Fréttablaðið - 21.12.2005, Blaðsíða 85

Fréttablaðið - 21.12.2005, Blaðsíða 85
 21. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR48 Bifröst jakki 2ja-14 ára Hvítur og svartur Verð frá 5.450 kr. Ásgarður húfa 2ja-14 ára Hvít og svört 3.400 kr. www.66north.is REYKJAVÍK: Kringlan - Bankastræti 5 - Faxafen 12 GARÐABÆR: Miðhraun 11 - Akureyri: Glerárgata 32 Hlýtt og fallegt Fyrsta einsöngsplata Garðars Thórs Cortes, sem nefnist einfald- lega Cortes, hefur selst í yfir tíu þúsund eintökum og hefur því náð platínusölu. Safnplata Björgvins Halldórssonar, Ár og öld, er sömu- leiðis komin í platínu. Garðar er tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem efnilegasti söngvarinn auk þess sem útgáfutónleikarnir sem hann hélt í Grafarvogskirkju verða sýndir á Stöð 2 á jóladag. Garðar fær platínu GARÐAR THÓR CORTES Fyrsta einsöngsplata Garðars Thórs Cortes hefur náð platínusölu. Hljómsveitin Sigur Rós fékk í gær afhentar gullplötur fyrir nýjustu plötu sína Takk og plötuna () sem kom út árið 2002. Takk hefur selst í 9.000 eintök- um hér á landi en () hefur selst í 8.000 eintökum. Sigur Rós fékk einnig afhentar platínuplötur fyrir aðra plötu sína, Ágætis byrjun, sem hefur selst í 19.000 eintökum og fyrir fyrstu plötuna Von sem er komin í 10.500 eintök. Afhending- in fór fram í Gallerí Humar eða frægð! á Laugaveginum. Yfir 50 þúsund eintök Alls hafa plötur Sigur Rósar selst í yfir 50 þúsund eintökum hér á landi ef salan á endurhljóðblönd- uðu plötunni Vonbrigði er tekin með í reikninginn. Hefur sú plata selst í tæpum 5.000 eintökum og nálgast því gullið óðfluga. Að sögn Ásmundar Jónssonar, útgáfustjóra Smekkleysu, hafði það dregist heldur á langinn að veita Sigur Rós gull- og platínu- plöturnar og því var ákveðið að grípa tækifærið á meðan meðlim- ir sveitarinnar væru staddir hér á landi í jólafríi. Ásmundur segir það sérstak- lega áhugavert að Von sé nú komin í platínu því hún hafi selst í aðeins 313 eintökum á fyrsta söluári sínu. Hann segist það alveg magnað hversu margar plötur Sigur Rós hafi selst hér á landi. „Þeir eru búnir að vera í því að klára þessa Takk-plötu á árinu og ferðast út um allan heim. Þeir hafa spilað á tónleikum sem hafa yfirhöf- uð fengið frábæra dóma og má með sanni segja að þeir hafi náð hápunkti sínum í Höllinni. Sigur Rós er líka með flestar útnefning- ar á Íslensku tónlistarverðlaunun- um þannig að þetta er búið að vera eftirminnilegt ár hvað Sigur Rós varðar,“ segir hann. Plötusala Sigur Rósar hér á landi er vafalítið með því mesta sem íslenskir listamenn hafa náð hér á landi. Ásmundur segir þessar sölu- tölur þó ekkert einsdæmi og nefnir m.a. til sögunnar bæði Stuðmenn og Bubba því til stuðnings. „Hins vegar er það sjaldgæft að maður upplifi svona mikla sölu á tónlist eins og Sigur Rós er að gera,“ segir hann. Kynslóðalaus tónlist Ef litið er til útlanda hefur Sigur Rós selt plötur sínar í einni og hálfri til tveimur milljónum eintaka. Þar á meðal hefur Takk selst í um það bil 800 þúsund eintökum síðan hún kom út fyrir þremur mánuðum. „Takk er augljóslega sú plata hvað sölu og athygli varðar sem er að toppa það sem hefur áður verið í gangi hjá þeim. Tónleikarnir eru orðnir stærri og þeir eru að bæta í,“ segir Ásmundur. Síðustu tvær plötur Sigur Rósar hafa selst í 5-600 þúsund eintökum erlendis og er því um töluverða bætingu að ráða. „Þetta er „katalógur“ sem heldur áfram að seljast. Það er greinilegt að þeir eru alltaf að bæta við sig nýjum aðdáendum og þá kaupendum sem bæta eldri verkunum við líka.“ Á næsta ári eru framundan hjá Sigur Rós frekari ferðalög um heiminn til að fylgja Takk eftir. „Þeir eru í fyrsta skipti á „playlista“ hjá BBC og þeirra prófíll hefur aldrei verið meiri í Bretlandi en í dag. Það er ljóst að þeir eru með aðdáendur hjá öllum kynslóðum og það aðgreinir þá frá mörgum öðrum. Þetta er svo tíma- laus og kynslóðalaus tónlist sem þeir flytja,“ segir Ásmundur. freyr@frettabladid.is Sigur Rós verðlaunuð í bak og fyrir VERÐLAUNIN AFHENT Sigur Rós við verðlaunaafhendinguna í gær. Þess má geta að Gunnar V. Andrésson tók við verðlaunum fyrir hönd sonar síns Ágústs Ævars, sem trommaði á fyrstu tveimur plötum sveitarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ VILHELM Víðir Björnsson, gítarleikari Nil- Fisk, lenti í óskemmtilegri reynslu um síðustu helgi þegar gítarnum hans af gerðinni Dean var stolið. Gítarinn hefur mikið tilfinn- ingalegt gildi fyrir Víði því hann spilaði á hann þegar NilFisk hitaði upp fyrir vini sína í Foo Fighters í Laugardalshöll sumarið 2003. Einnig var hann að spila á gítarinn skömmu áður þegar Foo Fighters kíktu óvænt í heimsókn á hljóm- sveitaræfingu NilFisk á Stokkseyri og djömmuðu með þeim. „Ég sakna hans. Hann er upp- hafið að þessu öllu. Rótarinn hjá Foo Fighters gerði við gítarinn og lagaði hann allan og þetta er bara ekkert skemmtilegur missir,“ segir Víðir. Stuldurinn átti sér stað í bakher- bergi á skemmtistaðnum Gauki á Stöng á meðan NilFisk var uppi á sviði að spila. Einnig tróðu upp á Gauknum hljómsveitirnar Noise og Dimma. Um varagítar var að ræða sem Víðir hefur notað ef strengur slitnaði í hinum gítarnum. „Það hefur ábyggilega verið einhver fullur vitleysingur sem hefur grip- ið gítarinn. Hinar hljómsveitirnar vissu ekkert um þetta,“ segir Víðir. „Þetta er bara ömurlegt og ég hvet þá sem eru með gítarinn að skila honum. Ég verð ekkert mikið fúll ef ég fæ hann.“ Þeir sem vilja skila gítarnum eða geta gefið vísbendingar um hvarf hans er bent á netfangið nilfisk@strik.is. ■ Foo Figthers-gítar stolið VÍÐIR BJÖRNSSON Gítarleikari Nilfisk lenti í óskemmtilegri reynslu um síðustu helgi. GÍTARINN Gítarinn er til vinstri á myndinni. Víðir Björnsson saknar hans mjög og vill fá hann aftur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.