Fréttablaðið - 18.05.2005, Page 33
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2005 9
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
Ríkasti maður heims, Bill Gates
stofnandi Microsoft, er greini-
lega jafnmikill keppnismaður nú
og í upphafi ferils síns þegar
hann att kappi við Steve Jobs og
Apple um yfirburði á einkatölvu-
markaði.
Eins og flestir vita fór Gates
með sigur af hólmi í því stríði og
Microsoft rúllaði yfir Apple en
nú telja margir að tími Apple sé
að renna upp á ný. Tónlistarspil-
arinn iPod er talinn einhver best
heppnaða nýjungin í tækniheim-
inum í marga áratugi. Sumir, þar
á meðal Steve Jobs forstjóri
Apple, telja að vinsældir tækis-
ins muni hafa margfeldisáhrif
því þeir sem hafi kynnst iPod
muni næst kaupa sér Apple þeg-
ar þeir vilja skipta um einka-
tölvu.
Í viðtali við þýskt dagblað í
síðustu viku sagði Gates að Apple
gæti átt eftir að sjá sömu þróun
og í upphafi níunda áratugarins
þegar fyrirtækið missti stöðu
sína á einkatölvumarkaði. Gates
spáir því að framleiðendur far-
síma muni ná mikilli markaðs-
hlutdeild með því að bjóða upp á
síma sem geymt geta mikið magn
tónlistar og þar með missi iPod
stöðu sína á þessum markaði. - þk
Gates skýtur
á Apple
Segir vinsældir iPod muni minnka
og samkeppni aukast.
Útvarpið
í vörn
Hlustun á hefðbundnar útvarps-
stöðvar í Bandaríkjunum hefur
dregist saman um næstum tíu
prósent á síðustu sjö árum. Þær
leita nú leiða til að endurheimta
markaðinn.
Svo virðist sem einu stöðvarn-
ar sem halda hlut sínum um þess-
ar mundir séu þær sem spila
sveitatónlist, ballöður, trúarefni
eða kjaftaglaða þjóðfélagspek-
úlanta. Víða hafa stöðvar með
rokktónlist verið lagðar af sökum
lélegrar hlustunar.
Nýjar stöðvar sem bjóða upp á
miklu meira úrval tónlistar og
flytja færri auglýsingar hafa
verið að ryðja sér til rúms bæði í
Bandaríkjunum og Kanada auk
þess sem sífellt fleiri gerast
áskrifendur að útvarpsstöðvum á
netinu þar sem engar auglýsing-
ar eru leika. - þk
Genin breyt-
ast mishratt
Genin sem geyma uppskriftir
af öllum lífverum breytast
smám saman í gegnum árþús-
undin en nú hafa vísindamenn
komist að því að breytingarnar
eru mishraðar
eftir því hvaða
hlutverk genin
hafa.
Þau gen sem
búa yfir upplýs-
ingum um hvern-
ig líkaminn eigi
að berjast gegn farsóttum og
sjúkdómum virðast breytast
mun hraðar en önnur gen. Þá
breytast gen sem stjórna fram-
leiðslu sæðis nokkuð hratt.
Breytingin sem orðið hefur
vart við er hins vegar tvíbent
því ásamt því að stuðla að heil-
brigðara sæði dregur úr hæfi-
leikum líkamans til að berjast
gegn stökkbreytingum í frum-
um og því veikjast varnir gegn
krabbameinum. - þk
LYF EYKUR GÁFUR
Nýtt lyf eykur hæfileika fólks til að leysa
þrautir og virðist engar aukaverkanir hafa.
Nýtt heilalyf
lofar góðu
Tilraunir á nýju lyfjaefni sem
örvar heilastarfsemi lofar góðu.
Efnið heitir CX717 og rannsóknir
á mönnum hafa leitt í ljós að það
bætir athygli, eykur viðbragðs-
flýti og minni og eykur getu til að
leysa þrautir.
Lyfjaefnið eyðist hratt úr lík-
amanum og rannsóknir benda til
þess að aukaverkanir séu litlar
sem engar. Vonir standa til að lyf-
ið muni hjálpa öldruðum, ofvirk-
um börnum en geti einnig gagn-
ast fullfrísku fólki sem er undir
miklu álagi. - þk
Netfyrirtækið Yahoo, sem fær um fjögur
hundruð milljónir gesta á sínar síðar á degi
hverjum, kynnti í síðustu viku tónlistar-
verslun á netinu.
Yahoo býður
notendum upp á að
kaupa áskrift að
milljón laga safni
þangað sem hægt er
að sækja ótakmarkað
magn af tónlist og
flytja yfir á tónlistar-
spilara á borð við Creative Zen og iRiver.
Notendur iPod geta hins vegar ekki notað
þjónustuna.
Napster og RealNetwroks bjóða upp á
áþekka þjónustu en tilboð Yahoo er miklum
mun hagstæðara gagnvart neytendum. Þeg-
ar þjónusta Yahoo var kynnt lækkuðu hluta-
bréf í bæði Napster og RealNetworks veru-
lega enda talið að Yahoo eigi möguleika á
að ná umtalsverðum viðskiptum frá þess-
um fyrirtækjum.
Mánaðaráskrift hjá Yahoo kostar að-
eins 5 Bandaríkja-
dali á mánuði –
sem samsvarar
ríflega þrjú
hundruð krón-
um. Hjá Napst-
er og Real-
Networks kostar sambærileg áskrift
þrisvar sinnum meira.
Áskrifendur tónlistarþjónustunnar
geta flutt lög inn á mp3 spilara en geta
ekki sent lögin á aðra spilara eða bren-
nt þá á geisladiska, vilji þeir gera það
þarf að borga 79 sent (ríflega 50 krónur).
Þjónustan nær ekki til þeirra sem búa utan
Bandaríkjanna. - þk
Yahoo opnar
tónlistarbúð á netinu
Miklu ódýrari en aðrar sambærilegar þjónustur.
STJÓRNARFORMAÐUR MICROSOFT Spáir því að gamli keppinauturinn Steve Jobs muni
missa stöðu sína á tónlistarspilaramarkaði.