Fréttablaðið - 21.12.2005, Blaðsíða 8
21. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR
Sjálfskiptur, álfelgur, spoiler, nagladekk
og 3 drifstillingar.
EKKI FESTAST
Í FRAMTÍ‹INNI!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00
X-TRAIL
NISSAN
X-Trail
Ver› 2.690.000,-
Sport
X-Trail
Ver› 2.890.000,-
Elegance
SKIPT_um væntingar
ÍSRAEL Þrátt fyrir veikindi Ari-
els Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, hefur fylgi hins nýstofn-
aða flokks hans, Kadima, aldrei
mælst hærra. Benjamin Netanya-
hu, fyrrverandi forsætisráðherra,
hefur verið kjörinn formaður
Likud-bandalagsins.
Ariel Sharon var útskrifað-
ur af sjúkrahúsi í Jerúsalem í
gærmorgun, en hann fékk vægt
heilablóðfall á sunnudaginn. Með
bros á vör þakkaði hann læknum
sínum fyrir meðferðina en einnig
kvaðst hann snortinn yfir þeim
hlýhug sem þjóðin hefur sýnt
honum. Sharon sagði enn fremur
að veikindin myndu engin áhrif
hafa á störf sín en neitaði að tjá
sig um kjör eftirmanns síns í
Likud-bandalaginu, Benjamins
Netanyahu. „Það er tími til kom-
inn að koma sér aftur að verki,
horfa fram á við,“ hefur dagblaðið
Haaretz eftir honum.
Tilkynnt var um kjör Netan-
yahu í gær en leiðtogakjörið fór
fram á sunnudag. Þegar búið var
að telja allan þorra atkvæða hafði
hann hlotið 44 prósent þeirra en
33 prósent höfðu fallið Silvan
Shalom, utanríkisráðherra og
helsta keppinautar Netanyahu, í
skaut. Aðrir fengu minna.
Stjórnmálaskýrendur segja
úrslitin þýða að harðlínumenn
hafi nú undirtökin í flokknum en
Shalom er sagður mun hófsamari
en Netanyahu og hefði vel getað
myndað ríkisstjórn með Kadima
að loknum kosningunum í mars.
Í staðinn er talið nær öruggt að
Likud verði í stjórnarandstöðu,
enda þótt Netanyahu hafi heitið
því að hans fyrsta verk væri að
koma flokknum aftur til valda.
Skoðanakönnun sem dagblað-
ið Maariv birti í gær sýnir að ef
gengið yrði til kosninga nú fengi
Kadima 42 sæti á ísraelska þing-
inu, Knesset, eða rúman þriðjung.
Verkamannaflokkur Amir Peretz
fengi 22 þingsæti en Likud-banda-
lagið aðeins 13 sæti. Jafnvel þótt
Sharon væri fjarri góðu gamni
í kosningunum og Kadima væri
undir forystu Tzipi Livni dóms-
málaráðherra fengi flokkurinn 30
þingsæti.
Í könnun Yedioth Aharonoth
sem birt var í gær fengi Kadima
39 sæti, Verkamannaflokkurinn
21 og Likud 13 ef kosið yrði nú.
91 prósent aðspurðra sögðu að
veikindi Sharons breytti engu
um skoðanir þeirra. Hins vegar
er fastlega búist við að Likud-
bandalagið sæki í sig veðrið þegar
óvissunni um hver verður leiðtogi
þess hefur verið eytt.
sveinng@frettabladid.is
Kadima með
yfirburðafylgi
Benjamin Netanyahu hefur verið kjörinn formaður
Likud-bandalagsins. Flokkur Ariels Sharon, fær mikið
fylgi í könnunum, þrátt fyrir veikindi leiðtogans.
VIÐ HESTAHEILSU Sharon var fölur en glaður þegar hann var útskrifaður af Ein Karem-
sjúkrahúsinu í Jerúsalem í gær. Læknar hans lögðu sig í líma við að undirstrika að veikindi
forsætisráðherrans væru minniháttar og hefðu lítil áhrif á starfsgetu hans. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NÝKJÖRINN FORMAÐUR Benjamin
Netanyahu var kampakátur þegar ljóst varð
að hann hefði borið sigur úr býtum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra hefur ákveðið að skipa á
ný þverpólitíska fjölmiðlanefnd.
„Páll Hreinsson lagaprófessor og
Páll Þórhallsson lögfræðingur hjá
forsætisráðuneytinu eru skipaðir
sem sérfræðingar nefndarinnar.
Auk þess er gert ráð fyrir að
stjórnmálaflokkarnir skipi hver
sinn fulltrúa í þessa sjö manna
nefnd,“ segir Þorgerður Katrín.
Fyrri nefnd menntamálaráð-
herra skilaði skýrslu síðastliðið
vor og segir Þorgerður Katrín að
unnt verði að byggja starfið á nið-
urstöðum þeirrar nefndar. Hún
kveðst ekki setja nefndinni nein
tímamörk, en verkefni hennar er
að leggja fram tillögur eða drög
að frumvarpi um eignarhald á
fjölmiðlum og fleiri atriði. - jh
Ný fjölmiðlanefnd á nýju ári:
Engin tímamörk
ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR
Hefur skipað tvo sérfræðinga í nýja
fjölmiðlanefnd.