Morgunblaðið - 17.12.2005, Síða 49
FJÖLSKYLDUHÚSIÐ
Börnin sem koma til okkar eru munaðar-
laus eða hafa verið yfirgefin. Að flytjast í
öruggt umhverfi, að búa á heimili er því
sérstaklega jákvæð reynsla fyrir þessi börn.
Í hverju barnaþorpi eru 1 – 15 fjölskyldu-
hús þar sem barnaþorpsfjölskyldan hugsar
um heimilið eins og hver önnur fjölskylda.
SOS-SYSTKINI
Alsystkini alast upp saman í barnaþorp-
inu, en öll þau börn sem alast upp
saman kalla hvort annað samt sem áður
“systir” og “bróðir” í fjölskylduhúsinu.
SOS-FÉLAGSMIÐSTÖÐ
Starfsemi félagsmiðstöðvanna sem eru starfræktar út
um allan heim, er mismunandi eftir staðsetningu þeirra.
Hvað varðar félagslegar þarfir og velferðakerfi hvers
lands. Í grundvallaratriðum er SOS-félagsmiðstöðvum
ætlað að hjálpa fjölskyldum, sér í lagi konum og
börnum sem búa í námunda við SOS-barnaþorpin.
SOS-HEILSUGÆSLA
Sjúkrastöðvarnar sem reknar eru af SOS-barnaþorpunum er
ætlað að sinna grunnþörfum fólks um heilsuvernd.
Markmið SOS er að bæta heilsuvernd innan þess samfélags
sem þau starfa í og veita þeim sem hafa lítinn eða engan
aðgang að heilsugæslu hjálp.
ÞORPSSTJÓRI
Forstöðumaður SOS-barnaþorpsins er sá
sem veitir börnunum þá stöðugu föður-
ímynd sem er þeim mikilvæg. Aðrar
karlkyns fyrirmyndir eru til dæmis
kennarar, félagsráðgjafar og sálfræðingar.
SOS-VERKNÁMSSTÖÐVAR
Þegar börnin verða eldri er æskilegt að
þau mennti sig í einhverri sérgrein svo
þau verði fær um að standa á eigin
fótum. SOS-verknámsstöðvar eru jafnt
fyrir unglinga úr SOS barnaþorpinu auk
annarra ungmenna úr nágrenninu.
HEIMURINN FYRIR UTAN
Börn verða að unglingum, þau vaxa úr grasi og langar að standa á eigin
fótum. SOS-börnin viðhalda nánu sambandi við SOS-móður sína og
þorpið sem þau ólust upp í. Börn sem alast hafa upp í SOS-barnaþorpi
eru alltaf velkomin aftur inná heimili sín, alveg eins og hjá öðrum
venjulegum fjölskyldum.
SOS-MÓÐIR
Að vera lítill og yfirgefinn er ekki
auðvelt og því er barnaþorpsmamman
ein mikilvægasta persónan í lífi litla
barnsins. SOS-móðir gegnir því hlutverki
að búa ein með 7-10 börnum í
fjölskylduhúsinu. Hún hefur veigamiklu
hlutverki að gegna og er hinn staðfasti
klettur í lífi barnanna. Allar SOS-mæður
hafa hlotið umfangsmikla menntun á
sviði uppeldismála.
SÁLFRÆÐINGURINN
Þó það sjáist ekki á utanverðu þá bera börnin
sem flytja í barnaþorpin sálræn ör og hafa
langflest upplifað miklar hörmungar þrátt fyrir
ungan aldur. Þau þurfa mikla hjálp til að vinna úr
atburðum sem skekkt hafa líf þeirra. Í sérhverju
barnaþorpi er því til staðar sálfræðingur,
sérþjálfaður í að meðhöndla sálfræðileg áföll hjá
börnum.
SOS BARNAÞORPIN
& DEBENHAMS
VILJA BJÓÐA ÞÉR Á JÓLABALL
AFI KEMUR OG SKEMMTIR BÖRNUNUM & JÓLASVEINAR VERÐA Á FERÐINNI OG GEFA GÓÐGÆTI!
UPPBYGGING SOS-BARNAÞORPANNA
Í SMÁRALIND SUNNUDAGINN 18. DESEMBER KL. 15.30
SR. JÓNA HRÖNN BOLLADÓTTIR KVEIKIR Á SOS JÓLATRÉNU
FYRIR FRAMAN DEBENHAMS
SELMA BJÖRNSDÓTTIR SYNGUR EFTIRLÆTIS JÓLALÖGIN SÍN
www.sos.is
SKÓLI
SOS-SKÓLINN
Víðsvegar í heiminum eru það forréttindi en
ekki grundvallar mannréttindi að eiga þess
kost að hljóta menntun. SOS-barnaþorpin
hafa brugðið til þess ráðs að reisa skóla í
þeim löndum þar sem skolakostur er
ófullnægjandi eða jafnvel ekki til staðar.
Skólar þessir eru jafnt fyrir SOS-börn sem
önnur börn frá nærliggjandi svæðum.