Fréttablaðið - 21.12.2005, Blaðsíða 52
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Laugardagur 24. desember 2005, Hellisheiði.
Fyrstu jólin haldin í bústaðnum.
Isuzu D-Max, Crew Cab (4 dyra), sjálfskiptur, 3.0 l. dísil.
Fáir bílar hafa sannað sig eins vel við íslenskar aðstæð-
ur og Isuzu. Þessi sterki og þrautseigi bíll er nú kominn
í nýjan og glæsilegan búning. Hann vekur athygli hvert
sem hann fer en virðist alltaf passa inn í umhverfi sitt,
sama hversu gróft það er.
D-Max var valinn Pick-up ársins 2005 af “4x4 Magazine”
og hlaut gullverðlaun tímaritsins “What Van” 2004.
Komdu til okkar og kynnstu nýjum Isuzu D-MAX.
Staðalbúnaður í D-MAX: Vökva- og veltistýri,
tveir öryggisloftpúðar, rafdrifnar rúður, útvarp og
geislaspilari, snúningshraðamælir, samlæstar hurðir
með fjarstýringu, stokkur á milli framsæta, höfuðpúðar
í aftursæti, fimm þriggja punkta bílbelti, loftkæling,
ABS hemlakerfi, álfelgur, brettakantar, kastarar í
framstuðara, leðurklætt stýrishjól, rafstýrðir útispeglar.
��������������
�����������
Samheitalyfjafyrirtækið Actavis hefur gert breyt-
ingar á framkvæmdastjórn sinni. Breytingarnar
koma í kjölfar kaupa Actavis á samheitalyfja-
starfsemi Alpharma sem nú eru frágengin.
Framkvæmdastjórn félagsins er nú skipuð átta
framkvæmdastjórum, auk aðstoðarforstjóra og
forstjóra.
Framkvæmdastjórn skipa stjórnendur tekju-
og framleiðslueininga fyrirtækisins auk fjár-
málastjóra, forstjóra og aðstoðarforstjóra. Sölu
og framleiðslueiningar eru nú skipulagðar með
tilliti til landfræðilegrar legu. Það tryggir gott
samstarf eininganna, betri þjónustu við viðskipta-
vini og hagræði í rekstri. Þessar breytingar eru
gerðar í kjölfar mikils vaxtar fyrirtækisins við
yfirtöku þess á samheitalyfjasviði Alpharma. Í
kjölfar þessara breytinga á fyrirkomulagi fram-
kvæmdastjórnar hverfa Guðrún S. Eyjólfsdóttir
og Divya Patel úr framkvæmdastjórn en þau
munu þó starfa áfram hjá félaginu og verða
hluti af yfirstjórn þess. Guðrún sem yfirmaður
gæðamála og Divya sem framkvæmdastjóri dótt-
urfélags Actavis í Bandaríkjunum. Fred Lynch,
forstjóri samheitalyfjasviðs Alpharma, mun láta
af störfum þann 1. febrúar 2006 og snýr sér að
öðrum verkefnum.
RÓBERT WESSMAN Breytingar hafa verið gerðar á yfirstjórn Actavis.
Breytingar í framkvæmdastjórn Actavis
Sjóvá og Fram Foods hf. hafa
undirritað samning um víðtæka
tryggingavernd til handa Fram
Foods í Svíþjóð, Frakklandi,
Finnlandi og á Íslandi.
Fram Foods sérhæfir sig í
vinnslu sjávarafurða.
Samningur þessi byggir á sam-
starfi Sjóvár við breska trygg-
ingafélagið Royal & SunAlliance.
Með því samstarfi er Sjóvá kleift
að veita íslenskum alþjóðafyr-
irtækjum heildstæða trygginga-
þjónustu vegna hagsmuna þeirra
erlendis. Í fréttatilkynningu
kemur fram að viðskiptavinir
Sjóvár hafa aðgang að þjón-
ustuneti sem nær til 133 landa
og því geta viðskiptavinir fengið
aðgang að þjónustu í því landi
sem trygging er veitt. Samstarf
Sjóvár og Royal & SunAlliance
veitir viðskiptavinum yfirsýn og
sams konar tryggingavernd hvar
sem starfsemi þeirra er í heim-
inum.
Hilmar Ásgeirsson, forstjóri
Fram Foods, segir í fréttatilkynn-
ingu að með þessum samningi
sé fyrirtækinu gert mun betur
kleift að hafa heildstæða yfirsýn
yfir sín tryggingamál.
Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár,
segir í sömu tilkynningu að fyrir-
tækjasvið Sjóvár hafi unnið að
undirbúningi þessa verkefnis um
nokkurt skeið. Búið sé að finna
leið til að styrkja íslensk fyrir-
tæki í útrás.
Sjóvá tryggir Fram Foods