Morgunblaðið - 03.06.2005, Page 55

Morgunblaðið - 03.06.2005, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 55 MENNING Það logar í ofnunum og bráðiðgler er hönduglega með-höndlað í Gler í Bergvík, glerverkstæðinu á Kjalarnesi þar sem Sigrún Einarsdóttir ræður ríkjum. Þegar blaðamaður Morg- unblaðsins lítur inn er hún ásamt bandarískum nema að móta ilm- vatnsflöskur byggðar á skúlptúr Gerðar Helgadóttur myndhöggv- ara, sem ætlaðar eru til sölu í safni kenndu við Gerði í Kópavogi. Gler- kúla er brædd, teygð og blásin, stungið í form og húðuð með fín- möluðu gleri, þar logar í ofnum og á gasbrúsum og er heitt inni, margt í gangi og rífandi stemmning. Vinnu af þessu tagi gefst gestum og gangandi tækifæri til að sjá um helgar í sumar, þegar verkstæðið í Bergvík verður opið almenningi til áhorfs.    Sigrún stofnaði Gler í Bergvíkárið 1982 ásamt manni sínum heitnum, Sören Staunsager Larsen, sem lést í bílslysi fyrir rúmum tveimur árum. Þrátt fyrir fráfall hans hefur Sigrún haldið verkstæð- inu opnu og hefur meira en nóg að gera. „Við vorum með opið verk- stæði til að byrja með, þannig að fólk gat komið og séð hvernig hlut- irnir urðu til og keypt af okkur hluti. Við minnkuðum það smám saman og hættum því alveg í kring um 1990, en nú er ég að reyna að finna nýjar brautir fyrir verk- stæðið og sé fyrir mér að það verði margt í gangi í sumar sem fólki gæti þótt áhugavert að sjá,“ segir Sigrún þegar hún tekur sér hlé frá glerofnunum. Það verða sem sagt nokkrir nem- ar á verkstæði Sigrúnar í sumar; auk hins bandaríska sem að sögn hefur blásið gler frá tólf ára aldri og er mjög fær kemur danskt par og tvær íslenskar konur, sem ætla að vinna á verkstæðinu. „Krakk- arnir eru í einskonar starfsnámi og fá að nota ofninn fyrir sín eigin verkefni um helgar. Þá gefst mér tækifæri til að rabba við gesti á meðan og útskýra hvað er að ger- ast,“ segir hún.    Í Kaupmannahöfn er nýlokið sýn-ingu á verkum Sigrúnar, Sör- ens og Ólafar Einarsdóttur, text- íllistakonu og systur Sigrúnar, sem vakti mikla athygli. Hún bar heitið Gler Þræðir og var opnuð 18. mars síðastliðinn í Kunstindustrimuseet. „Sýningin var byggð á samnefndri sýningu sem við settum upp í Lista- safni ASÍ árið 2002, en sú sýning var haldin í tilefni 20 ára starfs- afmælis glerverkstæðis okkar Sig- rúnar og Sörens,“ útskýrir Ólöf. Þar áður hafði sýningin verið sett upp í einu virtasta glersafni heims, Glassmuseet Ebeltoft, og segir Sig- rún það hafa verið mikinn heiður að sýna á þessum tveimur stöðum. Sýningin inniheldur tvö verk sem þremenningarnir Sigrún, Ólöf og Sören gerðu í sameiningu, en einnig verk þeirra systra, bæði unnin í samvinnu og sitt í hvoru lagi, auk verka sem Sigrún og Sör- en útfærðu í sameiningu. Hefur sýningin vakið það mikla athygli að hún hlaut þriggja opna umfjöllun í vetrarhefti Neues Glass, sem er eitt virtasta glerlistatímarit heims. Aukinheldur prýðir annað verk- anna sem þær Sigrún og Ólöf unnu ásamt Sören forsíðu þess.    En hvernig skyldi gler og textílfara saman? Að mati bæði Ólafar og Sigrúnar eiga þessi tvö ólíku efni, gler og hrosshár, sem Ólöf notar mikið í verkum sínum um þessar mundir, mjög vel saman. „Þetta er mjög spennandi blanda,“ segir hún. „Þarna mætist mjúkt og hart, og það eru þær andstæður sem mér finnst svo áhugaverðar.“ Sigrún segir samvinnuna við Ólöfu mjög skemmtilega, enda virðist þær veita hvor annari inn- blástur á víxl. „Við mætumst á miðri leið, og berum mikla virðingu fyrir hvor annarri sem listakonum. Báðar höfum við mikla þekkingu á möguleikum þeirra efna sem við vinnum með og samvinnan er óg- urlega skemmtileg,“ segir hún og bætir við að ýmislegt sé í bígerð í framtíð þessara tveggja lista- kvenna. Þangað til fleiri fréttir berast er upplagt að skella sér upp í Bergvík og upplifa stemmninguna á glerverkstæði Sigrúnar um helg- ar í sumar. Sumaropnun í Bergvík ’Glerkúla er brædd,teygð og blásin, stungið í form og húðuð með fín- möluðu gleri, þar logar í ofnum og á gasbrúsum og er heitt inni, margt í gangi og rífandi stemmning. ‘ AF LISTUM Inga María Leifsdóttir Morgunblaðið/Inga María Leifsdóttir Sigrún, Ólöf og bandarískur gler- listanemi á verkstæðinu Gler í Bergvík. Gestum gefst tækifæri til að fylgjast með vinnunni þar um helgar í sumar. ingamaria@mbl.is Ljósmynd/Guðmundur Ingólfsson Verk Sigrúnar, Ólafar og Sörens, sem er á forsíðu vetrarheftis Neues Glas. STÚTUNGASAGA hefur reynst vinsæl hjá leikfélögum landsins síð- an leikritið var samið af Hugleik- urum og frumsýnt hjá þeim í Reykjavík árið 1993. Verkið snýr upp á Íslendingasögurnar svo um munar, gerir grín að hetjum, köpp- um og hjónabandssamningum þann- ig að öll tímamörk sögunnar eru þurrkuð út og ekkert er heilagt. Verkið fjallar í mjög grófum drátt- um um nokkrar fjölskyldur og tengsl þeirra; biskupinn kemur við sögu, svo og Noregskonungur og -drottning en það tekur bara sólar- hring að skreppa til Noregs og heim aftur. Brandarar fljúga og orðaleik- irnir eru óteljandi. Nokkuð flókinn söguþráðurinn gengur vel upp og tónlistin er afar vel samin, svo og söngtextarnir. Fyrrnefndum aðal- atriðum varðandi sögn verksins skila ungmennafélögin þrjú í Flóan- um alveg prýðilega undir stjórn Sig- urgeirs Hilmar Friðþjófssonar. Það er gott og gaman að sjá félög taka sig saman til þess að æfa stór- ar leiksýningar eins og hér er gert. Það er í rauninni furðulegt að hægt sé að setja upp svo mannmarga sýn- ingu á hinu litla sviði Félagsheim- ilisins og ekki hægt að neita því að hún nyti sín betur þar sem plássið væri meira. En eins og áður sagði er sýningin skemmtileg; í henni er snerpa og leikritið fær að mestu að njóta sín eins og það er skrifað, með áherslu á orðaleiki og brandara. Þó var ekki gott að sjá allt of langar myrkvanir milli sumra atriðanna því þær hægðu mikið á sýningunni sem ég sá. Einnig var synd hve upphafs- söngurinn var illa æfður og stað- setning leikaranna nokkuð furðuleg þar. Þriðji ókosturinn var lítilvæg- ari en sleppt var afar skemmtilegu mannlýsingaatriði þar sem orða- leikir höfunda njóta sín vel. Nokkrir leikarar voru afar góðir í hlutverkum sínum en eins og oft er með leikhópa sem setja sjaldan upp var mikið af óreyndu fólki á sviðinu. Stefán Geirsson og Fanney Ólafs- dóttir sem léku hjónin Harald og Ólöfu á Höfuðbóli voru bæði mjög örugg og fjarska fyndin í hlut- verkum sínum; Stefán var mjög höfðinglegur og rómantískur í ást sinni á drottningunni og Fanney var eins og sniðin í skáldkonuna sem skrifar fornbókmenntirnar á fágæt kálfskinn um leið og þær gerast. Stefán Ólafsson var feikna góður sem blómadrengurinn væmni, Atli á Höfuðbóli, og Rúnar Hjálmarsson átti góða spretti sem Haki vígamað- ur. Hallfríður Ósk Aðalsteinsdóttir sýndi rétta kyrrð, þrátt fyrir ungan aldur, sem Þuríður axarskaft, fjöl- kunnug hannyrðakona og vopna- smiður og leikstjórinn Sigurgeir Hilmar var fyndinn sem hinn þreytti Noregskonungur, pirraður á matgræðgi Íslendinga og skálda- hjali sem gekk í augun á drottning- unni. Sem innlegg í menningar- og vorhátíðina Fjör í Flóanum má leik- hópur ungmennafélaganna vel við una með sýninguna sína sem lætur áhorfendur hlæja sig máttlausa að ólíkindalátum og leik með menning- ararfinn. Fyndið leikrit í Flóanum LEIKLIST Ungmennafélögin Baldur, Vaka og Samhygð Höfundar: Ármann Guðmundsson, Hjör- dís Hjartardóttir, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Leikstjóri: Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson. Sýning í Þjórsárveri, 30. maí 2005 Stútungasaga Hrund Ólafsdóttir NIGHT moth er sólóverk fyrir kvendansara. Í því fylgjast áhorf- endur með konu sem leitast við að skapa eigið auðkenni í ókunnum heimi. Leit hennar ber hana á óþekktar slóðir þar sem hún tekst á við sjálfa sig og sitt nánasta um- hverfi. Þar sem tæknibúnaður skil- aði sér ekki til landsins var ekki hægt að sýna verkið í sinni upp- runalegu mynd, það var því til- brigði við verkið sem áhorfendur fengu að sjá. Höfundurinn dansaði sjálf í verkinu. Hún hreyfði sig í naumri rauðri lýsingu. Þegar þess- um kafla lauk blöstu við hlið- arsviðs háir ryðrauðir flekar. Lýs- ingin var með línurasta sem teiknaði sig á andlit og líkama dansarans. Stróp lýsing ýkti ein- tóna hreyfingar hennar enn frek- ar. Síbreytileg tölvugrafík þakti vegginn uppsviðs. Tölvuleikja- tónlist ómaði undir dansinum og var sem fjarlægur niður. Erfitt var að sjá dansarann í upphafi verks- ins þar sem lýsingin var of dauf. Upphafskaflinn gerði sig því illa. Verkið var meira myndverk en dansverk. Grafíkin yfirtók dansinn sem koðnaði niður í annars athygl- isverðri og mikilfenglegri umgjörð- inni. Það er vonandi að síðar gefist tækifæri til að sjá verkið eins og það var samið í upphafi. Rofin einsemd Rofin einsemd fjallar um óvænt- ar breytingar í lífi fjögurra karl- manna. Þeir tengjast ekki en eru farþegar í lífi hver annars. Þeir þvælast um, ýta við og vefja sig um hver annan og senda hreyf- ingaferli á milli sín án þess að vera meðvitaðir um það. Verkið er kóm- ískt og hreyfingarnar skemmtilega minimalískar. Í því eru athygl- isverðar kóreógrafískar fléttur. Minnisstæður er sólódans með höfuð og mjaðmahnykk undir ar- abískum tónum. Einnig máttleys- istilbrigði þar sem dansari heldur á púða tilbúinn að grípa dans- félaga sinn sem ráfar um sviðið. Flétturnar í verkinu voru sam- settar á snjallan máta og minntu félagarnir á Bakkabræður í klaufa- skap sínum. Lopinn var engu að síður teygður óþarflega og end- irinn endaslepptur. Að öðru leyti var Rofin einsemd ágætis skemmt- un. Danslist að hætti Tékka Lilja Ívarsdóttir DANSLIST Listahátíð í Reykjavík Borgarleikhúsið Night moth Danshöfundur, dansari og búningahöf- undur: Petra Hauerová. Ljósahönnun: Jirí Málek. Tónlist og hljóðhönnun: David Vrbík. Sviðsmynd og tölvulífgun: Vladimír 518. Mi non sabir (Rofin einsemd) Eftir Karine Ponties. Dansarar. Radek Macák, Pierre Nadaud, Rostislav Srom, Jaro Vinarský. Ljósahönnun: Florence Richard. Tónlist: Dominique Pauwels.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.