Fréttablaðið - 18.11.2004, Blaðsíða 8
8 18. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR
Bandarísk þingnefnd rannsakar brot Íraka á viðskiptabanni:
Drógu sér hundruð milljarða
BANDARÍKIN, AP Stjórn Saddams
Hussein dró sér andvirði um 1.400
milljarða króna úr áætlun Samein-
uðu þjóðanna sem átti að gera
Írökum kleift að selja olíu til að
fjármagna matvæla- og lyfjakaup
meðan landið sætti viðskiptabanni
af hálfu Sameinuðu þjóðanna.
Þetta kemur fram í gögnum sem
tekin voru saman fyrir bandaríska
þingnefnd sem rannsakar spill-
ingu í kringum olíusöluna.
„Það er mikilvægt fyrir okkur
að komast að því hvort hagnaður
af spillingunni hafi verið nýttur
til hryðjuverkastarfsemi,“ sagði
Henry Hyde, formaður þingnefnd-
arinnar.
Féð notaði Saddam meðal ann-
ars til að greiða bætur að and-
virði 1,7 milljóna króna til fjöl-
skyldna Palestínumanna sem
gerðu sjálfsmorðsárásir á Ísra-
ela. Þær greiðslur fóru í gegnum
bankareikninga í Jórdaníu sem
erlend fyrirtæki og einstaklingar
greiddu mútur inn á til að eiga
ólögleg viðskipti við Íraka.
Þingnefndin fjallaði í gær um
ásakanir þess efnis að franskur
banki hefði hjálpað Íraksstjórn
að draga sér fé með því að fylgj-
ast ekki nægilega vel með því að
greiðslurnar væru fyrir vörur
sem hefðu verið afhentar. ■
Bláfjöll eru kjörin
fyrir vindmyllur
Nú stendur yfir rannsókn á möguleikum á nýtingu vindafls á landinu.
Undirlendi Suðurlands og Bláfjöll eru meðal hentugustu svæða á Vestur- og
Suðurlandi. Samrekstur vatnsaflsvirkjana og vindaflsvirkjana heppilegur.
Malarnám í Ingólfsfjalli:
Umhverfisráðuneytið
heimilar efnistökuna
SKIPULAGSMÁL Umhverfisráðu-
neytið hefur heimilað að nýju
malarvinnslu á fjallsbrún Ingólfs-
fjalls sem Skipulagsstofnun hafði
í byrjun september kveðið á um
að væri óheimil meðan umhverf-
ismats væri beðið. Ráðuneytið
telur Skipulagsstofnun hafa laga-
heimild til að stöðva starfsemina
og er hún því heimil þar til endan-
legur úrskurður ráðuneytisins
liggur fyrir 29. þessa mánaðar.
Magnús Ólason, annar for-
svarsmanna Fossvéla á Selfossi
sem stundað hefur malarnámið,
segir svigrúmið verða nýtt til
frekari efnisvinnslu á fjallsbrún-
inni, en þar hefur möl verið ýtt
niður í eldri námu. Hann telur að
umhverfisáhrif malarnámsins
hafi verið ofmetin. „Þetta er í
rauninni umhverfisvænsta að-
gerðin ef út í það er farið. Þetta
sést ekki frá veginum eins og rót-
ið í hlíðinni,“ segir hann og bætir
við að möl hafi verið að þrjóta í
námunni í fjallshlíðinni. Mölin
hefur verið notuð til fram-
kvæmda á Selfossi og telur Magn-
ús að nú kunni fyrirtækið í það
minnsta að hafa svigrúm til að út-
vega möl vegna framkvæmda við
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
sem séu að hefjast. - óká
ORKUMÁL Það mætti minnka uppi-
stöðulón í vatnaflsvirkjunum fram-
tíðarinnar með því að samreka þær
með vindaflsvirkj-
unum. Þetta segir
Hreinn Hjartar-
son, veðurfræð-
ingur hjá Veður-
stofu Íslands, en á
fundi Orkustofn-
unar í gær um um
nýja möguleika til
orkuöflunar var
kynnt rannsókn
undir hans stjórn á
hugsanlegri nýt-
ingu vindorku á
landinu. Rannsóknum á Suður- og
Vesturland er lokið og á næstunni
verður unnið að því að klára verkið
allt í kringum landið.
Hreinn segir að stærstu tegund-
ir vindmylla séu sextíu metra háar
með um þrjátíu til fjörutíu metra
löngum spöðum. „Þetta eru mikil
mannvirki,“ segir Hreinn. „Þetta
er í líkingu við að setja spaða á
Hallgrímskirkjuturn. Þess vegna
yrði mikil sjónmengun af þessu og
því má reikna með að þetta yrði
umdeilt.“ Hann segir Bláfjalla-
svæðið tilvalið fyrir vindmyllur
miðað við niðurstöðu Veður-
stofunnar. Einnig sé slétt undir-
lendi Suðurlands kjörið vindmyllu-
svæði. Það sé jafnvel hentugra en
Bláfjöllin vegna hættu á ísingu
þegar ofar kemur í landið.
Ein vindmylla af stærstu gerð
framleiðir um eitt og hálft mega-
vatt. Til samanburðar framleiðir
Kröfluvirkjun um 60 til 70 mega-
vött. Hreinn segir að jafnan séu
reistar nokkrar vindmyllur saman
til að auka framleiðsluna. Vindorka
er hins vegar óáreiðanleg og því
segir Hreinn að það sé árennilegast
að reka vatnsaflsvirkjun og vind-
aflsvirkjun saman til að auka ör-
yggi framleiðslunar. Þá sé helst að
treysta á vindorku á veturna þegar
lítið sé í uppistöðulónum og fram-
leiðsla vatnsaflsvirkjana er í lág-
marki. Auk þess sé hægt að fram-
leiða virkjanir með minni uppi-
stöðulónum ef þær eru samreknar
með vindaflsvirkjunum. Þannig
megi draga úr áhrifum á náttúruna
á viðkvæmum svæðum.
Hreinn segir að tækni í nýtingu
vindorku þróist hratt um þessar
mundir og hún verði sífellt hag-
kvæmari. Hann býst því við nokk-
urri eftirspurn eftir vindmyllum
þegar rannsókninni lýkur.
ghg@frettabladid.is
Jarðsprengjur:
Þúsundir
skaðast árlega
KAMBÓDÍA, AP Rúmlega átta þúsund
manns hið minnsta létust eða slös-
uðust af völdum jarðsprengja á síð-
asta ári. Þetta er sá fjöldi atvika
sem tilkynnt var um en raunveru-
legur fjöldi slasaðra og særða getur
verið tvöfalt til þrefalt hærri þar
sem ekki er tilkynnt um nærri öll
atvik, að sögn samtaka sem börðust
gegn banni við notkun jarðsprengja.
Forsvarsmenn samtakanna, Al-
þjóðlegu baráttunnar fyrir banni
gegn jarðsprengjum, segja þó mik-
inn árangur hafa náðst. Síðan þá
hafa 62 milljón jarðsprengjur verið
eyðilagðar og 1.100 ferkílómetrar
lands verið hreinsaðir. ■
ÁREKSTUR Á AKUREYRI Tveir
fólksbílar rákust saman um klukk-
an átta í gærmorgun í Þórunnar-
stræti á Akureyri. Minniháttar
skemmdir urðu á bílunum. Lög-
reglan á Akureyri telur að ekki
hafi verið keyrt í samræmi við að-
stæður en snjór er nokkur.
FASTUR Á LÁGHEIÐI Jeppi var
dreginn af Lágheiði við Ólafsfjörð.
Heiðin er ófær og hefur lögreglan
gert Vegagerðinni viðvart. Skilti
verða sett upp. Lélegt GSM-sam-
band er á heiðinni og erfitt að
ganga til byggða komi einhvað
upp á. Ökumaðurinn náði að gera
lögreglunni viðvart.
DVÍNANDI BELTANOTKUN Sjö voru
teknir án bílbelta í klukkustundar
athugun lögreglunnar á Eskifirði
og Reyðarfirði. Lögreglan segir
beltisnotkun fara dvínandi. Öku-
mennirnir fengu sekt, um 5.000
krónur.
,,Þetta er í
líkingu við að
setja spaða á
Hallgríms-
kirkjuturn.
Þess vegna
yrði mikil
sjónmengun
af þessu.
DANADROTTNING Í JAPAN
Margrét Þórhildur Danadrottning og eigin-
maður hennar, Hinrik prins, eru í átta daga
opinberri heimsókn til Japans. Þau tóku í
gær á móti Michiko keisaraynju Japans í
móttöku í Tókýó.
Segja
slökkviliðs-
menn í Nes-
kaupstað
hafa breytt
framburði
sínum
fyrir dómi
– hefur þú séð DV í dag?
Gjaldþrot blasir við fyrirtæki
Baltasars og Lilju Pálma
„VEL HEPPNUÐ
HROLLVEKJA“
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
„... MÆL[I] MEÐ ÞVÍ AÐ SEM FLESTIR
HVOLFI SÉR YFIR BÓKINA Í
SKAMMDEGINU, EFTIR AÐ HAFA
NEGLT AFTUR SKÁPANA ...“
– Úlfhildur Dagsdóttir, bokmenntir.is
„SKYLDUEIGN HROLLVEKJU-
AÐDÁANDANS“
– Þorsteinn Mar, kistan.is
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
FJALLAÐ UM FJÁRDRÁTT ÍRAKA
Vitni hafa verið kölluð fyrir bandaríska
þingnefnd sem kannar hversu útbreidd
spillingin var.
MALARNÁM Í INGÓLFSFJALLI
Mölin úr fjallinu er að mestu notuð í fram-
kvæmdir og uppbyggingu á Selfossi, en
bærinn hefur þanist út síðustu ár. Hart
hefur verið deilt á námuna og hún kölluð
„svöðusár í andliti Flóans“.
BLÁFJÖLL
Það mætti beisla gríðarleg mikla orku með því að reisa vindmyllur á fjallgarðinum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
08-09 fréttir 17.11.2004 19.40 Page 2