Morgunblaðið - 10.06.2005, Qupperneq 34
34 FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
MARGIR muna þá tíð að hlut-
irnir virtust einfaldari en þeir eru
í dag. Ef menn fundu til eymsla,
andlegra eða líkam-
legra, fóru þeir til
læknis. Með til-
komu svokallaðra
stoðstétta bauðst
fólki kostur á sér-
hæfðari úrræðum,
s.s. félagsráðgjöf,
sálfræðiviðtölum,
sjúkraþjálfun og
iðjuþjálfun. Á allra
síðustu árum hefur
átt sér stað gríðar-
leg þensla í meðferð
sem í daglegu tali
kallast óhefðbundin.
Mörg slíkra úrræða
hafa reynst fólki vel,
en hins vegar er
hægara sagt en gert
að átta sig á hvaða
tilboð standa undir
nafni. Þetta á ekki
síst við í ráðgjafar-
og meðferðar-
störfum. Ráðgjafar-
hugtakið er orðið að
einhvers konar safn-
kistu yfir allt sem
nöfnum tjáir að
nefna, allt frá snyrt-
ingarráðgjöf, útlits-, offitu-, fjár-
mála-, fata-, áfengis-, hjóna-, upp-
eldis-, og næringarráðgjöf til
erfðaráðgjafar. Í nafni ráðgjafar
getur nánast hver sem er gefið sig
út fyrir að „kunna allt“ eða alla
vega „geta allt“, oftast með mjög
einföldum ráðum. Þótt ófagleg
ráðgjafarstarfsemi þurfi ekki að
vera beinlínis skaðleg er of oft um
að ræða hálfgildings „kukl“ og
fólk er haft að féþúfu.
Eftirlit með fagmennsku
Hinn vel upplýsti hluti almenn-
ings er oftast á varðbergi, veit
muninn á gæðum og gervi og hef-
ur sjálfstraust til að setja mörk.
Margir sem minna mega sín verða
of oft auðveld bráð þeirra sem
bjóða „töfralausnir“ og hindur-
vitni. Þessi hópur situr oftar en
ekki uppi með sárt ennið, peninga-
og tímatap, ruglaðan huga og
niðurlægingu og skortir þor eða
sjálfstraust til að leita leiðrétt-
ingar. Til vitnis um þetta má
nefna að fagfólk sem sinnir með-
ferð ber iðulega saman bækur sín-
ar ráðalaust og
áhyggjufullt vegna
skjólstæðinga sem
segja farir sínar ekki
sléttar og hafa jafnvel
beðið skaða af óvönd-
uðum meðulum ófag-
lærðra aðila sem kynna
sig sem bjargvætti í
nafni ráðgjafa.
Þetta á ekki að líðast
í velferðar- og þekking-
arsamfélagi okkar og
hlýtur að koma til kasta
þeirra sem fara með
skipulag og ábyrgð á
heilbrigðisþjónustu í
víðustu merkingu.
Málið snýst um að
koma í veg fyrir
ástundun starfsemi
sem sem áður kallaðist
„skottulækningar“ og
að ófaglærðir „ráð-
gjafar“ geti haft af-
skipti af viðkvæmum
persónulegum mál-
efnum, hvað þá auglýst
meðferð á þeim. Ís-
lensk lög um heil-
brigðisþjónustu og Al-
þjóðaheilbrigðistofnunin gera enda
ráð fyrir slíku samkvæmt skil-
greiningum. Frumvarp til laga um
græðara voru samþykkt á Alþingi
nú í vor og er það skref í rétta
átt. Þau munu þó ekki sanna gildi
sitt fyrr en nánari línur hafa verið
lagðar með reglugerð.
Upplýsingar, ráðgjöf
eða meðferð
Öll ráðgjöf í persónulegum mál-
efnum er viðkvæm og vandasöm
og krefst faglegrar þekkingar.
Það er þó skýr munur á þeirri
fagmenntun og þjálfun sem þarf
annars vegar til að veita almennar
upplýsingar, fræðslu og leiðsögn
og hins vegar til að stunda faglega
ráðgjöf eða meðferð. Sá sem sinn-
ir fræðslu þarf vissulega að hafa
góða þekkingu á umfjöllunarefni
sínu, en í meðferð er farið dýpra í
saumana og beitt sérhæfðum að-
ferðum. Meðferð snertir andlegt,
félagslegt og líkamlegt heilbrigði
og velferð þess sem hennar leitar
og felur því í sér mikla ábyrgð.
Aukin þörf fyrir fjölþætta
faglega aðstoð
Þörf almennings fyrir margs
konar ráðgjöf, stuðning og með-
ferð í persónulegum málefnum fer
nú ört vaxandi hér á landi sem
annars staðar. Þjónustuþörf al-
mennings getur snert félagslega
aðlögunarerfiðleika og sjálfsmat
ungs fólks, uppeldisvanda for-
eldra, hjónabandserfiðleika, per-
sónulega tilfinningatogstreitu og
tilvistarkreppur, skilnaðar- og for-
sjármál, stjúptengslavanda, fjöl-
skylduáföll, kreppur vegna áfalla
og slysa o.s.frv. Mörg af þessum
málum eru þess eðlis að fá mark-
viss fagleg viðtöl nægja til að
koma í veg fyrir að stærri vandi
hljótist af. Þess vegna er brýnt
bæði frá sjónarhorni einstaklings-
heilla og samfélagshags að bregð-
ast strax við þeim. Önnur mál
þarfnast lengri tíma, persónulegs
stuðnings eða úrvinnslu í viðtals-
meðferð. Aðferðin sem er beitt fer
eftir eðli vandans og kunnáttu fag-
mannsins. Sérhver fagmaður þarf
að hafa færni til að greina hvað
hann getur tekið að sér og hvaða
málum ber að vísa til annarra sér-
fræðinga. Til þess þurfa valkost-
irnir að vera fyrir hendi. Það er
hér sem menntunarkrafa og hlið-
varsla koma til skjalanna.
Fjallað verður nánar um skil-
greiningar á menntunar- og rétt-
indakröfum til meðferðarstarfa í
seinni grein okkar um þessi efni.
Meðferðarstörf og ráðgjöf –
Þörf er á opinberu eftirliti
Sigrún Júlíusdóttir og
Sæunn Kjartansdóttir fjalla
um ráðgjöf ’Ráðgjafarhugtakið erorðið að einhvers konar
safnkistu yfir allt sem
nöfnum tjáir að
nefna …‘
Sæunn Kjartansdóttir
Sigrún er prófessor í félagsráðgjöf við
Háskóla Íslands og starfar við með-
ferð á eigin stofu. Sæunn er sjálfstætt
starfandi sálgreinir.
Sigrún Júlíusdóttir
ÞAÐ ER ótrúlegt
að þurfa að skrifa
skiptastjóra Apple-
umboðsins ehf opið
bréf til að fá hann til
að svara einfaldri fyr-
irspurn um embættis-
verk sín – þ.e. veita
upplýsingar sem hon-
um ber skylda til
samkvæmt lögum. En
eflaust er réttast að
rekja málavexti áður
en lengra er haldið.
Ég er annar Jóninn
í Jón & Jón (J&J) en
við Jón Marinósson
erum myndhöfundar
Stafakarlanna og
Bergljót Arnalds er
textahöfundur verks-
ins. Bergljót og út-
gáfufyrirtæki hennar
og Jóns L. Arnalds,
Virago sf., eru útgef-
endur disksins. Jón L.
er einnig lögmaður
útgáfunnar.
Árið 1997 gerði Apple-umboðið
sáluga rammasamning við Berg-
ljótu Arnalds og Virago sf (BA&V)
um kaup á margmiðlunardiskum
Stafakarlanna en Apple var í út-
gáfusamstarfi með BA&V. Hafði
Apple einungis efnt u.þ.b. 500 þ.
kr. af diskakaupsamningnum þegar
það varð gjaldþrota. BA&V gáfu
ekki upp þessa 500 þús kr sölu í
uppgjörum til J&J og innheimtum
við því 10% höfundarlaun af þeirri
sölu með dómi héraðsdóms árið
2003. Síðari hluta diskakaupsamn-
ingsins innheimtu BA&V svo með
kröfulýsingu á Apple-umboðið. Þau
viðskipti voru heldur ekki talin með
í uppgjörunum til J&J.
Í kröfulýsingu á Apple-umboðið
mátu BA&V eftirstöðvar diska-
kaupsamningsins á 10 millj. kr.
Sundurliðuðu þau einingaverð
disksins í 14.5% höfundarlaun
textahöfundar BA, 10% laun mynd-
höfunda J&J og 75.5% hlut útgef-
enda BA&V. Síðan drógu BA&V
höfundarlaun J&J frá kröfu útgef-
enda í búið en héldu höfund-
arlaunum BA óskertum í kröfunni!
Með þessari reiknikúnst myndu
BA&V (mögulega) sleppa við að
borga J&J 10% höfundarlaun af
viðskiptunum fengist krafan greidd
úr hendi skiptastjóra búsins.
Kröfur BA&V í bú Apple voru
almennar launakröfur Bergljótar
og rekstrartengdar kröfur upp á ca
1,6 millj (kröfunúmer 3–10) og svo
krafa um efndir diskakaupsamn-
ingsins (kröfunúmer 11–16) sem
hljóðaði upp á 9 milljónir eftir höf-
undarlaunaafsláttinn. Loks krafðist
Bergljót innheimtulauna kr. 100
þús. fyrir að útbúa kröfulýsinguna
(kröfuliður 17). Skiptaráðandi hafn-
aði strax kröfum BA&V frá nr. 3–
10 og kröfu nr. 17. Eftir stóðu
kröfur nr. 11–16 sem snéru að
diskakaupsamningnum.
Næsta skref í samningastappi
Jóns L. Arnalds f.h. BA&V og
skiptastjóra var að semja um
skuldajöfnun milli aðila. Með sam-
komulagi við skiptaráðanda 2. júni
1999 féllu Jón L. Arnalds og
BA&V frá 11 millj. kr. kröfunum
gegn skuldajöfnun krafna frá
Apple og að auki fengu BA&V
29.5% eignarhluta Apple í útgáfu-
rétti Stafakarlanna. Met ég þessi
viðskipti á svipaða ef ekki hærri
upphæð en upphaflegu 11 millj. kr.
kröfuna enda var útgáfa disksins
mjög ábatasöm með allt að 3.500%
álagningu. Einnig var
útgáfan skuldlaus,
diskurinn margfaldur
metsöludiskur og
BA&V því fjárhags-
legur akkur í að eign-
ast útgáfuréttinn allan.
Þegar ég uppgötvaði
þennan rausnarlega
höfundarlaunaafslátt
útgefenda í viðskipt-
unum við skiptaráð-
anda sýndi ég Berg-
ljótu og Jóni L.
Arnalds fram á að út-
gáfusamningar okkar
BA væru samhljóða og
að útgefendum væri
ekki heimilt að veita
afslátt í formi
höfundarlauna annars
höfundarins en inn-
heimta laun hins í við-
skiptum. Þeim rök-
stuðningi var hafnað
og því höfðaði J&J
nýtt höfundarlaunamál vegna
seinni hluta diskakaupsamnings.
Málsgögnin voru öll úr fórum
skiptaráðanda.
Þ. 11. mars féll dómur máli J&J
gegn BA&V og mér til undrunar
þá tapaði J&J málinu þar sem í
samkomulagi við skiptaráðanda
stendur að Apple sé að greiða kröf-
ur nr. 3–11. Tel ég að talan 11 sé
að öllum líkindum innsláttarvilla og
þar ætti að standa talan 17 en sá
eini sem getur skorið þar úr um er
skiptaráðandi, Jóhann Níelsson. Og
er þetta einmitt spurningin sem Jó-
hann hefur leitast undan að svara
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir mínar
og lögmanns J&J. Síðast í fyrradag
átti ég símtal við ritara Jóhanns
sem sagði mér að hann hygðist
ekki skipta sér af þessu máli. Svo
sendir hann loks e-mail þar sem
hann segist ekki muna neitt um
málið og hann finni ekki minn-
ismiðana sína.
Þessi undansláttur Jóhanns
sæmir að mínu mati ekki opinber-
um embættismanni. Embættisverk
skiptaráðanda eru kjarninn í mála-
ferlum um meint umboðssvik
BA&V í viðskiptum við skiptaráð-
anda sjálfan. Mér er sama þótt Jón
L. Arnalds og Jóhann séu skóla-
bræður og jafnvel vildarvinir eða
briddsfélagar. Það eina sem J&J
vill fá fram er sannleikurinn. Er
þessi umrædda tala innsláttarvilla
eða ekki?
Ef skiptaráðandi og BA&V
sömdu um að sleppa kröfuliðum
sem lutu að höfundarlaunum J&J
þá vil ég vita af hverju. Sé talan 11
ekki innsláttarvilla þá er Jóhann að
afhenda milljónaverðmæti úr búi
Apple og skuldajafna gegn kröfum
upp á 2,3 millj. Væru allir liðir
taldir með (3-17) samkomulaginu
þá er verið að skuldajafna u.þ.b. 11
milljóna kröfu og láta sambærileg
verðmæti úr búinu fyrir.
Jafnvel þó þú finnir ekki minn-
ismiðana þína, Jóhann, þá ætti mál-
ið að skýrast fyrir þér ef þú bara
skoðaðir það og notaðir jafnvel
þessa grein sem minnispunkta.
Þegar þetta bréf birtist í Morgun-
blaðinu hefur J&J u.þ.b. 8 tíma til
að afla gagna og áfrýja dómi hér-
aðsdóms. Einu áfrýjunargögnin
sem koma til greina eru að þú, Jó-
hann Níelsson, staðfestir að tölulið-
ir samkomulagsins séu rétt eða
rangt inn færðir. Öllum geta orðið
á mistök og sé þetta innsláttarvilla
þá eru þeir menn meiri sem viður-
kenna slíkt og leiðrétta villuna
heldur en þeir sem fela sig, neita
að svara bréfum eða bera við
minnisleysi.
Var það innslátt-
arvilla eða ekki?
Jón Ármann Steinsson ritar
opið bréf til Jóhanns Níels-
sonar, hrl., skiptastjóra
Apple-umboðsins ehf.
’Embættisverkskiptaráðanda
eru kjarninn í
málaferlum um
meint umboðss-
vik BA&V.‘
Höfundur er rithöfundur og grafískur
hönnuður.
Jón Ármann Steinsson
ÞAÐ VEKUR jafnan undrun og
aðdáun þegar íslenskt leikhúsfólk
greinir starfsbræðrum sínum í öðr-
um löndum frá leikhúsáhuga Íslend-
inga. Það er óþekkt annarsstaðar í
heiminum að fleiri fari í leikhús en
nemur íbúafjölda lands. En þannig
er því varið á Íslandi. Við höfum um
langt árabil getað stát-
að af mikilli almennri
leikhúsaðsókn. Leiklist
er almenningseign á
Íslandi. Þetta samspil
áhorfenda og leikhús-
listamanna er styrkur
okkar sem höfum lagt
leiklistinni til okkar
starfskrafta, en þeir
kæmu til lítils ef ekki
væru neinir til að njóta.
Og þeir eru til hér á
landi – svo um munar.
Að kvöldi 16. júní ár
hvert höldum við hátíð
sviðslistanna þegar Íslensku leik-
listarverðlaunin, Gríman, eru afhent.
Þetta er uppskeruhátíð sviðslistanna
á Íslandi, haldin í lok hvers leikárs. Í
ár verður hún haldin á stóra sviði
Þjóðleikhússins og sjónvarpað um
allt land. Við gerum það af því að við
viljum að áhorfendur okkar geti tek-
ið þátt í hátíðinni með okkur. Því
hlutur þeirra er mikill í velgengni ís-
lenskrar leiklistar og sviðslista al-
mennt. Við leikhúsfólk kappkostum
því að hátíðin sé einnig skemmtun
fyrir alla landsmenn, þar sem fjöldi
listamanna kemur fram okkur öllum
til ánægju. Hátíðin er okkar allra. Þá
eigum við stefnumót við áhorfendur,
horfum til baka til þeirra stunda sem
við höfum átt saman á liðnu leikári
og fögnum öllum þeim góðu stundum
og verðlaunum það sem okkur hefur
fundist standa uppúr.
Í ár eru Íslensku
leiklistarverðlaunin,
Gríman, veitt í sautján
flokkum. Leiklistar-
samband Íslands, sem
er heildarsamtök sviðs-
listastofnana, félaga og
leikhúsa, hefur veg og
vanda af hátíðinni og
hafa aðildarfélög og
stofnanir hennar skip-
að fulltrúa sína í sér-
staka valnefnd til að
kjósa um það sem
hverjum og einum hef-
ur þótt bera af á árinu á
leiklistarsviðinu. Þessi valnefnd 28
fagmanna hefur verið að störfum allt
síðasta leikár og hefur haft úr vöndu
að ráða að velja úr um 800 mögu-
leikum, ýmist einstakra listamanna
eða sýninga sem voru 67 talsins.
Verk af öllu tagi og bera vitni um
fjölbreytileika íslensks leikhúss:
leiksýningar, óperusýningar, dans-
verk, barnaleikrit o.sv.frv. Nið-
urstaða þessa vals eru þær 75 til-
nefningar sem hafa verið kynntar í
einstökum flokkum sem alls eru
fimmtán.
Áhorfendur eiga líka leik en það
eru sérstök áhorfendaverðlaun. Nú
stendur yfir kosning þeirra á vefsíð-
unni visir.is. Þar geta áhorfendur
kosið þá sýningu sem þeim hefur
fundist bera af á árinu. Það er mikils-
vert fyrir leikhúsfólk að þátttaka
áhorfenda verði sem mest, það gefur
okkur innsýn í hvað njótendum leik-
listar finnst um verk okkar á árinu.
Þá mun verndari Íslensku leiklist-
arverðlaunanna, Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, veita sér-
stök heiðursverðlaun Grímunnar,
einstökum listamanni fyrir ævistarf
hans í þágu íslenskra sviðslista. Þau
verðlaun, sem og önnur, verða til-
kynnt á hátíðarkvöldinu.
Góðir áhorfendur! Við hvetjum
ykkur til að eiga með okkur stund að
kvöldi 16. júní og taka þátt í hátíð-
arhöldunum þegar Gríman, Íslensku
leiklistarverðlaunin, verða afhent í
Þjóðleikhúsinu, sem sjónvarpað
verður um allt land – og ekki síst að
taka þátt í kosningunni um Áhorf-
endaverðlaunin.
Góða skemmtun!
Góðir áhorfendur
Viðar Eggertsson fjallar um Ís-
lensku leiklistarverðlaunin,
Grímuna
’Þetta er uppskeruhátíð sviðslistanna á
Íslandi, haldin í lok
hvers leikárs.‘
Viðar Eggertsson
Höfundur er formaður Leiklistar-
sambands Íslands.
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni