Morgunblaðið - 18.09.2005, Page 2
2 SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
GLÆSILEGAR SÉRHÆÐIR
Í þessu fallega húsi í Safamýri 31 eru 3 sérhæðir til sölu.
Áhugasamir hafi samband á netfangið sms@emax.is
Hægt er að skoða myndir á blog.central.is/safamyri31
400 FLUGVALLARSTÖRF
Um 400 manns starfa við margs
konar rekstur flugfélaga og annarra
fyrirtækja sem sinna þjónustu við
flug á Reykjavíkurflugvelli. Skv.
upplýsingum frá Flugmálastjórn
hafa um 20 fyrirtæki aðsetur á
Reykjavíkurflugvelli. Á vellinum eru
nærri 100 flugvélar í eigu áætl-
unarflugfélaga, flugskóla og flug-
klúbba sem hafa aðsetur á flugvall-
arsvæðinu.
Hótar að trufla kosningar
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, segir að fari svo að samtökin
Hamas bjóði fram í þingkosningum
Palestínumanna í janúar muni Ísr-
aelar reyna að trufla og torvelda
þær. Komi til greina að fjarlægja
ekki vegatálma og halda uppi
ströngu eftirliti við gæslustöðvar til
að hindra umferð fólks á kjördag.
Palestínumenn andmæltu þessum
orðum Sharons ákaft í gær og sögðu
alla hafa rétt á að vera í framboði.
Jarðvegseyðing víða vandi
Alþjóðlegri ráðstefnu um jarð-
vegsvernd lýkur á Selfossi um
helgina en þar eru samankomnir
nokkrir af fremstu sérfræðingum
heims á þessu sviði, alls um 60
manns. Ólafur Arnalds, prófessor
við umhverfisdeild Landbúnaðarhá-
skóla Íslands, bendir á að jarðvegs-
eyðing sé gríðarlegt vandamál um
allan heim.
Spenna í Þýskalandi
Þingkosningar verða í Þýskalandi
í dag og benda spár til þess að jafn-
aðarmenn Gerhards Schröders
kanslara tapi miklu fylgi frá síðustu
kosningum. Ekki er þó víst að Ang-
elu Merkel, kanslaraefni kristilegu
flokkanna, takist að mynda nýja
samsteypustjórn. Rúmur fimmt-
ungur kjósenda var enn óákveðinn
síðustu daga fyrir kjördag.
Hættir í borgarpólitíkinni
Guðlaugur Þór Þórðarson, þing-
maður og borgarfulltrúi í Reykjavík,
hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
vegna borgarstjórnarkosninganna í
vor. Hann segir þetta hafa verið erf-
iða ákvörðun, sem hafi annaðhvort
snúist um að gefa kost á sér í fyrsta
sæti í prófkjörinu eða sækjast eftir
einu af forystusætum í Reykjavík
fyrir næstu alþingiskosningar. Hann
valdi síðarnefnda kostinn.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Myndasögur 56
Hugsað upphátt 20 Dagbók 56/59
Sjónspegill 32 Víkverji 56
Veiði 34/35 Velvakandi 57
Forystugrein 36 Staður og stund 59
Reykjavíkurbréf 36 Menning 60/69
Umræðan 38/47 Leikhús 62
Bréf 47 Bíó 66/69
Hugvekja 48 Sjónvarp 70
Minningar 48/52 Veður 71
Auðlesið efni 53 Staksteinar 71
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ÓLAFUR Ragnar Grímsson og
Bill Clinton, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, ræddu saman í
New York í fyrradag í tilefni af al-
þjóðlegri ráðstefnu, Clinton Global
Initiative.
Á ráðstefnuna er boðið þjóð-
arleiðtogum víða að, forystumönn-
um á alþjóðavettvangi og fræði-
mönnum auk þess sem áhrifa-
menn í vísindum og viðskiptum
sitja einnig ráðstefnuna.
Að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu frá forsetaskrifstof-
unni snerust viðræður Ólafs og
Clintons einkum um þrennt; bar-
áttuna gegn eyðni, orkumál og
frumkvæði Magnúsar Scheving
með þáttunum Latabæ og áhrif
þeirra á offitu barna.
Samstarf
lyfjafyrirtækja
Clinton og Ólafur Ragnar
ræddu um samstarf íslenskra og
indverskra lyfjafyrirtækja og
hvernig það gæti leitt til fram-
leiðslu á eyðnilyfjum á ódýrari
hátt en áður.
„Slíkt samstarf gæti lagt grunn
að raunhæfum aðgerðum til hjálp-
ar eyðnisjúklingum víða í veröld-
inni, einkum í Afríku. Clinton lýsti
því hvernig hann hefur á und-
anförnum árum beitt sér á þess-
um vettvangi og komið á lagg-
irnar verkefnum í samvinnu við
ríkisstjórnir sex Afríkuríkja, en
stefnt er að því að fjölga þátt-
tökuríkjum, einkum í Afríku og
Asíu. Þá er einnig stefnt að því að
hefja innan tíðar slíka starfsemi í
Rússlandi og Úkraínu,“ segir í til-
kynningunni.
Tilraunastöð í orkubúskap
Einnig var rætt um reynslu Ís-
lendinga á sviði umhverfisvænnar
orku, bæði nýtingu jarðhita og til-
raunir með nýtingu vetnis í al-
menningssamgöngum og hvernig
þetta gæti skapað grundvöll að
raunhæfri umræðu um nýjar leiðir
til að hamla gegn loftslagsbreyt-
ingum.
„Ísland gæti verið tilraunastöð í
orkubúskap nýrrar aldar, en um-
ræðan um hættur vegna loftslags-
breytinga setur ríkan svip á ráð-
stefnu Clintons í New York,“
segir í tilkynningunni.
Þættir Magnúsar Scheving um
Latabæ báru einnig á góma og
hvernig hann hefur varpað nýju
ljósi á baráttuna gegn offitu barna
og ungmenna með hvatningu til
að stunda íþróttir og neyta eink-
um heilsusamlegrar fæðu. Clinton
þótti framlag Latabæjar og átaks-
verkefni í einstökum byggðar-
lögum á Íslandi sem beindist að
því að hvetja börn og foreldra til
heilbrigðara mataræðis vera afar
forvitnilegt fordæmi.
Bill Clinton, Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff ræða saman í New York á föstudag en Ólafur tekur þar þátt í ráðstefnu sem Clinton stendur fyrir.
Ræddu baráttu gegn eyðni, orkumál
og frumkvæði Magnúsar Scheving
Ólafur Ragnar Grímsson og Bill Clinton ræddu saman í New York
VÍSITALA íbúðaverðs á höfuð-
borgarsvæðinu lækkaði um 0,6% í
ágústmánuði, miðað við mánuðinn
þar áður. Var vísitalan 280,7 stig í
ágúst en 282,4 stig í júlí, sam-
kvæmt upplýsingum frá Fasteigna-
mati ríkisins. Hafði vísitalan þá
ekki lækkað í heilt ár, eða frá því í
júlí 2004.
Lækkunin nú á fyrst og fremst
við um fjölbýli á höfuðborgarsvæð-
inu, sem lækkaði um 1,4% í ágúst-
mánuði. Hins vegar hækkaði vísi-
tala sérbýlis um 2% í þessum sama
mánuði. Sé horft lengra aftur í
tímann þá hækkaði vísitala íbúða-
verðs um 3,4% síðustu þrjá mánuði,
um 14,2% undanfarna sex mánuði
og um heil 40% síðustu tólf mánuði.
Spurður um verðþróunina telur
Haukur Ingibergsson, forstjóri
Fasteignamats ríkisins, að líta verði
yfir lengri tíma en einn mánuð. Síð-
asta árið hafi hækkun fasteigna-
verðs verið óvenjumikil en nú séu
kannski að koma fram vísbendingar
um að þær hækkanir séu að stöðv-
ast eða hægja á sér. Eftir sem áður
sé veltan í fasteignaviðskiptum enn
mikil og sérbýlið sé heldur ekki að
lækka í verði.
Björn Þorri Viktorsson, formað-
ur Félags fasteignasala, segir lækk-
un íbúðaverðs vera óverulega en í
samræmi við þá tilfinningu sína að
markaðurinn sé að leita jafnvægis.
Markaðurinn sé eftir sem áður lif-
andi og hreyfing mikil. Hlutfall
milli framboðs og eftirspurnar sé
að jafnast, einkum í fjölbýlinu.
Björn Þorri segist ekki sjá fyrir
sér mikla lækkun fasteignaverðs á
næstunni, að minnsta kosti á meðan
efnahagsástandið sé gott og verð-
bólgan fari ekki á frekara skrið.
Varað við ályktunum
Í hálffimm-fréttum greiningar-
deildar Kaupþings banka á föstu-
dag er varað við því að draga of
sterkar ályktanir af lækkun fast-
eignaverðs nú, þótt líklegt sé að
verulega hafi dregið úr spennu á
markaðnum.
Þær miklu hækkanir, sem hafi
verið á fasteignaverði undanfarið
ár, séu ekki óeðlilegar í ljósi þess
að fjármagnskostnaður hafi lækkað
um 30% á þessu tímabili og fjár-
magnsskömmtun til íbúðakaupa
hafi verið afnumin. Þessar breyt-
ingar hafi haft mest áhrif á stærri
og betri eignir enda hafi þær
hækkað meira.
Vísitala fasteigna lækkaði
í fyrsta sinn í rúmt ár
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is