Fréttablaðið - 21.12.2005, Blaðsíða 95
21. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR58
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
STOR HUMAR
skatan er
komin.
Það virðist ekki vera nóg með að
Tarantino sé fallinn fyrir landi og
þjóð heldur hafa Íslendingar tekið
honum fagnandi. Almenn miða-
sala hófst í gær og seldust þeir
fimm hundruð miðar sem eftir
voru á aðeins níu mínútum. Hinir
fimm hundruð miðarnir voru rifn-
ir út á netinu á 20 mínútum fyrir
nokkrum dögum þannig að þús-
und miðar voru seldir á tæpum
hálftíma. „Þetta er rosalegt,“
sagði Ísleifur B. Þórhallsson,
framkvæmdastjóri Iceland Film
Festival, þegar Fréttablaðið náði
tali af honum. „Íslendingar eru
ekki vanir því að það skuli verða
uppselt á svona viðburði með
svona skjótum hætti þannig að
það hefur verið allt geðveikt hjá
okkur og fólk veit ekkert hvern-
ig það á að haga sér,“ bætti hann
við en langar biðraðir mynduðust
fyrir utan verslanir Skífunnar
rétt áður en miðasalan hófst.
Ísleifur sagði þetta vera
ánægjulegt, sérstaklega í ljósi
þess að enn hefur ekki verið til-
kynnt hvaða þrjár myndir leik-
stjórinn verður með í farteskinu
en það ætti að skýrast á næstu
dögum. Þá sé þetta líka mjög
gott afspurnar fyrir Tarantino
en hann hefur í hyggju að koma
hingað oftar og standa fyrir enn
stærri viðburðum.
Tarantino kemur hingað ásamt
fríðu föruneyti. Kvikmyndaleik-
stjórinn Eli Roth ætlar að koma
hingað með honum en lengi vel
leit út fyrir að hryllingsmynda-
leikstjórinn kæmist ekki sökum
anna vegna Hostel. Þá ætlar
hinn virti kvikmyndarýnir Elvis
Mitchell einnig að slást í hópinn
en hann skrifar meðal annars
kvikmyndagagnrýni fyrir New
York Times. Leikkonan Vanessa
Ferlito er einnig hluti af hópnnum
sem og bandaríski rapparinn
RZA.
Tarantino og vinir hans lenda
hér á landi rétt fyrir áramót,
væntanlega í kringum 28. desem-
ber. Þeir halda síðan af landi brott
2. janúar og fara allir til Los Ang-
eles nema Tarantino sem flýgur
beint til New York. Búið er að
bóka leikstjórann hjá spjallþátta-
stjórnandanum Conan O´Brian 3.
janúar en eins og margir muna
þá kom Kiefer Sutherland til
hins eina sanna Davids Letter-
man skömmu eftir að hann eyddi
áramótunum hér á landi. Vöktu
lýsingar hans á áramótum Íslend-
inga mikla athygli en Sutherland
hreifst mjög af sprengjuæði
þjóðarinnar. freyrgigja@frettabladid.is
BÍÓPARTÍ TARANTINO: SELDIST UPP Á NÍU MÍNÚTUM
Bókaður hjá Conan O‘Brian
TARANTINO OG ROTH Ætla að endurnýja kynni sín við Íslendinga en það seldist upp á Bíópartí Tarantino á einungis níu mínútum.
FRÉTTABLAÐIÐ / HARI
Áttundu jólatónleikar X-ins 97,7,
X-mas, verða haldnir á Nasa í
kvöld klukkan átta. Húsið opnar
klukkutíma fyrr en alls koma tólf
rokkhljómsveitir fram og flytja
sígild jólalög hver með sínu nefi.
Aðgangseyrir er 977 krónur en
allur ágóði af miðasölu rennur
óskiptur til styrktar Foreldrahúss.
Þeir sem vilja geta því látið meira
af hendi rakna til styrktar góðs
málefnis. Stórfyrirtæki landsins
eru hvött til að koma og leyfa
öðrum að njóta þess gróða sem
þau hafa upplifað að undanförnu.
„Ég held að þau ættu að sjá sóma
sinn í því að leggja góðu málefni
lið,“ segir Þorkell Máni, talsmað-
ur tónleikana, sem beindi orðum
sínum sérstaklega til greiningar-
deilda bankanna en þær hafa verið
áberandi í menningarlífi landans
síðustu misseri að hans mati.
Þorkell Máni segir að mikil
stemning sé fyrir tónleikunum
og síminn hafi varlað stoppað
hjá útvarpsstöðinni. „Jólalög eru
almennt leiðinleg og það má spyrja
sig hversu góð þau geta í raun orðið,“
útskýrir hann en bætir jafnframt
við að útvarpsstöðin hafi sínar
eigin forsendur fyrir tónleikahaldi
af þessu tagi. „Rokkhljómsveitir á
borð við Ensími og Botnleðju hafa
sýnt að jólalög þurfa ekki alltaf að
vera í einhverjum leiðinda-karókí-
stíl,“ segir hann.
X-mas eru lokahnykkurinn í
starfi útvarpsstöðvarinnar og því
hefur jólaandinn svifið yfir vötn-
um í hljóðveri X-ins að undanförnu.
„Ég veit eiginlega ekki hvar þetta
endar. Fyrst losum við okkur við
karlrembuna og núna erum við
orðnir að einhverri jólastöð,“ segir
Þorkell sem er kominn í jólaskapið.
freyrgigja@frettabladid.is
ÞORKELL OG FROSTI Útvarpsstöðin X-ið 97,7
stendur fyrir áttundu X-mas tónleikunum á
Nasa í kvöld klukkan átta.
FRÉTTABLAÐIÐ / HEIÐA
Rokkarar skora á bankana
Með
þvottaklemmu
á nefinu
Nei, ég borða ekki
skötu á Þorláks-
messu. Ég væri til í
að hitta gæjann sem
fann upp á þessu og
ganga frá honum.
Mér hefur verið sagt
að þegar maður byrji að borða skötu þá fari manni að
líka við hana en ég hef ekki fengið mig til að borða
þennan mat. Ég hef samt smakkað skötuna, með
þvottaklemmu á nefinu.
Heiðar Austmann útvarpsmaður.
Borða mig ekki
sadda
Já, ég borða stund-
um skötu. Mér finnst
mikilvægt að fá mér
að smakka og það er
mismunandi hvað ég geri
þetta kvöld. Stundum fer
ég í boð eða á einhvern
góðan veitingastað. Ég
segi ekki að ég borði mig
sadda en mér finnst gott
að fá smá bragð, taka þátt
í stemningunni.
Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Æðislega góð
Já, ég borða skötu,
mér finnst hún æðis-
lega góð. Ég hef ekki
borðað skötu á hverju
ári en hef gert það
undanfarin ár. Mér
finnst lyktin ekkert
svo vond á meðan ég
er að borða en þegar
ég er búin þá getur
hún farið í taugarnar
á mér.
Kristbjörg Kjeld
leikkona.
ÞRÍR SPURÐIR UMDEILDASTA MÁLTÍÐ HÁTÍÐANNA
Borðar þú skötu á Þorláksmessu?
Glaðbeittir gestir á Hótel Holti tóku eftir því á
sunnudaginn að þar
sátu saman í hróka-
samræðum þeir
Jóhannes Jónsson,
aðaleigandi Bónus,
Finnur Árnason,
forstjóri Haga, og
Hrafn Jökulsson, forseti Hróksins, sem
einmitt hefur tilkynnt að hann muni
láta af sínu virðulega embætti þann 1.
janúar. Þremenningarnir sátu ekki yfir
kræsingum en drukku kaffi og það var
greinilega glatt á hjalla og ýmis mál
tekin fyrir. Jóhannes hefur verið vel-
gjörðarmaður Hróksins á síðustu árum
og átt þátt í þeirri vakningu sem hefur
orðið um allt land. Eftir því var tekið að
Máni Hrafnsson vappaði inn á bóka-
stofuna og færði Jóhannesi gjöf en Máni
hefur leitt skólaheimsóknir Hróksins og
hefur líklega heimsótt fleiri grunnskóla
hringinn í kringum landið
en nokkur annar á und-
anförnum árum og boðað
fagnaðarerindi Hróksins
og Eddu en bóka-
útgáfan hefur gefið
grunnskólabörnum á
Íslandi 20.000 eintök
af kennslubókinni
Skák og mát.
Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmað-ur forsætisráðherra, er vígreifur á
heimasíðu sinni enda hefur Framsókn-
arflokkurinn aukið fylgi sitt í Reykjavík
eftir að hann gaf kost á sér í fyrsta sæti
í prófkjöri flokksins vegna borgarstjórn-
arkosninganna á næsta ári. Samkvæmt
nýrri skoðanakönnun Gallup fer fylgi
flokksins úr 2,3% í september í 4,8%.
Þetta fylgi nægir þó ekki til að koma
framsóknarmanni í borgarstjórn en
Björn reiknar með því að það sem
vanti upp á muni skila sér
á næstu mánuðum og
þá bindur hann ekki síst
vonir við opið prófkjör
flokksins í janúar en
tæplega 7% borgarbúa á
kosningaaldri hyggjast
taka þátt í próf-
kjörinu samkvæmt
könnuninni.
Ásatrúarmenn ætla að koma saman í Sundabor 1 klukkan 20 í kvöld og
blóta goðin og hjónin Frey Njarðarson
og Gerði Gymisdóttur. Freyr er frjósem-
isgoð en heiðnir menn til forna tengdu
hækkandi sól frjósem-
inni. Blótið er helgað af
Hilmari Erni Hilmars-
syni allsherjargoða og
Sigurjóni Þórðarsyni,
Hegranesgoða og
þingmanni Frjáls-
lynda flokksins.
ÞÞ
HRÓSIÐ
... fær Freyja Haraldsdóttir sem
útskrifaðist frá Fjölbrautaskóla
Garðabæjar með hæstu meðal-
einkunn. Hún býr við alvarlega
fötlun og er alfarið bundin hjóla-
stól.
LÁRÉTT
2 harðfrosin snjókorn 6 íþróttafélag
8 skordýr 9 segi upp 11 stöðug hreyf-
ing 12 kappsamt 14 krapi 16 tveir
eins 17 traust 18 for 20 forfaðir 21
könnun.
LÓÐRÉTT
1 listi 3 frá 4 garðplöntutegund 5
landspilda 7 starfræksla 10 frosts-
kemmdir 13 flík 15 urin 16 ósigur
19 kyrrð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 hagl, 6 kr, 8 fló, 9 rek, 11
ið, 12 ákaft, 14 slabb, 16 tt, 17 trú, 18
aur, 20 ái, 21 próf.
LÓÐRÉTT: 1 skrá, 3 af, 4 glitbrá, 5 lóð,
7 rekstur, 10 kal, 13 fat, 15 búin, 16
tap, 19 ró.