Morgunblaðið - 10.06.2005, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
AUSTURLAND
Reyðarfjörður | Gróðrarstöðin Sól-
skógar ehf. hefur opnað útibú að
Hjallaleiru 1, sunnan hringtorgsins
á Reyðarfirði.
Að sögn Önnu Ragnheiðar Gunn-
arsdóttur garðyrkjufræðings
leggja þau hjá Sólskógum áherslu á
trjáplöntur, rósir, runna, limgerðis-
plöntur, fjölær blóm og blandaðar
kryddjurtir í pottum. Einnig ker og
potta, mold, áburð og fleira tengt
garðyrkju. Opið verður í júní virka
daga 15.00–19.00 og um helgar
13.00–16.00.
Sumarið á Austurlandi hefur lát-
ið bíða eftir sér og hefur því garð-
yrkja farið hægt af stað en nú er
góða veðrið á leiðinni.
Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir
Sólskógar á Reyðarfirði
Egilsstaðir | Byggingafyrirtækið
Rendita ehf. hefur sótt um bygg-
ingarleyfi fyrir 8.900 fermetra
verslunar- og skrifstofuhúsnæðis á
Kaupvangi 2–4 á Egilsstöðum,
gegnt húsi Kaupfélag Héraðsbúa.
Hafa eigendur lóðar og húss sem
stendur á lóðinni samþykkt að
selja Rendita lóðina undir bygg-
inguna. Gert er ráð fyrir að bygg-
ingin verði 5 hæðir með bílakjall-
ara á tveimur hæðum. Verslanir
eru hugsaðar á jarðhæð, skrif-
stofur á 2.–4. hæð og veitinga-
staður á 5. hæð. Þá er gert ráð
fyrir kvikmynda- og leiksýningasal
í húsinu. Hugmyndin er að húsið
verði allt úr gleri utan turns á
byggingunni. Kostnaðaráætlun
hljóðar upp á um einn milljarð
króna. Umsókn Rendita er nú til
umfjöllunar hjá bæjaryfirvöldum á
Fljótsdalshéraði og verður væntan
lega afgreidd innan skamms, þar
sem til stendur að auglýsa deili-
skipulag fyrir miðbæ Egilsstaða
innan fárra vikna.
Ljósmynd/AVH
Hugmynd um stórt glerhýsi í miðbænum
Kárahnjúkavirkjun | Tímamót urðu í virkjunar-
framkvæmdunum við Kárahnjúka á dögunum, þeg-
ar fyrsta sniglinum var komið á sinn stað í stöðvar-
hússhvelfingunni í Valþjófsstaðarfjalli. Þetta stykki
er hluti af hverfli einnar af sex vélum sem framleiða
munu rafmagn Kárahnjúkavirkjunar. Snigillinn er 6
x 7 metrar að stærð og 29 tonn að þyngd, fram-
leiddur á Ítalíu. Um þrjár klukkustundir tók að
koma sniglinum inn í fjallið í stöðvarhússhvelf-
inguna og í sæti sitt ofan á sográsinni. Snigill næstu
vélar er væntanlegur eftir nokkrar vikur og smátt
og smátt tekur þessi hluti virkjunarinnar þannig á
sig mynd.
Nýtt fjölbýli | Skóflustunga var í gær tekin á
Reyðarfirði að sex hæða fjölbýlishúsi fyrir aldraða. Í
húsinu verða 22 þjónustuíbúðir, félagsmiðstöð og þjón-
usta frá sveitarfélaginu. Leiguíbúðir í Fjarðabyggð
byggja og hafa þegar selt um helming íbúðanna.
Egilsstaðir | Hrafndís B. Einarsdóttir var á fleygi-
ferð eftir Egilsstaðanesinu með ungan son sinn,
Gísla Mar, í aftanívagni um helgina. Lengi hefur
verið beðið eftir reiðhjóla- og göngustíg milli þétt-
býlisins á Egilsstöðum og í Fellabæ, þar sem gang-
andi og hjólandi vegfarendur eru í hættu vegna um-
ferðarinnar, enda vegurinn hluti af þjóðvegi 1,
Austurlandsvegi.
Eiríkur Bj. Björgvinsson, bæjarstjóri Fljótsdals-
héraðs, segir frumhönnun göngu- og hjólreiðastígs
yfir nesið lokið og nú sé verið að kynna Vegagerð-
inni og eiganda að landinu meðfram þjóðveginum
hugmyndina. Vonast er til að fullnaðarhönnun stígs-
ins ljúki innan hálfs mánaðar og hægt verði að bjóða
verkið út í sumar og ljúka því seint í haust.
Hillir undir hjólreiða-
og göngustíg yfir nesið
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Brunað yfir nesið Hrafndís B. Einarsdóttir með Gísla litla Mar í aftanívagni.
Þrjár ungar konur braut-skrást frá Háskólanum áAkureyri á morgun,laugardag, sem ekki væri
í frásögur færandi nema fyrir það
að þær eru fyrstar til að ljúka BA-
námi í nútímafræði, en Háskólinn á
Akureyri er eini íslenski háskólinn
sem býður upp á nám í þessari
fræðigrein. Nútímafræði er þver-
fagleg grein á sviði hugvísinda,
þekkt kennslugrein í háskólum í
útlöndum, en í náminu er hugað að
rótum nútímans og þeim umbylt-
ingum sem honum hafa fylgt, auk
þess sem rýnt er í sjálft nútíma-
hugtakið og er fjallað um nútímann
frá mörgum hliðum og fræðigrein-
um.
Konurnar sem um ræðir eru þær
Ólína Freysteinsdóttir, Ragnheiður
Jóna Ingimarsdóttir og Þorgerður
Hafdís Þorgilsdóttir, en þær ljúka
námi með áherslu á mismunandi
sviði, Ólína á menntunar- og upp-
eldissviði, Þorgerður á sálfræði-
sviði og Ragnheiður á samfélags-
og hagþróunarsviði. Allar eru sam-
mála um að námið hafi verið afar
skemmtilegt, gefandi og fjölbreytt,
„það er hægt að velja á milli svo
margra og ólíkra áfanga“, sagði
Ragnheiður Jóna, en hún nefndi
einnig að reynsla sín af háskól-
anum væri góð, „þetta eru litlar
einingar, mikil samskipti og ná-
lægð við kennara og aðra nem-
endur“.
Ragnheiður Jóna ólst upp á
Hvanneyri í Borgarfirði, en hefur í
allmörg ár búið á Akureyri, hún er
tækniteiknari að mennt. Ólína er
snyrtifræðingur, fædd í Neskaup-
stað en hefur einnig búið lengi á
Akureyri líkt og Þorgerður sem er
fædd og uppalin í Reykjavík, en
hefur á síðastliðinum árum m.a.
stundað klassískt söngnám við Tón-
listarskóla Eyjafjarðar og hyggst
halda því áfram. Allar stefna þær
að framhaldsnámi síðar og segja
háskóla í útlöndum sækjast í aukn-
um mæli eftir nemendum sem lokið
hafi þverfaglegu námi, hafi breiðan
grunn.
„Mig langaði að prófa eitthvað
nýtt, “ sagði Ólína. „Ég féll alveg
fyrir þessu námi þegar ég sá það
auglýst, mér fannst það mjög
spennandi,“ sagði Þorgerður og
Ragnheiður Jóna tók í sama streng
og sagði að þegar hún kynnti sér
hvað í boði var innan nútímafræð-
innar hefði hún heillast af. Þor-
gerður prófaði fyrst nám á leik-
kólakennarabraut en fann sig ekki.
„Ég var að leita eftir einhverju í
líkingu við þetta,“ sagði hún. Allar
voru sammála um að hiklaust
mætti mæla með námi í nútíma-
fræði, það væri öllum gagnlegt að
staldra aðeins við og skoða heim-
inn í kringum sig, m.a. hvort allar
framfarir hefði orðið til góðs.
Lokaritgerð Ólínu er rannsókn á
breyttu uppeldishlutverki í nútíma-
samfélagi, en hún skoðaði m.a. þær
miklu breytingar sem orðið hafa á
starfsháttum hér á landi, fjöl-
skylduböndum og félagsskipan. Þá
skoðaði hún sérstaklega starf
kennara og viðhorf þeirra til upp-
eldis- og menntamála auk þess að
fjalla um vandamál sem snúa að
einstaklings-, sjúkdóms- og
markaðsvæðingu og lýsir áhyggj-
um yfir að skólinn hafi ekki sýni-
legan tilgang fyrir alla nemendur
þó öðru máli gegni um samfélagið.
Ragnheiður Jóna fjallaði um
sameiningu verkakvenna- og
verkamannafélaga og hvort hún
hefði orðið konum til framdráttar.
Setti hún fram þá tilgátu að hag
kvenna væri betur borgið í blönd-
uðum verkalýðsfélögum og að hag-
ur þeirra hefði við það vænkast
heldur en hitt. Hún skoðaði launa-
jafnrétti, blöndun í störf, sjúkra-
sjóðsréttindi, fjölskyldugildi og
vinnutíma í sögulegu samhengi og
samhengi við þjóðfélagsbreytingar.
Afbrot unglinga, orsök, úrræði
og meðferð mála er heiti á lokarit-
gerð Þorgerðar, en hún fjallaði um
afbrot ósjálfráða unglinga og
hvernig tekið er á málum, hvernig
lög eru varðandi meðferð slíkra
mála, hvaða meðferðarúrræði eru í
boði og einnig lítillega um með-
ferðarheimili fyrir ungmenni. Í
verkefninu er fjallað um fíkniefna-
neyslu og afbrot unglinga á Ak-
ureyri, viðtöl tekin við stúlkur á
meðferðarheimili og fanga í Fang-
elsinu á Akureyri með langan af-
brotaferil að baki.
Skemmtilegt, gefandi og fjölbreytt nám
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Nútímafræðingar Þær Þorgerður Hafdís Þorgilsdóttir, Ólína Freysteins-
dóttir og Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir brautskrást frá Háskólanum á
Akureyri á morgun, laugardag, en þær hafa lagt stund á nútímafræði við
háskólann, sem einn háskóla í landinu kennir þessa grein.
Fyrstu nútímafræðingarnir brautskrást frá Háskólanum á Akureyri
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
Rúgbrauðið, sem er frjálsleg-
ur götumarkaður í göngugöt-
unni Hafnarstræti á Akur-
eyri, verður opnaður í dag,
10. júní klukkan 12 á hádegi.
Áhersla verður lögð á ís-
lenska menningu, tónlist og
kvikmyndir, en fyrst og
fremst íslenska hönnun. Föt
frá DEAD, Ósóma og fleirum
ásamt eigin hönnun er meðal
þess sem í boði verður, ásamt
allskonar glingri, handverki
og jafnvel heimabakstri. Eins
og nafnið gefur til kynna er
húsnæðið fagurlega skreytt
VW Rúgbrauð, og verður
lögð mikil áhersla á skemmti-
lega stemmningu, en ást og
hamingja eru einkunnarorð
markaðarins. Í sumar má bú-
ast við að tónlistarmenn leggi
leið sína á markaðinn og spili
fyrir gesti og gangandi, og
verður eflaust líka eitthvað
um myndlist og leiklist í
tengslum við starfsemina.
Það er 19 ára gamall Akur-
eyringur, Ingimar Björn Dav-
íðsson, sem á og rekur Rúg-
brauðið, en hann hefur
mikinn áhuga á allri menn-
ingu.
„Þetta er framlag mitt til
að lífga upp á bæjarlífið á
Akureyri og þagga niður í
röddum sem telja að
menningu og skemmtilegt
miðbæjarlíf verði að sækja til
Reykjavíkur,“ segir Ingimar í
frétt um opnun markaðarins.
Frjálslegur
götumark-
aður í
Rúgbrauði