Morgunblaðið - 17.12.2005, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 23
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
EITT af hverjum tíu hlutabréfum í
Avion Group verður selt í hluta-
fjárútboði félagsins sem haldið
verður fimmtudaginn 22. desem-
ber nk. Áætlað er að félagið verði
skráð á aðallista Kauphallar Ís-
lands hinn 20. janúar. Þetta var
meðal þess sem kom fram á blaða-
mannafundi er félagið hélt í gær
vegna fyrirhugaðrar skráningar.
Fjöldi hluta er seldir verða er á
bilinu 157–175 milljónir og er verð-
bilið 34,3–38,3 krónur sem þýðir að
markaðsvirði hlutafjárins er sex
milljarðar króna. Miðað við mið-
gildi þess fjölda hluta er seldir
verða er heildarhlutafé fyrirtæk-
isins tæplega 1,7 milljarðar og er
markaðsvirði félagsins í heild á
bilinu 58–63 milljarðar króna. Þar
með verður félagið það áttunda
stærsta að markaðsvirði í Kaup-
höllinni og það fjórða ef ekki er lit-
ið til bankanna.
Í máli Magnúsar Þorsteinsson-
ar, stjórnarformanns Avion Group,
kom fram að eingöngu verður selt
til fagfjárfesta. Hann var spurður
hverju það sætti að almenningi
væri ekki gefinn kostur á að eign-
ast hlutafé í félaginu og svaraði
þannig til að það helgaðist af
samningi félagsins við Straum-
Burðarás fjárfestingarbanka
vegna kaupa Avion Group á Eim-
skip síðastliðið sumar. Hluti kaup-
verðsins var greiddur með bréfum
í Avion Group og eitt af skilyrðum
samningsins var að Straumur-
Burðarás myndi greiða hluthöfum
sínum hluta hlutafjárins í Avion
sem arð. Þannig verða hluthafar í
félaginu orðnir ríflega 22 þúsund
innan nokkurra mánaða og ekki
allir þeirra eru fagfjárfestar.
Niðurstöður útboðsins verða
kynntar á Þorláksmessu en það er
Landsbanki Íslands sem hefur um-
sjón með útboðinu og mun bankinn
jafnframt stunda viðskiptavakt
með bréf Avion Group.
Morgunblaðið/RAX
Skráning Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður Avion Group, greindi
frá fyrirhugaðri skráningu félagsins í Kauphöll Íslands í gær.
Áttunda stærsta
félagið í Kauphöllinni
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
+% $
:1.,#!
C&54
O#4+5"/:9&.
##
29$/:9&.
6B%%%$
(&9%%$
5,&"#15,&
*&5",!$,&
(&9%%$.,#!
P":
%!&!5
1,#&B$$%$
C5"(-#!!(#
Q
Q :!&5!&(&
!$/:9&/"#!
(&!5!&(!5"
Q" " " :!%>!& R#:!% 2!%"4!%(3"!%"
2!%"4!%(3"!%"
2!%"4!%(3"!%"
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Afgreiðsla á öllum pósthúsum fyrir
einstaklinga og sendingar sóttar
til fyrirtækja
Síðustu skiladagar:*
Tryggðu að pakkinn þinn komist í réttar hendur fyrir jól.
Nýttu þér TNT Hraðflutninga og sendingin kemst örugglega til skila á réttum tíma.
20. des. til Bandaríkjanna og annarra landa utan Evrópu.
21. des. til Evrópu.
TNT Hraðflutningar • Stórhöfða 32 • 110 Reykjavík
Sími 580 1010 • www.tnt.is • tnt@postur.is
Hraðflutningar
Þú hefur enn tíma!
30% jólaafsláttur á hraðsendingum.
* til helstu viðskiptaborga
EcoGreen Multi
FRÁ
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Nr. 1 í Ameríku
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa - Gulli betri
Orkubomba og hreinsun
Vítamín, steinefni
og jurtir
smáauglýsingar mbl.is