Fréttablaðið - 18.11.2004, Blaðsíða 96

Fréttablaðið - 18.11.2004, Blaðsíða 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 edda.is „Stórvirki“ Penninn Eymundsson og Bókabú›ir MM 3. – 9. nóv. 2. Skáldverk „Ólafur Jóhann lýsir persónum og umhverfi af stakri snilld og fangar lesandann áreynslulaust inn í söguheim sinn. Hann býr einfaldlega yfir þeirri náðargáfu að kunna að segja sögu ... Sagan er allt í senn sorgleg, fyndin, mannleg og ævintýri líkust.“ − Hlynur Páll Pálsson, Fréttablaðið „Frábær bók, skemmtileg ... tvímælalaust besta bók Ólafs Jóhanns.“ − Gísli Marteinn Baldursson, RÚV. „Heldur lesanda föngnum ... Sakleysingjarnir eru enn eitt stórvirki Ólafs Jóhanns. Þetta er yfirgripsmikil skáldsaga sem kemur með ný sjónarmið inn í íslenskar bókmenntir.“ − Skafti Þ. Halldórsson, Mbl. Engin kerfi Þegar ég var unglingur heillaðistég af kommúnisma. Mér fannst kommúnisminn vera hið fullkomna kerfi sem gæti bjargað mannkyninu frá því að tortíma sjálfu sér, kerfi sem byggði á jafnrétti og bræðra- lagi og væri stéttlaust. Ég trúði því að kommúnisminn gæti bundið enda á óréttlætið og þjáninguna í heimin- um. Smátt og smátt komst ég að því að það var misskilningur. Allstaðar þar sem kommúnisma var komið á tók Djöfullinn völdin. Kommúnism- inn gengur ekki upp. SEINNA féll ég fyrir kapítalisman- um. Úr því að kommúnisminn var svona misheppnaður hlaut frelsi einstaklingsins og frjáls viðskipti að vera hin sanna lausn. En eins og frelsið er yndislegt þá eru fáir sem kunna að fara með það því frelsi fylgir ábyrgð sem fáir vilja axla. Og þar sem engin ábyrgð er þar ræður Djöfullinn ferðinni ásamt frænda sínum Mammoni. ÖLL kerfi eru ágæt að mörgu leyti en ekki fullkomin. Það er ekki til neitt fullkomið kerfi því að það sem ber öll upphugsuð kerfi ofurliði á endanum er breyskleiki mannanna; sjálfselska, græðgi, reiði, öfund, leti, stolt og hégómi. Þessir eðlis- lægu hlutir leiða okkur alltaf til glötunar sama hvaða kerfi við reyn- um að verja okkur með. Við getum fyllt líf okkar af reglum, boðum og bönnum eða hreinlega sleppt þeim algjörlega. Allt kemur fyrir ekki. Lífsfyllingin lætur á sér standa. EKKI einu sinni trúarbrögðin geta bjargað okkur. Það er ekki til neins að tilheyra einhverri kirkju eða söfnuði og fylgja bara reglum þess safnaðar ef ekkert meira liggur að baki. Það er álíka innantómt og líf hermannsins sem berst fyrir mál- stað sem hann trúir ekki á. Í DAG veit ég að það er ekkert kerfi sem maðurinn getur upphugsað til að bjarga sér frá glötun. Öll system eru dæmd til að mistakast. Við getum ekki hugsað okkur til heilbrigðis. Hið fullkomna tæknisamfélag er líka bara dauði. Engin heimspeki getur frelsað okkur heldur. Gáfur okkar munu ekki veita okkur ódauðleika. Maðurinn getur ekki bjargað sér sjálfur af eigin rammleik. Kærleikur- inn er svarið. Hann er þúsund sinn- um meira virði en öll speki heimsins. Það eina sem getur bjargað okkur er kærleikurinn og trúin á Guð. Love is all you need! ■ JÓNS GNARR BAKÞANKAR 96 bak 17.11.2004 20.46 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.