur opnar án leiðsagn-
ar. Kl. 10.30 létt ganga um nágrenn-
ið. Frá hádegi spilasalur opinn.
Kvennahlaup ÍSÍ laugard. 11. júní.
Lagt af stað frá Gerðubergi kl. 11.
Skráning hafin á staðnum og í síma
575 7720.
Furugerði 1 | Í dag kl. 9 aðstoð við
böðun. Kl. 14 sagan, kaffi kl. 15.
Furugerði 1 | Kl. 9 aðstoð við böðun,
kl. 14 sagan, kaffiveitingar kl. 15.
Hraunbær 105 | Kl. 9 baðþjónusta,
útskurður, hárgreiðsla, fótaaðgerð,
kl. 10 pútt, kl. 12 hádegismatur, kl. 13
bókabíll, kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Leikfimi í Bjarkarhúsinu kl. 11.30.
Brids kl. 13. Seldir miðar í
Hvalfjarðarferðina kl. 13–16.
Hvassaleiti 56–58 | Böðun virka
daga fyrir hádegi. Hádegisverður.
Fótaaðgerðir 588 2320. Hársnyrting
517 3005.
Hæðargarður 31 | Betri stofa og
Listasmiðja kl. 9–16. Frjáls handa-
vinna og myndlist. Gönuhlaup kl.
9.30. Brids kl. 13.30. Skráning í hópa
og námskeið fyrir haustönn. Hár-
greiðslustofa kl. 9–12 sími 568 3139.
Upplýsingar í síma 568 3132.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 opin hárgreiðlu-
stofa, kl. 9–12 myndlist, kl. 14 leikfimi.
Vesturgata 7 | Kl 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–14.30
handavinna. Kl. 11.45–12.45 hádegis-
verður. Kl. 13:30 sungið við flygilinn
við undirleik Sigurgeirs, kl. 14.30–
16.00 dansað í kaffitímanum við
lagaval Sigvalda, gott með kaffinu .
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, leikfimi kl. 10.00, hárgreiðsla,
fótaaðgerðir og böðun, bingó kl.
13.30.
Kirkjustarf
Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn
kl. 10–12. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
Kirkja unga fólksins, samkoma kl.
20.00. Ræðum. Glenn Kaiser. Lof-
gjörðin er í höndum Glenn Kaiser
Band. Allir velkomnir. www.filo.is.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Listahátíð í Reykjavík
Dagskráin í dag
Ýmir kl. 20:00
Tónleikar með Garth Knox víóluleikara og
víóluleikurum úr Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands verða á Listahátíð í samvinnu við
Víólufélag Íslands. Á tónleikunum verða
m.a. frumflutt ný verk eftir Daníel Bjarna-
son, Hafliða Hallgrímsson og Garth Knox.
Tónleikarnir eru hluti af fjögurra daga al-
þjóðlegri víóluráðstefnu sem Víólufélag Ís-
lands stendur fyrir dagana 2. til 5. júní.
Lista- og menningarhátíð
Hafnarfjarðar 1. - 16. júní
Kl. 19.30 Opnunarkvöld Gamla
bókasafnsins við Mjósund.
Gamla bókasafnið mun eins og
fyrri ár taka virkan þátt í Björt-
um dögum og hefst dagskrá þar
með Jazzkvöldi. Fram koma
Kristjana Stefánsdóttir, Stór-
sveit tónlistarskóla Hafnar-
fjarðar, Djangó band, Norton,
FÍH-samspil og UHU.
Kl. 20:00 Opnun sýningar KFL
group í Gamla Kaupfélagshús-
inu, Strandgötu 28. Sýningin
stendur til 23. júní og er opið
alla daga frá 14-18. Aðgangur
ókeypis.
Kl. 20:00 Móðir mín Dóttir mín.
Nýtt íslenskt leikverk.
Bjartir dagar
TÓNLISTARSKÓLI Borgarfjarðar útskrifar tvo söng-
nemendur með áttunda stig nú í vor. Það eru Ásdís Har-
aldsdóttir sópran og Auðbjörg Agnes Gunnarsdóttir
mezzósópran. Tónleikarnir verða í Salnum Kópavogi í
dag kl. 18:00.
Ásdís Haraldsdóttir stundaði söngnám við Tónlistar-
skóla Borgarfjarðar frá árinu 2000 og hefur Dagrún
Hjartardóttir verið kennari hennar frá upphafi, að
undanskildum einum vetri er Dagný Jónsdóttir kenndi
henni. Ásdís hefur tekið þátt í söngnámskeiðum hjá Mar-
iu Teresu Uribe og Paul Farrington. Hún syngur með
Kammerkór Vesturlands auk þess sem hún hefur sungið
einsöng við ýmis tækifæri.
Auðbjörg Agnes Gunnarsdóttir stundaði söngnám við
Söngskólann í Reykjavík hjá Sigrúnu Andrésdóttur og
við Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem söngkennari
hennar var Sieglinde Kahman. Haustið 2002 hóf Agnes
söngnám við Tónlistarskóla Borgarfjarðar þar sem Dag-
rún Hjartardóttir hefur verið kennari hennar. Hún syng-
ur með Kammerkór Vesturlands og hefur sungið ein-
söng við ýmis tækifæri.
Meðleikari á tónleikunum er Zsuzsanna Budai.
Auðbjörg Agnes Gunnarsdóttir og Ásdís Haraldsdóttir.
Útskriftartónleikar Ásdísar og
Auðbjargar haldnir í Salnum
ÁSTÞÓR Jóhannsson opnar sýn-
ingu á vatnslitamyndum í Norska
húsinu Stykkishólmi á morgun kl.
15. Ástþór er grafískur hönnuður
frá Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands. Hann hefur unnið við hönn-
un og hugmyndavinnu í tengslum
við ímyndar- og markaðsstarf ým-
issa fyrirtækja undanfarna tvo
áratugi.
Ástþór býr á Snæfellsnesi og
starfar þar sem bóndi og sjálfstætt
starfandi grafískur hönnuður.
Hann var formaður Félags Ís-
lenskra teiknara á árunum 1999 –
2004. Verkin á sýningunni í
Norska húsinu eru unnin á síðustu
tveimur árum.
Sýningin heitir „Horfnir veður-
vitar.“ Þar verða sýnd 40 verk sem
unnin eru upp úr lýsingum á for-
ystufénaði úr safni Ásgeirs Jóns-
sonar frá Gottorp. Á opnunardag-
inn leikur Sigurður Halldórsson
sellóleikari verk eftir íslensk tón-
skáld.
Sýningin er opin alla daga frá
kl. 11.00 til 17.00, á opnunartíma
Norska hússins og stendur sýning-
in til 26. júní nk.
„Horfnir veðurvitar“
Nákvæmni.
Norður
♠Á53
♥ÁD
♦ÁK8642
♣62
Vestur Austur
♠84 ♠KD97
♥G9863 ♥7542
♦D953 ♦G
♣43 ♣Á1098
Suður
♠G1062
♥K10
♦107
♣KDG75
Suður verður sagnhafi í þremur
gröndum og fær út smátt hjarta.
Hvernig er best að spila?
Markmið sagnhafa er að samnýta
sem best möguleikana í láglitunum.
Hann þarf alltaf minnst einn slag á
lauf, svo það virðist rökrétt byrjun að
taka fyrsta slaginn á hjartaás (til að
eiga innkomu á kónginn heima) og
spila laufi á kóng. Ef vestur á laufás
og drepur, verður laufið að falla 3-3,
en ef austur er með laufásinn getur
sagnhafi snúið sér að tíglinum og
tryggt sér þar fimm slagi þegar lit-
urinn brotnar 3-2.
Þetta er góð áætlun, en ekki alveg
nógu nákvæm. Betra er að taka á
tígulásinn í öðrum slag og henda tí-
unni undir ef austur fylgir með drottn-
ingu, gosa eða níu. Spila svo laufi á
kóng og tígli að blindum með því hug-
arfari að yfirdrepa sjöuna með áttu ef
vestur dúkkar.
Eins og legan er fer spilið fer niður
ef sagnhafi „gleymir“ að leggja niður
tígulásinn í öðrum slag.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Í KVÖLD kl. 20 verður mikið um að
vera í Gamla Kaupfélagshúsinu í
Hafnarfirði en þar opnar sýning í
tengslum við Bjarta daga sem
standa yfir í Hafnarfirði.
Að sögn Jóhönnu Helgu Þorkels-
dóttur, sem er með verk á sýning-
unni, er áhersla lögð á gleði, sumar
og fjölbreytileika hjá listamönn-
unum sem taka þátt. Þeir eru á öll-
um aldri og koma alls staðar að en
Jóhanna Helga segir að hugmyndin
að sýningunni hafi kviknað hjá
Ólöfu Björgu Björnsdóttur sem titl-
uð er kaupfélagsstýra hjá hópnum.
Hópurinn, sem kallar sig KFL
Group, er stór og alls sýna 27 lista-
menn verk sín á sýningunni. Þar
verða til dæmis málverk, skúlptúr-
verk, gjörningar og fleira. „Hópur-
inn ætlar sér að búa til eins konar
nýtt kaupfélag í gamla kaupfélag-
inu,“ segir Jóhanna Helga um sýn-
inguna.
Auk myndlistar verða á boðstól-
um hljómsveitirnar Glampar og
Úlpa. Lúðrasveit Hafnarfjarðar
tekur á móti gestum og dansararnir
Valgerður Rúnarsdóttir og Halla
Ólafsdóttir sýna spunadansverk.
Listamenn sem sýna verk sín
kalla sig KFL Group og eru: Ólöf
Björg Björnsdóttir kaupfélags-
stýra, Margrét M. Norðdahl, Jó-
hanna Helga Þorkelsdóttir, Kolbrá
Bragadóttir, Kristín Helga Kára-
dóttir, Helga Óskarsdóttir, Hlín
Gylfadóttir, Guðmundur Thorodd-
sen, Halla Dögg Sigurðardóttir,
Þórunn Inga Gísladóttir, Karen
Ósk Sigurðardóttir, Baldur Geir
Bragason, Þuríður Sigurðardóttir,
Elín Anna Þórisdóttir, Elísabet
Ólka Guðmundsdóttir, Guðbjörg
Hákonardóttir, Röðull Reyr Kára-
son, Hulda Vilhjálmsdóttir, Hlað-
gerður Íris Björnsdóttir, Maria El-
isabeth Wechner, Rósa Sigrún
Jónsdóttir, Hafsteinn Michael, Mó-
eiður Helgadóttir, Egill Ingibergs-
son, Halldór Hrafn, Ásdís Spanó og
Arndís Gísladóttir.
KFL group sýnir í Gamla Kaup-
félagshúsinu Strandgötu 28. Hafn-
arfirði 3. - 23. júní. Opið alla daga
14-18. Aðgangur ókeypis.
Hluti af KFL Group við undirbúning sýningarinnar.
KFL Group opnar sýningu
í Gamla Kaupfélagshúsinu
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 g6 4. O-O
Bg7 5. He1 e5 6. Bxc6 dxc6 7. d3
De7 8. a3 Rf6 9. b4 Rd7 10. Rbd2
O-O 11. Rc4 Rb6 12. Re3 Hd8 13.
Bd2 Ra4 14. De2 b5 15. g4 cxb4 16.
axb4 c5 17. Kh1 cxb4 18. Hg1 Rc3
19. Df1 Kh8 20. Rf5 gxf5 21. gxf5
Bb7 22. Rg5
Staðan kom upp á armenska
meistaramótinu sem lauk fyrir
skömmu í Erevan.
Tigran Kotanjian (2443) hafði
svart gegn Beniamin Galstian
(2448). 22... Rxe4! 23. dxe4 Hxd2 24.
Dh3 h6 25. Dh5 Hxf2 svartur hefur
nú gjörunnið tafl. 26. Ha6 f6 27.
Hg3 fxg5 28. Hxh6+ Kg8 29. Kg1
Hxc2 30. Kf1 Hc1+ 31. Ke2 Hac8
32. f6 H8c2+ 33. Kf3 Hf1+ og hvítur
gafst upp. Landsmótið í skólaskák
hefst í dag í Varmalandsskóla í
Borgarfirði.
Nánari upplýsingar um mótið er
að finna á vefsíðunni www.skak.is.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.