Morgunblaðið - 03.06.2005, Side 60
60 FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
A Lot Like Love kl. 6 - 8.15 og 10.30
Voksne Mennesker kl. 5.45 - 8 - 10.15
Crash kl. 5.45 - 8 og 10.15 b.i. 16
The Hitchhiker´s Guide... kl. 5.45 - 8 og 10.15
The Jacket kl. 8 og 10.10 b.i. 16
The Motorcycle Diaries kl. 5.40
Debra Messing Dermot Mulroney i t l
ROGER EBERT
ELISHA
CUTHBERT
CHAD MICHAEL
MURRAY
BRIAN
VAN HOLT
PARIS
HILTON
JARED
PADALECKI
Sjóðheit og sláandi góð hrollvekja með hinni
umdeildu djammstelpu, Paris Hilton, Elisha
Cuthert úr Girl Next Door og 24 þáttunum
og Chad Michael Murray úr One Tree Hill
Þáttunum. Stranglega bönnuð innan 16 ára.
j it l i ll j i i
il j t l , i ilt , li
t t i l t tt
i l ill
tt . t l i .
Í hraða lífsins kemur að því að við rekumst á
hvert annað
ROLLING STONE
RÓMANTÍK GETUR EYÐILAGT GÓÐA VINÁTTU
aston kutcher amanda peet
Í hraða lífsins kemur að því að við rekumst á hvert annaðÍ r lífsi s e r í i re st ert
Kvikmynd eftir Óskarsverðlaunahafann, Paul Haggis (“Million Dollar
Baby”). Sláandi og ögrandi mynd sem hefur fengið einvala dóma.
ROGER EBERT
ROLLING STONE
S.K. DV.
Capone XFM
FURÐULEGASTA ÆVINTÝRI ALHEIMSINS HEFST
ÞEGAR JÖRÐIN ENDAR
Fyrsta stórmynd sumarsins
DV MBL
Er þetta ást? Er þetta vinátta eða er þetta hvort
tveggja. Þetta er mynd sem þú og þín þurfið að sjá.
F J Ö L S K Y L D U D A G A R 300 KR MIÐAVERÐ Á VALDAR
Ó.H DV
H.L MBL
Ó.H.T RÁS 2
S.K. DV.
Capone XFM
Frábær og léttleikandi
rómantískgamanmynd með Debra
Messing úr „Will &Grace“ þáttunum
HLJÓMSVEITIN Singapore Sling
heldur tónleika á Grand Rokk í
kvöld. Tónleikarnir eru þeir síðustu
áður en hljómsveitin leggur upp í
ferð til Englands og Skandinavíu til
að spila fyrir þarlenda tónlistaraðdá-
endur. Hljómsveitin hefur gengið í
gegnum nokkrar mannabreytingar
undanfarið en sú hljómsveit sem
stígur á stokk í kvöld er, að sögn
Henriks Björnssonar söngvara og
Sigurðar M. Finnssonar áslátt-
ursleikara, sú sveit sem mun héðan
af skipa Singapore Sling. Auk Hen-
riks og Sigurðar eru í hljómsveitinni
Einar Þór Kristjánsson gítarleikari,
Ester Ásgeirsdóttir bassaleikari,
Hákon Aðalsteinsson gítarleikari og
Björn Viktorsson sem leikur á
trommur.
Á morgun heldur hljómsveitin til
London og spilar á tvennum tón-
leikum þar. Síðan heldur hún til
Noregs þar sem hún tekur þátt í tón-
listarhátíð áður en hún endar ferðina
í Svíþjóð með tvennum tónleikum, í
Ljungby og Stokkhólmi.
Singapore Sling hefur þegar gefið
út tvær hljómplötur, The Curse of
Singapore Sling sem kom út sumarið
2002 og Life is Killing my Rocḱn
Roll sem kom út í fyrra. Báðar plöt-
urnar komu út hjá Stinky Records í
Bandaríkjunum en hér á landi kom
síðari platan út hjá Sheptone Re-
cords sem er útgáfufyrirtæki hljóm-
sveitarinnar sjálfrar. Í sumar hyggst
hljómsveitin gefa út EP-plötu hér á
landi og vínyl-smáskífu í kjölfarið í
Bandaríkjunum. Vínyl-smáskífan
verður væntanlega gefin út hjá fyr-
irtækinu Committee to Keep Music
Evil en þar stendur í brúnni Anton
Newcombe nokkur, leiðtogi Brian
Jonestown Massacre og persónu-
legur vinur Singapore Sling.
Með Singapore Sling í kvöld leika
hljómsveitirnar Jeff Who?,
Skakkamanage og Rass. Tónleikarn-
ir hefjast klukkan 22.00.
Tónlist | Singapore Sling á leið í tónleikaferðalag
Endanleg
liðsskipan
komin
Morgunblaðið/Jim Smart
Singapore Sling ætlar að gefa út nýja EP-plötu í sumar.
Höskuldur Ólafsson
hoskuldur@mbl.is
AÐSTANDENDUR Live 8-
góðgerðartónleikanna hafa verið
gagnrýndir harðlega fyrir að bjóða
ekki fleiri svörtum listamönnum að
vera með.
Réttindasamtökin Black Inform-
ation Link hafa lýst því yfir að list-
inn yfir þá sem koma munu fram á
tónleikunum í Hyde Park í Lund-
únum sé „hræðilega hvítur“ og að
aðstandendur hafi valið svo gott
sem einvörðungu hvíta listamenn.
Mariah Carey er nær eini flytjand-
inn þar sem flokka mætti
sem fulltrúa litra lista-
manna.
Talsmenn Live 8-
tónleikanna hafa vísað
þessum ásökunum til föð-
urhúsanna. Bob Geldof
hafi þvert á móti boðið
fjölmörgum svörtum og
öðrum þeldökkum listamönnum að
vera með en flestir þeirra hafi af-
þakkað boðið vegna anna.
Í Fíladelfíu í Bandaríkjunum
koma fleiri svartir lista-
menn fram, m.a. 50 Cent,
Stevie Wonder og Jay-Z.
Svarti tónlistarmað-
urinn og rithöfundurinn
Patrick Augustus segist
sannfærður um að svartir
tónlistarmenn hafi verið
sniðgengnir þegar valið
var á tónleikana í Hyde Park. „Stóri
hvíti maðurinn virðist enn og einu
sinni ætla að bjarga okkur,“ segir
hann á heimasíðu Black Inform-
ation Link. Honum þykir það miður
vegna þess að svo margir listamenn
hafi verið sniðgengnir, breskir, afr-
ískir og frá Jamaíka, sem hafi látið
sig málefni Afríku svo miklu varða.
„Hvar eru allir reggílistamennirnir
sem barist hafa fyrir jafnræði og
sannleikanum öll þessi ár?“ Justin
Onyeka, ritstjóri dagblaðsins New
Nation, spyr sig og í viðtali við net-
útgáfu BBC hvar vinsælir svartir
listamenn á borð við Dizzie Rascal,
Ms Dynamite, Jamelia og Beverley
Knight séu. „Sama vandamálið var
uppi fyrir 20 árum síðan, þegar
svartir söngvarar fengu bara að
syngja bakraddir hjá öðrum.“ Tals-
menn Live 8 segja málið líka snúast
um að listamennirnir sem komi
fram verði að vera heimsfrægir, svo
hægt verði að vekja eins mikla at-
hygli á tónleikunum og söfnuninni
fyrir Eþíópíu og mögulegt er. Sum-
ir þessara svörtu listamanna í Bret-
landi séu einfaldlega óþekktir í
París og Róm.
Tónlist | Listi þátttakenda í Live 8 gagnrýndur
„Hræðilega hvítur“
Mariah Carey