Fréttablaðið - 21.12.2005, Blaðsíða 36
21. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR6
OPIÐ TIL KL. 22
Sölustaðir
Penninn
Mál og menning
Bókabúðin Hlemmi
Skífan
Iða
305
verslanir
Næg
bílastæði
MIÐBORGIN
JÓLALEGA
����������������
��������������������������������
�����������������������������������������������
�������������������������������������������������������������
��������������������
���������������������������������
�
��
��
�
���
��
��
��
��
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Kokk2x10DAGBLAUGL011205.pdf 6.12.2005 23:07:45
Ljósasería, skæri, heftari og pappi er
það eina sem þarf í verkið.
Pappaferningnum er vafið upp í sívalning
utan um peruna og svo er pappinn festur
með heftara, helst eins nálægt seríunni
og hægt er.
Svona lítur afraksturinn út
Gamla jólaseríu má gera sem
nýja með einföldu kartoni.
Slíkar ljósaseríur má einnig
nota allt árið um kring en ekki
bara um jólin.
Flott jólaskraut þarf ekkert endi-
lega að vera einhver kvöl og pína.
Oft má útbúa fallegt jólaskraut
á mjög ódýran og einfaldan hátt.
Jólaserían sem um ræðir er ein-
mitt þannig. Til þess að gera hana
þarf í grunninn aðeins fjóra hluti;
heftara, skæri, pappa og jólaseríu.
Þú byrjar á því að klippa
pappann í jafnmarga ferninga og
perur á seríunni eru. Síðan er hver
ferningur vafinn í sívalning utan
um peruna og síðan heftað eins
nálægt seríunni og hægt er. Þetta
ferli er síðan endurtekið fyrir
hverja peru.
Einnig er hægt að klippa
pappann í hringi, hafa pappír með
myndum á og í raun er hægt að
hafa hvernig pappa sem er. Það má
í raun láta hugmyndaflugið ráða
för og útfæra þessa hugmynd á
hvaða veg sem er.
Slík skreyting þarf heldur ekki
að flokkast sem jólaskreyting.
Svona ljósaseríur má vel nota allt
árið um kring og sóma sér vel í
hvaða glugga sem er eða jafnvel í
glerskál. ■
Einföld og afar falleg
ljósaskreyting
Með smá kartoni með gefa gömlum þreyttum jólaseríum algjörlega nýtt og ferskt útlit. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Gluggagægir heimsækir
Þjóðminjasafnið kl. 11.
Jólahrollur í hádeginu- Reynir
Traustason les úr bók sinni
Skuggabörn í Þjóðmenningarhúsinu
kl. 12.15.
Reyklaust hádegi á aðventunni á
Súfistanum í Hafnarfirði. Magga
Stína og Drengjasveitin Strengir hefja
leik kl. 12.15.
Söngkonan góðkunna
Hera Björk og píanó-
leikarinn Óskar
Einarsson
verða með
tónleika í
Laugarnes-
kirkju þann
kl. 20.
Á dimmri nóttu - Aðventuvaka Önnu
Sigríðar Helgadóttur söngkonu og
Aðalheiðar Þorsteinsdóttur píanó-
leikara í Fríkirkjunni í Reykjavík á
lengsta kvöldi ársins 21. desember.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.
Kertaljósatónleikar Camerarctica í
Kópavogskirkju kl. 21.
á jóladöfinni }
21. desemberNEYTENDASTOFA HEFUR VERIÐ IÐIN
Í DESEMBER VIÐ AÐ BRÝNA FYRIR
FÓLKI RÉTTA MEÐHÖNDLUN Á
JÓLALJÓSUNUM.
Óvandaður, skemmdur og rangt
notaður ljósabúnaður getur valdið
bruna og slysum.
Eftirfarandi eru atriði sem gott er að
hafa í huga varðandi meðhöndlun á
ljósabúnaði.
• Látum aldrei loga á ljósunum
á jólatrénu yfir nótt eða þegar við
erum að heiman.
• Hendum gömlum jólaljósum sem
eru úr sér gengin.
• Notum ætíð ljósaperur af réttri
gerð, stærð og styrkleika.
• Gætum þess að brennanleg efni
séu ekki nálægt jólaljósum.
• Óvarinn rafbúnaður getur valdið
raflosti.
• Vörum okkur á óvönduðum
jólaljósum
• Inniljós má aldrei nota utandyra.
• Förum eftir leiðbeiningum um
uppsetningu og notkun.
• Látum logandi kerti aldrei standa
ofan á raftæki.
• Góður siður er að skipta um raf-
hlöður í reykskynjurum fyrir hver jól.
• Þegar „deyr“ á einni peru eykst
ljósstyrkur þeirra sem eftir loga og
þar með hitinn á þeim líka og geta
þá valdið bruna.
• Sýnum sérstaka varúð gagnvart
jólastjörnum og öðru pappírsskrauti
sem sett er utan um ljósaperur.
Nánari upplýsingar má finna á
http://neytendastofa.is
Pössum jólaljósin