Morgunblaðið - 18.09.2005, Qupperneq 34
34 SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Akranes Ófeigur Gestsson 431 4383 892 4383
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054 897 4236
Bíldudalur Gísli Snær Smárason 456 2207 456 2158
Blönduós Björn Svanur Þórisson 452 4019 864 4820
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík Marenia Kristín Hrafnkelsd. 475 6662 8606849
Búðardalur Aron Snær Melsteð 434 1449
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Helgi Týr Tumason 478 8161 864 9207
Egilsstaðir Þurý Bára Birgisdóttir 471 2128 8620543
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna S. Eiríksdóttir 475 1260 475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Erla Ösp Ísaksdóttir 848 5361
Grenivík Hörður Hermannsson 463 3222 848 3397
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204/847 9458/426 8000
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 4386858/8549758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur Hafdís Gísladóttir 436 6925 894 9284
Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Elísabet Sigurðardóttir 894 0387 464 1987
Hvammstangi Harpa Vilbertsdóttir 451 2455 892 0644
Hveragerði Úlfar Andrésson 483 4694 893 4694
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 4878172/8931711/853 1711
Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Hjörtur Freyr Snæland 486 8874
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 477 1124
Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2650 866 7958
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305 899 6904
Patreksfjörður Sigríður Valdís Karlsdóttir 456 1119 846 8346
Raufarhöfn Örvar Sigþórsson 456 1287
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488 892 0488
Reykholt Bisk. Oddur Bjarni Bjarnason 486 8900
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð v/Mýv. Þórunn Snæbjörnsdóttir 464 4464
Sandgerði Jóhanna Ósk Gunnarsdóttir 423 7330 821 7330
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 854 7488
Selfoss Sigdór Vilhjálmsson 846 4338
Seyðisfjörður GB Bjartsýn ehf, Birna 472 1700 897 0909
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Kristín Björk Leifsdóttir 452 2703 849 5620
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 430 1414
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Anna Elísa Karsldóttir 456 4945
Tálknafjörður María Berg Hannesdóttir 456 2655
Vestmannaeyjar Harpa Björgvinsdóttir 586 8036 695 2599
Vík í Mýrdal Björn Ægir Hjörleifsson 487 1474 896 1790
Vogar Vilborg S. Helgadóttir 424 6653 616 2075
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 820 6788
Ytri-Njarðvík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 820 3463
Þingeyri Hildur Sólmundsdóttir 456 8439 867 9438
Þorlákshöfn Íris Valgeirsdóttir 483 3214 8486214
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249 468 1515
DREIFING MORGUNBLAÐSINS
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
Staður Nafn Símanúmer Staður Nafn Símanúmer
Þú veist ekki hvað þú átt gott,“sagði bandarískur vinurminn á dögunum þar semvið sátum á bakka Flekku-
dalsár í Dölum, yfir okkur heiður
himinn, eina hljóðið niðurinn í ánni,
svalur vindur lék í gulnandi stráum
og við vorum aleinir í heiminum.
Hann hafði komið fljúgandi frá New
York til þessa stefnumóts, nú lá lax-
inn hans á bakkanum. Vinur minn
hafði verið einn við hylinn, sett í fisk-
inn og landað honum; þegar ég kom
gangandi og settist hjá honum sagði
hann: „Þú veist ekki hvað þú átt
gott.“
Ég vissi samt alveg hvað hann var
að fara og gat ekki annað en sam-
sinnt, ég á svo sannarlega gott að
geta horfið út í þessa marg-
breytilegu náttúru og notið hennar
af og til, frá vori og fram á haust, þar
sem ég kasta flugunni fyrir fiska og
fæ útrás fyrir veiðieðlið. Við sem bú-
um hér eigum svo sannarlega gott.
Fyrr í vikunni dró ég línuna inn á
hjólið, lagði frá mér stöngina og
settist inn í bíl til að ylja mér; á með-
an djasstríóið Flís impróviseraði
útfrá sönglögum Hauks Morthens
horfði ég á veiðifélagann renna
spæni yfir hylinn sem síðustu geislar
haustsólarinnar lýstu upp. Þetta var
haustsíðdegi eins og þau gerast feg-
urst, vindurinn var dottinn niður og
þar sem tugir heiðagæsa flugu yfir
Tungufljótið hugsaði ég um orð vin-
ar míns og kvaddi sumarið.
Og hvílíkt sumar. Hreint maka-
laust veiðisumar ljómaði fyrir hug-
skotssjónum og mig langaði ekkert
aftur út á bakkann, þetta var orðið
gott. Enn og aftur fann ég fyrir
þessu þakklæti sem ég hef upplifað
síðustu árin á bökkum Tungufljóts í
Skaftártungum, í félagsskap góðra
vina; vissu um að sumarið sé búið og
ég geti farið að hlakka til nýrra
veiðiferða að loknum löngum vetri.
Og hvernig var veiðin? er spurn-
ing sem allir veiðimenn eru spurðir
að og spyrja hver annan. Í sumar
var hún góð; hún er alltaf góð,
nægjusamur veiðimaður veiðir alltaf
nóg. Það er samt skemmtilegra að
kasta á vatn þar sem er fiskur en þar
sem er enginn fiskur – og í sumar
hefur yfirleitt verið alveg nóg af fiski
í flestum ám og vötnum landsins.
Sjóbleikjan kann að hafa brugðist
einhvers staðar en í staðinn hafa
veiðimenn upplifað furðulega gjöfult
laxveiðisumar.
Sjóbirtingsveiðin er endapunkt-
urinn. Víst er að veiði er enn ekki
lokið í öllum laxveiðiám en nú er
engu að síður tími birtingsins. Góður
vinur minn og veiðifélagi hefur eng-
an áhuga á þessari haustveiði, þegar
allra veðra er von, það dimmir
snemma og getur frosið í lykkjum.
Ég skil það vel – en er honum ekki
sammála. Ég nýt árstíðanna og
veðrabrigða við veiðar; kalsans við
Hlíðarvatn í apríl, breyskjuhitans
við Brunná í júlí og frostnáttanna við
Tungufljót í september. Það er gam-
an að takast á við þá áskorun sem
fylgir síbreytilegum aðstæðunum.
Sjóbirtingurinn er kannski dul-
arfyllstur allra þessara fiska. Og
stofninn sem hrygnir í skaftfellsku
árnar hættir aldrei að koma manni á
óvart. Þvílík tröll, þvílíkir dyntir.
Síðustu árin höfum við nokkrir fé-
lagar kastað fyrir birtinginn í
Tungufljóti einu sinni á hausti og í
hvert einasta sinn hafa orðið til eft-
irminnilegar sögur, menn hafa tekist
á við óviðjafnanlega fiska, landað
sumum og misst aðra. Félegar mínir
hafa náð 18 pundurum, ég sjálfur
einum sem slagaði hátt í 16 – og
þetta eru silungar. Eitthvert slangur
er af laxi í fljótinu og dregur hann
yfirleitt meðalþungann niður.
Veiðin hefur verið upp og ofan, frá
11 fiskum upp í 27, en það er ekki að-
alatriðið, svo lengi sem maður veit af
fiski í hyljum og reynir að ráða í
hvað hann tekur og hvernig.
Nú í vikunni komum við til veiða í
kjölfarið á holli sem landaði átta
fiskum, annað þar á undan tók þrett-
án. Eitthvað af þessu var lax, sem
gengur á undan birtingnum, en afl-
inn samt blandaður. Veiðibókin
greindi frá nokkrum af stærri gerð-
inni, þrjú, fjögur eða fimm kíló.
Kvöldið fagra þegar við bróðir minn
veiddum af Fitjabökkum gaf fyr-
irheit um annan dag og bjartari og
þá hreyfðum við líka fáa fiska. Þeir
voru þarna en tóku ekki, ekki einu
sinni í hinum margrómuðu vatna-
skilum, þar sem Tungufljótið sam-
einast Ása-Eldvatni; þar undir mold-
arbrúnu þaki jökulvatnsins liggja
iðulega torfur af fiski og bíða þess að
synda upp í ferskvatnið. Þar veiðast
líka flestir – en ekki að þessu sinni.
Samveran í veiðihúsinu á kvöldin
er oft með bestu stundum veiðiferð-
anna, þar eru sögur sagðar, end-
urteknar og sagðar einu sinni enn,
horfinna félaga minnst – og spáð í
tökuna eða tökuleysið. Að þessu
sinni voru dregnar fram allar kenn-
ingarnar um kenjar sjóbirtingsins:
Of bjart, of lítil gára, of glært vatn,
norðvestanáttin. Þetta var allt til
staðar, og fiskurinn tregur. Þar til
síðasta morguninn, þá renndu grá-
leit ský sér upp á himininn, það tók
að rigna – og fiskur að taka. Laxinn
tók Snældu af kappi í hinni forn-
frægu Breiðufor, við Bjarnarfoss
var Svartur Toby-spúnn öflugasta
veiðarfærið og við Syðri-Hólma, í
skilunum, kom upp fiskur af þeirri
stærð sem Tungufljót er frægt fyrir,
pattaraleg tíu punda hrygna, stálgrá
og gljáandi. Þegar ég sá hana á pall-
inum við veiðihúsið, sá ég endanlega
staðfestingu þess að nú er haustið
svo sannarlega komið og tími kom-
inn til að þakka fyrir sumarið.
Sumarið
kvatt á sjó-
birtingsslóð
Morgunblaðið/Einar Falur
Veiðimaður kastar af Flögubökkum á Tungufljót í Skaftártungum, í síðustu geislum kvöldsólarinnar.
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
STANGVEIÐI | HAUSTRÖKKRIÐ YFIR TUNGUFLJÓTI