Fréttablaðið - 21.12.2005, Blaðsíða 55
MARKAÐURINN
Sparisjóður Hafnarfjarðar (SPH)
er aðalstyrktaraðili Jólaþorpsins
í Hafnarfirði í ár. Tilgangur
Jólaþorpsins er að setja jólabrag
á mannlífið og auka jólaversl-
un í miðbæ Hafnarfjarðar. Með
stuðningnum vill SPH, að því er
fram kemur í tilkynningu, leggja
sitt af mörkum til að styrkja
athafna- og menningarlíf í
bænum á aðventunni.
Jólaþorpið samanstendur
af 20 smáhýsum þar sem boðn-
ar eru margvíslegar vörur og
veitingar. Ilminn af heitu jóla-
glöggi, súkkulaði og nýbökuðum
vöfflum leggur fyrir vit gesta
meðan þeir skoða ýmiss konar
handverk, gæða sér á heimalög-
uðum brjóstsykri, kaupa sér fisk
eða brauð og kökur. Grýla og
jólasveinarnir skemmta yngstu
gestunum og ýmsir listamenn
koma í heimsókn og sjá til þess
að sannkallaður jólaandi umvefji
gesti.
F Ó L K Á F E R L I
21. DESEMBER 2005 MIÐVIKUDAGUR16
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Útger›arstjóri
Skógarhlí› 12 • 105 Reykjavík • Sími 520 4700 • www.hagvangur.is
- vi› rá›um
Sjávarútvegsfyrirtæki› Oddi hf. á Patreksfir›i
leitar a› útger›arstjóra. Útger›arstjóri hefur
yfirumsjón me› útger›armálum fyrirtækisins.
Útger›arstjóri er í stjórnendateymi fyrirtækisins og starfar sem einn af lykil-
stjórnendum fless.
Fari› ver›ur me› allar uppl‡singar sem trúna›armál.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is fyrir 3. janúar nk.
Númer starfs er 5047. Uppl‡singar veitir Ari Eyberg. Netfang: ari@hagvangur.is
Helstu ábyrg›arsvi›
Almenn útger›arstjórnun og
samskipti vi› yfirmenn
Áætlanager› um útger›
Eftirlit me› rekstrarkostna›i og
samningar vi› rekstrarvörubirgja
Uppgjörsmál vi› áhafnir
Önnur verkefni sem tengjast
starfsemi félagsins.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun e›a sambærileg
menntun
Reynsla af sjávarútvegi
Hæfni í áætlanager› og tölvuvinnslu
Hæfni í mannlegum samskiptum og
sjálfstæ›um vinnubrög›um.Oddi hf. er sjávarútvegsfyrirtæki sem á og
rekur eigin útger›, vinnslu og marka›s-
starfsemi.
Félagi› gerir út eitt skip; Núp BA-69 sem
er beitingavélaskip og aflar um 2500 tonna
á ársgrundvelli. Jafnframt leggur Vestri
BA-63 sem er í eigu mó›urfélags Odda hf.,
Vestra ehf. upp nær allan afla sinn hjá Odda
hf., en fla› eru um 1500 tonn á ári. Í landi
starfrækir fyrirtæki› bolfiskvinnslu, flar sem
salta›ar, ferskar og frosnar afur›ir eru unnar
úr bolfiski. Oddi hf. rekur sína eigin mark-
a›sstarfsemi ásamt flví a› eiga í samstarfi
vi› sölusamtök og faga›ila um sölu á
afur›um.
Sjá nánar á www.oddihf.is
EGGERT HERBERTSSON hefur verið
ráðinn sölustjóri Tölvuþjónustunnar
Securstore. Eggert útskrifaðist
með B.Sc gráðu í viðskiptafræði frá
Viðskiptaháskólanum á Bifröst og
stundar nú MBA nám við Háskólann
í Reykjavík með áherslu á upplýs-
ingatækni og alþjóðastjórnun. Hann
hefur 9 ára reynslu sem stjórnandi í
sjávarútvegi og 6 ára reynslu í sölu- og
markaðsmálum innan upplýsingatækni-
geirans hjá Nýherja og Hugviti. Eggert
er kvæntur Ingibjörgu Valdimarsdóttur,
deildarstjóra markaðsdeildar Orkuveitu
Reykjavíkur, og eiga þau tvö börn.Bjarki
Jóhannesson hefur verið ráðinn mark-
aðsstjóri Tölvuþjónustunnar Securstore.
Bjarki útskrifaðist með mastersgráðu
í alþjóðamarkaðsfræðum frá Odense
Universitet 1996. Hann hefur 13 ára
reynslu í sölu- og markaðsmálum og
hefur starfað sem stjórnandi og ráðgjafi
hjá Eimskip, Nýherja og Og Vodafone.
Bjarki er giftur Erlu Olgeirsdóttur, Davis
ráðgjafa, og eiga þau tvö börn.
STELLA MARTA JÓNSDÓTTIR hefur verið
ráðin framkvæmdastjóri Kaffitárs og
verður hún staðgengill forstjóra fyr-
irtækisins, Aðalheiðar Héðinsdóttur.
Stella Marta starfaði áður sem deild-
arstjóri ráðgjafar og þjónustu hjá
Maritech ehf. en einnig hefur hún starf-
að við verkfræðiráðgjöf í Danmörku.
Hún er menntaður verkfræðingur og
útskrifaðist með mastersgráðu frá
Háskólanum í Álaborg og doktorsgráðu
frá Tækniskólanum í Kaupmannahöfn.
Doktorsverkefni hennar fólst meðal
annars í að þróa leiðir og aðferðir til
að stýra vöruþróun á matvælum við
notkun hugbúnaðar. Stella Marta er
gift Per Chr. Christensen og eiga þau
tvær dætur. Hún mun hefja störf þann 6.
febrúar á næsta ári.
LESIÐ UM THOR Í BANKA
THORSARA Guðmundur
Magnússon, sagnfræðingur og
blaðamaður á Fréttablaðinu,
las upp úr bók sinni um
Thorsarana í aðalútibúi
Landsbankans í Austurstræti
á föstudaginn. Thor Jensen
og afkomendur hans voru
áberandi og umsvifamiklir í
íslensku viðskiptalífi fram eftir
20. öldinni. Fór vel á því að
Guðmundur læsi upp úr bók
sinni í Landsbankanum því
þar ráða feðgarnir, Björgólfur
Guðmundsson og Björgólfur
Thor Björgólfsson, nú ríkjum.
Thor Jensen er einmitt langafi
Björgólfs Thors, sem er einn
umsvifamesti fjárfestir lands-
ins. Guðmundur er einn fjöl-
margra rithöfunda sem hafa
lesið upp úr verkum sínum í
Landsbankanum á aðventunni.
Framkvæmdastjóri Hagvangs, Katrín S. Óladóttir, veitti
nú á dögunum Krafti, félagi ungs fólks sem greinst hefur
með krabbamein, styrk fyrir hönd fyrirtækisins. Formaður
Krafts, Steinunn Björk Ragnarsdóttir, veitti styrknum við-
töku í húsakynnum Hagvangs í Skógarhlíð 12.
Undanfarin ár hefur Hagvangur varið þeim fjármun-
um til góðgerðarmála sem annars hefðu farið í að senda
viðskiptavinum félagsins jólakort. Ákveðið var að styrkja
Kraft í ár, en félagið var stofnað 1. október 1999. Leiðarljós
félagsins er að beita sameinuðum kröftum sínum til að
aðstoða ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og
aðstandendur þeirra.
Hagvangur styrkir Kraft
ÞORSTEINN BJARNASON hefur tekið til
starfa sem forstöðumaður vöruhús-
aþjónustu
hjá Eimskip.
Starfsemin
felur í sér
rekstur allra
vöruhúsa
Eimskips á
Sundahafnar-
svæðinu, þ.m.t.
frysti- og kæli-
geymslu.
Þorsteinn
kemur til
Eimskips frá Danmörku þar sem
hann hefur verið framkvæmdastjóri
vöruhúsareksturs hjá Brødrene A&O
Johansen A/S í Kaupmannahöfn frá
desember 2001. Á árunum 1995-2000
gegndi Þorsteinn starfi verkefnastjóra
við þróun og hagræðingu lagerreksturs
hjá Nomeco þar sem meðal stærstu
verkefna má nefna uppbyggingu á nýju
vöruhúsi og stækkun vöruhótels fyrir
lyfjaframleiðendur.
Þorsteinn lauk námi í rekstrartækni-
fræði frá Odense Teknikum árið 1986
og síðar gráðu af sviði tölvu- og fjár-
málastjórnunar frá Handelshøjskolen í
Kaupmannahöfn árið 1998.
F Ó L K Á F E R L IFjör í
jólaþorpinu
LEIKSKÓLABÖRN Í JÓLAÞORPINU. Hér má sjá Helgu H. Magnúsdóttur verkefnisstjóra
til vinstri og Ásdísi Garðarsdóttur frá SPH ásamt leikskólabörnum í Jólaþorpinu.
Anders Fredholm hefur verið ráðinn
forstjóri hjá Kerfi AB í Svíþjóð sem
er dótturfélag Opinna Kerfa hf. Tekur
hann við starfinu í febrúar 2006.
Anders er iðnaðarverkfræðingur frá
tækniháskólanum í Linköping. Hann
hefur starfað hjá Capgemini síðan 1989
og gegnt þar ýmsum ábyrgðarstörfum.
Nú síðast hefur hann borið ábyrgð
á uppbyggingu og þróun viðskipta
Capgemini á Norðurlöndunum
ásamt því að skipa sæti í alþjóðlegri
framkvæmdastjórn Capgemini.
Hið árlega jóla-
skákmót KB banka
fór fram á laugar-
daginn í aðalútibúi
bankans. Þetta var
í fjórða skipti sem
jólaskákmót KB
banka fór fram á
aðventunni og er
þetta sterkasta
hraðskákmót árs-
ins.
Meðal þátttak-
enda voru stór-
meistararnir Helgi
Ólafsson, Helgi Áss Grétarsson, Þröstur Þórhallsson og
Henrik Danielsen, sem er nýjasti stórmeistari Íslendinga.
Stutt er síðan hann fékk íslenskan ríkisborgararétt.
Yngsti keppandinn var Hjörvar Steinn Grétarsson 12
ára. Hjörvar Steinn er sá yngsti í skáksögunni sem hefur
áunnið sér rétt til að tefla í landsliðsflokki, og sló hann
þar fyrri met Hannesar Hlífars Stefánssonar og Þrastar
Árnasonar.
Meistarar á jólaskákmóti
SETIÐ AÐ TAFLI Neðst á myndinni má sjá
Hjörvar Stein Grétarsson tefla í jólaskákmóti
KB banka á laugardaginn. viðskiptavinir fylgdust
spenntir með.