Fréttablaðið - 20.12.2003, Page 75
71LAUGARDAGUR 20. desember 2003
• SKEIFAN
• BÍLDSHÖFÐI
• HRINGBRAUT
• DALSHRAUN
• HVALEYRARBRAUT
• MOSFELLSBÆR
• SELFOSS
• VESTMANNAEYJAR
• HÖFN
KRÓNAN BÝÐUR BESTA VERÐIÐ!
Opið til kl. 22
og til kl. 23 á þorláksmessu
öll kvöld fram að jólum
Eftirréttur Orra Hugins:
Kaffi- og súkkulaði-
þrenna með mjólk
Espresso granít
4x heitir og sterkir espresso (eða jafn
margir og skammtarnir af ísréttinum)
1/2 -3/4 bollar sykur, eftir smekk
Lagið 4x sterka espresso (má
nota instant, en „alvöru“ er
alltaf best). Setjið í kökuform
eða annan disk sem kemst inn í
frysti. Hellið sykrinum út í og
leysið upp. Kælið og frystið.
Takið diskinn út á ca. 30 mín.
fresti og hrærið upp með gaffli
til að brjóta upp ískristallana.
Þannig næst gróf og flott áferð á
ísinn. Setjið svo aftur inn í
frysti. Haldið þessu áfram í
u.þ.b. 5 tíma, eða þar til blandan
er alveg frosin. Lokaáferðin
ætti að vera heldur grófari en
sorbet.
Súkkulaðisorbet
340 g „bittersweet“ súkkulaði, gróft saxað
750 ml vatn
200 g sykur
1/8 tsk. salt
Setjið vatn, sykur og salt í
pott á meðalháan hita. Hrærið í
við og við þar til þurrefnin hafa
leyst upp. Látið suðu koma upp á
sýrópinu, takið af hitanum. Setj-
ið súkkulaðið út í og hrærið þar
til það hefur bráðnað og blandan
er mjúk. (Þetta má einnig gera í
matvinnslu- eða hrærivél).
Setjið í ísvél skv. leiðbeining-
um framleiðenda. Má geyma í
frysti í 1-2 daga áður en bera á
fram.
(Uppskriftin er ca. 1,2 lítrar af
sorbet.)
Kaffiís
1 vanillustöng
500 ml mjólk
6 eggjarauður
150 g sykur
100 ml rjómi
2x espresso
Kljúfið vanillustöngina eftir
endilöngu og skafið fræin úr ofan
í pott. Setjið fræin og stöngina
ofan í pottinn og hellið mjólkinni
yfir. Látið suðuna koma upp. Þeyt-
ið eggjarauðurnar og sykurinn þar
til það er ljóst og þykkt. Fjarlægið
vanillustöngina úr mjólkinni og
hellið mjólkinni í mjórri bunu út í
eggjablönduna, hrærið í allan tím-
an. Flytjið eggjablönduna aftur út
í pottinn og hrærið í á lágum eða
meðalháum hita þar til blandan
þykknar. Það er mjög mikilvægt
að hræra í allan tíman og leyfa
blöndunni ekki að hitna of mikið,
þá hlaupa eggin og blandan er
ónýt. Það fer ekkert á milli mála
þegar blandan er orðin nógu þykk.
Takið þá strax af hitanum, hellið í
skál og hellið rjómanum út í. Gott
er að hræra í blöndunni yfir köldu
vatnsbaði til að stöðva örugglega
suðuna. Blandið espresso út í og
kælið alveg.
Ábending. Fyrir þá sem eru vit-
lausir í rjómaís er frábært að
blanda varlega 250 ml af léttþeytt-
um rjóma saman við áður en
blandan er fryst.
Setjið í ísvél skv. leiðbeining-
um framleiðenda. Setjið inn í
frysti í 1 klst. Má gera daginn
áður en bera á fram, þó er áferðin
alltaf best ef ísinn er borinn fram
samdægurs.
Mjólkurfroða
150 ml mjólk
150 ml rjómi
150 ml mulinn ís
Setjið þessi hráefni í mat-
vinnsluvél rétt áður en bera á
fram og blandið þar til blandan er
þykk og froðukennd, u.þ.b. 3 mín-
útur. (Best er að veiða froðuna efst
af blöndunni til að nota yfir ísinn).
Kælið glös á fæti (gott að setja
í frystinn, en alveg nóg að geyma
í kæli í rúman hálftíma). Setjið
eina kúlu af súkkulaðisorbet í
hvert glas. Þrýstið ísnum niður í
glasið með skeið, þannig að yfir-
borðið sé slétt. Setjið kaffigranít
(ca. einn espresso) yfir súkkulaði-
ísinn og sléttið út líkt og með
sorbetinn. Toppið þetta með einni
kúlu af kaffiísnum. Setjið mjólk-
urfroðuna yfir. Stráið súkkulaði-
spæni varlega eða sigtið kakóduft
yfir og berið fram.
Það er hægt að gera ísinn og
sorbetinn án þess að eiga ísvél. Þá
er blöndunum einfaldlega komið
fyrir í skál inni í frysti og þær
þeyttar upp á ca. 30 mínútna
fresti. Það er best að gera það í
hrærivél til að fá sem mýksta
áferð á ísinn. Með þessari aðferð
er best að gera ísinn 1-2 dögum
áður en bera á fram til að hann
frjósi vel. Það má svo bara þeyta
hann upp í hrærivél skömmu áður
en bera á fram til að fá hann
mjúkan og góðan. ■
ORRI HUGINN ÁGÚSTSSON LEIKLISTARNEMI
Sér um eftirréttinn á aðfangadagskvöld. Hér er hann að leggja síðustu hönd á kaffi- og
súkkulaðiþrennu sem er hans sérgrein.