Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.12.2004, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 22.12.2004, Qupperneq 34
Til hnífs og skeiðar GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR ELDAR JÓLAMAT Kalkúnn með salvíu og blóðbergi Kalkúnn er kannski engin villibráð en samt er hann mjög hátíðlegur matur. Það er bæði auðvelt og gaman að elda stóran fugl handa mörgu fólki og ef rétt er farið með hráefnið bregðast bragðgæðin ekki. Ef kalkúnninn er frosinn látið hann þá þiðna í ísskáp og gerið ráð fyrir um tveimur sólarhringum í þiðnunina. Þegar fuglinn hefur þiðnað skolið hann vel og þerrið að utan og innan. Blandið salti og pipar (um 1/2 tsk. af hvoru) og kryddjurtunum saman við mjúkt smjörið. Dreifið þá megninu (ca 2/3) af kryddsmjörinu jafnt yfir kalkúnsbringuna undir skinnið. Áður en þetta er gert er nauðsynlegt að losa skinnið varlega frá bringu fuglsins. Vinnið frá hálsi og aftur. Nuddið afganginum af smjörinu utan á allan fuglinn. Skerið peru, sellerí og lauk í grófa bita og fyllið fuglinn með þessu ásamt hvít- lauksgeirum. Látið kalkúninn í ofninn á léttsmurða bökunargrind þannig að bringan snúi upp. Látið bökunarskúffu undir til að taka við safanum. Kalkúnninn er bakaður við 150 gráður í um 40 mínútur á hvert kíló eða þangað til kjöthitamælirinn sýnir 90 gráður. Ausið soð- inu úr ofnskúffunni yfir fuglinn á 30 mínútna fresti. Þegar kalkúnn- inn er fulleldaður takið hann út úr ofninum og látið standa í 20 mín- útur áður en hann er borinn á borð. Skreytið með plómum og hnet- um. Flest algengt hátíðarmeðlæti passar vel með kalkún, sérstaklega þó sætar kartöflur, rauðkál og waldorf salat. Mörgum finnst brauð- fylling og trönuberjasulta algerlega ómissandi. ■ 1 kalkúnn 4-5 kg 100 g smjör eða smjörvi 2 msk. salvía (þurrkuð eða fersk) 1 msk. blóðberg (þurrkað eða ferskt) Salt og pipar 1 pera 2 stilkar sellerí 1 laukur 2 hvítlauksgeirar Afþíðing Afþíddu mat á disk inni í ísskáp en ekki á borði til að koma í veg fyrir bakteríur. Sérstaklega þarf að fara varlega þegar kjúklingur er afþíddur og passa þarf að blóðvökvi berist ekki í annan mat. Það er ekki öruggt að frysta aftur kjöt eða fisk sem þegar hefur verið afþíddur.[ Kjúklingamánar er nýjung í fullunninni matvöru frá Matfugli. Þeir eru með ljúffengri fyllingu úr 6 mismunandi ostum og öðru góðgæti. Þá þarf aðeins að hita í ofni eða á pönnu og því auðvelt að reiða fram sælkeramáltíð á svipstundu. – Lostæti með lítilli fyrirhöfn Með ljúffengri fyllingu úr ostum og öðru góðgæti Allir klárir í bátana – stökkir að utan, mjúkir að innan! ar gu s 04 -0 71 3 sími 568 6440 Allt í eldhúsið Eitt virtasta blandaða viskí Skota er Chivas Regal, en 12 ára viskí þess ágæta fyrirtækis er vinsælasta viskí sinnar tegundar í veröldinni. Hér á landi hefur það löngum verið mestselda 12 ára viskíið enda þekkt fyrir stöðugleika og gæði. Nú fyrir jólin er hægt að fá þetta fræga viskí í gjafaumbúðum í Vínbúðum án sérstaks aukakostnaðar. Chivas Regal 12 ára fæst í takmörkuðu upplagi í sér- útbúnum álboxum. Chivas Regal er einkar mjúkt og eitt af þeim viskíum sem höfðar jafnt til karla og kvenna. Undanfarið hefur færst í vöxt að útbúa kok- teila úr viskíi. Einn slíkur drykkur, sem notið hefur mikilla vinsælda, er Chivas Cooler. Það er ákaflega einfalt að gera þennan hressandi drykk: Hellið vel af Chivas Regal yfir ís í háu viskíglasi. Fyllið upp með engiferöli og skreytið með lime-sneið. Verð í gjafaumbúðum í Vínbúðum 4.190 kr. Chivas Regal 12 ára: Í álboxum í takmörkuðu upplagi Í Vínbúðum Á spænsku eru vínhúsin kölluð bodegas og vínframleiðendur því kallaðir bodegueros. Vínframleið- endur Spánar nota mjög margar tegundir þrúgna í vínin sín og er ekki óalgengt að finna cabernet sauvignon, pinot noir og aðrar al- gengar þrúgur í þeim. En meiri- hluti vínanna er framleiddur úr innlendum þrúgum, eins og tem- pranillo og viura, sem margar hverjar eru ekki til utan Íberíu- skagans. Aðferðirnar sem spænsk- ir bodegueros nota eru tæknilega þær sömu og annars staðar, en það eru tæknileg atriði, geymsla, öldr- un og fleira þess háttar sem gefur spænskum vínum áhugaverðan og oft ánægjulega sérstakan keim. Allied Domecq á stærstu vínsam- steypu á Spáni og framleiðir þar allt litróf vína. Því er ekki erfitt að finna gott vín frá þeim með jólamatnum í öllum verðflokkum. Las Campanas Crianza er dúndur- vín með veislumat af ýmsu tagi, eins og til dæmis kalkún eða hamborgar- hrygg. Magnað vín í fjölmennar sam- komur. Verð: 1.090 kr. Campo Viejo Reserva er vínið með hangikjöt- inu, því það gengur afar vel með öllu lambakjöti. Einstaklega gott með smáréttum og ostum af ýmsu tagi í mýkri kantinum. Verð: 1.350 kr. Marques de Arienzo Gran Reserva er fullkomið með villi- bráð, til dæmis rjúpu, gæs eða hrein- dýri. Einnig sérstaklega gott með nauti. Verð: 1.750 kr. Spænsk jólavín Lífræn jógúrt með nýja ásýnd Verið er að taka í notkun hjá Biobú ehf. nýjar dósir fyrir lífræna jógúrt. Dósirnar eru sömu gerðar og eldri dósir en hafa fengið nýtt útlit, þar sem hver tegund fyrir sig hefur fengið sitt auðkenni, öfugt við eldri dósir sem voru einsleitar. Á nýju umbúðunum má finna meira af upplýsingum en áður svo sem töflu yfir magn næringarefna auk texta á íslensku og ensku með lýs- ingu á innihaldi. Þá er að finna á um- búðunum merki íslensks landbúnað- ar ásamt fleiri upplýsingum. Einnig er texti innan á pappaöskjunni sem um- lykur dósina sem hægt er að rífa af og afla sér þannig meiri upplýsinga um vöruna. Pappaöskjuna má flokka með pappa en hún er höfð til styrk- ingar á dósinni, þannig sparast plast- ið í hana. Sala á lífrænni jógúrt milli ára hefur aukist verulega. Hún var 88,7% meiri í nóvember 2004 miðað við nóvem- ber 2003. Ef litið er til síðustu 6 mánaða þá hefur sala aukist að meðaltali um 51,4% miðað við sömu mánuði árið 2003. Sala á lífrænni jógúrt hófst 3. júní 2003. Hlynsírópsbrún- aðar kartöflur með hnetum Tilbrigði við hefðbundnar brúnaðar kartöflur. Þessar eru sérlega góðar með til dæmis með svínakjöti, londonlambi eða kalkún. 1 kg forsoðnar Þykkvabæjarkartöflur 1 dl hrásykur eða ljós púðursykur 2 msk. hlynsíróp (maple syrup) 3/4 dl rjómi nokkrir muldir valhnetu- eða pekan- hnetukjarnar Kartöflurnar settar í pott með sjóð- andi vatni og látnar sjóða í 2-3 mín- útur, eða þar til þær eru heitar í gegn. Þá er þeim hellt í sigti og látið renna vel af þeim. Sykrinum stráð á pönnu og hann bræddur við meðal- hita án þess að hrært sé í honum. Sírópi og rjóma bætt á pönnuna og látið sjóða í 1 mínútu. Þá eru kartöfl- urnar settar út í og hrært þar til þær eru alþaktar sykurbráð. Hnetunum stráð yfir, hrært og látið malla í 1-2 mínútur í viðbót. ■ ]
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.