Fréttablaðið - 18.11.2004, Síða 84
40 18. nóvember 2004 FIMMTUDAGUR
Ef ég mun einhvern tímann verða
svo heppinn að hitta sænsku tón-
listarkonuna Stinu Nordenstam
mun ég neyðast til þess að höggva
af mér höndina til að færa henni
að gjöf. Þessi yndislega stúlka
hefur gefið mér svo mikið í gegn-
um árin að ég skulda henni ein-
hverja gjöf sem er nægilega tákn-
ræn til þess að hún átti sig á því
hversu mikil áhrif hún hefur haft.
Og hún er ekkert hætt að gefa,
því nú skilar hún af sér sinni
sjöttu breiðskífu og er enn að
bæta perlum í safnið. Stina hefur í
gegnum árin lagt sig alla fram við
að breyta um stíl með hverri
plötu, en núna í fyrsta skiptið
slakar hún á þeirri kröfu sinni. Út-
setningum og áferð svipar mjög
til meistarastykkis hennar, And
She Closed Her Eyes, og það gæti
ekki verið sjálfsagðara. Á þeirri
plötu, sem og þessari, er Stina al-
gjörlega í sínum eigin hljóðheimi
sem enginn hefur náð að endur-
skapa. Sigur Rós gerði þó ágætis
tilraun til þess í laginu Ný batterí.
Einkennismerki Stinu er
barnaleg röddin og raddútsetning-
ar hennar, djassrætur hennar,
melankólískar lagasmíðarnar og
smekklegar útsetningarnar. Lögin
eru vanalega smíðuð utan um eitt
hljóðfæri og rödd, oftast raf-
magnsgítar eða píanó. Hér og þar
kíkja svo einfaldir strengir í
heimsókn, eða einmanaleg blást-
urshljóðfæri. Á þessari plötu er
lítið um trommur og hin hljóð-
færin öll mjög vingjarnleg og bíta
ekki. Enda fer það Stinu sérstak-
lega illa að urra. Það væri eins og
að sjá hænuunga með hundaæði.
The World Is Saved er ótrúlega
sterk heild og einfaldlega besta
plata Stinu í mörg ár. Það eru stór
orð, þar sem hún hefur aldrei gert
lélega plötu á sínum ferli. Það
eina sem er að þessari sérvitru
sænsku snót er það að hún er svo
lokuð í sinni eigin skel að hún
kemur aldrei fram á tónleikum
eða gefur viðtöl. Hún tjáir sig þó
opinskátt í gegnum texta sína, að
þessu sinni um ástarsamband þar
sem hún var augljóslega hin kon-
an.
Æi, ég er búinn að röfla um
þessa konu í mörg ár, treystið mér
bara... tékkið á þessari plötu.
Birgir Örn Steinarsson
Lengi lifi skammdegið
STINA NORDENSTAM:
THE WORLD IS SAVED
NIÐURSTAÐA: Sænska skammdegisdrottningin
Stina Nordenstam skilar af sér sinni bestu plötu
í mörg ár. Ekki láta þessa renna framhjá ykkur.
■ TÓNLIST ■ FÓLK
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Í kvöld verður keppt til úrslita í
tónlistarkeppninni The Global
Battle of the Bands sem Tónlistar-
þróunarmiðstöðin stendur fyrir.
Þær fimm hljómsveitir sem
keppa til úrslita eru: A Living Lie,
Pan, Lights on the Highway, The
Telepathetics og Benny Crespo’s
Gang.
Sú hljómsveit sem stendur
uppi sem sigurvegari vinnur ferð
til London þann 30. nóvember og
keppir fyrir Íslands hönd í
heimsúrslitum keppninnar í
London Astoria-tónleikahöllinni.
Heimsmeistara hljómsveita bíða
svo litlar sjö milljónir króna í
verðlaunafé. Hljómsveitin
200.000 naglbítar tók þátt í
heimsúrslitunum í fyrra en tókst
ekki að sigra.
Í dómnefnd í kvöld eru Smári
Jósepsson (Fréttablaðinu), Arnar
Eggert Thoroddsen (Morgunblað-
inu), Einar Kristjánsson (12 tón-
um), Ólafur Páll Gunnarsson (Rás
2) og Andrea Jónsdóttir (Rás 2).
Keppnin hefst stundvíslega
klukkan 19.00. ■
Jamie Kennedy er orðinn góð-
kunningi íslenskra sjónvarpsá-
horfenda úr þættinum Jamie
Kennedy Experiment sem hefur
verið sýndur á Skjá einum við
miklar vinsældir. Þessi heims-
frægi grínisti er nú væntanlegur
hingað til lands og mun hann stíga
á stokk á Broadway og skemmta
okkur með sínu víðfræga uppi-
standi.
Þetta er stærsti uppistandar-
inn sem kemur hingað til lands
síðan Jerry Seinfeld kom fyrir
nokkrum árum. Aðeins eru 800
miðar í boði en til samanburðar
má nefna að þegar Seinfeld
skemmti seldist upp á fjórar sýn-
ingar eða alls 4.000 miðar. Jamie
eyðir vanalega miklum hluta
uppistandsins í að segja frá hrak-
förum sínum við að reyna að
„meika það“ og munu Íslendingar
líklegast fá forvitnilega sýn inn í
harðan heim Hollywood.
Næsta hlutverk Jamie er í
tölvuteiknuðu grímyndinni „Ro-
bots“ frá 20th Century Fox og höf-
undum „Ice Age“. Þar leikur hann
á móti stórstjörnum eins og Halle
Berry, Ewan McGregor, Mel
Brooks og Robin Williams. Uppi-
standið fer fram 30. desember og
ætlar Jamie alls ekkert að flýta
sér af landi brott. Hann hyggst
dvelja á Íslandi til 4. janúar og
mun því upplifa ekta íslenskt
gamlárs- og nýárskvöld. Upplýs-
ingar um miðasölu verða tilkynnt-
ar fljótlega og líklegast mun hún
hefjast fyrir lok mánaðarins. ■
200.000 NAGLBÍTAR Hljómsveitin keppti
í heimsúrslitum The Global Battle of the
Bands á síðasta ári.
Sæti á HM
í húfi
Jamie Kennedy til landsins
JAMIE KENNEDY Mun heilsa upp á Ís-
lendinga í desember og fær að kynnast ís-
lenskum áramótum.
84-85 auka fólk (40-41) 17.11.2004 19.29 Page 2