Fréttablaðið - 22.12.2004, Blaðsíða 61
Hann taldi að þjón-
ustuíbúðum yrði
fjölgað og heimahjúkrun
aukin og myndi það leiða til
þess að viðkomandi þyrfti
ekki að fara á sjúkrastofnun
fyrr en í lengstu lög.
Æskan og ellin, einn og sami þráðurinn
Virðing og hlý umhyggja er ómet-
anleg hverju barni, en æskan og
ellin eru á einum og sama þræði.
Hin hljóða ósk eldra fólks er
einmitt að njóta virðingar, um-
hyggju og öryggis. Sem áhuga-
maður um hagi og líðan fólks
vakti það athygli mina og ánægju
er Jón Kristjánsson heilbrigðis-
málaráðherra tjáði sig um sína
framtíðarsýn varðandi málefni
eldra fólks í útvarpsviðtali þann
16. desember síðastliðinn. Sýn
ráðherrans var glögg og ígrunduð
eins og vænta mátti úr þeirri átt.
Hann taldi að þjónustuíbúðum
yrði fjölgað og heimahjúkrun auk-
in og myndi það leiða til þess að
viðkomandi þyrfti ekki að fara á
sjúkrastofnun fyrr en í lengstu
lög. Þessi yfirlýsing lét einkar vel
í eyrum og kallaði fram í huga
mínum tillögu sem ég bar fram í
stjórn húsnæðissamvinnufélags-
ins Búmenn í september 2003, en í
tillögunni fólst sú ósk m.a. að fé-
lagið verði á hverjum tíma boð-
beri nýrrar sýnar í byggingarmál-
um og hvers konar þjónustu við
fólk á efri árum.
Samvinnufélagið Búmenn er
landsfélag og meginmarkmið
þess er að reisa vandað og hentugt
húsnæði fyrir 50 ára og eldri á
viðráðanlegu verði. Félaginu hef-
ur vegnað vel og átt góða sam-
vinnu við sveitarstjórnir víðs veg-
ar á landinu. Markmið félagsins
er t.d. að við skipulag á nýjum
hverfum í borg og bæjum, verði
strax séð fyrir góðri lóð fyrir
hjúkrunar- og félagsþjónustu
fyrir eldra fólk á sama hátt og
fyrir íbúðir, skóla og leikskóla,
verslun og þjónustu svo nokkuð sé
nefnt. Með því að slík þjónusta
byggðist strax upp sem eðlilegur
hlutur í hverju hverfi skapaðist
möguleiki á áframhaldandi ná-
lægð við umhverfið og betri
tengsl við vini og vandamenn
héldust órofin.
Fólk sem nauðugt þarf að flytja
langa leið í skjól fyrir aldraða er
eins og rifið upp með rótum. Þeg-
ar einsemdin bætist við líðan aldr-
aðra og sjúkra er mikil ástæða til
að leita allra ráða til úrbóta og
finna leiðir til að draga úr bæði
ljósum og leyndum vanda eldra
fólks í dag.
Búmenn hafa mótaðar skoðan-
ir um hvernig fjölga megi valkost-
um félagsmanna og koma á skap-
andi umræðu um ólíka og um leið
jákvæða möguleika í þjónustu við
eldra fólk. Á sama hátt og sveitar-
félög víðs vegar á landinu búa við
mismunandi aðstæður þá liggur
það í augum uppi að það sama á
við um alla, hvort sem þeir eru
ungir eða gamlir. Því varpa ég of-
angreindum hugmyndum mínum
fram sem innleggi í slíka umræðu
og vonast til þess að á síðum
blaðsins eigi eftir að skapast líf-
legar og uppbyggjandi umræður
um þetta mikilvæga málefni.
Höfundur er varaformaður Bú-
manna hsf.
29MIÐVIKUDAGUR 22. desember 2004
Jólakveðja
til ungling-
anna
Tvær nýjar alþjóðlegar kannanir
sýna að reykvískir unglingar
standa sig vel í slíkum saman-
burði. Þar sem alltaf er nóg af
fólki sem rýkur upp til handa og
fóta til að skammast yfir ung-
lingavandamálum, leyfi ég mér
að senda Reykvíkingum jóla-
kveðju með
hrósi um
unga fólkið.
Því það er
h r ó s s i n s
vert. Fjöl-
þ j ó ð l e g
könnun á
v í m u e f n a -
neyslu sýnir
að reykvísk-
ir unglingar
koma vel út.
Neysla þeirra á vímuefnum er lít-
il miðað við marga aðra og hefur
ekki aukist hin síðari ár. Annað
mætti ætla af fréttum og um-
ræðu, en svona er þetta nú samt.
Unglingarnir í borginni standa
sig vel í þessu efni. Þá er nýkom-
in niðurstaða úr annarri fjölþjóð-
legri könnun, PISA, um námsár-
angur. Þar kemur í ljós að reyk-
vískir unglingar eru ofarlega á
lista og nánast enginn munur á
reykvískum stúlkum og piltum í
stærðfræði. Ómarktækur munur
er á mörgum þjóðum í kringum
10. sæti á listanum, og þar er okk-
ar fólk. Um árangurinn segir
Námsmatsstofnun, að hann sé
,,verulega góður“ og beri að
hampa. Annað mætti ætla af sum-
um fréttum. Ég sé ekki betur en
þessar tvær stóru kannanir með
alþjóðlegum samanburði sanni að
reykvískir unglingar eigi skilið
að fá gott í skóinn þessa dagana.
Höfundur er formaður
Fræðsluráðs Reykjavíkur.
STEINUNN FINNBOGADÓTTIR
UMRÆÐAN
HÚSNÆÐISMÁL
ALDRAÐRA
,,
SENDIÐ OKKUR LÍNU
Við hvetjum lesendur til að senda okk-
ur línu og leggja orð í belg um málefni
líðandi stundar. Greinar og bréf skulu
vera stutt og gagnorð. Eingöngu er tek-
ið á móti efni sem sent er frá Skoðana-
síðunni á visir.is. Þar eru nánari leið-
beiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni
birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í
báðum miðlunum að hluta eða í heild.
Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til
að stytta efni.
STEFÁN JÓN
HAFSTEIN
Leiðrétting
Með opnugrein Ara Trausta Guð-
mundssonar jarðeðlisfræðings
um Kötlugos í blaði síðasta laug-
ardags birtist ljósmynd af póst-
korti með ámálaðri mynd af
Kötlugosinu árið 1918. Láðst hafði
að taka fram að myndina málaði
Páll Jónsson frá Ægissíðu, hann
var sjónarvottur af gosinu. Að
sögn Steinþórs Runólfssonar,
tengdasonar Páls, mátti á mynd-
inni sjá Ytri-Rangá þar sem hún
rennur fyrir framan bæinn á Æg-
issíðu. Þá gat á að líta Gaddsstaða-
bæ, Rangársanda og loks gos-
strókinn frá Kötlu í fjarska. ■