Fréttablaðið - 21.12.2005, Blaðsíða 97
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
720
kr./stk.
COKE
KIPPA
4 X 2 L
A L L T A F F R Á B Æ R T I L B O Ð
74
kr./stk.
EGILS
MALT
0.5 L
25
AFSLÁTTUR
%
1.818
kr./kg.
KEA
HANGILÆRI
ÚRBEINAÐ
2.998
kr./kg.
HUMAR
FROSINN
1 KG
40
AFSLÁTTUR
%
30
AFSLÁTTUR
%
999
kr./kg.
KRÓNU
HAM-
BORGAR-
HRYGGUR
40
AFSLÁTTUR
%
1.340
kr./kg.
KEA
HANGI-
FRAMPARTUR
ÚRBEINAÐUR
V I R K S A M K E P P N I
163
kr./stk.
EGILS
APPELSÍN
2 L
399
kr./pk.
BASSETTS
SÆLGÆTI
1 KG 998
kr./kg.
BÚKONU
LAX
GRAFINN
REYKTUR
89
kr./kg.
EPLI
RAUÐ
296
kr./pk.
KLEMEN-
TÍNUR
2.3 KG
899
kr./kg.
BAUTABÚRS
BAYONNE-
SKINKA
Opið til
22
����������
����������������
������������
Oft á hverjum degi stöndum við frammi fyrir því að taka ákvarð-
anir. Þær eru misstórar og misþýð-
ingarmiklar en skipta allar einhverju
máli fyrir okkur sjálf.
ÁKVARÐANIRNAR geta verið
smávægilegar, til að mynda varðað
hvað við eigum að borða og drekka
í það og það skiptið, eða stórar og
afdrifaríkar og varðað líf okkar í
heild sinni. Það er mjög misjafnt
hvernig fólki gengur að taka ákvarð-
anir og jafnframt breytilegt hvers
konar ákvarðanir fólki finnst auð-
veldast að taka.
SUMUM gengur betur að taka
stórar ákvarðanir en litlar. Svo eru
ákvarðanir misstórar í hugum fólks
og skipta mismiklu máli. Flestir eiga
auðvelt með að taka ákvörðun um
hvað þeir ætla að fá sér að borða en
fyrir suma er það heljarinnar mál (á
ég að halda mig við heilsufæðið eins
og ég var búin að einsetja mér eða á
ég að leyfa mér að fá mér þetta súkku-
laðistykki?)
ÉG hef komist að því að það eru
tvær leiðir til að taka ákvarðanir,
tilfinningaleiðin og röksemdaleiðin.
Röksemdaleiðin á við um smærri
ákvarðanir en tilfinningaleiðin um
stóru ákvarðanirnar sem breytt geta
lífi okkar.
ÉG er ein af þeim sem á auðveldara
með að taka stórar ákvarðanir en litl-
ar. Kannski á ég því auðveldara með
að taka tilfinningalegar ákvarðanir
en röksemdalegar? Þegar kemur að
því að taka stórar ákvarðanir, til að
mynda um að flytjast til útlanda eða
skipta um vinnu, leyfi ég hjartanu að
ráða för og treysti því að með því sé
ég að velja rétt.
EIGINLEGA hefur það alltaf verið
þannig hjá mér að þegar kemur að
því að taka stórar ákvarðanir hef ég
nær undantekningarlaust valið að
stökkva frekar en að hrökkva því ég
hef haft það að leiðarljósi að það er
alltaf hægt að snúa við, en ef maður
reynir ekki, veit maður ekki hvað
maður er að fara á mis við.
AUÐVITAÐ hef ég tekið fullt af
ákvörðunum sem voru sennilega ekki
mjög skynsamlegar eða ígrundaðar
og voru eflaust byggðar á reynslu-
leysi og bjartsýni. Þó er ég þeirrar
skoðunar að allar þær ákvarðanir sem
ég hef tekið í lífinu hafi verið réttar
vegna þess að á þeim tíma sem ég tók
ákvörðunina var hún rétt. Ekkert sem
gerst hefur síðan, aukin reynsla eða
þroski, getur haft áhrif á ákvörðun
sem þegar hefur verið tekin.
ÞAÐ má aldrei hugsa: ef ég hefði
vitað það sem ég veit í dag, þá hefði
ég aldrei tekið þessa ákvörðun. Því að
þegar ákvörðunin var tekin, var hún
rétt – og hlýtur því að vera það enn.
Rök og tilfinningar