Fréttablaðið - 18.11.2004, Síða 60
Sigfús Bjartmarsson ljóðskáld á sérmargar hliðar. Ein þessara hliða,og kannski sú sem er hvað undar-
legust, er áhugi hans á íslenska verð-
bréfamarkaðinum en Sigfús er óhrædd-
ur við að deila á hann í nýjasta verki sínu
Andræði.
„Ég er áhugamaður um þetta fyrir-
brigði og hef gaman af því að fylgjast
með markaðinum. Ég á samt enga pen-
inga til að gera þetta að atvinnu,“ segir
Sigfús. „Áhuginn stafar ekki síst af því
að þetta er ungt og nýtt fyrirbrigði
hérna sem segir manni margt um kap-
ítalismann. Markaðurinn segir heldur
ekki bara til um efnahag heldur menta-
litetið sem þar ríkir. Þar starfar meðal
annars nýja valdastéttin okkar sem
hefur framkvæmt gríðarlega mikla
strúkturbreytingu á íslensku valdakerfi.
Þeir átu til að mynda Kolkrabbann.“
Ljóðskáldið kynntist verðbréfa-
markaðinum fyrir nokkrum árum,
þegar hann liðsinnti félaga sínum sem
var að stofna lyfjafyrirtæki. „Ég fékk
smá hlut í fyrirtækinu fyrir. Þetta var
lítill hlutur en félagi minn er klár
bisnessmaður og fyrirtækið stækkaði og
var síðar selt. Þá eignaðist ég í fyrsta
skipti á ævinni pening,“ segir Sigfús
sem vill ekki láta kalla sig verðbréfa-
gutta enda ekki stórtækur í verðbréfa-
braskinu. „Ég er ekki dvergur í þessum
bransa heldur maur. Ég hef aðallega
starfað sem verktaki síðustu ár og á
engan lífeyrissjóð. Ég reyni því að á-
vaxta þennan lífeyrissjóð minn.“
Hlutafjáreldi
Sigfús segir verðbréfabraskið vera
áhugamál og að hann selji og kaupi
þegar hann hafi tíma til að hugsa um
markaðinn. Hann gat þó lítið sinnt
áhugamálinu þegar hann var að vinna
að ljóðabókinni Andræði, sem kom út
fyrir skömmu og hefur selst vel. „Ég
hafði áhuga á að vita hvernig þessir
stórlaxar fara að þessu, sérstaklega
þegar verið er að móta svona lítinn
markað. Ég kalla þetta oftast hlutafjár-
eldi,“ segir Sigfús. „Fjármálaeftirlitið
segist hafa áhyggjur af eignatenglsum á
markaði en það er í raun að segja að það
sé verið að manipulera markaðinn. Úr-
valsvísitalan hækkaði til dæmis um 80
prósent á fyrstu tíu mánuðunum og það
er ekki vexti eða hagnaði fyrirtækjanna
að þakka heldur eitthvað allt annað. Það
er verið að búa til peninga og ég vil bara
kalla þetta rétta nafninu.“
Sigfús segir erfitt að læra inn á verð-
bréfamarkaðinn. „Það veit enginn hvort
hann kann inn á markaðinn eður ei.
Hann er óútreiknanlegur. Það er jafn
vonlaust að læra inn á hann eins og ís-
lenska bókamarkaðinn.“
Fer vel saman
Sigfús segir að hlutabréfamarkaðir
og ljóðagerð fari vel saman. „Það er
hægt að hafa hvaða sett af áhugamálum
saman við skriftir,“ segir Sigfús. „Ég
þurfti að hugsa svolítið út frá samfélags-
nótum vegna bókarinnar og því fer
þetta vel saman. Þessir markaðir eru eitt
af því sem skiptir mestu máli í sam-
félaginu á þessum frjálshyggju tímum.
Fjármálaheimurinn er ein aðal upp-
spretta goðsagna. Aðalhetjurnar nú eru
ekki heimspekingar heldur fjárafla-
menn. Það er ólíkt því sem var þegar ég
var ungur því þá voru til dæmis skip-
stjórar hetjur, en þeir eru ekki hetjur nú
heldur bankamenn.“ ●
F2 26 18. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR
Eiginkonuvandræði
Þannig er mál með vexti að ég á yndis-
lega konu, og við eigum tvö æðisleg
börn saman. Þú mátt ekki misskilja
mig, mér finnst hún alveg frábær.
Þannig er hins vegar með máli vexti að
hún er ekkert sérstaklega hirðusöm,
finnst ekki gaman að klæða sig upp og
er frekar „óheppin“ í útliti. Þegar það
eru til dæmis óvissuferðir í vinnunni
þá lýg ég bara að makar séu ekki leyfð-
ir því mér finnst óþægilegt að taka
hana með. Hvernig get ég leyst þetta
vandamál? Ég þori ekki að segja þetta
við hana. BÓV, Reykjavík
Það sem konur vilja er að geta upplif-
að sig sérstakar. Þær vilja vera þær
einu á svæðinu. Slepptu því að fara í
þessa óvissuferð með vinnunni en
farðu frekar í óvissuferð með frúna.
Bókaðu tíma hjá aðilum sem getað
frískað upp á fölnaðan æskuljómann
og bjóddu henni svo á fáfarinn stað
þar sem enginn sér til ykkar. Þá þarft
þú ekki að hafa áhyggjur af því að
skammast þín fyrir konuna þína, þú
ert búinn að friða samviskuna fyrir
næstu ferð og hún fær að upplifa það
sem allar konur dreymir um. Að vera
sérstök. Og allir græða.
Tengdó er að gera mig
brjálaða
Þannig er mál með vexti að ég er gift
tengdamömmu minni. Ég reyndar
hélt að ég væri að giftast manninum
sem ég elska, en nú er tengdamamma
búin að taka völdin. Hún kemur við oft
í viku og setur fínlega út á allt sem ég
geri. Það er gjörsamlega vonlaust að
gera henni til geðs. Maðurinn minn
verður algjör rola þegar hún kemur og
segir bara já og amen.Hvað get ég
gert? KMF, Kópavogi
Ohh, þvílík pest! Segðu tengda-
mömmu þinni í eitt skipti fyrir öll að
skipta sér ekki af því sem henni kem-
ur ekki við! Ef hún tekur ekki söns-
um bjóddu henni að taka við heimil-
inu og gerðu í staðinn eitthvað geggj-
að fyrir sjálfa þig. Spurning um að
leita á önnur mið meðan karlinn er í
vinnunni og finna alvöru karldýr en
ekki svona volandi mömmustrák.
Meðan eiginmaðurinn
sér ekki hvað ástandið
er absúrd
verður aldrei
friður í hjónasæng-
inni. Þetta er jafnvel
spurning um að
slá tvær flugur
í einu höggi
og losa sig við
bæði í einu.
Fröken Freyja leysir vandann
Sendið fyrirspurnir og vandamál til
fröken Freyju, F2, Skaftahlíð 24, 105 Rvk
eða sendið henni tölvupóst í netfangið
frkfreyja@frettabladid.is. Nöfn sendenda
verða ekki gefin upp í blaðinu.
Eldað fyrir
elskuna sína
Þegar kemur að þáttastjórnun eru
þessir þrír bara dágóðir í sínu fagi, en
þeir eru ef til vill færri sem vita það
að þeir búa yfir þeim hæfileikum að
geta töfrað fram ljúffenga máltíð við
hvers kyns tækifæri, til dæmis fyrir
konurnar í lífi sínu.
Villi Naglbítur eldar humar
„Ég er rosaleg-
ur nautnamað-
ur á mat. Ef
það eru 100
gr. af smjöri,
smá salt og
gott kjöt, þá
getur þetta
ekki klikkað.
Ef ég ætti
hinsvegar að elda góðan mat handa
elskunni minni, þá myndi ég elda
humarhala.“ segir grillmeistarinn og
bingóstjórnandinn Villi.
Gísli Marteinn elskar pasta
„Ég er rosalega
hrifinn af hvers
konar pastaréttum.
Ef ég ætti að elda
rómantískan máls-
verð handa kon-
unni minni yrði
það einhver góður
pastaréttur frá
norður Ítalíu“ segir
þáttastjórnandinn
góðkunni.
Simmi vill „haf og haga“
„Mér finnst ís-
lenskt lambakjöt
alveg rosalega
gott og skemmti-
legast að elda
það. Ef ég ætti að
elda góðan mat
handa elskunni
minni, hef ég náð
rosalega góðum
tökum á því að
elda „haf og haga“, lambakjöt og
humar, „ segir Idol stjórnandinn.
Sigfús Bjartmarsson Íslenski verðbréfamarkaðurinn er eitt af áhugamálum hans á milli þess sem hann yrkir ljóð og skrifar.
Sigfús Bjartmarsson á sér margar hliðar
Ljóðskáld í
verðbréfabraski
26-27-F2 17.11.2004 13:50 Page 2