Morgunblaðið - 10.06.2005, Síða 10

Morgunblaðið - 10.06.2005, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hæstiréttur ógilti úrskurð ráðherra Reyðaráls og taka með allt öðrum hætti á meng- andi útblæstri frá verksmiðjunni. Þá var útlit verksmiðju Alcoa öðruvísi en fyrirhugaðrar verksmiðju Reyðaráls. Því hafi ekki verið hægt að líta á byggingu álvers Alcoa sem sömu fram- kvæmd og áður hafði verið fengið umhverfismat um. Hæstiréttur komst því að þeirri niðurstöðu að ekki hefðu verið uppfyllt formskilyrði til að fara eftir ákvæði 6. gr. laga um mat á umhverfis- áhrifum um það hvort framkvæmd skuli háð umhverfismati og því hafi nýtt umhverfismat þurft að fara fram. Hæstiréttur hafnaði kröfum Hjörleifs um ógildingu ákvörðunar Umhverfisstofnunar um útgáfu starfsleyfis. Umhverfisstofnun veitti 14. mars 2003 starfsleyfi vegna álvers með 322 þús- und tonna ársframleiðslu í landi Hrauns í Reyðarfirði. Hjörleifur kærði þá ákvörðun til umhverfisráðherra sem vísaði kærunni frá 14. júlí 2003. Einnig hafnaði Hæstiréttur þeirri kröfu Hjörleifs að ógilda ákvörðun umhverfis- ráðherra um að vísa frá kæru hans vegna útgáfu starfsleyfisins. Lögmaður íslenska ríkisins var Skarphéðinn Þórisson hrl.. Lögmaður Alcoa á Íslandi ehf. og Fjarðaáls sf. var Hörður Felix Harðarson hrl. og lögmaður Hjörleifs Guttormssonar var Atli Gíslason hrl. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Markús Sigurbjörnsson, Garðar Gíslason, Guðrún Erlendsdóttir, Gunnlaugur Claessen og Hrafn Bragason. HÆSTIRÉTTUR Íslands staðfesti í gær nið- urstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur, frá 12. jan- úar í vetur, og ógilti úrskurð umhverfisráðherra frá 15. apríl 2003 varðandi ákvörðun Skipulags- stofnunar frá 20. desember 2002 um að ekki þyrfti umhverfismat vegna álvers Alcoa í Reyðarfirði. Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi al- þingismaður og ráðherra, stefndi á sínum tíma Reyðaráli, Alcoa á Íslandi, Fjarðaráli, fjármála- ráðherra og umhverfisráðherra. Í málinu var m.a. deilt um lögmæti umhverfismats og veit- ingu starfsleyfis fyrir álver í Reyðarfirði. Hjör- leifur hélt því m.a. fram að fara þyrfti fram sér- stakt umhverfismat vegna álvers Alcoa Fjarðaráls í Reyðarfirði, sem á að framleiða 322 þúsund tonn af áli á ári. Fyrir lá mat á umhverf- isáhrifum 1. og 2. áfanga álvers Reyðaráls með 420 þúsund tonna ársframleiðslu auk rafskauta- verksmiðju á sama stað. Í dómi Hæstaréttar segir m.a. að mat á um- hverfisáhrifum hafi farið fram vegna fyrirhug- aðs álvers Reyðaráls. Tillögur að starfsleyfi þess voru auglýstar til athugasemda, en athuga- semdir höfðu ekki verið afgreiddar og ekki tekin ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins áður en fall- ið var frá framkvæmdinni. Starfsleyfi fyrir áður fyrirhuguðu álveri var því ekki fyrirliggjandi þegar Skipulagsstofnun ákvað að ekki þyrfti að koma til nýs umhverfismats vegna álvers Alcoa. Við álver Alcoa hafi átt að nota að einhverju leyti aðra tækni við álframleiðsluna en í álveri „ÞAÐ er skilningur okkar og þeirra sem við höfum leitað til að dómurinn hafi ekki áhrif á fram- kvæmdir,“ sagði Tómas Már Sig- urðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls sf. Hann segir fyrirtækið ávallt hafa farið eftir lögum um mat á umhverfisáhrifum. „Við gerðum á sínum tíma, í samræmi við lögin, samanburð- arskýrslu [við umhverfismat Reyð- aráls] sem var mjög ítarleg og nálgaðist mat á umhverfisáhrifum að mörgu leyti. Við munum að sjálfsögðu láta framkvæma nýtt mat á umhverfisáhrifum. Ég get ekki sagt á þessu stigi hvað það kostar, en það er ekki ódýrt. Aðal- atriðið er að við munum skila inn matsáætlun á næstu vikum og láta framkvæma mat á um- hverfisáhrifum.“ Tómas Már sagði að niðurstaða Hæsta- réttar hefði komið sér á óvart, en Alcoa yrði að lúta henni. „Við hófum undirbúning að nýju umhverfismati þegar niðurstaða héraðsdóms lá fyrir. Ferlið hjá okkur hefur hingað til verið í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrif- um. Við keyptum mat af Reyðaráli og létum gera samanburðarskýrslu sem var í samræmi við lögin. Með þetta í höndum og niðurstöður rannsókna sem við höfum látið gera teljum við að það verði ekki tímafrekt ferli að fara í mat á umhverfisáhrifum.“ Umhverfisvernd forgangsmál Alcoa Fjarðaál hf. sendi frá sér yfirlýsingu í gær vegna dóms Hæstaréttar. Þar segir m.a. að allt frá því að undirbúningur fyrir starf- semi álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði hófst árið 2002 hafi fyrirtækið kapp- kostað að eiga náið samstarf við stjórnvöld og stofnanir hér á landi með það fyrir augum að tryggja að eðlilega og löglega væri staðið að öllum fram- kvæmdum. „Alcoa Fjarðaál hefur m.a. lagt ríka áherslu á að afla og miðla til stjórnvalda ítarlegum upplýsingum um ætluð um- hverfisáhrif álversins, enda er umhverfisvernd eitt af for- gangsmálum fyrirtækisins. Dómur Hæstaréttar felur í sér að framkvæma verður nýtt mat á umhverfisáhrifum álvers Alcoa Fjarðaáls. Hafin er vinna á vegum fyrirtækisins við að undirbúa mat á umhverfisáhrifum en ekki var unnt að hefja framkvæmd matsins meðan málið var fyrir dómstólum. Alcoa Fjarðaál mun starfa náið með Skipulagsstofnun til að tryggja að eðli- lega og löglega verði staðið að framkvæmd- inni. Enda þótt dómur Hæstaréttar komi á óvart og valdi vonbrigðum, leggur Alcoa Fjarðaál áherslu á að starfa í einu og öllu í samræmi við lög og reglur, samkvæmt ákvörðunum stjórn- valda og niðurstöðum dómstóla. Það er engum mikilvægara en fyrirtækinu sjálfu að óvissu um lögmæti framkvæmdanna verði eytt. Ítarlegar upplýsingar um umhverfisáhrif ál- vers Alcoa Fjarðaáls, sem staðfestar voru af sérfræðingum, lágu fyrir þegar Skipulags- stofnun tók sína ákvörðun. Fyrirtækið gerir því ekki ráð fyrir að nýtt mat á umhverfis- áhrifum muni tefja framkvæmdir á Austur- landi.“ Undirbúningur haf- inn vegna nýs mats Tómas Már Sigurðsson HJÖRLEIFUR Guttormsson telur dóm Hæstaréttar afar mik- ilvægan. Hann hafi verulega þýð- ingu fyrir stöðu umhverfisréttar í landinu, með tilliti til almenns samhengis málsins. Hæstiréttur hafi staðfest niðurstöðu héraðs- dóms. „Meira gat ég nú eiginlega ekki vænst í sambandi við þetta mál,“ sagði Hjörleifur í samtali við mbl.is í gær. Hann kveðst á sínum tíma hafa talið niðurstöðu héraðsdóms mjög mikilvæga og það hafi fleiri gert. „Lagalega séð vantar grunninn undir þetta álver. For- senda þeirra framkvæmda sem nú standa yfir er lögum sam- kvæmt mat á umhverfisáhrifum. Það mat er ekki til staðar. Lög voru brotin með því að ekki var látið fara fram sjálfstætt mat. Hæstiréttur tekur nú skýrt fram að slíkt mat beri að fara fram og það hefur að sjálf- sögðu sínar lögfylgjur.“ Hjörleifur segir að falli niðurstaða um- hverfismatsins Alcoa í hag verði að úthluta fyrirtækinu nýju starfsleyfi á grundvelli mats- ins. „Forsendurnar fyrir því starfsleyfi sem fyrirtækið fékk frá Umhverfisstofnun í mars 2003 eru brostnar. Það blasir við.“ Hjörleifur Guttormsson telur að Alcoa Fjarðaál verði að gera breyt- ingar á fyrirhuguðum meng- unarvörnum álversins í Reyðar- firði eigi það að komast í gegnum væntanlegt umhverfismat, í kjöl- far niðurstöðu Hæstaréttar í gær. „Ég ætla bara að vona það, Alcoa vegna, að þeir endurskoði málið frá grunni.“ Hjörleifur undraðist það í samtali við Morgunblaðið ef menn ætluðu að halda áfram framkvæmdum eins og ekkert hefði í skorist. „Mat á umhverfis- áhrifum er grundvallarplagg. Í þessu tilviki, og þá miða ég við mengunarvarnir eins og þeir hafa ætlað sér að haga þeim, ætla menn ekki að beita bestu fá- anlegri tækni.“ Hjörleifur nefnir að fyrir- huguð verksmiðja muni losa 26-falt meira brennisteinsdíoxíð á hvert framleitt tonn af áli til andrúmsloftsins en verksmiðja Reyðaráls hefði gert. Segist Hjörleifur þó ekki hafa verið neitt ánægður með þá verksmiðju í meng- unarvörnum. Í flúor er mengunin 50% meiri en gert var ráð fyrir hjá Reyðaráli. „Lykillinn að þessu er að þeir fara ekki út í að beita vothreinsun á þessa verksmiðju, sem hafði verið talið sjálfsagt á hina verksmiðj- una.“ Þau efni sem þar átti að leiða til sjávar, með milliþrepi í hreinsun, áttu ekki að valda skaðlegri mengun í sjó, að sögn Hjörleifs. „Þetta er aðalundrunarefnið varðandi meng- unarmál verksmiðjunnar. Ef menn ætla að taka málin eðlilegum tökum þá þurfa þeir að vera undir það búnir að breyta um stefnu að þessu leyti. Ég ætla rétt að vona að þeir geri það og umfram allt að ætla sér ekki að fara bara í einhvern þykjustuleik.“ Alþingi þarf að breyta lögum Hvað varðar kröfu Hjörleifs um ógildingu starfsleyfis vegna framkvæmdanna sagði hann það hafa legið í niðurstöðu héraðsdóms að það mál hefði þurft að nálgast með öðrum hætti en gert var. Kröfu Hjörleifs varðandi starfsleyfið var vísað frá fyrir héraðsdómi. „Það kom ekki á óvart að niðurstaða Hæsta- réttar var hliðstæð,“ sagði Hjörleifur. „Héraðsdómur bar fyrir sig að það hefði átt að stefna Umhverfisstofnun sérstaklega vegna starfsleyfisins, en ekki ráðherra eða ráðuneyt- inu eins og við gerðum.“ Hjörleifur sagðist hafa vonað að Hæstirétt- ur myndi breyta niðurstöðu héraðsdóms varð- andi kærurétt sinn til ráðherra vegna starfs- leyfisins. „Heimild mín sem einstaklings til þess að kæra niðurstöðu Skipulagsstofnunar um starfsleyfið til ráðherra var túlkuð af Hæstarétti, eins og af héraðsdómi, afar þröngt.“ Hjörleifur segir héraðsdóm hafa komist að þeirri niðurstöðu að nógu skýr fyr- irmæli varðandi kærurétt vantaði í lögin um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit. „Það er ekki sagt í lagatextanum berum orðum að allir eigi kærurétt. Hins vegar lá í af- greiðslu Alþingis, að mínu mati og míns lög- manns og ég held alþingismanna, að þeir væru að veita þennan rétt þó að það hafi ekki verið tekið inn í lagatextann. Ég skilaði minni- hlutaáliti varðandi afgreiðslu laganna, því ég var ekki sáttur við þau að öllu leyti, en meiri- hlutinn og talsmaður hans – formaður um- hverfisnefndar og reyndar ráðherrann að vissu leyti líka – höguðu orðum sínum þannig að það varð ekki öðru vísi skilið en að það væri verið að veita þarna fyllsta rétt og einnig kærurétt. En þetta dugði ekki dómstólunum sem réttarskýring. Eftir stendur þessi þrönga túlkun, sem er allt önnur en í sambandi við mat á umhverfis- áhrifum. Þar er tekið fram að allir hafi kæru- rétt. Að mínu viti þarf Alþingi að leiðrétta þetta með einfaldri lagabreytingu, því það eru engin efnisleg rök fyrir því að halda almenn- ingi frá að kæra starfsleyfi. Með þessari nið- urstöðu dómstólanna er verið að gefa Um- hverfisstofnun nánast sjálfdæmi. Hún tekur við athugasemdum fólks. Þær gerði ég. Síðan gef- ur hún út starfsleyfi og þú getur ekki kært það til næsta stjórnvalds! Þessi þrönga túlkun hjá báðum dómstólunum kemur verulega á óvart.“ Lagalegan grunn álversins vantar Hjörleifur Guttormsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.