Fréttablaðið - 18.11.2004, Blaðsíða 36
Reynir Traustason, frétta-stjóri DV, mun taka viðritstjórn glanstímaritsinsMannlífs af Gerði
Kristnýju Guðjónsdóttur sem er á
leið í barnseignarfrí. Reynir vildi
ekki staðfesta þetta í samtali við
F2 en samkvæmt heimildum
blaðsins mun hann taka við starf-
inu um næstu mánaðarmót.
Steinar Lúðvíksson, aðalrit-
stjóri Fróða, vildi heldur ekki
staðfesta ráðningu Reynis en sagði
að það myndi skýrast um eða eftir
helgi hver tæki við af Gerði
Kristnýju. Að sögn Steinars hafa
margir sótt um ritstjórnarstarfið
en það sé trúnaðarmál hverjir um-
sækjendurnir eru. Margir hafa
verið orðaðir við starfið síðustu
mánuði. Steingrími Ólafssyni,
kynningarfulltrúa Fróða, var með-
al annars boðið starfið en hann af-
þakkaði.
Reynir Traustason hefur starf-
að við fjölmiðla um langt skeið en
áður starfaði hann við útgerð.
Reynir hefur einnig skrifað nokkr-
ar bækur, þar á meðal Linda -
Ljós og skuggar, um lífshlaup
Lindu Pé, og ævisögu Sonju De
Zorilla.
Að sögn Steinars mun Gerður
Kristný snúa aftur til starfa að
barnsburðaleyfi loknu en hún hef-
ur ritstýrt Mannlífi í nokkur ár. ●
Reynir Traustason
Hann tekur við ritstjórnarstarf-
inu um mánaðarmót.
Söngkonan Þórunn AntoníaMagnúsdóttir virðist heldur bet-
ur vera farin að vekja athygli í Bret-
landi þar sem hún starfrækir hljóm-
sveit sína The Honeymoon.
Í tískublaðinu Style, sem fylgir The
Sunday Times frá 14. nóvember, má
finna risamynd af Þórunni þar sem
hún talar um tískustraumana sem hún
fylgir eftir. Þar segir hún meðal ann-
ars: „Ég versla reglulega í Oxfam (se-
cond-hand verslun). Ég veit hvernig
ég er í vextinum. Ég veit hvað virkar.“
Tvö ár eru liðin frá því að Þórunn
Antónía flutti til Bretlands eftir að
hafa undirritað plötusamning við
BMG-útgáfuna. Hún ákvað að freista
gæfunnar og fór út með tvær hendur
tómar. Það var svo í gegnum upptöku-
stjórana The Away Team sem hún
komst í samband við lagahöfundinn
Wayne Murray. Saman mynda
þau dúettinn The Honeymoon.
Fyrsta breiðskífa þeirra, Di-
alogue, kom svo út í Bretlandi
fyrir skemmstu, og svo loks á Ís-
landi í vikunni.
The Honeymoon er nú á
tónleikaferðalagi um Bretland
ásamt Darreyn Hayes, sem
áður var í Savage Garden.
Ferðalagið mun standa til 27.
nóvember en fyrsta smáskífa
sveitarinnar, Truth Hurts, verð-
ur gefin út í febrúar.
Þeir sem eru á ferðalagi um Bret-
land geta séð Þórunni Antoníu og The
Honeymoon í Nottingham Royal
Center á föstudag, Newcastle
City Hall á laugardag, Glasgow
Academy á sunnudag, Bristol
Colston Hall á þriðjudag, Sout-
hampton Guildhall miðvikudag,
Wolverhampton Civic á
fimmtudag en síðustu tónleik-
arnir verða í Ipswich Regent
laugardaginn 27. nóvember.
F2 er vikurit
sem fylgir
Fréttablaðinu
á fimmtudög-
um.
Útgefandi
Frétt hf.
Ritstjórn:
Jón Kaldal
Höfundar efnis í þessu hefti Borghildur
Gunnarsdóttir, Freyr Gígja Gunnarsson,
Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Hjálm-
arsson, Óskar Hrafn Þorvaldsson, Sigríð-
ur Dögg Auðunsdóttir og Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir.
Hönnun Jón Óskar Hafsteinsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Aðalsími: 550 5000
Netfang: f2@frettabladid.is
Auglýsingar Auglýsingadeild Frétta-
blaðsins, Jón Laufdal / jonl@frettabla-
did.is / 515 7584 / 899 0797
Forsíða Íslenskir karlmenn eru að kikna
undan hefðum fortíðar og kröfum nú-
tímans. Sá úttekt bls. 14.
Forsíðumynd Halldór R. Lárusson.
Þetta og
margt fleira
4 Persónuleg húðflúr
6 Þingheimur dreginn í dilka
8 Göturnar í lífi
Þóru Sigurðardóttur
10 Edduklæði dæmd og vegin
12 Viðtal:
Forréttindi fyrir
fótboltafíkil
Óskar Hrafn Þorvaldsson
ræðir við Eggert Magnússon.
14 Úttekt:
Ráðvilltir
nútímamenn
Freyr Gígja Gunnarsson skrifar.
18 Baðherbergisdraumar.
20 Villibráð og eðalvín
22 Karl Lagerfeld hannar
fyrir H & M
24 Það sem ber hæst framundan
26 Sigfús Bjartmarsson er ljóð-
skáld og verðbréfagutti
F2 2 18. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR
Morgunmatur Heimagert „boozt“, létt,
hollt. Blönduð, frosin ber úr pakka, syk-
urlaust vanilluskyr.is og ísmolar, beint í
blandarann og þú hefur daginn í hendi
þér.
CD Mugimama - Is
This Monkey Music?
Mugison,Heldur út-
gáfutónleika á Nasa á
fimmtudag. Skyldu-
mæting.
Lesefni Sakleysingjarnir eftir Ólaf Jó-
hann. Spennandi saga um spennandi
fólk eftir spennandi höfund.
Síðdegiskaffi Kaffi og vöfflur á Apó-
tekinu.
Sjónvarp/föstudagur
Nigella gerir elda-
mennsku að hreinni
ástríðu og kyndir
undir hinum ýmsu
löngunum.
Sjónvarp/laugardag-
skvöld Laugardags-
kvöld með Gísla
Marteini. Ekki vegna
Gísla... heldur Harry Belafonte og Jagú-
ar.
Útvarp Morgunleikfimin alla virka daga
klukkan 9:50.
Kvöldhressing Rauðvínsglas og pipar-
kökur - fullkomin samsetning.
Drykkur Ískaldur tómatsafi með klök-
um. Með eða án vodka...
Hádegismatur Smáréttadiskur á Yndis-
auka í bókabúðinni Iðu í Lækjargötu.
Bíó Sky Captain and the World of
Tomorrow. Flottar brellur og frábærir
leikarar, Jude Law, Gwyneth Paltrow og
Angelina Jolie.
Gönguferð Fjöruferð á Ægisíðuna í híf-
andi roki og helst kafaldsbyl hressir bet-
ur en nokkuð annað.
Skyndibiti Beygla með rjómaosti og
reyktum laxi úr Reykjavík Bagel
Company á Laugaveginum.
Stund milli stríða Bíltúr umhverfis
Hafravatn á fallegum degi. Undarleg til-
finning að setjast upp í bílinn sinn í há-
deginu eftir erilsaman morgun í vinn-
unni og vera kominn út í sveit innan tíu
mínútna.
velurF2
Hjalti á að leika Erlend
Í síðustu viku spurði F2 lesendur hver ætti að leika rannsóknarlög-
reglumanninn Erlend Sveinsson í fyrirhugaðri kvikmyndagerð á
Mýrinni eftir Arnald Indriðason. Erlendur er einhver ástsælasta
sögupersóna íslenskara bókmennta í seinni tíð og því ekki lítið mál
að ákveða hver á að túlka hann á hvíta tjaldinu. Gátu lesendur valið með sms-kosn-
ingu milli þriggja valinkunnra leikara: Hjalta Rögnvaldssonar, Theodórs Júlíussonar
og Pálma Gestssonar, en allir búa þeir yfir ákveðnum kostum sem henta vel í hlut-
verk rannsóknarlögreglumannsins lífsleiða. Niðurstöður kosningarinnar voru nokkuð
afgerandi því ríflega helmingur eða 52 prósent þátttakenda fannst Hjalti vera rétti
kandídatinn í rulluna, 38 prósent kusu Theodór og 10 prósent Pálma.
Reynir Traustason tekur við Mannlífi
Rannsóknarblaðamaður
ritstýrir glanstímariti
The Honeymoon
Í Style
Þórunn Antonía
fær mikið pláss í
Style, fylgiriti The
Sunday Times.
Þórunn Antonía vekur athygli
02-03-F2 17.11.2004 14:32 Page 2