Fréttablaðið - 22.12.2004, Síða 78

Fréttablaðið - 22.12.2004, Síða 78
46 22. desember 2004 MIÐVIKUDAGUR Kl. 22.20 í Sjónvarpinu Upptaka frá tónleikum í Royal Albert Hall í London, þar sem þekktir söngvarar flytja lög eftir Burt Bacharach og Hal David. Meðal þeirra sem koma fram eru Dionne Warwick, Sacha Distel, Petula Clark, Elvis Costello, Lynden David Hall, Leo Sayer, Bob Geldof, Lisa Stansfield og Sumudu Jayatilika. menning@frettabladid.is Arnar Jónsson fer með hlut- verk Jóns Arasonar í leikrit- inu Öxinni og jörðinni, sem frumsýnt verður í Þjóðleik- húsinu á annan í jólum. Á annan í jólum frumsýnir Þjóð- leikhúsið leikgerð Hilmars Jóns- sonar á Öxinni og jörðinni, hinni stóru sögu Ólafs Gunnarssonar um Jón Arason biskup og um- brotatíma siðaskiptanna. Gríðarlega margir koma við sögu, jafnt andlegir sem verald- legir höfðingjar, magnaðir kven- skörungar og fjölskrúðugt al- múgafólk. Í leikgerð Þjóðleik- hússins er athyglinni einkum beint að fjölskyldu Jóns Arasonar, en leikar berast engu að síður víða enda eru siðaskiptin eitt mesta átakatímabil í sögu ís- lensku þjóðarinnar. „Við erum með allan pakkann,“ segir Arnar Jónsson, sem fer með hlutverk Jóns biskups, „og kom- um við í Skálholti, Hólum, Snóks- stað, Bjarnarnesi og Kaupmanna- höfn. Þarna eru stórbrotnar per- sónur eins og Daði í Snóksdal, Marteinn Einarsson og Kristján konungur.“ Syni Jóns Arasonar, Björn og Ara, leika þeir Ingvar Sigurðsson og Hilmir Snær Guðnason, en Þórunni dóttur Jóns leikur Sól- veig Arnarsdóttir. Langt er síðan þau Sólveig og faðir hennar Arnar léku síðast saman. „Við lékum saman í litlu fjöl- skyldufyrirtæki fyrir nokkrum árum, en hún er búin að vera ára- tug í útlöndum og enginn tími gefist til þess að leika saman.“ Jón Arason er átakamikið hlut- verk sem Arnar hefur haft gaman af að glíma við. „Maður reynir náttúrlega að sökkva sér i það umhverfi og þann tíma sem þessar persónur hrærast í. Ólafur gefur ýmislegt upp í sinni bók og það er fyrst og fremst hún sem við erum að túlka, og komum þar inn á ýmsa mann- lega þætti í samskiptum fjöl- skyldunnar.“ Arnar segist reyndar áður hafa lent í ekki ósvipuðum karakter- um. Til dæmis segir hann pínulít- ið af Bjarti í Sumarhúsum í Jóni Arasyni. „Hann endar með því að fara með alla fram af nöfinni, keyrir sjálfan sig og synina í dauðann og spurning hvað verð- ur um aðra.“ Jóni Arasyni fannst ábyrgð sín mikil og sá ekki aðra leið en að verjast fyrir hönd kirkju sinnar fram í rauðan dauðann. „Hann er ákaflega glaðlyndur, ljúfur og sanngjarn í dómum um allt og alla, en svo ræður hann ekki við heiftina þegar honum er mælt í mót. Það eru ýmsir fletir á honum og ég skil hann ekki frekar en sjálfan mig.“ Arnar bendir á að kaþólska kirkjan hafi á sínum tíma verið langsamlega stærsta fyrirtæki þjóðarinnar. „Menn eru að tala um stórfyr- irtæki í dag, en þetta var miklu stærra. Kaþólska kirkjan var á þessum tíma ekki bara biskups- stólarnir og klaustrin, heldur var hún almannatryggingar þessa tíma og bæði sálgæslan og sjúkra- húsin. Allt þetta er Jón að verja, og svo er hann auðvitað í leiðinni kannski að passa sitt.“ ■ Ég skil hann ekki frekar en sjálfan mig! NÝJAR BÆKUR Ekki er ósennilegt að ýmsir - ekki síst ungt fólk - velti því fyrir sér hvernig á því standi að Halldór Kiljan Laxness sé jafn áberandi – yfirþyrmandi? – á ís- lenskum bókamarkaði og í menningarumræðunni um þessar mundir og raun ber vitni. Hafa ber í huga að ekki er langt frá andláti hans og aldar- afmæli en hvort tveggja varð tilefni viðamikillar umfjöllunar, útgáfu og dagskrárgerðar um ævi skáldsins og verk. Með hina nýju doðranta Hall- dórs Guðmundssonar og Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um ævi og feril Hall- dórs Laxness í huga má spyrja: Er virkilega hljómgrunnur – markaður – fyrir allt þetta efni? Og hvað er það þá sem hefur svona sterkt aðdráttarafl? Nú hafa svo sem engar athuganir verið gerðar á viðtökum Laxness-efn- isins meðal landsmanna (nógu fróð- legt væri það) en ætla verður að bókagerðin og umræðan þessa dag- ana endurspegli einhvern áhuga, jafnvel þörf, fyrir efnið. Margir telja að bækur Laxness séu nú um stundir meira keypt- ar en lesnar (því lík- lega standa skólarnir sig ekki sérstaklega vel við kynningu verka hans), en fjöldi landsmanna man þó þá tíma þegar hann var lesinn og verk hans rædd og mjög margir þekkja vita- skuld verk hans af eigin lestri. En mér segir svo hugur að það sé ekki endi- lega skáldið Halldór Laxness og skáldverk hans sem ljá ævisögunum nýju hljómgrunn heldur frekar per- sónan að baki skáldinu, þjóðfélags- rýnirinn, hugmyndafræðingurinn. Þess vegna má vel vera að stór hópur lesenda ævisagnanna hafi litla þekk- ingu á skáldskap Halldórs en vilji kynnast manninum, sem svo mikill styr stendur um löngu eftir að hann er sjálfur farinn af hinu opinbera þjóðlífssviði, og sögunni á bak við hann. Hannes Hólmsteinn Gissurarson gerir fróðlega úttekt á skáldsögum Laxness á fjórða og fimmta áratugn- um í öðru bindi nýútkominnar ævi- sögu hans, Kiljan. Segir hann margt athyglisvert um Sjálfstætt fólk, Heimsljós, Íslandsklukkuna og Átóm- stöðina. En eins og eðlilegt má teljast er meginviðfangsefni hans þjóð- félagspersónan Kiljan, áhrif hans á al- menning á Íslandi og menntafólk sér- staklega og ráðgátan um það hvernig skáldið gat látið upplifun sína í Sovét- ríkjunum ríma við mannúðarboð- skapinn sem hann bar fram í nafni sósíalismans. Ítarlega er einnig fjallað um prívatpersónuna og einkahagi hans og samferðamenn og hvernig þeir varpa ljósi á verk skáldsins og boðskap. Að baki verkinu liggur greinilega mikil og vönduð heimilda- könnun og kemur eitt og annað á óvart, en fyrir kemur þó að manni finnist upplýsingarnar sem dregnar eru fram frekar léttvægar en svo ná- kvæmnislega settar fram að jaðrar við smámunasemi. Það er þó aukaatriði þegar verkið er metið í heild; höfundi þessa pistils finnst hér á ferðinni merkilegt rannsóknarrit og mikilsvert framlag til umræðunnar um Halldór Laxness og arfleifð hans. Eftir allt sem á undan er gengið í sambandi við fyrra bindi verksins er ekki annað hægt en að dást að eljusemi og þrautseigju Hannesar að skrifa þessa bók og gefa hana út í miklum mótbyr frá áhrifamiklum öflum í menningar- lífinu. Ólíklegt er að nokkur önnur þjóð eigi mann sem endurspeglar með sama hætti og Halldór Laxness sögu heillar aldar, ekki aðeins sögu eigin þjóðar heldur hina almennu veraldar- sögu tímabilsins. Í vissum skilningi er Halldór Laxness tuttugasta öld í lífi okkar Íslendinga með vonum sínum og draumum, sjálfsblekkingum og martröðum, verkum og viðleitni og kannski á endanum sigrum. ■ Hjá Bókmenntafræðistofnun ogHáskólaútgáfunni er komið út 58. hefti íslenskra fræða. Nefnist það Kall tímans. Um rannsóknir Gríms Thomsen á frönskum og enskum bókmenntum, höfundur er Kristján Jóhann Jónsson og ritstjóri er Ásdís Eg- ilsdóttir. Grímur Thomsen birti viða- mikla fræðiritgerð um franskar bókmenntir árið 1843 og aðra um Byron lávarð og enskar bókmenntir árið 1845. Þær voru báðar gefnar út á dönsku. Þessar ritgerðir gefa skýra mynd af menntun Gríms og mótun hans á þroskaárunum í Kaupmanna- höfn. Þær varpa jafnframt ljósi á al- menna þekkingu og fagurfræði á þessu tímabili. Ritið um Byron var lagt fram sem meistaraprófsritgerð en metið sem doktorsritgerð vegna kerfisbreytinga í Kaupmannahafn- arháskóla. Þar með varð Grímur Thomsen fyrsti doktor Íslendinga í samtímabókmenntum. Í þeim fræði- ritum Gríms Thomsen sem rædd eru í bókinni má glögglega sjá þróun hans frá hugmyndum Hegels um al- heimsandann í átt að tilvistarhyggju Danans Sørens Kierkegaard. Síðar skrifaði Grímur einnig merkar greinar um norrænar samtímabókmenntir og íslenskar fornbókmenntir og orti mörg þekkt kvæði um sögupersónur í miðaldabókmenntum Íslendinga. Kall tímans fjallar um menntun og alþjóðahyggju Gríms Thomsen sem var maður nútímans í öllum skiln- ingi. Sú niðurstaða er í andstöðu við myndina sem svo oft hefur verið dregin upp af Grími sem afturhalds- sömum andstæðingi sjálfstæðisbar- áttunnar og „bergrisa“ á 19. öld. SÓLVEIG OG ARNAR Langt er síðan þau feðgin Sólveig Arnarsdóttir og Arnar Jónsson hafa staðið saman á leiksviði. Tuttugasta öldin í einni persónu BÓKMENNTIR GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Kiljan 1932-1948. Ævisaga Hall- dórs Kiljans Laxness. Höf: Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Útg: Bókafélagið. KILJAN Merkilegt rannsóknarrit og mik- ilsvert framlag til um- ræðunnar um Hall- dór Laxness og arf- leifð hans. HÖFUNDURINN Ekki er annað hægt en að dást að eljusemi og þrautseigju Hann- esar í hinum mikla mótbyr sem hann hefur mætt.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.