Morgunblaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 35
MINNSTAÐUR
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Selfoss | Knattspyrnumenn á Sel-
fossi halda upp á 50 ára afmæli
knattspyrnunnar á staðnum nú um
helgina en 15. desember voru fimm-
tíu ár frá því knattspyrnudeild Ung-
mennafélags Selfoss var stofnuð. Í
tilefni af því verður veglegt afmæl-
ishóf á Hótel Selfossi þar sem þess-
um tímamótum verður fagnað. Nú
um helgina kemur einnig út afmæl-
isrit deildarinnar, Tuðran, þar sem
sagan er rifjuð upp.
„Við erum með viðtöl við menn úr
fyrsta knattspyrnuliði Selfoss og
gerum svo sögunni skil í máli og
myndum,“ segir Kristinn Bárð-
arson, sem ritstýrir afmælisritinu.
Fyrsta liðið keppti í búningum sem
voru gamlir búningar frá Víkingi í
Reykjavík, en Kristinn bendir á að
þetta séu dæmigerðir AC-Milan-
búningar, svart- og rauðröndóttir.
„Við lítum svo á að fótboltinn sé
vinsælasta íþróttagreinin og sú öfl-
ugasta hjá félaginu í gegnum tíðina.
Knattspyrnudeildin er fjölmennasta
deild Ungmennafélags Selfoss og
með því að leggja áherslu á þetta
drögum við fram mikilvægan þátt í
sögu byggðarinnar hérna sem er
íþróttirnar. Þar er knattspyrnan
rauði þráðurinn. Við fengum mörg
hundruð myndir og leggjum upp úr
því að nafngreina alla sem eru á
myndum í Tuðrunni. Við lítum einn-
ig svo á að fótbolti sé ekki bara það
að elta tuðruna á vellinum heldur
allt það gríðarlega starf sem unnið
hefur verið í gegnum tíðina í kring-
um boltann. Allt er þetta sjálf-
boðaliðastarf sem hefur mikið sam-
félagsverðmæti. Það er mikilvægt að
sýna nútímanum það sem unnið hef-
ur verið í þessum efnum og halda til
haga sögunni í kringum þetta.
Það hafa allir verið boðnir og bún-
ir að leggja okkur lið við undirbún-
ing afmælisins og styðja deildina
fjárhagslega. Það sýnir okkur að
deildin á góða bakhjarla á Selfossi
sem meta gildi þess starfs sem fram
fer í deildinni.“
Það eru ríflega 700 félagar í knatt-
spyrnudeildinni og fer sá hópur ört
stækkandi bæði með vaxandi barna-
og unglingastarfi og stofnun stuðn-
insmannaklúbbs sem orðinn er öfl-
ugur, að sögn Hermanns Ólafssonar,
formanns deildarinnar. Iðkendur
eru núna um 300 á aldrinum 6–18
ára og það er mjög stór hópur sem
kemur að þessu starfi. „Við leggjum
áherslu á að virkja með okkur fólk
og skipta verkum sem mest. Það eru
starfandi ýmsir hópar innan knatt-
spyrnuhreyfingarinnar og mikill
áhugi hjá foreldrum og aðstand-
endum að koma að starfinu,“ segir
Hermann og leggur áherslu á að
knattspyrnan á Selfossi sé á uppleið
og mikill hugur í öllum að hún nái
góðu flugi á næstu árum.
Fagna fimmtíu ára afmæli knattspyrnunnar á Selfossi
Byrjuðu í
gömlum
Víkings-
búningum
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Forystumenn Hermann Ólafsson, formaður Knattspyrnudeildar Selfoss,
og Kristinn Bárðarson, ritstjóri Tuðrunnar, vinna fyrir knattspyrnuna.
Eftir Sigurð Jónsson
Selfoss | Félög eldri
borgara á Selfossi og í
Árnessýslu héldu ný-
lega ráðstefnu í sam-
starfi við Lands-
samband eldri borgara,
Sveitarfélagið Árborg
og Heilbrigðisstofnun
Suðurlands. Tekin voru
fyrir hagsmunamál sem
snúa að fólki á efri árum
og rætt um efnahags-
legt sjálfstæði fólks,
tekjutryggingu og sér-
greind heilbrigðismál
sem snúa að öldruðum.
Í lok ráðstefnunnar
voru samþykktar álykt-
anir um áherslur félag-
anna á Selfossi og í Ár-
nessýslu. „Það var meðal annars
skorað á ríkisstjórnina að fram færi
endurskoðun laga um málefni aldr-
aðra og við lögðum einnig áherslu á
að skattleysismörk næðu sama raun-
gildi og var á árinu 1988, við upphaf
staðgreiðslunnar. Þetta er mjög
mikilvægt fyrir þann hóp aldraðra
sem lægstar hefur tekjurnar,“ segir
Hjörtur Þórarinsson sem var ráð-
stefnustjóri.
Hann sagði félögin leggja mikla
áherslu á það að halda á lofti um-
ræðu um þessi mál og fá ráðamenn
og embættismenn til þátttöku í
henni. Eitt af því sem félög aldraðra
leggja áherslu á er að stofnaður
verði húsmæðralífeyrir fyrir eldri
húsmæður. „Leita skal eftir fjár-
magni til greiðslu á mannsæmandi
lífeyri til þeirra húsmæðra sem helg-
uðu besta hluta ævi sinnar uppeldi
barna sinna, á meðan aðrir náðu líf-
eyrisréttindum sínum
vegna skráðrar at-
vinnu utan heimilis,“
segir í ályktun um
þetta efni.
„Við reyndum að ná
utan um sem flestar
áherslur okkar og
samþykktum áskor-
anir til heilbrigðis-
ráðherra þar sem við
viljum að gerð verði
könnun á fæðufram-
boði fyrrir aldraða, að
aldraðir fái bindandi
samning við tann-
lækna, framboð á
hjúkrunarrými verði
tvöfaldað á Selfossi,
fjölbreytni verði aukin
í búsetumálum og að bið fólks eftir
heyrnartækjum verði stytt. Síðan
beindum við eftirfarandi til sveitar-
félagsins Árborgar og annarra sveit-
arfélaga í Árnessýslu: „Þar sem mis-
munur er milli sveitarfélaga á
gefnum afslætti af fasteignagjöldum
eldra fólks og þeirra sem búa við
skerta starfsorku er óskað eftir að
samræmis verði gætt milli einstakra
sveitarfélaga. Vegna mikillar hækk-
unar á fasteignamati er mjög brýnt
að gjaldtökur í heild haldist í hlut-
falli við eftirlaunaþróun á hverjum
tíma.“ Þarna er mikilvægt atriði sem
við viljum passa upp á hjá sveitar-
félögunum sem standa okkur næst í
þjónustu,“ sagði Hjörtur.
Starfsemi Félags eldri borgara á
Selfossi hefur vaxið mjög undanfarin
ár og stendur félagið fyrir ýmiskon-
ar félagsstarfi sem sprengt hefur ut-
an af sér þá aðstöðuna.
Greiddur verði lífeyrir
til eldri húsmæðra
Formaður Hjörtur Þór-
arinsson er formaður
Félags eldri borgara.