Fréttablaðið - 21.12.2005, Blaðsíða 50
MARKAÐURINN
en í Noregi. Íslendingar eru duglegir að nýta
nýjustu tækni og gott samstarf við íslenska
framleiðendur tækja til fiskvinnslu hefur
sitt að segja í fiskvinnslunni. Í markaðsmál-
um hafa Íslendingar einfaldlega betri og
verðmætari vöru fram að færa samkvæmt
skýrslunni.
HÁR FLUTNINGSKOSTNAÐUR
Vegna legu landanna kemur kannski
ekki á óvart að flutningskostnaður er mjög
mismunandi milli landanna. Í skýrslunni er
borinn saman kostnaður við að flytja tonn af
ferskfiski. Á bilinu 1 til 7 fær Ísland 1,9 en
Noregur 6,1 í einkunn. Kostar um 325 evrur
að flytja eitt tonn af ferskfiski samkvæmt
skýrslunni í Noregi en yfir þúsund evrur
frá Íslandi. Er þá miðað við flutning til
viðskiptavina í Evrópu.
Munurinn er líka mikill þegar samanburður
er gerður á flutningi á fiski í 40 feta gámi,
sem er algeng aðferð við að flytja ferskfisk.
Áætlaður meðalkostnaður við að flytja gáminn
til viðskiptavinar í Evrópu er 3.575 evrur frá
Noregi en 6.149 evrur frá Íslandi.
Hins vegar fær Ísland hærri einkunn
þegar kemur að tíðni flutninga innanlands,
aðstæður við hafnir og gæði flugflutninga.
MEIRI FJÁRHAGSLEGUR STYRKUR
Athygli vekur að samkvæmt skýrslunni
er eiginfjárhlutfall íslenskra útgerða mun
sterkara en norskra. Þó kemur fram að
rekstrarhagnaður sem hlutfall af aflaverðmæti
er mun minna hjá íslenskum útgerðum. Ísland
fær einkunina 2,1 en Noregur 5,9 hvað þann
mælikvarða varðar. Rekstrarhagnaður sem
hlutfall af fjárfestingum er líka betri í Noregi
en á Íslandi.
Þá er fiskiskipaflotinn í Noregi yngri en
sá íslenski. Tæknistig flotans er svipað nema
þegar kemur að vinnslu afurða um borð. Á því
sviði eru íslensku skipin framar þeim norsku.
Íslensk fiskvinnslufyrirtæki standa líka
framar þeim norsku hvað varðar eiginfjár-
stöðu. Ólíkt því sem gerist í útgerðum þá
eru íslensku fiskvinnslufyrirtækin með mun
meiri rekstrarhagnað sem hlutfall af fram-
leiðsluverðmæti. Í heild má segja að fisk-
vinnslufyrirtækin íslensku standi mun betur
en þau norsku. Tengsl vinnslu og útgerða
útskýra að hluta þennan mun segja Valtýr og
Ottó. Undir það tekur sjávarútvegsráðherra.
„Norðmenn flytja mikið út af óunnum eða
lítt unnum fiski en Íslendingar vinna aflann
meira. Þetta skilar sér í áberandi hærra
verði sem íslensk fyrirtæki fá fyrir sínar
afurðir,“ segir sjávarútvegsráðherra. Varan
sem Íslendingar framleiði er mun nær neyt-
andanum en afurðir Norðmanna. Fyrir það fá
Íslendingar háa einkunn.
11MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005
F I S K V E I Ð A R
Ísland Noregur
Séráhrif stjórnvalda á fiskveiðar 5,2 4,9
Hæfni útgerða 4,5 4,7
Samkeppni/samstarf og birgjar 5,1 4,4
Niðurstaða 4,8 4,7
F I S K V E I Ð I S T J Ó R N U N
Ísland Noregur
Stöðugleiki og skilvirkni fiskveiðistjórnunar 4,2 4,2
Eignaréttur og frelsi til viðskipta með veiðiréttindi 5,4 3,7
Rannsóknir og ráðgjöf vegna heildarafla 3,4 4,3
Eftirlit 5,3 4,2
Niðurstaða 4,5 4,0
F I S K V I N N S L A
Ísland Noregur
Séráhrif stjórnvalda á fiskvinnslu 4,9 5,6
Hæfni fiskvinnslu 4,5 3,7
Samkeppni/samstarf og birgjar 4,5 3,8
Niðurstaða 4,6 4,2
H A G S T J Ó R N O G Á H R I F S T J Ó R N V A L D A
Ísland Noregur
Vinnumarkaður 5,5 3,5
Skattar 4,5 4,0
Hagstjórn 3,4 5,9
Stjórnsýsla 5,8 5,9
Niðurstaða 4,6 5,1
I N N V I Ð I R O G U M H V E R F I
Ísland Noregur
Menntun og þekking 5,3 4,9
Almennir innviðir 4,1 4,9
Samskipti 7,0 6,8
Fjármálamarkaðir 5,7 6,1
Stjórnunarhættir í fyrirtækjum 5,4 5,8
Niðurstaða 4,8 5,2
M A R K A Ð S S E T N I N G
Ísland Noregur
Séráhrif stjórnvalda á markaðssetningu 6,0 6,0
Hæfni fyrirtækja í markaðssetningu 4,1 3,1
Samkeppni/samstarf og birgjar 4,1 4,9
Niðurstaða 4,3 4,0
Ú T T E K T
Á T R A U S T U M F Ó T U M
Það sem gerir íslenskan sjávarútveg samkeppnishæfan.
■ Betra fiskveiðistjórnunarkerfi Frjáls flutningur aflaheimilda.
■ Sveigjanlegri vinnumarkaður Auðveldara að ráða og reka launafólk.
■ Tíðni flutninga Tíðari flutningar innanlands.
■ Fjárhagslegur styrkur Útgerðir standa vel fjárhagslega.
■ Samvinna Mikil samvinna við birgja fyrirtækja.
■ Góð framlegð Fjárfestingar skila meiri tekjum.
■ Rekstur Betri rekstur fiskvinnslufyrirtækja.
■ Framboð á fiski Jafnara framboð á fiski yfir árið.
■ Fullvinnsla Sjávarafurðir meira unnar og tilbúnar til neyslu.
Á B R A U Ð F Ó T U M
Það sem dregur úr samkeppnishæfni Íslendinga.
■ Minni rannsóknir Umfang hafrannsókna minna á Íslandi.
■ Óstöðugt gengi Flökt á genginu eykur óvissu í rekstri.
■ Háir vextir Grunnvextir hafa verið háir á Íslandi.
■ Flutningskostnaður Hár flutningskostnaður milli landa.
■ Fjárfestingar Takmarkanir á erlendum fjárfestingum.
■ Menntun Minna framboð af menntuðum millistjórnendum.
■ Samvinna Lítil samvinna við alþjóðlega markaðsetningu.
■ Fiskiskip Minni rekstrarhagnaður en í Noregi.
MEIRI VERÐMÆTI. Íslendingar selja meira af fullunnum
sjávarafurðum.
ELDRI FLOTI. Hærra hlutfall norskra skipa yngri en tíu ára.
SVEIGJANLEGUR VINNUMARKAÐUR. Íslenskur vinnumarkaður er betri en sá norski.
+
-