Morgunblaðið - 09.10.2005, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 2005 15
FRÉTTIR
’Þetta snýst þó ekki um þaðhverjir þeir eru. Þetta snýst
um það hverjir við erum.‘John McCain , öldungadeildarþingmaður
frá Arizona, var fyrsti f lutningsmaður
ti l lögu um að banna bandarískum her-
mönnum að pynta og niðurlægja fanga,
sem samþykkt var með 90 atkvæðum
gegn níu. Sagt er að George W. Bush
Bandaríkjaforseti kunni að beita neit-
unarvaldi gegn samþykktinni .
’Það er misskilningur að þaðsé allt í klessu í efnahags-
málum.‘Geir H. Haarde , f jármálaráðherra, í
utandagskrárumræðu á Alþingi um efna-
hagsmál.
’Þetta er jafnfáránlegt og aðkalla Queen Drolluna.‘Andri Freyr Viðarsson , útvarpsmaður,
um nafnið Bítlana sem þýðingu á The
Beatles.
’Þetta er svo sannarlega sögu-legur dagur fyrir Evrópusam-
bandið og alla heimsbyggð-
ina.‘Jack Straw , utanríkisráðherra Bret-
lands, um viðræður Evrópusambandsins
við Tyrki varðandi hugsanlega inngöngu
þeirra í sambandið.
’Þeir taka okkur aldrei inn.Þeir munu nota okkur og auð-
mýkja okkur, þeir munu leika
sér að okkur og eftir 15 eða 20
ár munu þeir hafna okkur.‘Úr fréttaskýringu í tyrkneska blaðinu
Posta um viðræðurnar við Evrópusam-
bandið.
’Hvernig á gömul amma, einsog ein amman í myndinni, að
sætta sig við að sofa undir
sama þaki og barnabarn sem
hefur kannski myrt tugi
manna, og kannski hennar eig-
in nánustu aðstandendur líka?
Hver vill áfellast hana og segja
að hún sé vond? En svona eru
stríð. Þau eyðileggja sálirnar,
eyðileggja fólk, eyðileggja
samfélagið.‘Ali Samadi Ahadi kvikmyndagerðar-
maður og leikstjóri myndarinnar Týndu
börnin.
’Væri barátta fyrir bættu lífibarnanna í Norður-Úganda
ekki verðugt verkefni þjóðar
sem stefnir á Öryggisráðið?‘Elva Björk Sverrisdóttir , blaðamaður, í
Viðhorfi í Morgunblaðinu.
’Viltu ekki frekar tala við migum stjórnmál, ræðu mína til
dæmis?‘Hlynur Hallsson , þingmaður Vinstri-
hreyfingarinnar græns framboðs, svarar
spurningu um það hvers vegna hann hafi
farið gegn venjum Alþingis og mætt
bindislaus í ræðustól .
Ummæli
vikunnar
Morgunblaðið/Ásdís
Ferðamenn á Austurvelli reyna að
taka myndir án þess að láta haust-
rigninguna á sig fá. Vélin virðist þó
standa eitthvað á sér og vindurinn
vera regnhlífunum ofviða.
Regnvotir
ferðamenn
HANN var ábyrgðarfullur og starfi
sínu vaxinn kötturinn sem leiddi
ungu konuna með barnavagninn
yfir umferðargötu í í höfuðborginni
á dögunum og lét sig engu skipta
þótt regnskúrir gengju yfir.
Nú sjást þess skýr merki að haust
og vetur eru að mætast og styttist í
að frost og fannbreiður leggist yfir
borg og bæ. Norðlæg átt með frem-
ur köldu veðri verður fram í miðja
viku, búast má við él eða snjókomu
víða um land en útlit fyrir þurrt og
frostlaust veður sunnanlands. Tals-
vert bætir í vind og því tilvalið að
taka fram vetrarklæðnað.
Köttur
fylgir konu
Morgunblaðið/ÞÖK